Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Qupperneq 19
HMACCMTA 18 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 23 0 íþróttir Iþróttir Þessa dagana er ekkert gefiö eftir í NBA-deildinni í körfuknattleik og hver sigurinn er mikilvægur er menn fara aö finna iyktina af úrslitakeppninni. Hér eru þaö miöherjar Denver og Miami, Ervin Johnson, númer 50, og Isaac Austin, sem takast á um knöttinn í leik liöanna í fyrrinótt. Símamynd Reuter NBA-deildin í körfuknattleik: Jordan að venju í aðalhlutverki - skoraði 37 stig gegn Portland í nótt Úrslit í leikjum NBA-deildarinn- ar í nótt: Atlanta-Golden State.......106-100 Orlando-Detroit ..............93-84 Chicago-Portland ............116-89 SA Spurs-Charlotte............84-96 Penny Hardaway átti mjög góö- an leik fyrir Orlando í nótt gegn Detroit og skoraði 29 stig. Rony Seikaly skoraði 19 stig og tók 9 frá- köst. Theo Ratcliff skoraði 17 stig fyrir Detroit og Grant Hill aðeins 14. Atlanta lék mjög vel gegn Golden State en enginn þó betur en Christian Laettner sem skoraði 25 stig. Steve Smith var með 21 stig og Mookie Blaylock 18. Hittni Atl- anta var frábær í leiknum og til dæmis 68% í fyrri hálfleik. Michael Jordan var að vanda í aöalhlutverkinu hjá Chicago Bulls. Jordan skoraði 37 stig í nótt er Chicago vann afar auðveldan sigur á Portland á heimavelli sínum. Scottie Pippen var með 22 stig, 11 stoðsendingar og 9 fráköst. Þetta er annar leikurinn í röð sem stigatala Jordans er hærri en tala þeirra minútna sem hann leikur. Maður Stjömuleiksins, Glen Rice, skoraði 33 stig þegar Charlotte vann auðveldan sigur á SA Spurs. Anthony Mason var með 24 stig og 16 fráköst og Vlade Divac skoraði 12 stig og tók 13 frá- köst. Mikill og langur slagur Lakers og Knicks Úrsllt í NBA-deildinni aðfara- nótt mánudags: Houston-SA Spurs ..........95-85 NJ Nets-Boston............109-93 Washington-Detroit ........79-85 Milwaukee-LA Clippers .....86-99 Vancouver-Cleveland........84-91 LA Lakers-NY Knicks......121-127 (Tvær framlengingar) Utah Jazz-Seattle..........87-89 Indiana-Orlando............90-99 Miami-Denver ..............95-86 Phoenix-Dallas.............86-88 Leikm' Lakers og Knicks var æsispennandi og tvær framleng- ingar þurfti til að ná fram úrslit- um í viðureign stórliðanna. Miðherjinn Patrick Ewing fór á kostum og tryggði Knicks sigur- inn. Hann var greinilega búinn að ná sér eftir 7 stiga leikinn gegn Seattle, skoraði 34 stig og tók 25 fráköst. Ewing skoraði mikið í lok- in og í framlengingunum. „Það var dapurt hjá okkur að missa niður mjög gott forskot en sigurinn var sætur,“ sagði Ewing eftir leikinn. Shaquille O’Neal lék ekki með en Elden Campell, sem tók stöðu hans, átti stórleik. Hann skoraði 40 stig og tók 10 fráköst. Lið Lakers er greinilega ekki á flæðiskeri statt hvað miðherja varðar. Liö Seattle er á mikilli sigl- ingu um þessar mundir Lið Seattle Supersonics virðist til alls liklegt og liðið er á mikilli siglingu um þessar mundir hvort sem það dugar til afreka í vor eða ekki. Seattle vann mjög nauman sigur í framlengingu gegn Utah Jazz. Gary Payton tryggöi Seattle sigur- inn með sigurkörfu þegar 3/10 úr sekúndu voru til leiksloka. Alls skoraði Payton 28 stig í leiknum. Detlef Schrempf skoraði 20 stig fyrir Seattle. Karl Malone skoraði 32 stig fyrir Utah og tók 10 fráköst. -SK Bjarni Guöjónsson hélt snemma af landi í morgun og hélt áleiöis til Madridar þar sem hann mun æfa