Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Blaðsíða 11
I>V ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
%enningu
Fimm tilnefningar
í kvikmyndum
Kvikmyndanefnd hefur lokið
störfum og skilað af sér fimm til-
nefningum sem fara til þriggja kvik-
mynda og tveggja einstaklinga.
Nefndin hafði í mörg hom að líta
þvi þótt ekki hafi verið mikið um
frumsýningar á íslenskum kvik-
myndum í kvikmyndahúsum á sið-
asta ári þá var unnið vel og mikið á
mörgum öðrum vígstöðvum í kvik-
myndagerð og því mörg verk og ein-
staklingar sem komu til greina þeg-
ar farið var að huga að tilnefning-
um. Nefndin var síðan einhuga um
eftirfarandi fimm tilnefningar.
I' ' •:
i" . ■
BíffWPl m f
tStöiab
Elva Ósk Ólafsdóttir og Baltasar
Kormákur sem Þóra og Geiri í
Draumi um draum.
Draumur um draum
Draumur um draum er heimild-
armynd um rithöfundinn Ragnheiði
Jónsdóttur (1895-1967), en bækur
hennar um Þóru frá Hvammi eru
taldar endurspegla vel lífsviðhorf
kvenna á fyrri hluta aldarinnar.
Ásthildur Kjartansdóttir leikstýrir
og framleiðir Draum um draum og
nýtir hún sér heimildarmyndafor-
mið á skemmtilegan máta. Hún rek-
ur feril Ragnheiðar gegnum unga
stúlku, Völu, sem er að gera heim-
ildarmynd um hana. Vala heillast af
persónu rithöfundarins og ekki síð-
ur af Þóru, söguhetju Þórubókanna,
og ímyndar sér að hún sjálf leiki
Þóru í kvikmynd eftir bókunum.
Þannig upplifir áhorfandinn hugar-
heim Ragnheiðar gegnum bækur
hennar á áhrifaríkan máta. Draum-
ur um draum er hugmyndarík út-
færsla handritshöfundar, Dagnýjar
Kristjánsdóttur, og Ásthildar á
áhugaverðu efni.
Djöflaeyjan. Sigurveig Jónsdóttir,
Sveinn Geirsson og Baltasar Kor-
mákur í hlutverkum stnum.
Djöflaeyjan
Djöflaeyjan, sem Islenska kvik-
myndasamsteypan framleiðir og
Friðrik Þór Friðrikson leikstýrir,
hefur allt sem prýða þarf góða og þá
ekki síður skemmtilega kvikmynd.
Sögunni, sem er hugleikin þjóðinni,
eru gerð góð skil í eftirminnilegri
kvikmynd þar sem samstarf margra
aðila heppnast eins og best verður á
kosið. Vert er að minnast á handrit
Einars Kárasonar, kvikmyndatöku
Ara Kristinssonar, hljóðvinnu
Kjartans Kjartanssonar, lýsingu
Halldórs Gunnarssonar, búninga
Karls Aspelunds og leikmynd Áma
Páls Jóhannssonar. Allir ná þeir að
sýna sínar bestu hliðar. Þá fara leik-
arar á kostum undir öruggri leik-
stjóm Friðriks Þórs Friðrikssonar.
Páll Steingrímsson
Vestmannaeyingurinn Páll Stein-
grímsson er einn reyndasti og
kunnasti heimildamyndasmiður ís-
Heimildamyndasmiðurinn Páll
Steingrímsson fær tilnefningu. Páll
er á myndinni að vinna við nýjustu
mynd sína, Nábúar - Æður og mæð-
ur.
lendinga. Myndir hans hafa verið
sýndar víða um heim og hlotið verð-
laun. Sambúð manns og náttúru
hefur verið eitt helsta viðfangsefni
Páls í myndum hans og það er
einmitt þemað í nýjustu heimildar-
mynd hans, Nábúar - æður og mæð-
ur, þar sem næmt auga kvikmynda-
gerðarmannsins og ást hans á ís-
lenskri náttúru nær að skila sér í
heillandi heimildarverki.
Árni Páll Jóhannsson fær tilnefn-
ingu fyrir leikmynd sína í Djöflaeyj-
unni.
