Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Blaðsíða 12
tyndbönd FÖSTUDAGUR 28. FEBRUAR 1997 MYNDBAtlDA Diabolique Sálfræðiþríller ★★ Diabolique byggist á klassískri franskri mynd og notar meira að segja franska orðið fremur en það bandaríska i nafninu. Chazz Palminteri leikur afar ógeðfelldan mann sem niðist á veikbyggðri og hlé- drægri eiginkonu sinni (Isabelle Adjani) og fer lítið skár með viðhaldið sitt (Sharon Stone), sem er eins konar andstæða eiginkonunnar, sjáifsörugg og frökk. Þær rotta sig saman um að kála ófétinu. Þær byrla honum eitur, drekkja honum i baðkarinu sínu og henda svo líkinu í sundlaug. Síðan fer virkilega að reyna á taugarnar í þeim þegar líkið finnst ekki. Svo virðist sem einhver viti af gjörðum þeirra, einkaspæjari nokkur (Kathy Bates) fer að hnýsast í málið og þær fara jafnvel að efast um að kallinn sé í rauninni dauður. Myndin fer vel af stað og byggir upp ágæta spennu fyrsta hálftím- ann eða svo en verður síðan svolítið langdregin þangað til í lokin að loks- ins fer að draga til tíðinda. Þá hins vegar versnar málið því að óvænti endir- inn kemur ekkert á óvart og myndin leysist upp í dæmigert Hollywood- bull. Sterk persónusköpun og öruggur leikur allra aðalleikaranna bjargar miklu en myndin skilur ekki mikið eftir sig. Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Jeremiah Chechik. Aðalhlutverk: Sharon Stone, Isabelle Adjani og Chazz Palminteri. Bandarísk, 1996. Lengd: 103 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Faithful Leikrit kvikmyndað Faithful byggist á samneöidu leikriti eftir Chazz Pal- minteri sem einnig skrifar handritið að myndinni og leikur eitt af aðalhlutverkunum. Cher leikur ríka, mið- aldra glæsikonu sem er afar óhamingjusöm í hjóna- bandi sínu. Á tuttugu ára brúðkaupsafmæli hjónanna fær hún í heimsókn leigumorðingja (Chazz Palminteri) sem segist hafa verið ráðinn af eiginmanni hennar (Ryan O’Neil) til að drepa hana. Hann á að bíða eftir símtali frá eiginmanninum og á meðan rabba morðing- inn og fórnarlambið saman, kynnast hvort öðru og deila vandamálum sínum. Þess á milli talar morðinginn við sálfræðinginn sinn í síma. Þau fá samúð hvort með öðru og þegar eiginmað- ruinn loksins kemur heim færast átökin upp á nýtt stig. Leikritseinkenni sögunnar eru afar greinileg. Persónur eru fáar - í raun hefði mátt komast af með þrjár - og atburðarásin byggist nær algjörlega á samtölum helstu per- sónanna sem eru vel skrifuð og sagan er áhugaverð og skemmtileg. Cher og Chazz Palminteri ná mjög vel saman og sýna góðan leik. Paul Mazursky leik- stýrir og tekst vel til en hann getur verið æðimistækur. Þess má geta að hann leikur einnig sálfræðinginn. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Paul Mazursky. Aðalhlutverk: Cher, Chazz Palminteri og Ryan O'Neil. Bandarísk, 1996. Lengd: 91 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Space Truckers: ★★★ Vörubílstjórar himingeimsins lifiip niHCKiiin ■_jL jf - ,i! .. ý. : w %:) . * ‘ar&i i ________________________| Hér segir frá John Canyon sem er geimvörubílstjóri. Hann lendir upp á kant við fyrirtækið og neyðist til að taka að sér flutning á ólöglegum farmi til jarðarinnar. Með honum í för er ungur ofurhugi og fögur stúlka sem báðir girnast. Þegar þau lenda i klónum á óþjóða- lýð undir stjórn fyrrum starfsmanns fyrirtækisins, sem er eiginlega meira úr málmi