Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Side 8
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997 íþróttir NB A-stj örnuhelgin: Kerr vann skotkeppnina - 18 ára gamall strákur með bestu troðsluna Hinn 18 ára gamli Kobe Bryant lét draum sinn rætast á laugardag- inn þegar hann sigraði í troðslu- keppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik sem haldin er sam- hliða stjömuleiknum. Bryant vann nokkuð öruggan sigur á Michel Finley og Chris Carr. Æðsti draumur Bryants, þegar hann var ungur drengur, var að vinna troðslukeppnina. * „Þegar ég sá troðslukeppnina í sjónvarpi þegar ég var strákur sagði ég við sjálfan við að ég skyldi vinna þessa keppni einhvem tímann og það var því ánægjulegt að sjá þenn- an draum rætast." Steve Kem hjá Chicago Bulls sigr- aði í skotkeppninni með því að leggja sigurvegarann frá því í fyrra, Tim Legler, að velli í úrslitum, 22-18. Kerr, sem aldrei hefur komist ofar en í þriðja sæti í skotkeppn- inni, fékk alls 58 stig í umferðunum þremur og í úrslitunum fékk hann 22 stig sem er annar besti árangur í 12 ára sögu keppninnar. „Þetta var frábært og ég hafði stuðninginn frá áhorfendunum á bak við mig. Það vora allir að óska mér velgengnis fyrir keppnina og segja að þeir vonuðu að ég færi með sigur af hólmi og auðvitað hjálpaði þetta mér í keppninni," sagði Kerr en hann er annar leikmaður Chicago sem ber sigur úr býtum í skotkeppninni en Craig Hodges sigraði þrjú ár í röð, 1990-1993. Kerr fékk um 150 þúsund krónur fyrir sigurinn. -GH Deborah Compagnoni er hér á fleygiferð í stórsviginu f gær og á innfelldu myndinni er hún með verðlaunapeningana tvo sem hún hefur unnlð á mótinu. •• Heimsmeistaramótið í alpagreinum: Onnur gullverðlaunin hjá Compagnoni - Bruno Kernen vann óvæntan sigur í bruni karla Bmno Kemen frá Sviss vann mjög óvæntan sigur í bruni karla á heimsmeistaramótinu í Sestriere á Ítalíu á laugardaginn. Þetta var langþráður sigur fyrir Svisslend- inga sem höfðu ekki unnið HM-titil í alpagreinum í fjögur ár. Kemen var fjórtándi í rásröðinni og margir mun sigurstranglegri kappar voru á undan honum. Lasse Kjus frá Noregi varð annar og Krist- ian Ghedina frá Ítalíu þriðji. Kemen var sjálfur mjög hissa. „Ég hélt að ég ætti möguleika á að vera á meðal fimm efstu en mér datt aldrei í hug að ég myndi sigra,“ sagði Kemen sem fyrir nokkm var spáð glæstri framtíð á skíðunum en honum hafði ekki tekist að uppfylla þær vonir sem bundnar voru við hann, þar til á laugardaginn. í fyrra munaði minnstu að hann hætti keppni á skíðum og sneri sér að hokkíleik. Meistarinn féll meö látum Luc Alphand, heimsbikarmeistar- inn frá Frakklandi, féll með miklum tilþrifum en slapp ómeiddur. „Það er betra að detta en að standa sig illa,“ sagði Alphand hinn rólegasti. Compagnoni varöi titilinn Deborah Compagnoni frá Ítalíu varði í gær heimsmeistaratitil sinn í stórsvigi og var þar með fyrsti ítalski skíðamaðurinn til að ná þeim áfanga. Þetta vom önnur gull- verðlaun Compagnoni á mótinu en hún sigraði í svigi í síðustu viku. Sigur hennar var nokkuð ömggm- en hún var með forystu eftir fyrri ferðina. Karin Roter frá Sviss varð í öðru sæti eins og í sviginu og franska stúlkan Leila Piccard vann óvænt bronsverðlaunin. Hún var í 12. sæti eftir fyrri ferðina en náði frábæmi síðari ferð sem fleytti henni upp í þriðja sætið. Þetta vom fyrstu verðlaun Frakka á mótinu. Anita Wachter frá Sviss, sem átti möguleika á að vinna 8. verðlaun sín á heimsmeistaramóti, varð að láta sér lynda fjórða sæti en hún var með þriðja besta timann eftir fyrri ferðina. Katja Seizinger frá Þýskalandi varð í fimmta sæti og sænska skíða- drottningin Pemilla Wiberg, sem er langefst að stigum í heimsbikar- keppninni, hafnaði í sjötta sæti. Henni hlekktist á undir lok síðari ferðarinnar og það gerði útslagið að hún vann ekki til verðlauna. Vona aö sigurinn stappi stálinu í Tomba „Ég átti svo marga stuönings- menn að það hefði verið erfitt að að vinna ekki