meö stórliöinu Real Madrid fram á föstudag. Spænska liöiö óskaöi eftir aö fá Bjarna til æfinga um heigina. Grikkland - körfuknattleikur: Larissa steinlá í Aþenu - Teitur var í leikmannahópi en lék ekki Teitur Örlygsson horfði á félaga sína í Larissa steinliggja fyrir Peristeri frá Aþenu í gríska körfuboltanum um helg- ina. Lokatölur urðu, 92-78, og er Larissa í 12. sæti. Teitur æfði ekkert í síðustu viku með liðinu vegna meiðsla en sagðist við DV i gær vera á batavegi. Þjálfari liðsins hefði samt viljað hafa hann með liðinu sem fór til Aþenu. „Liðin fyrir neðan okkur í deildinni eiga erfiðari leiki fram undan en við og því er vonandi að staðan í deildinni breytist lítið. Við eigum til að mynda heimaleik gegn neðsta liðinu í lokaum- ferðinni. Næsta sunnudag kemur Pan- athinaikos í heimsókn en leikurinn er sjónvarpsleikurinn þá helgina og sýnd- ur beint. Panathinaikos hefur ekki ver- ið að leika sannfærandi og því eru möguleikar fyrir hendi að vinna þótt hér sé um sjálfa Evrópumeistarana að ræða,“ sagði Teitur Örlygsson i spjall- inu viö DV. -JKS Hertha í fimmta sætiö Hertha Berlín vann í gærkvöld góðan útisigur á Mainz 05, 0-1, í 2. deild þýsku knattspymunnar. Mainz tapaði þama sínum fyrsta heimaleik síðan í desember 1995. Það var Michael Dinzey sem skor- aði eina mark leiksins á 35. mínútu. Eyjólfur Sverrisson lék allan leikinn í vöminni hjá Herthu. Kaiserslautem er enn efst í deildinni með 34 stig. Wolsburg er í öðru sæti með 30 stig, Meppen í því þriðja með 29 stig og í 4.-5. sæti era Mainz og Hertha meö 28 stig. -JKS Úrvalsdeildin: Kærkominn sigur hjá West Ham West Ham United vann sinn fyrsta sigur á þessu ári í ensku úrvalsdeildinni þegar liðiö sigr- aði nágranna sína í Tottenham, 4-3, á Upton Park í Limdúnum. Teddy Sheringham opnaði markareikning þessa mikla markaleiks á 8. mínútu með skalla. Julian Dicks jafnaði fyrir West Ham einnig með skalla eft- ir hornspyrau á 21. mínútu og aðeins minútu síðar komust heimamenn yfir með skalia- marki frá Paul Kitson, fyrsta mark hans frá því að hann kom frá Newcastle. Darren Anderton jafnaði fyrir gestina en skömmu fyrir leikhlé gerði John Hartson fyrsta mark sitt fyrir West Ham og kom liöinu yfír, 3-2. David Howells jafnaði fyrir Tottenham í upphafi síðari hálf- leiks en á 72. mínútu var Julian Dicks aftur á ferðinni þegar hann gerði sigurmarkið úr víta- spymu. Tottenham er í 11. sæti með 32 stig en West Ham í því 17. með 25 stig. -JKS Njarðvík sigraði Njarðvík sigraði ÍR með 43 stigum gegn 40 í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld. Njarövík er í 5. sæti með 12 stig og ÍR í 6. sæti með 4 stig. Nýr formaður KRR Formannaskipti hafa orðið hjá Knattspymuráði Reykjavíkur. Baldur Maríasson, sem gegnt hefur formennsku sl. 9 ár, lét af störfum og við starfinu tók Ámi Þórðarson. Ámi hefur lengi set- ið í stjóm knattspymudeildar ÍR og einnig um hríð sem formaður. Hann hefur einnig átt sæti í stjóm KRR. Valencia í 11. sæti Einn leikur var háður í spænsku 1. deildinni í knatt- spyrnu í gærkvöld. Valencia sigraði Compostela, 2-1, á heima- velli. Tólf stiga forysta Sporting frá Lissabon sigraði Maritimo, 1-2, í Portúgal í gær. Sporting er í ööru sæti í deild- inni meö 44 stig að lokinni 21 umferö en Porto hefur tekið yfir- burðaforystu, situr á toppnum með 56 stig. Valdi klár í apríl Valdimar Grímsson, sem meiddist í Evrópuleik með Stjömunni í Vigo á dögunum, er á góðum batavegi. Þorbjörn