Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Síða 3
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
23
Stjarnan (14)26
Vigo (12) 28
1-0, 3-1, 4-4, 7-8, 11-8, 11-11 (14-12),
16-12,19-15, 24-17, 24-24, 25-24, 26-26,
26-28.
Mörk Stjömunnar: Valdimar
Grímsson 8/1, Konráð Olavsson 6,
Jón Þórðarson 4, Hilmar Þórlindsson
3, Sigurður Viðarsson 3, Magnús A.
Magnússon 2.
Varin skot: Axel Stefánsson 14/1.
Mörk Vigo: Javier Valenzuela 9/4,
Oleg Lvov 4, Reben Pena 4, Femando
Bolba 4, Julio Munoz 3, Júrí Nesterov
2, Carlos Gayo 1, Juan Jose Panadero
1.
Varin skot: German Muinos 5,
Juan Lopez 7.
Brottvísanir: Stjaman 10 mín.
(Magnús A. Magnússon rautt fyrir
þijár brottvísanir), Vigo 2 min.
Dómarar: Abrahamsen og
Kristiansen frá Noregi, dæmdu vel og
vom ekki að dæma heimaliðinu í hag
eins og oft tíökast í alþjóðlegum
handbolta.
Ahorfendur: 320. Garöbæingar fá
skammir fyrir lélegan stuðning við
sína menn.
Iþróttir
Þjálfari Vigo:
Leist ekki
á blikuna
í seinni
hálfleiknum
„Við vorum alveg búnir að
búa okkur undir erfiðan leik og
það kom á daginn. Stjarnan lék
vel og mér var ekki farið að lít-
ast á blikuna í síðari háifleik. En
við héldum haus og náðum sem
betur fer að snúa leiknum okkur
í vil.
Ég vil ekki segja við séum
komnir áfram. Þaö getur ýmis-
legt gerst í handbolta eins og
sannaðist í þessum leik og við
verðum að leika vel á heimavelli
til að vinna Stjömuna. Við
þekktum til Valdimars Gríms-
sonar og Konráðs Olavssonar og
þeir voru að mínu mati bestu
menn Stjömunnar í þessum
leik,“ sagði Javier Barrios, þjálf-
ari Vigo, við DV eftir leikinn.
Brynjar Kvaran:
Þeirra veikleiki
varð okkar
„Við emm með of reynslu-
mikla menn til þess að geta hent
svona leik frá okkur trekk í
trekk og ég get einfaldlega ekki
sætt mig við það. Við erum ekki
nógu klókir, tökum allt of stuttar
sóknir og erum í raun að spila
ekta spánskan handbolta þar
sem það er keyrt á sama hraða,
alveg sama á hverju gengur. Við
töldum svona spilamennsku
vera þeirra veikleika en svo
kemur í ljós að þeirra veikleiki
er okkar.
Við vomm mjög sáttir í hálf-
leik og ég tala nú ekki um fyrsta
korterið í þeim síðari og vomm
komnir með mjög vænlega
stöðu. Það var skelfilegt að geta
ekki tekið leikhlé og reynt
þannig að róa mannskapinn. Það
var margt mjög gott í leiknum.
Vömin heppnaðist vel og við
spilum glimrandi góðan sóknar-
leik í þrjú korter. Auðvitað verð-
ur á brattann að sækja í síðari
leiknum fyrst þetta fór svona en
ef við skoöum þessi þrjú korter
þá erum viö að spila miklu bet-
ur. Ef við fáum hlutlausa dóm-
gæslu eins og í þessum leik á
Spáni er alveg möguleiki á að
vinna sigur.
Mér sýnist þetta vera tvö jöfh
lið og ég get ekki séð annað en
aö við eigum helmingsmögu-
leika á að fara áfram. Við mun-
um koma í síöari leikinn til að
hafa mjög gaman af þessu og
skemmta okkur,“ sagði Brynjar
Kvaran, liðssljóri Stjömu-
manna, við DV eftir leikinn.
-GH
Einar Einarsson, fyrirliði Stjörnunnar:
„Héldum ekki einbeitingu"
„Ég er eins og gefur að skilja rosalega svekktur með úrslitin í þessum
leik. Við vomm með 7 mörk yfir en þá var eins og menn hættu og héldu
að leikurinn væri búinn. Við fórum að ljúka sóknunum allt of snemma
og Spánverjamir vora fljótir að refsa okkur. Þetta er munurinn á
atvinnumannaliðum og áhugamannaliðum. Spánverjamir spiluðu eins
allan tímann og héldu einbeitingu en við ekki.
