Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
IÞROTTIR
21
Getraunir:
Enski
boltinn
112111 222x1x2
Lottó 5/38:
4 51819 35(9)
iiiil/tfii/tlii/tliiíi/iiíifilíifiií
Birkir ólöglegur
gegn Liverpool
- vegna mistaka hjá stjórn Brann sem fer á fund UEFA í vikunni
Norska blaðið Dagbladet skýrði
frá því um helgina að Birkir Krist-
insson, landsliðsmarkvörður í
knattspymu, fengi ekki að spila
með Brann í Evrópuleikjunum
gegn Liverpool í næsta mánuöi
vegna mistaka hjá stjóm félagsins.
Sama gildir um annan af lykil-
mönnum norska liðsins, Jan Ove
Pedersen.
Þeir Birkir og Pedersen vom
lánaðir í vetur, Birkir til Birming-
ham í Englandi og Pedersen til
Cercle Bmgge í Belgíu. Það var
gert með þeim skilyrðum að þeir
væm lausir í tæka tíð fyrir Evr-
ópuleikina.
Þann 15. janúar rann út sá frest-
ur sem félög sem komin voru
áfram í Evrópukeppninni höfðu til
að bæta tveimur nýjum leikmönn-
um í hóp sinn. Brann gerði það og
hafði þar með lokað dyrunum á
Birki og Pedersen.
Enginn munur á láni og
sölu
Samkvæmt reglum UEFA er
neöiilega ekki gerður greinarmun-
ur á því að lána leikmann og selja
hann. Birkir og Pedersen vora
ekki skráðir hjá Brann þann 15.
janúar og þar með era þeir ólögleg-
ir í Evrópukeppninni.
Lið Brann hefur undanfama
viku dvalið í æfingabúðum í Suð-
ur-Afríku og er væntanlegt þaðan í
dag. Dagbladet ræddi við Birki í
Jóhannesarborg og hann var
óhress með þessar fréttir:
Heföi aldrei fariö til
Birmingham, segir Birkir
„Þetta er það versta sem ég hef
Birkir Kristinsson er aö vonum sár
yfir þvf aö fá ekki aö mæta Liver-
pool
heyrt. Ég fór til Birmingham í sex
vikur með því skilyrði aö það hefði
engin áhrif á þátttöku mína í Evr-
ópukeppninni. Ég hefði aldrei farið
tU Englands ef ég hefði vitað að
þetta gæti gerst. Leikimir við
Liverpool áttu að vera hápunktur-
inn á mínum ferli,“ sagði Birkir
við Bergens Avisen.
Heföum aldrei leigt
leikmennina
Kjell Tennfjord, þjálfari Brann,
segir að þeir Birkir og Pedersen
hefðu aldrei verið leigðir ef honum
hefði verið þessi staða ljós.
„Það þýðir ekki að fara að skella
skuldinni í þessu máli á einhvem
en það sýnir okkur að ekki einu
sinni norska knattspymusamband-
ið, sem við leituðum ráða hjá, er
með reglumar á hreinu. Það er
kannski hægt að segja að við hefð-
um átt að kanna málið sjálfir hjá
UEFA en það er alltaf hægt að vera
vitur eftir á. Mistökin vora að
leigja leikmennina, fresturinn til
15. janúar skipti ekki máli því ef
við hefðum þá tilkynnt Birki og
Jan Ove hefðu hinir tveir ekki ver-
ið löglegir. Niðurstaðan er sú að
okkur vantar tvo menn í hópinn og
það gæti reynst afdrifaríkt, sér-
staklega í seinni leiknum við
Liverpool," sagði Tennfjord við
Dagbladet.
Stjórnarmenn Brann til
fundar viö UEFA
Stjómarmenn Brann hafa ekki
gefið upp vonina um að fá þá Birki
og Pedersen löglega. Þeir ætla að
ganga á fúnd stjómar Knattspymu-
sambands Evrópu í Genf síðar í
vikunni og óska eftir því að þeir
þurfi ekki að gjalda þessara mis-
taka. Það er hins vegar talið ólík-
legt að sú för skili einhverjum ár-
angri. -DVÓ/VS
Martin kemur
í Stjörnuna
Stjaman hefur gengið endan-
lega frá samkomulagi við enska
knattspymumanninn Dean
Martin um að hann leiki með lið-
inu í 1. deildinni í sumar. DV
skýrði frá því fyrr i vetur að það
stæði til.
Martin hefur spilað með KA
tvö undanfarin sumur en leikur
nú með liöi í Hong Kong. Þar
hefur honum gengið mjög vel og
er aö spila þessa dagana með úr-
valsliði 1. deildarinnar í Hong
Kong á alþjóðlegu móti í borgrík-
inu. Hann skoraði meðal annars
mark gegn Sviss í fyrsta leik
mótsins.
Martin er væntanlegur til
Garðabæjarliðsins í maí, rétt
fyrir íslandsmótiö.
Frjálsar:
16
ára
stökk
2,11
- sjá bls. 26
Ungverska
stúlkan
var best
Adrian Hegedus fra
Ungverjalandi sigraði a
fyrsta alþjoölega
tennismotinu her a landi
sem lauk i Kopavogi a
laugardaginn.
- sjá bls. 26
DV-mynd PÖK
Nýr Kani
tilKR
ígær
KR-ingar fengu í gærmorgun til liðs við sig nýj-
an bandarískan körfuknattleiksmann, Roney
Eford að nafni. Hann leysir af hólmi Geoff Her-
man, sem KR-ingar sögðu upp störfum á dögunum,
og var löglegur fyrir leikinn við Þór á Akureyri í
gærkvöldi.
Eford lék í vetur með þýska 1. deildar liðinu
Bayerath og útskrifaðist síöasta vor frá Marquette
háskóla í Milwaukee sem er 1. deildar háskóli í
Bandaríkjunum. Hann á að vera mjög fjölhæfur
leikmaður sem spilar ýmist sem bakvörður og
framherji.
„Mér líst vel á piltinn og vona að viö séum
heppnir í þetta skiptið," sagði Hrannar Hólm,
þjálfari KR-inga, í samtali við DV í gær.
-VS
Emma bætti
heimsmetið
í áttunda sinn
Emma George frá Ástralíu bætti á laugardaginn
heimsmet sitt í stangarstökki kvenna í áttunda
skipti á 15 mánuðum. Emma sveif yfir 4,50 metra
á móti í Sidney og bætti met sitt um fimm senti-
metra.
Vala Flosadóttir stökk sem kunnugt er 4,20
metra í Laugardalshöllinni í síðasta mánuði og
setti með því heimsmet unglinga, Norðurlanda- og
íslandsmet og Daniela Bartova frá Tékklandi setti
þá Evrópumet með því að stökkva 4,40 metra. -VS