Árni Páll Jóhannsson
Leikmyndahönnuðurinn Ámi
Páll Jóhannsson fær tilnefningu fyr-
ir leikmynd sína í Djöflaeyjunni.
Sjaldan eða aldrei hefur verið gerð
jafn viðamikil og trúverðug leik-
mynd af Reykjavík fyrri tíma í kvik-
mynd og á snilldarlegan hátt hefúr
Árni Páll náð með nákvæmni og
hugmyndaflugi að draga allt það
fram í umhverfmu sem tilheyrði
þeirri kynslóð sem um er fjallað.
Hvar sem á er litið, ytra útlit sem og
innra, þá fellur leikmyndin þétt að
þeirri sögu sem sögð er og hjálpar
til að skapa andrúmsloft liðins tíma.
Tveir kappar glíma í heimildarmynd
Böðvars Bjarka Pétursonar, Glímu.
Glíma
Glíma Böðvars Bjarka Pétursson-
ar er persónuleg heimildarmynd
um hina fomu íslensku íþrótt.
Böðvar Bjarki notar ekki þulartexta
heldur lætur hann myndræna frá-
sögn leiða áhorfandann í gegnum
söguna. Myndatökumaðurinn Rafn
Rafnsson og hljóðmeistarinn Kjart-
an Kjartansson skila hlutverkum
sínum afbragðsvel og ljá myndinni
lýrískan tón. Glíma er frumleg og
skemmtileg mynd sem gengur upp
frá höfundarins hendi.
í verðlaunanefnd DV um kvik-
myndir sitja Hilmar Karlsson, Bald-
ur Hjaltason og Þorfinnur Guðna-
son. Menningarverðlaun DV verða
afhent í Þingholti, Hótel Holti,
fimmtudaginn 27. febrúar. -HK
Jómfrúin fyllt
Á smurbrauðstofunni Jóm-
frúnni við Lækjargötu eru nú
haldnir djasstónleikar á hverju
föstudagskvöldi. Það er hinn ný-
stofnaði djassklúbbur Múlinn sem
stendur fyrir þessu tónleikahaldi
ásamt veitingamanni staðarins,
Jakobi Jakobssyni. Þriðju tónleik-
arnir í röðinni voru síðastliðið
fóstudagskvöld. Þá lék tríó skipað
þeim Hilmari Jenssyni gítarista og
Matthíasi Hemstock trommuleik-
ara, ásamt rafbassistanum Jó-
hanni Ásmundssyni úr Mezzofor-
Djass
Ársæll Másson
te, sem ég veit ekki til að hafi leik-
ið með þeim Hilmari og Matthíasi
áður. Einnig slóst í hópinn
kanadíska söngkonan Tena Pal-
mer, en hún hefúr dvalið hérlend-
is í vetur. Ég veit aðeins til þess að
hún hafi komið hér fram tvisvar
áður, fyrst á RúRek í haust með
Justin Haynes og síðan eitt mið-
vikudagskvöld með Bimi Thorodd-
sen, en undirritaður var fjarstadd-
ur í bæði skiptin.
Á dagskrá kvöldsins vora aðal-
lega lög af efnisskrá ýmissa
popptónlistarmanna, og telst það
nokkuð óvenjulegt nú til dags hjá
djassmúsíköntum, þótt þeim hafi
aldrei verið neitt heilagt í þessum
efnum frekar en öðram. „Standard-
ar“ nútímans era að miklu leyti
gamlar dægurflugur eða uppsuða af
þeim, þótt bæst hafi í safnið vera-
legt magn af lögum frá djassmönn-
um sjálfum. Hilmar er reyndar
þekktur í djassgeiranum fyrir að
fara lítt troðnar slóðir í músíkefn-
um, og kom á daginn að þetta hrá-
efni er ekki siðra en annað til að
koma tónlist hans til skila. Gítariim
verður í hans höndum eins konar
„hljóðvél“; hann leitar uppi öll þau
hljóð sem mögulegt er að kreista úr
gítamum og fylgihlutum hans, og er
mikill meistari í því.