Jensson telur að hann verði klár í slaginn um miðjan apríl. Reynir er nýliöi Reynir Þór Reynisson, mark- vörður úr Fram, fær fyrsta tæki- færi sitt með íslenska landslið- inu gegn Egyptum. Þrír markmenn á HM Landsliðsþjálfarinn í hand- knattleik upplýsti í gær að hann myndi fara meö þijá markverði á HM í Japan. Fjórir fjarverandi Patrekur Jóhannesson, Essen, Júlíus Jónasson, Suhr, Róbert Sighvatsson, Schútterwald, og Sigurður Bjamason, Minden, verða allir fjarri góðu gamni í leikjunum við Egypta. -JKS Þórsarar veltu í Hvalfírðinum Úrvalsdeildarlið Þórs í körfuknattleik lenti í hrakning- um á leið heim til Akureyrar á sunnudagskvöldið eftir leik Þórs og Breiðabliks í Kópavogi. Þórsarar veltu bíl sínum í Hvalfirði og hlutu einhverjir leikmenn skrámur en enginn slasaðist alvarlega. Þórsarar komust ekki heim til sín fyrr en í gær eftir að hafa gist í Borgar- nesi. -SK Eydís best í Keflavík 1996 Eydís Konráðsdóttir hefur verið útnefnd íþróttamaður Keflavíkur fyrir árið 1996. Eydís vann marga glæsta sigra á síðasta ári og er án efa einn besti sundmaður landsins. Þess má geta að á síðasta ári vann íþróttafólk í Keflavík til 62 íslandsmeistaratitla. -SK Versti ósigur hjá Aberdeen í 28 ár Það gengur hvorki né rekur hjá Haraldi Ingólfssyni og félög- um í skoska knattspymuliðinu Aberdeen. Um síðustu helgi tapaði Aber- deen fyrir Dunfermline, 3-0, og er þetta versta tap Aberdeen fyr- ir Dunfermline í tæpa þrjá ára- tugi. Roy Aitken, stjóri Aber- deen, lokaði sína menn inni í búningsklefa í klukkustund eftir leikinn og dagar hans hjá liðinu virðast taldir. -SK Tottenham hefur áhuga á Casiraghi Svo kann að fara að ítalski landsliðsmaðurinn Pierluggi Casiraghi gangi til liðs við Tottenham Hotspur. Casiraghi, sem er einn cif sterkustu leikmönnum Lazio á Ítalíu, hefúr ekki verið settur á sölulista en Tottenham hefur óskað eftir því við Lazio að félag- ið gefi upp hvað hann á að kosta. Greint var frá þessu í breskum dagblöðum og einnig því að Casiraghi myndi vilja fá rúmar fjórar milljónir króna í vikulaun sem verður að teljast með ólík- indum fyrir ekki betri knatt- spyrnumann. -SK Sundmót Ármanns: Snorri og Pálmi settu heimsmet Snorri Kristjánsson, ÍFR, setti um síðustu helgi heimsmet i 1500 m skriðsundi þroskaheftra á Sundmóti Ármanns. Hann synti vegalengdina á 20:58,80 mín. Pálmar Guðmundsson, ÍFR, setti einnig heimsmet í flokki S3 hreyfi- hamlaðra þegar hann synti 200 m skriðsund á 4:33,82 mín. öm Amarsson, SH, setti piltamet í 100 m flugsundi, synti á 59,17 sekúnd- um. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, setti einnig telpnamet í 50 m skriðsundi, synti á 27,42 sek., og einnig í 100 m skriðsundi sem hún synti á 59,39 sek. og hlaut kvennabikarinn fyrir. Þessi sigur hennar dugði til sígurs í kvennaflokki. Bikar fyrir stigahæsta sund mótsins hlaut Hjalti Guðmundsson, SH, fyrir frábært 100 m bringusund karla. Ríkharður Ríkharðsson, Ægi, hlaut sérstakan farandbikar fyrir 100 m skriðsund karla. Ríkharður synti á 53,26 sek. Gunnar Þór Gunnarsson, Selfossi, setti íslandsmet í flokki þroskaheftra. Hann synti 100 m baksund á 3:07,97 mín. -SK fA\ et/. _.... r <"«*■ v(* 11 IM Fýrsti sigurinn hja Norðmonnum Norðmenn fognuöu sigri í fyrsta skipti á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í gær. Bjöm Dæhlie sigraði í 10 km skíðagöngu og gekk vegalengdina á 23:41,80 mín. Annar varö Rússinn Alexei Prokurorov og kom hann í mark 27,9 