fyrir þá en það er alltaf meiri pressa á manni þegar maður er á heimavelli. Öll verðlaun em sérstök en þegar maður vinnur þau í heimalandinu em þau fullkomin. Ég vona að þessi sigur minn stappi stálinu í Alberto Tomba. Hann er miklu reyndari en ég og ég vona að honum gangi vel,“ sagði Compagnoni eftir sigurinn. Þetta vom fimmtu gullverðlaun hennar á heimsmeistaramóti, jafnmörg og Tomba hefur unnið. -VS/GH Sund: Þijú heimsmet Marcel Wouda frá Hollandi setti nýtt heimsmet í 400 metra fjór- sundi í 25 metra laug á heimsbikar- móti í París um helgina. Wouda kom í mark á 4:05,41 mínútum og bætti eigið heimsmet sem hún setti í Þýskalandi um síðustu helgi. Þá setti Rússinn Denis Pan- kratov tvö heimsmet í 50 metra flugsundi synti hann á tímanum 23,35 sekúndur. Hann bætti þar með met Bretans Marks Fosters sem hann setti fyrir tveimur árum. Þá sló hann eigið met í 100 m flugsundi þegar hann kom í mark á 51,78 sekúndum. Frjálsar: Agætur árangUr Ágætur árangur náðist á alþjóð- legu fijálsíþróttamóti sem fram fór í Madison Square Garden í New York um helgina. Helstu úrslit urðu þannig: Kariar: 60 m grindahlaup: Allen Johnsen, Bandar............7,64 Courtney Hawkins, Bandar.........7,65 Jack Pierce, Bandar. ............7,68 60 m hlaup: Bruny Surin, Kanada..............6,58 Maurice Greene, Bandar...........6,59 Ato Boldon, Trinidad.............6,67 500 m hlaup: Derrick Adkins, Bandar........1:02,89 Mark Everett, Bandar..........1:03,62 Andrew Valmon, Bandar.........1:04,14 800 m hlaup: Rich Kenah, Bandar............1:50,87 David Kiptoo, Kenía...........1:50,98 Vemon Watson, Jamaíka.........1:51,80 Hástökk: Brian Brown, Bandar. ............2,25 Charles Lefrancois, Kanada.......2,25 Randy Jenkins, Bandar............2,21 Konur: 60 m grindahlaup: Michelle Ereeman, Bandar.........7,95 Cheryl Dickey, Bandar............8,10 Dawn Bowles, Bandar..............8,12 60 m hlaup: Gwen Torrance, Bandar............7,13 Carlette White, Bandar. .........7,14 Holly Hyche, Bandar..............7,35 400 m hlaup: Jearl Miles, Bandar.............54,10 Sandie Richards, Jam. ..........54,69 Deon Hemmings, Jam..............54,85 800 m hlaup: Maria Mutoia, Mos.............2:00,39 Joetta Clark, Bandar..........2:00,78 Amy Wickus, Bandar............2:01,99 Hástokk: Angela Bradbum, Bandar...........1,92 Amy Acuff, Bandar................1,89 Stefka Kostadinova, Búlg. .......1,89 Golf: Alker sigraði Steve Alker frá Nýja-Sjálandi bar sigur úr býtum á Suður-Ástral- íu mótinu í golfi sem lauk í Adelaide í gær. Alker lék á 273 höggum. Ástralinn Wayne Grady frá Ástralíu varð annar með 274 högg og jafiiii með 275 högg voru Michael Long, Nýja-Sjálandi, Brett Ogle, Ástralíu, Craig Parry, Ástral- íu, Tom Lehman, Bandaríkjunum. Knattspyma: Svíar sigruðu Svíar lögðu Rúmena, 2-0, á fjög- urra þjóða móti sem hófst í Bang- kok í Taílandi í gær. Andreas And- ersson og Jozo Matovic gerðu mörkin frrir Svía hvor í sínum hálfleik. Þá gerðu Taílendingar og Japanir 1-1 jafntefli. Hnefaleikar: Lewis meistari Bretinn Lennox Lewis tryggði sér heimsmeistaratitilinn í yfir- þungavigt hnefaleika um helgina þegar dómarinn úrskurðaði hann sigurvegara í 5. lotu eftir að keppi- nautur hans, Oliver McCall, fékk taugaáfail og hætti að veija sjálfan sig í hringnum. -GH Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram aö gera góöa hluti á stórmótunum í golfi viös vegar um heiminn. Þessi þeldökki 21 árs gamli kylfingur, sem margir telja aö veröi sá besti í heiminum innan fárra ára, sigraði f gær á Bangkok-mótinu meö miklum yfirburöum og vann þar meö sitt fjóröa stórmót sföan hann varö atvinnumaður f greininni f haust. Hann lék hringina fjóra á 268 höggum, eöa 20 undir pari vallarins, og varö tfu höggum á undan S-Kóreumanninum Mo Joong-kyung. Hér fagnar Woods sigrinum á mótinu í Bangkok og veifar til áhorfenda en fyrir sigurinn hlaut hann 300.000 dollara. Sfmamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.