Hlutskipti Jóhanns var iðulega
að halda uppi bæði bassa og hljóm-
um, og gerði hann það með stakri
prýði. Matthías er afar sérstakur
trommuleikari, og stíll hans á
ágætlega heima í töluvert frjálsri
spilamennsku af þessu tagi, þótt ég
hafi heyrt hann betri en þetta
kvöld. Tena lét tiltölulega lítið á
sér bera, bæði i framkomu og söng,
og hefði að skaðlausu mátt sýna
meiri tilþrif. Útlend nöfn laða alltaf
að sér áheyrendur, og nafn hennar
hefur öragglega átt þátt í því að
troðfylla Jómfrúna, svo djasshjarta
rýnisins fýlltist gleði yfir því að
Tena Palmer — hefði mátt hafa sig meira í frammi. þurfa að standa upp á endann.
Ungfrúin á ítölsku
Saga Halldórs Laxness um
Ungfrúna góðu og húsið er komin
út á ítölsku hjá bókaforlaginu
Iperborea. Hún er gefin út í röð
öndvegisrita eftir norræna og
hollenska höfunda og Halldór er
þar í góðum félagsskap; meðal
annarra höfúnda í röðinni má
nefna Knut Hamsun, Selmu Lag-
erlöf og Sigrid Und-
set, Thorkild Han-
sen, Ingmar Berg-
man og Cees
Nooteboom. Ekki
hefur áður kom-
ið verk eftir ís-
lenskan höfund
! í þessari röð.
Halldór
skrifaði Ungfrúna'
góðu og húsið árið 1933 og hún'
kom fyrst út í smásagnasafninu
Fótataki manna það ár. Þetta er
nóvella, saga á mörkum þess að
vera smásaga og skáldsaga, og
hefur oft verið gefin út stök er-
lendis. Hún hefur komið út á
þrettán tungumálum í 22 útgáf-
um.
Sagan nefnist í þýðingu Paola
Daziani Róbertssonar L’onore
della casa, og þýðandinn skrifar
inngang um skáldið og verk hans.
Norræn bókmennta-
hátíð í Toronto
í sumar verður haldin sérstök
norræn bókmenntahátíð í Tor-
onto í Kanada þar sem á hverju
hausti er haldin einhver stærsta
bókmenntahátíð í heimi. - Því
má skjóta hér inn að á hausti
komandi verður hún dagana
22.10.-1.11.
Greg Gatenby er skipuleggj-
andi beggja hátíða og hann ferð-
aðist um Norðurlönd í sumar sem
leiö til að velja höfunda á hátið-
ina sína. Nú er hann búinn að
koma sér upp bráðabirgðalista og
má þar sjá margt merkt nafn.
Meðal frænda okkar era til dæm-
is Svend Aage Madsen, Inger
Christensen, Ib Michael, Henrik
Nordbrandt, Olli Jalonen, Leena
Krohn, Kjeld Askildsen, Jostein
Gaarder, Roy Jacobsen, Pemille
Rygge, Torgny Lindgren og
Birgitta Trotzig - en íslensku höf-
undamir sem eru ákveðnir nú
þegar era Einar Már Guðmunds-
son, Einar Kárason, Thor Vil-
hjálmsson og Matthías Johann-
essen.
Það vekur athygli á listanum
að Greg býður konum frá öllum
löndum nema Islandi. Skyldu
þær íslensku ekki hafa viljað
fara?
Kristbjörg Kjeld leikur hótel-
stýru með vafasama fortfð f leik-
ritinu í hvftu myrkri.
Hvítu myrkri að ljúka
Sýningum á í hvítu myrkri eft-
ir Karl Ágúst Úlfsson er nú að
ljúka á Litla sviöi Þjóðleikhúss-
ins, en það var frumsýnt á Lista-
hátíð í fyrravor. Sýningar era
orönar hátt í fjörutíu talsins og
aðsókn afbragðsgóð, en verkiö
verður að víkja fyrir næstu upp-
setningu sem er á Listaverkinu
eftir Yazminu Reza.
Lokasýning á í hvítu myrki er
2. mars, en aukasýning verður
annað kvöld, miðvikudag kl.
20.30.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir