Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Síða 12
26 tyndbönd MYNDBAm i m O'/M Hollow Reed Forræðisdeila Miödepill myndarinnar er Oliver, níu ára strákur sem býr hjá fráskilinni móður sinni, Hannah, og sambýlismanni hennar, Frank. Martyn faðir hans er yfirlýstur hommi og er í sambúð með öðrum manni. Hannah hefur for- ræðið yfir syni sínum, en Martyn hefur takmarkaðan umgengnisrétt. Þegar Martyn fer að gruna að ekki sé allt með felldu á heimili fyrrum konu sinnar sækir hann um forræði yfir syni sínum og sakar Frank um að misþyrma honum. Myndin fjallar á afar nærgætinn hátt um erfið átök og tilfinningamál og gerir sig hvergi seka um væmni, óraunsæi eða melódramatík. Hún dregur sérstaklega vel fram og útskýrir hegðun stráksins og almennt er persónusköpun með besta móti, þótt Frank sé reyndar stundum illskiljanlegur. Úrvalsleikarar eru í hverju hlutverki og sérstaklega er gaman að sjá Martin Donovan, einn af uppáhaldsleik- urum Hal Hartley, sem leikur fóðurinn af miklu öryggi. Þá er ótrúlegt að fylgjast með hinum unga Sam Bould, sem er mjög áhrifamikill í hlut- verki Olivers, en Joely Richardson, Ian Hart og Jason Flemyng sýna einnig afburðaleik. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Angela Pope. Aðalhlutverk: Martin Donovan, Sam Bould, Joely Richardson, lan Hart og Jason Flemyng. Bresk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára. -PJ Where Truth Lies Sálfræðingatryllir ★ John Savage leikur sálfræðinginn Ian Lazarre, sem á við þunglyndi og áfengisvandamál að striða eftir dauða eiginkonu sinnar sem fórst í bílslysi. Lög- fræðingur hans og besti vinur leggur hann inn á hæli þar sem undarlegar starfsaðferðir eru stundað- ar og yfirlæknirinn virðist varla með öllum mjalla, en hann er leikinn af Malcolm McDowell. Ian er þjakaður af martröðum og í gegnum þær kemst hann smám saman að því að besti vinur hans er óþokki sem drap konuna hans. Hann strýkur af hælinu og fer og drepur fyrrum vin sinn. Eins og sést af ofan- sögðu er söguþráðurinn vægast sagt bjánalegur. Handritshöfúndurinn skýtur langt yfir markið og býr til óspennandi bull, sem þar að auki er ákaflega fyrirsjáanlegt. Við vitum hver vondi kallinn er nánast alveg frá byrjun og draumarugl aðalsöguhetjunnar er ekki þesslegt að vekja áhuga. Sorglegt er að sjá þann góða leikara John Savage, sem ekki virð- ist hafa fengið almennilegt hlutverk síðan einhvern tíma á áttunda ára- tugnum og þá virðist Malcolm McDowell vera fastur í hlutverkum hrokafullra geðsjúklinga. Hann heldur að vísu ögn aftur af sér í þessu hlutverki og er fyrir vikið skástur af fremur flötum leikarahóp. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: William H. Molina. Aðalhlutverk: John Savage, Malcolm McDowell og Kim Cattrall. Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ The Quest ★* Bardagmenn reyna með sér Belgíska buffið Jean-Claude Van Damme hefur náð forustuhlutverki í flokki slagsmálamynda í Hollywood og nýtti sér áhrif sín með því að fá að leikstýra þessari mynd. Hann leikur jafnframt aðal- hlutverkið, götustrákinn Dubois, sem villist ofan í skip, vaknar úti á rúmsjó og er tekinn höndum sem laumufarþegi. Eftir mikil ævintýri, þar sem hann m.a. kemst í kynni við sjóræningjaskipstjóra