Ef við hefðum haldið einbeitingu hefðum við kláraö leikinn meö 6-7
marka mun. Auðvitað er líkumar ekki svo miklar á að við komust áfram
en það á aldrei að segja aldrei. Við fórum í seinni leikinn til að komast
áfram,“ sagði Einar Einarsson, fyrirliði Stjömunnar. -GH
Valdimar Grímsson:
„Græögin okkar eigin bani“
„Það er ótrúlegt hvað maður þarf að láta þetta Uð ganga í gegnum til þess að
átta sig á þvi hvemig á að halda forystu. Þetta er ekki fyrsti leikurinn þar sem
við erum að kasta frá okkur glæsum sigrum. Það er eins c® það komi túrbina i
rassgatið á okkur um leið og við komust 3-4 mörk yfir. Okkar versti óvinur er
aö geta ekki spilað af sjálfsró og haldið haus. í stöðunni 24-17 förum við að taka
óskynsamleg skot og klúðra dauöafáerum þar sem mér fannst menn ekki vera að
leggja sig fram. Við spiluðum tvo leiki í Austurríki í 16-Uða úrsUtunum. Þar unn-
um við annan leikinn með 9 mörkum og töpuðum hinum með tveimur þannig
að ég segi að það sé aUt hægt Við vorum hins vegar með með 4-Uða iirsUtin í
hendi okkar en því miöur var græcfein okkar eigin bani. -GH
Valdimar Grímsson, þjálfari og leikmaður Stjörnunnar, er hér aö brjóta sér leiö fram hjá Rússanum Oleg Lvov og skora eitt af 8 mörkum Stjörnunnar gegn
Octavio Vigo f fyrri leik í liöanna í 8-iiöa úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik í Garöabæ á laugardaginn. DV-mynd ÞÖK
Stjarnan-Octavio Vigo í 8-liða úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik:
Martröð Stjörnunnar
síðasta korterið
- missti niður sjö marka forskot á 11 mínútum og tapaði leiknum
Stjömumenn fóra afar illa að ráði
sínu gegn spænska Uðinu Octavio
Vigo í fyrri leik Uðanna í EHF-
keppninni í handknattleik í Garðabæ
á laugardaginn. Stjaman var með
kolunninn leik í höndunum en á
ótrúlegan hátt missti liðið niður sjö
marka forskot sem það hafði náð
eftir 10 mínútna leik í síðari hálfleik
og tapaði leiknum, 26-28.
Stjömumenn höfðu tveggja marka
forskot í fyrri hálfleik og vora nokk-
uð sáttir við gang mála í leikhléinu.
í upphafi síðari hálfleiks náðu
Sfjömumenn frábærum leikkafla og
Spánverjamir vissu vart hvaðan á þá
stóð veðrið. Þegar 12 mínútur vora
Uðnar af síðari hálfleiknum var stað-
an orðin 24-17 og bjartsýnustu menn
vora famir að sjá liðið eiga greiða
leið í undanúrsUtin. En síðasta
korteriö breyttist í skelfilega
martröð fyrir Stjömuliðiö þar sem
leikur Uðsins hrundi eins og spila-
borg. Stjaman skoraði ekki mark í
heilar 11 mínútur og Spánverjamir
gengu á lagið og breyttu gjörtöpuð-
um leik sér í vil. Þeir hreinlega völt-
uðu yfir Garðbæinga á lokakaflan-
um, skoraðu 11 mörk gegn 2 og
tryggðu sér tveggja marka sigur.
Það er erfitt að gera sér í hugar-
lund hvað gerðist í herbúðum
Stjömuliðsins síðasta korterið í
leiknum. Liðið var búið að leika
skínandi vel í 45 mínútur en í stað
þess að leika yfirvegað með þetta
góða forskot í veganesti gerðu leik-
menn Stjömunnar sig seka um ótrú-
lega mörg mistök. Þeir spiluðu stutt-
ar sóknir, skutu úr lélegum færum
og óðagotið var algjört í leik þeirra.
Það var slæmt fyrir liðið að missa
Magnús A. Magnússon út af með
rautt spjald þegar 14 mínútur vora
eftir enda Magnús sterkur í vöminni
og sprækur á línunni. Þá klipptu
Spánveijamir á Valdimar Grímsson
og við það kom mikið óöryggi í sókn-
arleikinn og það var eins og leik-
menn liðsins færa hreinlega á taug-
um. Þeir gerðu hverja vitleysuna á
fætur annarri og vöknuðu upp við
vondan draum eftir að Spánveijam-
ir höfðu skorað 7 mörk í röð og jafn-
að leikinn.
Eins og áður er sagt geta Sfjömu-
menn verið mjög ánægðir með leik
sinn í 45 mínútur. Þeir léku þá mjög
góða 5:1 vöm sem gaf þeim möig
mörk úr hraðaupphlaupum, Axel
stóð sig vel í markinu og sóknarleik-
urinn gekk vel. Ef Sljömumenn
hefðu haldið vel á spilunum hefðu
þeir fagnað öraggum sigri og átt þar
með góða möguleika á að tryggja sér
sæti í undanúrslitunum því þetta
spánska lið var ekki eins sterkt og
menn reiknuðu með.
Axel Stefánsson stóð fyrir sínu á
milli stanganna en hann var ekki öf-
undsverður síðasta korterið þegar fé-
lagar hans höfðu lagt upp laupana í
vöminni og gefið Spánveijunum
hvert hraðaupphlaupið á fætur öðra.
Valdimar og Konráð léku vel en mað-
ur hefði viljað sjá þessa leikreyndu
leikmenn koma lagi á leik sinna
manna þegar í ljós kom hvert stefndi.
Hinn ungi leikstjómandi, Sigurður
Viðarsson, átti góðan leik og opnaði
oft vel fyrir félaga sína. Hilmar Þór-
lindsson náði sér hins vegar engan
veginn á strik og synd að ekki skuli
koma meira út úr þessum stóra og
stæðilega leikmanni. Hann virkaði
mjög þungur í leiknum og var allt of
ragur að taka af skarið.
Það er of snemmt að dæma
Stjömuliðið úr leik. Eins og liðið lék
í 45 mínútur í þessum leik var það
mun betra en það spánska en heima-
völlur hðsins þykir sterkur og það
kemur öragglega til með að ráða úr-
slitum í síðari leiknum. Stjömumenn
geta eflaust dregið mikinn lærdóm af
leiknum enda mun hann sitja lengi í
minningu leikmanna liðsins sem
köstuðu frá sér öraggum sigri á
einstaklega klaufalegan hátt. -GH