Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 DV Er komið að síðasta lífi I 1- z 3. 4. 5. 6. 7. 8. I 9- 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. ( 1 ) Blur Blur ( 4 ) Earthling David Bowie (2 ) Stoosh Skunk Anansie (Al) Tragic Kingdom No Doubt (6 ) Evita Úr kvikmynd ( 3 ) Falling Into You Celine Dion ( 8 ) Spice Spice Girls ( 5 ) Strumpastuö Strumparnir ( 9 ) Coming Up Suede (-) SpaceJam Úr kvikmynd (12) Fólkerfífl Botnleðja (18) Mermann Emiliana Torrini (-) Live Secret Samadhi (17) Seif . Páll Oskar ( 7 ) Í.ÁIftagerði Álftagerðisbræður (10) Travelling Without Moving Jamiroquai (12) Ixnay on the Hombre Offspring ( - ) Nelson Mass Haydn (-) Live Seeds Nick Cave (- ) Konungur háloftanna Rjúpan London I I 1. (- ) Don't Speak No Doubt 2. ( - ) I Shot the Sherriff Warren G 3. ( 2 ) Where Do You Go No Mercy 4. ( - ) The Day We Rnd Love 911 5. ( 6 ) Don't Let Go En Vogue 6. (1 ) Discotheque U2 7. (- ) Da Funk/Musique Daft Punk 8. (- ) Let Me Clear My Throat DJ Kool 9. (_ ) She's A Star James 10. ( 8 ) Remember The Blue Boy New York -lög- | 1. (1 ) Wannabe Spice Girls | 2. ( 2 ) Un-Break My Heart Toni Braxton »3. ( 3 ) Can't Nobody Hold Me Down Puff Daddy | 4. ( 4 ) I Believe I Can Fly R. Kelly t 5. ( 6 ) You Where Meant For Me Jewel | 6. ( 5 ) Don't Let Go En Vogue t 7. ( 9 ) ln My Bed Dru Hill t 8. (-) Don't Cry For Me Argentina Madonna | 9. ( 8 ) Nobody Keith Sweat Featuring Athena... t 10. (- ) Every Time I Close My Eyes Babyface ................... Bretland — plötur og diskar— t 1. ( -) Attack of The Grey Lantern Mansum t 2. ( 5 ) The Smurfs Hits '97 The Smurfs t 3. ( 3 ) Spice Spice Girls | 4. ( 1 ) Blur Blur t 5. ( 9 ) Tragic Kingdom No Doubt | 6. ( 2 ) White On Blonde Texas | 7. ( 4 ) Evita Various t 8. ( -) Drawn To The Deep End Gene | 9. ( 8 ) Ocean Dríve Lighthouse Family | 10. ( 6 ) Blue is The Colour The Beautiful South Bandaríkin -------~=' plötur og diskar— t 1. (- ) Unchained Melody Leann Rimes t 2. (- ) Baduzm Erykah Badu | 3. (1 ) Tragic Kingdom No Doubt t 4. ( 7 ) Pieces of You Jewel í 5. ( 3 ) Secrets Toni Braxton t 6. ( 6 ) Spice Spice Girls | 7. ( 5 ) Falling Into You Celine Dion | 8. ( 4 ) Evita Soundtrack t 9. (10) Romeo + Juliet Soundtrack |10. ( 8 ) Blue Leann Rimes Aerosmith? „Eitt af því sem ég þoli ekki við hljómplötur er að þær halda ekki frá upphafi til enda. Venjulega eru á þeim tvö til þrjú góð lög en af- gangurinn er bara uppfylling. Þannig viljum við ekki hafa hlutina og þess vegna leggjum við á okkur mikið erfiði við að búa þannig um hnútana að fólk fái plötu sem því líkar við frá fyrsta lagi til hins síð- asta.“ Sá sem svo mælir er Joe Perry, annar tveggja gítarleikara í hljóm- sveitinni Aerosmith. Hún sendir á næstu dögum frá sér nýja plötu, Nine Lives. Með vísan til þeirrar trúar að kötturinn hafi níu líf vakn- ar sú spuming hvort liðsmenn hljómsveitarinnar séu að gefa til kynna að eftir stormasamt samstarf í rúmlega aldarfjóröung sé níunda og síðasta líf Aerosmith nú hafið. Hvað sem slíkum vangaveltum líður ber ekki á öðru en að Perry og félagar hans, Steven Tyler, Tom Hamilton, Joey Kramer og Brad Difford, hafi lagt sig alla fram við að gera aðdáendunum til hæfis. Auk þess að Perry og Tyler settust niður ög sömdu fjölda laga fengu þeir aðra lagahöfunda til liðs við sig. Þeirra á meöal vom Marti Fredriksen, Desmond Child, Mark Hudson og Glen Ballard. „Við vorum komnir með heilu hlaðana af lögum á ýmsum vinnslu- stigum og þá teljum við ekki með lögin sem gengu af þegar við tókum upp síðustu plötur okkar,“ segir Joe Perry. „Það gengu til dæmis fimmtán af þegar við tókum upp plötuna Get a Grip. Svona þarf mað- ur bara að vinna ef maður ætlar að skila almennilegu verki. Það þýðb- ekkert að vera með sjálfsvorkunn- arsemi." Annasamur tími Útkoman virðist vera viðunandi ef marka má álit þeirra sem hlustað hafa á Nine Lives. Lagið Taste of India er undir austrænum áhrifum. Fallen Angel þykir