nokkum (Roger Moore) og er þjálfaður í bardagalist á lítilli eyju í Kyrrahaflnu, tekur við aðalævintýrið, keppni bestu bardagamanna heims, þar sem öll flott- ustu slagsmálin eiga sér stað og er formið í ætt við slagsmálatölvuleiki eins og Mortal Kombat. Þrátt fyrir bjánalegan söguþráð og lélegan leik er umgjörðin að öðru leyti i lagi og húmor hér og þar bjargar því að myndin er aldrei afspymuleiðinleg. Þá em bardagasenurnar oft ágæt- ar, sérstaklega er einn af keppendunum góður, en bardagastíll hans er í ætt við ýmiss konar dýr. Bufflð ætti að tékka á nokkrum Charlie Chan myndum, sem gerir sér fyllilega grein fyrir því að hann er að skemmta áhorfandanum. í slagsmálamyndum er það dauðadómur að taka sig alvarlega, og mikið grín nauðsynlegt til að gera myndimar þesslegar að maður nenni að horfa á þær. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Jean-Claude Van Damme. Aðalhlut- verk: Jean-Claude Van Damme og Roger Moore. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ Mission: Impossible Fyrsta flokks afþreying ★★★ Myndin byggir (lauslega) á frægum og vinsælum sjónvarpsþáttum sem gerðir voru fyrir tæpum þremur áratugum. Nú er öldin önnur og tæknin gerir kvik- myndagerðarmönnunum kleift að gera allt miklu svakalegra en nokkuð það sem sást í sjónvarpsþáttun- um gömlu. Tom Craise leikur Ethan Hunt, leyniþjón- ustumann sem missir alla meðlimi hóps síns í mis- heppnuðu verkefni í Prag, og er í kjölfarið sakaður um svik. Hann kemst undan útsendurum stjórnvalda, fær til liðs við sig nokkra uppgjafamjósnara og hefst handa við að hreinsa nafn sitt, en til þess þarf hann m.a. að bijótast inn í höfuðstöðvar CIA og komast í móðurtölvu þeirra, sem er falin í algjörlega (?) þjófheldri hvelfmgu. Söguþráðurinn er ágæt- is brandari, en mesti brandarinn er kannski sá að ýmsir voru hræddir um að hann væri of flókinn fyrir bandarískan almenning (sem í reynd er náttúrlega alvarlegt mál, ef satt er). Leikarar standa sig nógu vel, hasarinn er tilþrifamikill og þá sérstaklega tæknibrellumar, og tónlist- in skapar akkúrat þá stemningu sem myndin þarf. Myndinni tekst ná- kvæmlega það sem hún ætlar sér, að skemmta áhorfandanum. Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Brian De Palma. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Emmanuel Beart og Jon Voight. Bandarísk, 1995. Lengd: 106 mín. Bönnuð börnum innan 12 ára. -PJ r i FOSTUDAGUR 7. FEBRUAR 1997 28.jan. til 2.feb. SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILl ÚTGEF. TEG. NÝ 1 Mission Impossible ClC-myndbönd Spenna 2 1 4 Rock Sam-myndbönd Gaman 3 4 2 Fargo Háskólabíó Gaman Jggggj £ 4 msm 2 3 BmmE Bt:Sf - : ; t, Cable Guy Skrfan Spenna 5 9 2 Spy Hard Sam-myndbönd Spenna 6 13 -* i 4 Happy Gilmore ClC-myndbönd Spenna 7 ; 10 2 Truth about Cats and Dogs Skífan Spenna NÝ 1 The Quest Myndform .. * Gaman 9 6 3 Mullholland Falls Myndform Gaman 10 ■ >. .