Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Qupperneq 12
30
tyndbönd
MYHDBjm
H l'
A köldum klaka
Frost á fróni
irk
Friðrik Þór Friðriksson er sá leikstjóri okkar Islend-
inga sem heldur uppi hróðri landsins á alþjóðavettvangi.
Til að gera þessa mynd náði hann samstarfi við aðila frá fimm löndum í
þremur heimsálfum, myndin fer fram á þremur tungumálum og notaðir eru
alþjóðlegir leikarar. Það er því á mörkunum að kalla megi myndina íslenska
en það að hún gerist á íslandi og er með íslenska vetrarnáttúru í aðalhlut-
verki bjargar því. Myndin segir frá Japananum Hirata sem ferðast til íslands
um vetur til að komast að dánarstað foreldra sinna og framkvæma þar helgi-
athöfn. Á leið sinni þangað kynnist hann náttúru landsins og þjóð, ásamt því
aö hitta ýmsa furðufugla og lenda í alls konar vandræðum og ævintýrum.
Myndin er skemmtileg en alls ekki gallalaus. í fyrsta lagi er söguþráðurinn
afar veikburða sem kemur hvað sterkast fram í því að þrátt fyrir ýmsar hlið-
arsögur og landslagsmyndir er myndin aðeins 80 mínútur að lengd. Einnig
er hún fremur innihaldsrýr og hefur litið að segja. Hún er fyrst og fremst
ferðalag á léttum nótum í gegnum afkáralegri þætti íslensks þjóðlífs og oft
nokkuð skemmtileg sem slík. Þá er kvikmyndun á fallegu landslagi vel gerð
og ánægjuleg. Skemmtilegast er að fylgjast með viðbrögðum útlendinganna
við þessu skrýtna landi („very strange country" eru algengustu orðin úr
munni aðalsöguhetjunnar) og sérstaklega eru bandarísku puttaferðalangarn-
ir hressilegir. í heildina er ágæt stemning i myndinni.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson. Aðalhlut-
verk: Masatoshi Nagase. Þýsk/svissnesk/japönsk/bandarísk/íslensk,
1995. Lengd: 80 mín. Bönnuð börnum yngri en 12 ára. ÞJ
Dont Be a Menace...
Svertingjamyndir teknar fyrir **
Wayans-íjölskyldan virðist hafa náð metorðum I
Hollywood, sem er nokkuð merkilegt því að þrátt fyrir
ansi frumlegar hugmyndir hefúr hún aldrei gert al-
mennilega mynd. Hér reynir hún að gera eins og tíska
hefur verið að gera undanfarið, að gera grin að ákveð-
inni tegund mynda, í þessu tilviki svertingjamynda um
líf i fátækrahverfum stórborganna (Boyz in the Hood,
Juice, South Central, Menace to Society). Söguþráðurinn
er samsuða úr söguþræði þessara mynda og nánast
hvert einasta atriði er afbökun á atriði úr einhverjum
þeirra. Eins og áður hjá þeim Wayans-félögmn eru marg-
ar frumlegar og sniðugar hugmyndir en úrvinnslan er
ansi slöpp. Þeir hafa ekki nógu gott auga fyrir tempói, uppbygging brandar-
anna tekur oft of langan tíma og dauðir punktar myndast. Brandaramir sjálf-
ir eru á mörkum þess aö vera fyndnir eða bara asnalegir. Þegar vel tekst til
hjá þeim má hlæja að þessu en oft er þetta ekki meira en brosleg della. Tveir
Wayans-bræður eru í aðalhlutverkum. Annar segir bara setningarnar sínar
og er ekkert fyndinn, hinn ofleikm- svo svakalega að hann er alveg út i hött.
Bestir eru ýmsir aukaleikarar sem taka fyrir persónm úr áðumefhdum
myndum, oft með ágætum árangri. Til að hafa eitthvert gaman af myndinni
er nauðsynlegt að hafa horft á einhverjar af þessum myndum sem teknar em
fyrir, annars missir sá húmor sem þó er fyrir hendi algjörlega marks.
