Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 Fréttir Bréf sem Jónas Hallgrímsson skrifaði 1840 komið í leitimar: Rakst á bréfið í veðurfars- bók frá síðustu öld - segir Svavar Hávarsson, sem er að rannsaka veðurfarsdagbækur presta á árunum 1855 til 1870 „Það er of mikið sagt að ég hafi fundið þetta bréf. Það má eigin- lega segja að ég hafi rekist á það í grúski mínu fyrir Veðurstofu íslands í veðurfarsdagbókum presta frá síðustu öld sem geymd- ar eru í Landsbókasafninu. Það var vitað að Jónas Hallgrímsson skrifaði þetta bréf. Hann skrifaði það til Hins íslenska bókmennta- félags og þess vegna er það til í skrám þess. Það vissi hins vegar enginn hvar það var niðurkomið og í raun var það talið glatað. Jónas Hallgrímsson skrifaði það 9. apríl 1840 og er það 6 síður. í því leggur hann til að prestar landsins taki að sér skráningu á veðri á hverju prestsetri. Hann leggur jafnframt til að Hið ís- lenska bókmenntafélag hafi for- göngu um að þetta verði gert. Einnig að það sjái um að útvega prestunum mæla og annað sem til þurfi. Þetta gerðist svo nokkru síðar og prestar skráðu veður- dagbækur," sagði Svavar Hávars- son, sagnfræðinemi við Háskóla íslands, í samtali við DV. Hann hefur tekið að sér að rannsaka þessar veðurfarsbækur sem prestar landsins skráðu á ár- unum 1855 til 1870 og létu eftir sig. Og í einni slíkri bók lá bréf þjóðskáldsins. í bréfinu kemur fram að Jónasi var mjög umhugað um að ísland standist samanburð við önnrn- lönd varðandi vísindaleg- ar rannsóknir, eins og hann orð- ar það í bréfmu. Jónas Hall- grímsson var sem kunnugt er náttúrufræðingur og vísindamað- ur á þessum tíma. Ástæðan fyrir því að hann hefur þennan áhuga á veðurfarsskráningu er sú að hann vildi sjá hvaða blóm og nytjajurtir gætu þrifist á íslandi. Bréf Jónasar Hallgrímssonar var talið glatað en kom í leitirnar við rannsókn Svavars Hávarssonar sagnfræðings. Dv-mynd þök Hann segir í bréfinu að seinna meir muni þessar veðurfarsupp- lýsingar þykja ærinn fjársjóður. Svavar segir að bækumar séu merk heimild fyrir veðurfræð- inga hvað varðar heildarskrán- ingu veðurfars á þessum tíma. Hann segir að fyrir utan þær veð- urfarsbækur frá 1855 til 1870 séu til fjölmargar aðrar gamlar veð- urfarsbækur sem á að rannsaka. „Það hefur verið mikil fram- sýni hjá Jónasi Hallgrímssyni að leggja til veðurskráningu. Það er ekki síður eftirtektarvert hvað hann gerir sér glögga grein fyrir því að skráningin muni ekki nýt- ast á hans tíma eða næstu árum, heldur muni skráningin koma að notum einhvern tímann í fram- tíðinni og nú hefur það komið í ljós,“ segir Svavar Hávarsson. -S.dór GCI á Islandi sem seldi orlofsrétt: Forstjórinn farinn úr landi og fyrirtækið hætt - seldi hótelherbergi á 25 milljónir án eignarréttar kaupenda GCI á íslandi, sem undanfama mán- uði hefúr selt svokallaða orlofshlut- deild í hótelum á sólarströndum Spán- ar, hætti allri starfsemi sl. föstudag. Forsvarsmaður fyrirtækisins, Breti að nafni Terry Bissell, er farinn af landi brott fyrir rúmum þremur vikum og sama er að segja um annan Breta sem kom í hans stað. Sá mun hafa farið af landi brott um helgina. Á stuttum starfstima sínum tókst fyrirtækinu að selja um 28 manns or- lofshlutdeild og greiðir hver þeirra um 500 þúsund krónur. Forsvarsmenn fyr- irtækisins skilja nokkum hóp fyrrver- andi sölumanna eftir með ógreidd eða vangreidd laun, sem þeir hafa falið lögmanni Verslunarmannafélags Reykjavikur að innheimta. GCI seldi svonefiida orlofshlutdeild í hótelherbergjum eða stúdíóíbúðum í hóteh á Costa del Sol á Spáni sem nefnist Sunset Beach Club. Kaup á slíkri hlutdeild má líkja við það að hafa keypt hlut í norðurljósunum eins og sagt var að þekkt aldamótaskáld hafi selt grunlausum útlendingum. Þeir sem kaupa orlofshlutdeild kaupa aðeins rétt til að nota tiltekið hótelher- bergi eða -íbúð í sama tiltekinn tíma á hveiju ári, en fyrir að nota þennan rétt skal kaupandi til viðbótar greiða árlega greiðslu í sérstakan sjóð til að mæta greiðslu viðhalds, fasteigna- gjalda, umsjónargjalda o.fl. Kaupend- ur fá hins vegar enga eign í hendur