Ék 5 . : Trainspotting Warner-myndir . ii f't Gaman 11 8 7 Kingpin Sam-myndbönd Gaman 12 7 7 r- í P, BB Copycat Warnor -myndir Spenna 13 18 2 It Takes Two Sam-myndbönd Spenna 14 14 2 White Man Sam-myndbönd Spenna 15 ii ; 9 Sgt. Bilco ClC-myndbönd Spenna 16 13 7 From Dusk till Dawn Skífan Spenna 17 ; 15 10 Primal Fear ClC-myndbönd 1 Gaman 18 12 9 , Juror mSKBKKHSBBBSL Skífan ■HRBI Gaman 19 20 8 Don't be a Menace Skífan Spenna 20 17 10 Down Periscope Skífan Gaman Það fór eins og flestir bjuggust við, Mission: Impossi- ble tók markaðinn með trompi og settist í efsta sæti listans og lætur það varla af hendi á næstunni. Á myndinni er aðalleikari myndarinnar, Tom Cruise, í miklum darraðardansi. Ein ný mynd önnur kemur stormandi inn á listann, er það The Quest, mikil has- armynd sem gerist í byrjun aldarinnar og nær sögu- sviðið frá Kaliforníu til Himalajafjalla í Tíbet. Aðalhlut- verkið leikur Jean-Claude Van Damme og er hann einnig leikstjóri. Meðal mótleikara hans er Ftoger Moore, sem gerði garðinn frægan sem James Bond. Að öðru leyti eru ekki miklar breytingar á listanum. Mission: Im- possible Tom Cruise og Jon Voight Um skeið hefur CIA haft grun um að einhver innan leyni- þjónustunnar sé að selja hátæknileynd- armál. Njósnarinn Ethan Hunt og hans fólk er að undirbúa að afhjúpa bæði svik- arann og kaupand- ann. Allt gengur samkvæmt áætlun þar til aðgerðinni er að ljúka, þá fer allt úrskeiðis og allir eru drepnir nema Hunt. Fljótlega áttar Hunt sig á að hann er orð- inn hinn grunaði, enda sá eini sem eft- irlifandi er sem vissi um aðgerðina. The Rock Sean Connery og Nicolas Cage Snjöllum her- manni tekst ásamt mönnum sínum að ná völdum í Alcatr- az- fangelsinu. Hann hótar að varpa öfl- ugu efnavopni á San Francisco þar sem fimm milljónir manna búa. Eina færa leiðin virðist sú að senda menn inn í Alcatraz og freista þess að aftengja sprengjumar og ráða niðurlögum óvinar- ins og er ákveðið að kalla til aðstoðar eina manninn sem hefur tekist að brjót- ast út úr fangelsinu. mioss wiuiaí; s UoSOKUJS R. iuCI BOSOm PÁRGÖ t 4 Fargo Frances McDormand og Steve Buscemi Uppburðarlitill bílasali hefúr komið sér í skuldasúpu. Til að bjarga málum fær hann tvo krimma til að ræna eiginkonu sinni og eiga þeir að krefja forríkan tengdaföður um lausnarfé. Þegar krimmamir drepa lögreglumann og tvo saklausa vegfarend- ur fer málið langt út fyrir það sem bílasal- inn ætlaði. Það kem- ur í hlut lögreglu- stjórans í Fargo, hinnar kasóléttu Marge, að rannsaka máhð. Brátt tekst henni að tengja milli morðanna og eigin- konuhvarfsins. The Cable Guy Jim Carrey og Matt- hew Broderick Steven Kovacs ætl- ar að svindla á kerf- inu og múta kapal- manninum og þannig fá nokkrar sjónvarpsrásir fríar inn í íbúð sína. Kap- almaðurinn sem hann fær er ekki rétti maðurinn til að múta. Þess í stað gef- ur hann sterklega til kynna að hann hafl ekkert á móti því að eignast Kovacs fyrir vin. Kovacs líst ekk- ert á þá hugmynd, enda finnst honum kapalmaðurinn vera hinn mesti furðu- fugl, en hann kemst fljótt að þvi að kapal- maðurinn veit ekki hvað nei þýðir. Spy Hard Leslie Nielsen og Nicolette Sheridan Njósnaranum WD- 40 er falið að stöðva grimmileg áform handalausa hryðju- verkamannsins Rancors sem í enda- lausri brjálsemi sinni ætlar sér ekk- ert minna en heims- yflrráð, í myndinni er einnig komið inn á persónuleg tengsl WD-40 við hinar og þessar persónur inn- an og utan leyniþjón- ustunnar, til að mynda er hulunni svipt af leyndar- dómnúm um dular- gervi yfirnjósnarans í CIA og yfirmanns WD-40.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.