sek- úndum á eftir Dæhlie. Þriðji varð Finninn Mika Myllilae og kom hann í mark rúmum fjórum sekúndum á eftir Rússanum. -SK/Símamynd Reuter Real Madrid skoðar Bjarna - félagið bauð honum utan til æfinga fram að helgi Bjami Guðjónsson, knattspymu- maður frá Akranesi, fór utan snemma í morgun áleiðis til Spánar en stórliðið Real Madrid bauð hon- um að æfa með liðinu fram að næstu helgi. Þetta telst mikill heið- ur fyrir Bjarna en Real Madrid er í hópi stærstu knattspymufélaga í heiminum. Það var fyrir helgina sem Real Madrid setti sig í samband við ÍA og óskaði eftir því að fá hann til æfinga og ákvað Bjarni að taka boðinu. Eins og áður hefur margoft kom- ið fram hefur Bjami verið við æf- ingar hjá ensku félögunum Newcastle og Liverpool. Ensku liðin hafa ekki farið í launkofa með það að þau vilja bæði krækja sér í þenn- an efhilegasta knattspyrnumann á íslandi. Hins vegar stendur á tilboð- ^ Handbolti: íslenska landsliðiö íslenski landsliðshópurinn, sem Þorbjörn Jensson tilkynnti í gær fyrir leikina gegn Egyptum, lítur þannig út: Markverðir: Hlynur Jóhannesson......HK Guömundur Hrafhkelsson.Val Reynir Þór Reynisson .Fram Aðrir leikmenn: Geir Sveinsson..Montpellier Bjarki Sigurðsson.....UMFA Dagur Sigurðsson.Wuppertal Gústaf Bjamason.....Haukar Konráð Olavson.....Stjaman Ólafur Stefánsson.Wuppertal Róbert Duranona..........KA Gunnar Berg Viktorsson.ÍBV Sigurður Sveinsson ....UMFA Njörður Ámason .......Fram Rúnar Sigtryggsson..Haukar Björgvin Björgvinsson...KA Ingi Rafn Jónsson.......Val Egyptar koma í dag Egyptar koma til landsins í dag en þeir líta á leikina við ís- lendinga sem mjög góðan undir- búning fyrir heimsmeistara- keppnina i Japan. Þeir tjalda öll- um sínum bestu leikmönnum í leikina hér á landi. íslenskir dómarar Ákveöið hefur verið að dómar- ai' á leikjum íslands og Egypta lands verði íslenskir. Þetta var borið undir Egypta sem lögðust ekki gegn því. Með þessu sparar HSÍ pening sem munar um í undirbúningi liðsins fyrir HM. Fyrri leikinn dæma Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnalds- son. Þann síðari verða Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveins- son með flautuna. Höllin og Smárinn Fyrri leikur Islendinga og Eg- ypta verður í Laugardalshöllinni annað kvöld klukkan 20.15. Sá síðari verður á fimmtudags- kvöldið i Smáranum í Kópavogi og hefst klukkan 20.15. Kínverjar á leiöinni Kínverjar leika tvo leiki viö íslendinga um næstu helgi, þann fyrri á ísafirði á sunnudag og seinni leikurinn á Selfossi verður á mánudagkvöldið. -JKS um en vænst var eftir því í síðustu viku. Úr því að Bjarni er núna við æfingar hjá Real Madrid geta ensku liðin ekki komið með tilboð fyrr en Bjarni kemur aftur til íslands. Capello stjórnar Real Madrid Real Madrid trónir um þessar mundir í efsta sæti spænsku 1. deildarinnar og hefur sex stiga for- ystu á erkifjendurna í Barcelona. Þjálfari liðsins er enginn annar en hinn ítalski Fabio Capello sem gerði AC Milan að stórveldi. Capello tók við Real Madrid fyrir yfirstandandi tímabil og virðist vera að gera stór- góða hluti með liðið. Hjá Real Madrid er valinn maður í hverju rúmi og virðist fátt ætla að koma í veg fyrir sigur liðsins í deildinni í ár þó kannski of snemmt sé að spá í slíka hluti. Þó er álit manna suður á Spáni að liðið hafi ekki leikið jafnvel í mörg ár. Það er því mikill heiður að sjálfur Capello vOji fá Bjami tU æfinga. Boö frá Glasgow Rangers stendur