Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 Fréttir_______________________________________________^ Atvinnurekandi skilur eftir sig skuldaslóö upp á hundruð þúsunda: Gefur fólkinu langt nef og vísar á Ábyrgðasjóð launa - lögfræðingur Dagsbrúnar mun krefjast opinberrar rannsóknar „Vandamálið er að fólk leikur þann leik að skilja eftir sig skulda- slóðir hingað og þangað, einstak- lingar eru ekki gerðir ábyrgir og síðan eru stofnuö ný fyrirtæki á rústum hinna gömlu. Þetta fólk sem hér um ræðir er ekkert einsdæmi en skólabókardæmi um hvernig fólk á ekki að komast upp með að haga sér. Það er ljóst að það skuld- ar hundruð þúsunda í laun og ýmis gjöld og við munum á næstu dögum fara fram á opinbera rannsókn á málum þessa fólks,“ segir Atli Gísla- son, lögfræðingur Dagsbrúnar, um skrautlegan feril fólks í atvinnu- rekstri sem rakinn er í blaðinu D&F, fréttablaði Dagsbrúnar og Framsóknar. Ferill fólksins er rakinn mörg ár aftur í tímann, allt til þess að það var í atvinnurekstri í Ólafsvík, kom síðan til Reykjavíkur og mun nú vera komið með starfsemi sína til Suðumesja. „Það er fullt af fólki sem á hjá þeim laun og lífeyrissjóðsiðgjöld, mest krakkar og yngra fólk. Þetta er löng slóð skulda hingað og þangað og nú segja þau að þau séu hætt at- vinnustarfsemi, gefa fólkinu bara langt nef og vísa á Ábyrgðasjóð launa. Ríkið þarf því að sópa gólfið eftir þetta fólk.“ Atli segir að þetta dæmi sé ekkert einsdæmi en hér eftir verði farið að kæra umsvifalaust til RLR þegar svona mál komi upp. Hann segir Dagsbrún hafa átt við svona fólk í langan tíma og að þar á bæ hafi margoft veriö bent á að að setja þurfi einhver ákvæði í lög um tryggingar fyrir starfsleyfum, þannig að hægt verði að ganga að opinberum gjöldum, staðgreiðslu og öðrum aðdráttarliðum. „Þetta er vörslufé sem fyrirtækj- unum er falið að innheimta og skila og þau sem ekki gera það eru að brjóta lög með því að stela. Lögfræð- ingar þurfa tryggingar, ferðaskrif- stofur sömuleiðis en engar trygging- ar eru í sambandi við starfsleyfi á vinnumarkaðnum." Atli segir að engu hafi verið svar- að af síðustu innheimtutilraunum á hendur þeim, þau láti ekki ná í sig, en nú verði RLR fengin til þess að kanna málið á næstu dögum. -sv Flutningabílar sjóleiðina: Flutningabílar í fyrsta sinn með Fagranesinu - á meðan Ísaíjarðardjúp var lokað vegna snjóa Fyrsti flutningabíllinn ekur frá borði úr Fagranesinu í Sundahöfninni á ísafirði á laugardagskvöldið. Undir stýri er Magnús Bjarnason, bílstjóri hjá ísafjarðarleiö. Ljósmynd Hðróur Verkefnastjórn skilar tillögum í forvarna- og vímuefnamálum: Samstiga náum viö betri árangri - segir Ómar Smári Ármannsson bæjarfulltrúi Um klukkan hálfátta á laugar- dagskvöldið lagðist Djúpferjan Fagranes að bryggju á ísafirði með öðruvísi farm en hingað til hefur verið fluttur sjóleiðina úr innan- verðu ísafjarðardjúpi til ísafjarðar. Með skipinu komu þrír flutninga- bílar, póstbíll, jeppi og fólksbíll sem verið höfðu veðurtepptir á Hólma- vík. Var Vegageröin fengin eftir japl og jaml og fuður, að sögn ferða- langa, til að moka veginn yfir Stein- grímsfjaröarheiði svo koma mætti bílunum um borö í Fagranesið á nýrri ferjubryggju á Arngerðareyri í Ísafírði. Þetta mun vera í fyrsta skiptið sem Fagranesið hefur veriö notað til að flytja flutningabíla sem leið hafa átt um Djúpið. Þó margoft hafi minni bílar verið fluttir meö skipinu hafa ekki verið fyrir hendi ferjubryggjur svo nota mætti skipið til flutninga á flutningabílum og stærri tækjum. Nýverið er lokið smíði ferjubryggju á Amgerðareyri í Inn-Djúpi og verið er að setja upp DV, Hólmavík: Veghefill fór fram af vegkanti og nánast á hvolf nýlega á svonefndri Broddaneshliö í Koflafiröi. Hvass- viðri var af suðvestri þegar þetta ferjubryggju í Sundahöfninni á ísa- firöi. Eins og áður sagði voru þrír flutningabílar