ákaflega mynd- rænt. Hole in my Soul og Ain’t that a Bitch eru í rólegri kantinum en með þungum undirtóni og Crash, 9 Lives, The Farm, Attitude Adjust- ment og Something’s Gotta Give eru dæmigerð rokklög í ekta Aer- osmith- anda. Nine Lives er tólfta hljóðvers- plata Aerosmith. Sú ellefta, Get a Grip, kom út 1993. Henni var fylgt eftir með tuttugu mánaða vel heppnaðri hljómleikaferð (Perry, Difford og Hamilton höfðu samtals með sér 59 gítara og slitu alls 96.450 strengjum!) og síðan ferðinni lauk hafa fimmmenningamir unnið að ýmiss konar verkefnum auk þess að gera klárt fyrir Nine Lives. Meðal annars hafa þeir unnið að sögu hljómsveitarinnar í samvinnu við metsöluhöfundinn Stephen Davies, opnað næturklúbb í heimaborginni Boston og tekist á hendur ýmiss konar verkefni sem tengjast marg- miðlun. Ætlunin virðist því svo sannarlega vera sú að gera níunda líf hljómsveitarinnar sem glæsileg- ast. Þá er Aerosmith aftur byrjuð að vinna með hljómplötuútgáfunni Columbia sem samningar voru gerðir við í upphafi ferilsins. Á ní- unda áratugnum kreppti töluvert að og þá slitnaði upp úr samstarfmu. Hljómsveitin var því á mála hjá Geffen- útgáfunni í nokkur ár. Vistaskiptin voru tilkynnt árið 1991. Hljómsveitir leika það iðulega eftir að nýir samningar takast að láta gamla útgefandann hafa annars eða þriðja flokks efni til útgáfu. En samstarf Aerosmith og Geffen virö- ist hafa verið með þeim ágætiun að hljómsveitin slakaði hvergi á við gerð Get a Grip. Og að sjálfsögðu segjast fimmmenningamir hafa lagt sig alla fram við Nine Lives. „Hún er hefðbundin Aerosmith- plata með blæ tíunda áratugarins," segir Joe Perry. Kevin Shirley var fenginn til að stýra upptökum og segir Tom Hamilton að samstarfiö hafi gengið eins og best varð á kos- ið. „Kevin vill hafa sem mest líf í upptökunum og þess vegna reyndi hann að nota sem mest af upptökun- um þar sem við vorum allir fimm að vinna í hljóðverinu í einu.“ Steven Tyler söngvari tekur imd- ir að samstarfið við Kevin Shirley hafi gengið eins og best varð á kos- ið enda hafi útkoman orðiö eftir því. „Platan er mjög melódísk, undar- lega ljóðræn,” segir Tyler. „Reynd- ar er hún svolítið fáránleg á köflum og krefjandi. En viðlögin eru þannig að menn geta hengt hattinn sinn á þau þegar þeir heyra þau í fyrsta skipti. Þannig viljum við líka hafa það.“ Samantekt: ÁT Grammy-lögin sungin og leikin Grammy-verðlaunin voru afhent í gærkvöld við hátíðlega athöfn. Undan- farin ár hefur það tíðkast að gefa út plötu með eins konar úrvali laganna sem tilnefnd eru og var sú einnig raunin að þessu sinni. Að sjálfsögðu kemst ekki nema brotabrot þeirra laga á disk sem koma til greina við verðlaunaveitinguna. Á plötunni 1997 Grammy Nominees eru til dæmis þrettán lög sem keppa í aðeins þrem- ur flokkum af þeim tugum sem verð- launað er í. Þetta eru flokkarnir Besta lagið, Besti nýi flytjandinn og Besta söngkonan. Flest lögin á Grammy-plötunni eru fyrir löngu orðin gamlir kunningjar. Má þar nefna Stupid Girl með hljóm- sveitinni Garbage sem keppti um verðlaunin í flokki athyglisverðustu nýliðanna. Þar var einnig Jewel sem keppti með lagið Who Will Save Your Soul en hún glímdi jafnframt i flokki söngkvenna ársins. Sömu sögu var að segja um Celine Dion sem leggur til lagið Because You Loved Me. Alanis Morrisette, sigurvegari Grammy-hátíðarinnar í fyrra, á að sjálfsögðu einnig lag á plötunni. Það er Ironic og keppti það um besta lag ársins. Blúsaramir Tracy Chapman og Eric Clapton áttu einnig lög í Grammy-glímunni sem er að finna á plötnni. Það eru lögin Give me one Reason og Change the World. Þetta mun vera í þriðja sinn sem plata með sérvöldum Grammy-verð- launum er boðin til sölu hér á landi. Fyrsta árið seldist hún í rúmlega tvö hundruð eintökum, næst í rúmlega tveimur þúsundum og nú er að sjá hvort eintakafjöldinn tífaldast ffá síð- asta ári. Ásgeir Tómasson Toni Braxton er á Grammy- plötunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.