enn Samkvæmt heimUdum DV era fleiri lið að bætast í hópinn sem sýna Bjarna áhuga. Skoska liðið Glasgow Rangers hefur þegar boðið íslendingnum út tU æfinga en ekki er víst hvort eða hvenær Bjarni skoðar þar aðstæður fyrst Real Ma- drid kom upp á yfirborðið. Samkvæmt áætlun verður Bjami við æfingar hjá Real Madrid fram á föstudag og stefnir hann að því að koma tU íslands á laugardag. -JKS Þorbjörn Jensson: „Held öllum dyrum opnum" - ísland mætir Egyptum annað kvöld „Það reynir á strákana sem leika hér heima í leikjunum við Egypta en líklega aðeins tveir landsliðs- menn sem leika erlendis fá sig lausa í þessa leiki. Ungir og óreyndari leikmenn fá núna tækifæri tU að sýna hvað í þeim býr. Ég ákvað að að velja tvo unga markverði meö Guðmundi. Ég er með þessu vali aUs ekki að henda öðmm markvörð- um út í kuldann heldur aðeins að prufa nýja markverði. Það verður hins vegar frammistaða leikmanna í úrslitakeppninni sem ræður end- anlega vali mínu á landsliðinu fyrir heimsmeistarakeppnina í Japan," sagði Þorbjörn Jensson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, á blaða- mannafundi í gær sem efnt var til í tengslum við leikina við Egypta. „Það er ekkert sem segir að afltaf þurfi að velja sömu markverðina. Bjami Frostason er fyUUega inni í myndinni hjá mér. Ég ákvað að gefa honum hvUd því hann er búinn að standa í meiðslum. Það mun mæða mikið á honum með Haukum í úr- slitakeppninni. Svo fylgist ég auð- vitað grannt með Sigtryggi Alberts- syni,“ sagði Þorbjöm en töluvert var gengið á hann á fundinum varð- andi valið á markvörðunum. Þorbjöm kvað mikUvægt að fá leikina við Egypta en þeir leika ekki ósvipað og Alsír sem leika gegn okkur á HM. Egyptar leika framliggjandi vöm eins og Alsír en sóknarleikur Egypta er þó miklu beittari en Alsíringa. Að minnsta kosti sjö leikmanna Egypta frá HM á íslandi 1995 koma hingað í leikina við íslendinga. Þeir hafa verið að eflast mikið og æfa grimmt tU undirbúnings fyrir HM í Japan. Þeir voru á ferðalagi í Sví- þjóð fyrir áramótin og lögðu meðal annars sjálfa Svía að veUi. „Leikmenn veröa aö sanna sig í úrslitakeppninni" „Ég held öUum dyrum opnum hvað varðar val á mönnum í lands- liðið. LykiUinn að hurðum þess er frammistaða leikmanna í úrslita- keppni íslandsmótsins," sagði landsliðsþjálfarinn í gær. -JKS Tvísýnt mei Geir Óvíst er hvort landsliðsfyrirlið- inn Geir Sveinsson getur tekið þátt í landsleikjunum við Egypta. Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari sagði í gær taldi meiri líkur á því að Geir yröi ekki þátttakandi í fyr- irhuguðum leikjum. Geir fær sig ekki lausan frá franska félaginu MontpeUier en hann fékk ekki heldur leyfi þegar íslendingar léku við Þjóðverja í byrjun febrúar. Þorbjöm taldi að hann myndi ekki bæta við leikmanni í hópinn ef Geir kæmi ekki. -JKS Ætlar að ræða við Héðin Héðinn GUsson, sem leikur með þýska liðinu Fredenbeck, hefur leik- ið mjög vel með liðinu í undanfóm- um leikjum og spyrja margir sig hvort Héðinn sé ekki kominn í landsliðsklassa. Héðinn átti lengi við meiðsli að stríða en er greini- lega kominn á fuUt skrið. Þorbjöm Jensson var inntur eftir því í gær hvort Héðinn væri inni í myndinni hjá honum. „Ég sá það í fjölmiðlum að hann gæfi ekki kost á sér. Ég ætla að ræða þessi mál við hann á næstunni og auðvitað kemur hann tU greina. Mér skUst að hann hafl verið að leika vel í síðustu leikjum." -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.