en holdi og blóði, kemru í Ijós að farmurinn er ógrynni af stórhættuleg- um stríðsvélmennum sem eira engu og eru nánast ósigrandi. Þau þrjú verða að sleppa frá rustamönnun- um, sigrast á ofurvélmennunum og komast til jarðar- innar svo að stúlkan geti heimsótt mömmu sína á sjúkrahús. Sagan er út í hött en bráðfyndin, frumleg og skemmtileg. Tæknibrellur eru með mestu ágætum og útlit myndarinnar ferskt. Dystópíuútlitinu er varpað fyrir róða og allt málað í björtum litum (fyrst fólk hefur efni á geimskipum hlýtur það að hafa efhi á málningu). Myndin er óður til B-vísindaskáldskapar en tek- ur sig ekki alvarlega og passar sig á að hafa húmorinn i fyrirrúmi. Leikar- amir skemmta sér greinilega vel og eiga þátt í að skapá það afslappaða og létta andrúmsloft sem yfir myndinni sveimar. Space Truckers er einhver besta mynd af sinni tegund sem komið hefúr fram lengi. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Stuart Gordon. Aðalhlutverk: Dennis Hopper, Stephen Dorff og Debi Mazar. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Sticks and Stones Einelti irkk Sticks and Stones segir frá þremur þrettán ára göml- um strákum sem eru bestu vinir. Þeir hafa allir mikinn áhuga á hafhabolta og einn þeirra hefur þann sérstaka hæfileika að geta kastað bolta fastar en flestir. Þeir eru sannfærðir um að hann eigi eftir að verða stórstjama í íþróttinni en eiga erfitt með að fá eldri strákana í hafna- boltaliðinu til að taka mark á honum. Ofan á vandræði þeirra bætist síðan strákur sem leggur þá í einelti eftir að einn þeirra móðgar hann. Ekki svo lítið gengur á og eftir að hann hefur auðmýkt þá og misþyrmt um nokkurn tíma og hvorki foreldrar né skólayfirvöld virð- ast geta tekið á vandanum ná þeir sér í skammbyssu og hyggjast leysa vandamálið sjálfir. Sagan er í grundvallaratriðum góð og gefur góða innsýn í grimmlynda veröld eineltis. Stundum missir myndin sig þó út í bandaríska sykurfroðu og þá sérstaklega í blárestina. Ég ráðlegg fólki að hætta bara að horfa eftir atriðið á sjúkrahúsinu - myndin er betri án þess sem kemur á eftir. Krakkarnir em misgóðir. Ha&aboltasniUingurinn og óþokkinn em vel leiknir en hinir strákamir eru ekki sterkir á svellinu. Kirstie Alley er bara furðu þolanleg, kannski vegna þess að hún er ekki að reyna að vera fyndin, og Gary Busey er fær leikari sem fer létt með rulluna sina. I heildina litið er þetta góð vandamálamynd sem þjáist af vægum sykurfroðueinkennum. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Neil Tolkin. Aðalhlutverk: Justin Isfield, Chauncey Leopardi, Max Goldblat og Jordan Brower. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Öllum leyfð. -PJ Myndbandalisti vikunnar SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. 1 msmmt m 1 2 Independence Day Last Man Standing Skífan Spenna Kt ; 1 Myndform Spenna 3 2 4 Mission Impossible ClC-myndbönd Spenna 4 4 2 Eye for an Eye ClC-myndbönd Spenna 5 3 5 Fargo Háskólabíó Spenna mtsa. 6 7 1 BH 2 ; bMB Mr. Wrong ■ Sam-myndbönd Gaman NÝ i Diabolique ; Warnermyndir Spenna 8 6 m pt 5 i Truth about Cats and Dogs i Skrfan « Gaman 9 10 3 Bio-Dome ! Sam-myndbönd , Gaman 10 5 5 Spy Hard Sam-myndbönd Gaman 11 n : 3 Last Dance Sam-myndbönd Drama 12 9 : 7 ; Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman 13 8 7 ; Rock Sam-myndbönd Spenna , r NY 1 i Powder r Sam-myndbönd Drama 15 : 12 ; 6 ; Cable Guy [ Skífan ! Gaman NÝ 5 ■ r i T i 1-? ^i i Spacetruckers Bergvík Gaman 17 : 14 : 3 : X-Files: Tunguska f Skrfan Spenna „í 13 . 