með skipinu i þessari ferð og þar af einn með aftanívagn. Voru tveir bílanna frá ísafjarðar- leið en einn frá flutningakappanum Ármanni Leifssyni í Bolungarvík. Auk þess voru með skipinu póstbífl með aftanívagn frá Guðna Jóhann- essyni, fólksbíll, jeppi og vélsleði. Þar sem ferjubryggjan á ísafirði veröur ekki tekin í notkun fyrr en í næsta mánuði var gripið til þess ráðs að nota gámapall til aka bílun- um í land í Sundahöfninni. Þó ekk- ert væri afgangs af breidd þessarar bráöabirgöaferjubryggju gekk samt áfallalaust aö koma bílunum í land. Ekki er ólíklegt að meira eigi eftir að verða um slíka flutninga í fram- tíðinni en ísafjarðarleið hefur und- anfarið staðið í viðræöum við Djúp- bátinn hf„ sem gerir út Fagranesið, um að flytja flutningabíla með skip- inu. gerðist og gekk á með dimmum élj- um. Ökumaðurinn meiddist ekki al- varlega og fékk að fara heim að læknisskoðun lokinni. Þá fór jeppabifreið út af veginum „Þetta er framlag Hafnarfjarðar um að efla vímuvamir eins og kost- ur er og fá fólk til liðs við þetta við- og á hliðina um svipað leyti. Það gerðist við bæinn Tröllatungu. Öku- manninn sakaöi ekki og ástæða þess óhapps var það sama og í fyrra tilvikinu; mikið dimmviðri. -GF fangsefni, hvort sem um er að ræöa fólk sem starfar á vegum bæjarins eða almenning. Þannig hafa allir að einhverju sérstöku aö stefha og geta verið samstiga í þessari baráttu,“ segir Ómar Smári Ármannsson, bæjarfufltrúi í Hafnarfirði, um til- lögur verkefnastjómar sem skipuð var í Hafnarfirði tfl þess að vinna að og skipuleggja allt starf í sam- bandi við forvama- og fíkniefnamál. Verkefhastjórnin er að sögn Ómars skipuð í framhaldi af starfi vímuvarnaráðs bæjarins, sem skip- að var 1990, og vegna tillagna frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga mn aö öfl stærri sveitarfélögin skipi verkeihastjómir er hefðu það að markmiði að skoða forvama- og fíkniefnamál á hverjum stað. Verk- efnastjómin er t.d. skipuð fufltrúum frá æskulýös- og íþróttaráði, skóla- nefnd, vímuvarnanefnd og áfengis- varnanefnd. Ómar segir aö með því aö samræma vinnu aflra muni nást enn betri árangur í Hafnarfirði en með stofnun vímuvcimanefndarinn- ar 1990 hafl grunnurinn verið lagð- ur að þeim góða árangri sem þegar hafi náðst í bænum. „Tillögumar kveða í megindrátt- um á um afstöðu og viðhorf stjóm- enda bæjarins, álit þeirra á þessu viðhorfi og skilaboð þeirra til bæj- arbúa. Þær kveða á um samhæfingu allra þeirra starfskrafta sem vinna að þessu málefni innan bæjarkerfis- ins og opna möguleika á samstarfi viö aðra, áhugafélög og einstak- linga. Lagt er tfl bann við áfengis- auglýsingum í iþróttahúsum og að þau verði ekki notuð til skemmtana- halds þar sem áfengi er veitt. Þá má nefna aö starfsmenn bæjarins geta nú leitað sér aöstoðar vegna vímu- efnavandamála og njóta fullra rétt- inda á meöan og loks er hér beiöni til bæjarstjóra um að vekja athygli dómsmálaráðuneytisins á auknum stuðningi við lögregluna í Hafnar- firði til þess aö hún geti haft betra eftirlit með þeim sem selja eða neyta fikniefna í bænum,“ segir Ómar Smári. -sv Kristinn Hugason: Átel slíka frétta- mennsku „Ég átel fréttamennsku á borð við þessa þar sem einn maður fer fram með stóryrði. í greininni er vegið að persónu minni og vandaðir fréttamiðl- ar eiga ekki að vera opnir fyr- ir slíkum óhróðri," segir Krist- inn Hugason, hrossaræktar- ráðunautur Bændasamtaka Is- lands, vegna fréttar DV í gær þar sem Jóhann Friðgeirsson, bóndi að Hofi á Höfðaströnd, segir Kristin vera hlutdrægan hvað varöar stóðhesta og vísar til greinar í Eiðfaxa þar sem ekki er vikið orði að stóðhest- inum Hlekki sem fékk aðra hæstu einkunn stóðhesta á s.l. ári. -HKr. Veghefillinn utan vegar í Kollafirði. DV-mynd Guöfinnur Dimmviðri á Ströndum: Veghefill og jeppi ultu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.