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Paris Barclay. Aðalhlutverk: Shawn Wayans
og Marlon Wayans. Bandarísk, 1995. Lengd: 91 mín. Bönnuð börnum inn-
an 12 ára. PJ
irk
m is
Q< _/W.M 6 IGOT
La Reine Margot
Valdatafl og trúarstríð
Queen Margot er evrópskt samstarfsverkefhi og er
mikið lagt i hana. Hún er gerð eftir skáldsögu nítjándu
aldar skáldsins Alexandre Dumas. Sagan gerist á 17. öld
í Frakklandi. Mikil spenna er i landinu vegna siðaskipt-
anna, enn eru kaþólikkar við völd, en mótmælendur
sækja á. Á konungsstóli er veiklundaður sjúklingur en
á bak við tjöldin stjórnar móðir hans og hún reynir að
friða andstæðinga sina með því að gifta Margréti, dótt-
ur sína, einum helsta leiðtoga andstöðunnar, Henry frá
Navarre, en flestir, bæði I röðum kaþólikka og mótmæl-
enda, eru mótfallnir ráðahagnum. í kjölfarið sýður upp
úr, þúsundum mótmælenda er slátrað í París og frið-
samleg lausn virðist útilokuð. Margrét verður ástfangin af einum af bylting-
armönnum mótmælenda og bjargar honum frá slátruninni en á meðan er
Henry handtekinn og neyddur til að taka kaþólska trú. Við tekm- mikið
valdatafl þar sem hver höndin er uppi á móti annarri, ekki hara milli mót-
mælenda og kaþólskra heldur einnig innanflokkserjur í herbúðum hvorra
um sig. Myndin er löng, enda söguþráðurinn nokkuð flókinn og sögupersón-
ur margar. Hér er mikil dramatík i gangi og myndin verður oft æöi tilgerð-
arleg í tilraunum sínum til að slá út Hollywood-stórmyndir, en umgjörðin
er fagmannleg og mörg atriði vel gerð. Þá eru fínir leikarar í aðalhlutverk-
um, sérstaklega er Jean-Hugues Anglade i ham í hlutverki ofsóknarbrjálaðs
konungsins.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Patrice Chereau. Aðalhlutverk:
Isabelle Adjani, Daniel Auteuil, Jean-Hugues Anglade, Vincent Peres og
Virna Lisi. Frönsk/þýsk/ítölsk, 1994. Lengd: 138 mín. Bönnuð börnum
innan 16 ára. -PJ
Search & Destroy
Lúðinn Martin
irki.
MSt
Þessi mynd segir frá erkilúðamun Martin. Fyrirtæki
hans er á hausnum og skuldar háar fjárhæðir í skatta og
eiginkona hans vill lítið með hann hafa. Hann er mikill
aðdáandi heimspekings nokkurs og ákveður að gera kvik-
mynd eftir metsölubók hans. Þar sem hann hefur enga
reynslu af kvikmyndaheiminum og á ekki krónu reynist
ætlunarverk hans nokkuð erfitt. Til að reyna að afla fjár
til að kaupa kvikmyndaréttinn að bók átrúnaðargoðsins
leitar hann ásjár hjá manni sem hann heldur að sé fikni-
efnasali. í ljós kemur að maðurinn er bara venjulegur
verslunarmaður en þekkir samt vafasamt fólk og ákveður
að hjálpa Martin svolítið. Ætli það sé nokkur þörf á því að rekja þetta leng-
ur. I stuttu máli er söguþráðurinn ólíkindalegur og hefði getað verið mjög
skemmtilegur ef hann hefði verið betur skrifaður og leitt til einhveijar nið-
urstöðu. Hins vegar eru stórleikarar í ýmsum aukahlutverkum, svo sem
Christopher Walken, Dennis Hopper og John Turturro, sem lífga svolítið upp
á myndina og gera hana þess virði að horfa á. Best er þó Illeana Douglas.
Hún leikur einkaritara heimspekingsins sem er með subbulegar B-hryllings-
myndir á heilanum og dundar sér við að skrifa handrit að svoleiðis myndum
í fritíma sínum.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: David Salle. Aðalhlutverk: Griffin
Dunne, llleana Douglas og Christopher Walken. Bandarísk, 1994. Lengd:
87 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 TR’XZ’
Myndbandalisti vikunnar
^4T—15-Ur- SÆTI f FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. : i TEG.
1 1 . 4 I 2 . sgt. bíico : i ClC-myndbönd ,• Gaman
2 ; 3 i : 3 ; t Primal Fear ClC-myndbönd Spenna
3 8 2 1 f Juror Skífan 1 Spenna
4 n» 1 4 | t Money Train Skífan I Spenna
5 : 2 5 Executive Decision , . . ■ . - - » Warner -myndir J Spenna
! 6 r 5 raoBRI 3 ; Down Periscope Skífan r Gaman
1 7 J 7 4 : NickofTime r CfC-myndbönd , Spenna
» : j io 7 i MMSBW; Birdcage Warner-myndir Gaman
LLJ 6 4 í Dead Presidents t Sam-myndbönd Spenna
10 i 17 ; ■mmN Before and After 3 J Sam-myndbönd Spenna
Ný 1 j Don't be a Menace Skrfan j Gaman
.2 j B , 4 : WBBHRBBBBBBm Santa Clause ) Sam-myndbönd Gaman
> NÝ 1 American Quilt ClC-myndbönd Drama
14 j piiyPín 9 5 ] Vampire in Brooklyn ClC-myndbönd Gaman
15 11 4 Í Dracula: Dead and Loving it háskólabíó Gaman
M ;! - J NÝ - i 1 i Home for the Holydays Háskólabíó Gaman
17 ; 13 9 i Broken Arrow r Skífan Spenna
18 !! l 14 5 1 Rumble in the Bronx Skífan J QifQlii:!® Spenna
» ný : 1 í Slam Dunk Ernest ; Bergvík Gaman
mmmn i > Nf ; bbsbééI i \ Dentist Myndform Spenna
Steve Martin nýtur töluverðra vin-
sælda eins og sjá má á því að mynd
hans, Sgt. Bilko, hrifsar til sín efsta
sæti iistans, fer úr því fjórða í það
fyrsta og hefur sætaskipti við
spennumyndina Money Train. í
þriðja sæti listans er einnig mynd
sem tekur stórt stökk. Er það
spennutryllirinn The Juror með
Demi Moore og Alec Baldwin í aðal-
hlutverkum. Á myndinni er Demi
Moore í hlutverki kviðdómanda sem
sakborningur reynir að fá á sitt
band. Fimm nýjar myndir koma inn
á listann en
engin fer
hærra en í
ellefta sæti.