sem þeir geta veðsett eða selt aftur því sjálf fasteignin er eign annarra. Seldur var dvalarréttiu- í hveiju herbergi í eina viku í senn og alls var þannig seld 51 vika. Sú eina vika sem eftir stóð af árinu og ekki var seld var notuð til viðhalds og endurbóta. Sé gert ráð fyrir því að hver vika seljist á 500 þúsund krónur þá hefúr fengist fyrir herbergið hvorki meira né minna en 25,5 miiijónir króna, án þess þó að það hafi í raun verið selt, held- ur aðeins gisting í þvi fyrir fram. Söluaðferðir GCI vom í stórum dráttum þannig að hringt var í fólk, aðallega gift fólk komið á og yfir miðj- an aldur, undir því yfirskini að verið væri að kanna ferðavenjur og ferða- langanir fólks. Nokkm siðar var aftur hringt og viðkomandi þá tjáð að hann hefði unnið ferðavinning, en til þess að fá hann yrði hann að koma ásamt maka sínum á kynningarfund hjá GCI að Vesturgötu 2 í Reykjavík. Starfsmaður á ritstjóm DV fór ásamt maka sínum á slíkan fund og fengu þau hjónin eins og öll önnur hjón sem komin vom á staðinn „sinn“ sölumann, sem gekk mjög hart eftir því að þau undirrituðu kaup á orlofs- hlutdeild. Sölumaðurinn sagði þeim að hann væri að bjóða þeim algjör sér- kjör, sem engum öðrum byðist. Þegar sölumaðurinn taldi sig finna að annað hjónanna var áhugasamara en hitt lagði hann sig fram um að sannfæra það um ágæti kaupanna og reyndi jafiivel að tefla hjónunum saman. Þeg- ar um allt þraut reyndi hann að fá hjónin til að vorkenna sér vegna þess að hann yrði nú aldeilis tekinn á bein- ið á eftir ef honum tækist ekki að selja þeim orlofshlutdeild og hvort þau vildu nú ekki skrifa undir til að kom- ast hjá því að eiga sök á hremmingum þeim sem hann ætti annars vísar. Enginn svaraði í síma hjá GCI, en fyrrverandi starfsmaður GCI sagði í samtali við DV að Terry BisseU fram- kvæmdastjóri væri liklega kominn til Spánar. Lögmaður Neytendasamtak- anna, Hjalti Pálmason, hefúr farið með mál ailstórs hóps fólks sem hefúr vilj- að hætta við orlofshlutdeildarkaup og að sögn hans eru allmörg þeirra mála óútkljáð enn. Hann segir í samtali við DV að fremur sé ólíklegt að þeir sem keypt hafi orlofshlutdeild hjá GCI geti selt hana aftur eða skipt henni upp í áþreifanleg verðmæti. SÁ Stuttar fréttir R-listinn tapar R-listinn tapar Reykjavík í næstu sveitastjómarkosning- um samkvæmt nýrri könnun Hagvangs. Samkvæmt könnun- inni hefur Árni Sigfússon yfir- burðafylgi sem borgarstjóra- efni D-lista. Sjómenn vilja sækja Æsu Stjóm Sjómannasambands íslands hefur skorað á sjávar- útvegsráðherra að upplýsa or- sakir þess að skelbáturinn Æsa fórst sl. sumar. Stjómin skorar einnig á Alþingi og ríkisstjóm að auka fé til sjóslysarann- sókna og slysavama. Halli á viðskiptum við útlönd 9,1 milljarðs halli var á við- skiptum við útlönd á sl. ári en árið áður hafði orðið 3,4 millj- arða afgangur. Hálft tonn af sauða- ostí Mjólkursamlagið í Búðardal framleiddi tæpt hálft tonn af sauðaosti úr um 10 þúsund lítr- um af kindamjólk. Alþýðublað- ið segir frá. Taugaskurölæknar aö hætta Heila- og taugaskurðlæknar Sjúkrahúss Reykjavíkur, sem em þrír talsins, hyggjast hætta 1. júní störfum vegna slæmra kjara og vinnuaðstöðu. Einn þeirra hætti nýlega og hefur álag á hina þrjá aukist. Þeir eru nú á vakt allan sólarhring- inn alla daga. Stöð 2 sagði fró. Landbúnaöarverölaun Landbúnaðarráðherra af- henti bændum á fjórum jörðum landbúnaðarverðlaunin í fyrsta sinn. Verðlaunin eru veitt fyrir fýrirmyndarathafnir sem tengj- ast landbúnaði. Þjóðviljinn á Netinu Þjóðviljinn er farinn að koma út á ný, en nú á Internet- inu. Þar er hann gefinn út af útgáfúfélaginu Andríki sem er í eigu fólks sem styður stefhu Sjáfstæðisflokksins en ekki Al- þýðubandalagsins. Dagur- Tím- inn segir frá. -SÁ Nei 29% 71 % Já j rödd FOLKSINS 904 1600 Á að taka upp tvö skattþrep? gær var unnið að því að taka niður auglýsingaskilti Stöðvar 3 en sjónvarpsstöð- inni var lokað klukkan 17 f gær f kjöifar samrunans við íslenska útvarpsfélagið. Sýn verður send út á rás Stöðvar 3 í opinni dagskrá næstu daga. Dv-mynd þök

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.