4 The Quest I Myndform Spenna 19 16 ; 3 Final Cut Háskólabíó j Spenna 1 ' 20 J NÝ 1 Ed ClC-myndbönd Gaman Það var ekki við því að búast að Independence Day myndi iáta eftir efsta sæti myndbandalistans og þótt spennu- myndin Last Man Standing komi sterk inn þá nær hún að- eins öðru sætinu. Independence Day var langvinsælasta kvikmynd síðasta árs og er núna í hópi allra vinsælustu kvikmynda sem gerðar hafa verið. Myndin er ein þeirra kvikmynda sem njóta sín best í kvikmyndahúsum þar sem fullkomnustu tæki eru fyrir hendi. Þegar hún er komin á myndband og sýnd á smágerðum sjónvarpsskermi er hætt við að hún missi mikið af aðdráttarafli sínu. Auk Last Man Standing eru nýjar á lista Diabolique, sakamálamynd með Sharon Stone, Þowder, dramatísk mynd um unglingspilt sem geidur fyrir það að iíta ekki út eins og aðrir, geimfant- asían Spacetruckers og gamanmyndin Ed. Independ- ence Day Jeff Goldblum og Bill Pullman Vísindamenn NASA verða varir við að einhverjir risastórir hlutir eru á sveimi í geimnum og áður en langt um líður kemur í ljós að þetta eru geimför frá óþekktri plánetu. Á skömmum tíma sigla þessi risastóru skip inn í gufuhvolfíð og taka sér stöðu fyrir ofan allar helstu höf- uðborgir heimsins. Brátt skýrist að ekki er um neina vináttu- heimsókn að ræða heldur stefna geim- verumar á að út- rýma jarðarbúum. » m m . mi iftr n t»« FÁRGO ! -i! Last Man Standing Bruce Willis og Christopher Wal- ken Sögusviðið er lítill bær, Jericho í Texas. Þangað kemur dag einn ókunnugur maðru sem nefnir sig John Smith. Ekki líður á löngu tms hann er búinn að flækja sig hressilega í harðvítugar deilur tveggja glæpagengja sem berjast um völd- in í bænum. Smith er samt ekkert lamb að leika sér við eins og andstæðingar hans komast fljótt að og hann aflar sér fljótt virðingar glæpaforingjanna. Mission: Im- possible Tom Cruise og Jon Voight Um skeið hefur CIA haft grun mn að einhver innan leyni- þjónustunnar sé að selja hátæknOeynd- armál. Njósnarinn Ethan Hunt og hans fólk er að undirbúa að afhjúpa bæði svik- arann og kaupand- ann. Allt gengur samkvæmt áætlun þar til aðgerðinni er að ljúka, þá fer allt úrskeiðis og allir eru drepnir nema Himt. Fljótlega áttar Hunt sig á að hann er sjálf- ur orðinn hinn gnm- aði i málinu, enda sá eini sem eftir er sem vissi um aðgerðina. Eye for an Eye Sally Field, Kiefer Sutherland og Hd Harris Líf McCann-fjöl- skyldunnar breytist í martröð þegar dóttir þeirra er myrt á hrottalegan hátt. Skömmu síðar hand- tekur lögreglan mann sem er sterk- lega grunaður um morðið. það verður mikið áfall fyrir móðurina þegar manninum er sleppt því hún er sannfærð um að þessi maður sé morðinginn og ákveður nú að fylgj- ast með ferðum hans. Fargo Frances McDormand og Steve Buscemi Uppburðarlítill bílasali hefur komið sér í skuldasúpu. Til að bjarga málum fær hann tvo krimma til að ræna eiginkonu sinni og eiga þeir að krefja forríkan tengdafóður hans um lausnarfé. Þegar krimmamir drepa lögreglumann og tvo saklausa vegfarend- ur fer máliö langt út fyrir það sem bilasal- inn ætlaði. Það kem- tu í hlut lögreglu- stjórans í Fargo, hinnar kasóléttu Marge, að rannsaka málið. Brátt tekst henni að tengja á milli morðanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.