En búast
má þó við
að jóla-
myndirnar
Home for
the Holida-
ys og Santa
Clause fari
ofar á list-
ann.
STEVE MARTIN
SGIBELKÐ
Sgt. Bilko
Steve Martin og
Dan Aykroyd.
Bilko liðþjálfi hef-
ur á einhvern óskýr-
anlegan hátt tekist
að koma sér fyrir
innan hersins á allt
annan hátt en aðrir
liðþjálfar. Honum
hefur tekist að safna
um sig liði sem í stað
þess að læra her-
kúnstir hefur lært
veðmála- og íjár-
hættuspilaklæki og
listina að skjóta sér
undan ábyrgð. 1 her-
skálanum hefur ver-
ið komið upp þægi-
legri aðstöðu til að
reka spilaviti. Dag
einn er öllu stefht í
voða þegar gamall
„kunningi" Bilkos,
Thom major, kemur
í skoðunarferð.
Primal Fear
Richard Gere og
Edward Norton
Dag einn er imgur
altarisdrengur hand-
tekinn á flótta eftir
hrottalegt morð á
biskupi borgarinnar.
Refurinn Martin Veil
þykir með snjöllustu
lögfræðingum horg-
arinnar og hann sér
þarna frábært tæk-
ifæri tO að komast í
sviðsljósið og sækist
þvi eftir að gerast
verjandi pOtsins.
Málið verður þó
flóknara en hann
hélt í byrjun þar sem
þaö er eitthvað í fari
pOtsins sem segir að
hér séu maðkar í
mysunni. Hann hef-
ur því sína eigin
rannsókn á málinu.
The Juror
Demi Moore og
Alec Baldwin
Annie er einstæð
móðir sem dag einn
fær boð um að gefa
kost á sér í kviðdóm
i máli gegn alræmd-
um glæpaforingja
sem aOir vita aö er
sekur. Glæpaforing-
inn sendir sinn besta
mann tO að hafa
áhrif á einhvem
kviðdómanda og
verður Annie fyrir
valinu. Útsendarinn
er snjaO og myndar-
legur og veit ná-
kvæmlega hvemig á
að fara að Annie en
t>egar Annie gerir sér
grein fyrir hvernig
komið er fyrir henni
er hún orðin hættu-
legt vitni og því
nauðsynlegt að ryðja
henni úr vegi...
Money Train
Wesley Snipes
og Woody
Harrelson
Þeir frægu leikar-
ar Wesley Snipes og
Woody Harrelson
leika vini sem eiga
sér þann draum að
ræna „peningalest-
ina“ en það er sú lest
sem safhar saman
peningum af neðan-
jarðarjámbrautar-
stöðvum i New York.
En ekki er nóg með
að það sé mjög erfitt,
það gerir málið enn
flóknara að þeir em
lögreglumenn. Stóra
vandamálið er þó
yfirmaður þeirra en
hans stolt er að
aldrei hefur þessi
lest verið rænd og
hann mun verja
hana með kjafti og
klóm.
KURI HUSSHl
DECISION
SlfttN SjfiCAi
^ ■ j
‘M..... o
Executive
Decision
Kurt Russell og
Steven Seagal
Hryðjuverkamenn
hafa náð Boeing 747
þotu á sitt vald og
eru með óaðgengOeg-
ar kröfur. Um borð
er öflug sprengja og
er ekki bara líf alira
farþega í hættu held-
m- 40 miOjóna manna
sem búa á austur-
strönd Bandaríkj-
anna því sprengjan
er fyOt með tauga-
gasi sem fer út í and-
rúmsloftið. Eina færa
leiðin tO að koma í
veg fyrir þessa hættu
er að lauma um borð
sex manna liði með-
an véiin er á flugi og
afvopna hryðju-
verkamennina.