Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
nlist
★
★ ★
Hljómsveitin U2 er komin fram í
dagsljósiö að nýju. Ellefta plata
hennar, Pop, kemur út á mánudag
og í apríl hefst hljómleikaferð sem
tekur að minnsta kosti eitt ár.
Því hefur verið haldið fram að
með nýju plötunni hafi U2 að mestu
sagt skilið við rokktónlistina og
gengið danspoppi á hönd. Fyrsta
smáskífan með lagi af Pop nefnist
Discoteque og þar eru dansáhrifin
vissulega fyrir hendi. En þegar
rennt er yfir lög nýju plötunnar má
með sanni segja að þar ríki fjöl-
breytnin.
„Okkur langaði til þess að leita
uppi nokkrar nýjar aðferðir úr dans-
tónlistinni og vinna út frá þeim á
okkar forsendum," sagði The Edge,
gítarleikari U2, nýlega í blaðavið-
tali. „Það er óneitanlega í heimi
danstónlistarinnar sem gróskan er
mest um þessar mundir og því er
ekkert óeðlilegt að við og aðrir bein-
um sjónum okkar að henni. Þar af
leiðandi fór langur vinnslutími nýju
plötunnar í að skoða hvað er um að
vera í teknó, trance og hip hop-tón-
listinni, læra handbrögðin sem þar
eru viðhöfð og síðan að beita þeim
við vinnslu laganna sem við höfðum
þá þegar samið fyrir nýju piötuna."
Enginn Eno
Vinna við Pop hófet í London
sumarið 1995. Þá unnu The Edge,
Bono, Larry Mullen og Adam
Clayton með upptökustjóranum
Nellie Hooper sem meðal annars
hefur gert garðinn frægan með
Björk og Madonnu. Afrakstur þess-
arar vinnu er lögin Wake up Dead
Man og If you Wear That Velvet
Dress.
Þráðurinn var síðan tekinn upp
að nýju heima á írlandi í febrúar í
fyrra og þá var Howie B kominn til
starfa í stað Hoopers sem einhverra
hluta vegna er ekki skráður sem
samstarfsmaður að lögunum tveim-
ur. Aðalupptökustjóri plöfimnar var
hins vegar samstaifsmaður til
margra ára, Flood að naftii. Pop er
fyrsta plata U2 í þrettán ár (að
hljómleikaplötunni Rattle and Hum
undanskilinni) þar sem Brian Eno
er ekki með í ráðum.
„Annars vegar held ég að hann
hafi ekki haft áhuga á að vinna að
plötu sem þessari, kraftmikilli og
háværri,“ segir The Edge. „Ég hef
tekið eftir því að leiðir okkar hafa
er oríum aukin
verið að skilja hin síðari ár. Hins
vegar mátum við málið þannig að
það væri okkur í hljómsveitinni
annars vegar og honum hins vegar
hollt að hvíla okkur hverjir á öðr-
um. Reyndar tel ég að á lokasprett-
inum hefði það verið mjög gott að
hafa Brian með í ráðum en í stórum
dráttum er hann að þróast í aðra átt
en við. Ég tel samt að við eigum eft-
ir að vinna aftur saman síðar."
Hljómsveitin lenti í tímahraki
með Pop. Platan átti að koma út síð-
asta haust en Larry Mullen segir aö
hljómsveitin hafi sett sér óraunhæft
markmið með því að ætla að vinna
heila plötu á átta mánuðum. „Platan
small reyndar ekki saman fyrr en á
síðustu tveimur mánuðum vinnsl-
unnar,“ segir hann. „Þaö var
kannski jafti gott því að ef við hefð-
um eytt samfellt einu og hálfú ári í
að gera þessa plötu væru sum lögin
orðin harla gömul núna. Það var
sem sagt allt í stöðugri endurskoðun
fram á síðustu stund.“
U2-áratugurinn?
Fjórmenningamir í U2 hafa sett
svip sinn á tíunda áratug aldarinnar
með óyggjandi hætti. Haustið 1990
kom út platan Achtung Baby sem
hafði veriö í vinnslu rúmlega ár þar
á undan. Útgáfunni var fylgt eftir
með hljómleikaferöinni Zoo-TV.
Hún er talin vera ein hin umfangs-
mesta sem farin hefur verið til
þessa. Hljómsveitin lék í tónleika-
höllum í Norður-Ameríku og Evr-
ópu og færði sig síðan á íþróttaleik-
vanga. Achtung Baby er vinsælasta
plata U2 til þessa, sé horft á sölutöl-
umar einar. Platan seldist í rúmlega
tiu milljónum eintaka og um þaö bil
fimm milljónir áhorfenda mættu á
Zoo-TV- tónleikana.
Hljómsveitin lét ekki þar við sitja.
Vorið 1993 tók hún sér hlé frá tón-
leikahaldinu og notaði þá tækifærið
til að hljóðrita plötuna Zooropa. Á
henni mátti greina þá ringulreið og
álag sem einkenndi líf fjórmenning-
anna meðan á ferðinni stóð. Þeir
létu sig samt hafa það að Ijúka við
að hljóðblanda lögin á plötunni eftir
að feröin hófst að nýju og kom plat-
an út síðsumars 1993.
Bono, The Edge, Adam Clayton og
Larry Mullen hafa ekki setið með
hendur í skauti eftir aö Zoo-TV-ferð-
inni lauk þar tU þeir hijóðrituðu
Pop. Árið 1995 sendu þeir frá sér
plötuna Melon sem hafði aö geyma
nýjar hljóðblandanir gamalla laga.
Plötunni var dreift með timaritinu
Propaganda sem hinn opinberi aðdá-
endaklúbbur hfjómsveitarinnar gef-
ur út. Þá lagöi hijómsveitin tU lagið
Hold me, ThrUl me, Kiss me, KUl me
í kvikmyndina Batman Forever.
Hún kom fram á plötunni Original
Soundtracks Volume 1 undir nafn-
inu Passangers. Bono og The Edge
sömdu titUlag kvikmyndarinnar
Goldeneye og Clayton og MuUen
komust á vinsældalista í fyrra meö
lagið Theme From Mission: Impossi-
ble. Síðustu ár hafa fjórmenningam-
ir þó haldið að mestu tU heima á ír-
landi en í aprU leggja þeir enn af
stað í víking og verða á ferðinni í að
minnsta kosti ár í viðbót. Þeir vita
sjálfir ekki hvað tekur viö eftir þaö
en segja að freistandi væri aö fara
að dæmi REM fyrir nokkrum árum
og senda frá sér eina eða tvær plöt-
ur án þess að fylgja þeim eftir með
ferð um heimsbyggðina. .
U2 f sátt og samlyndi: Þeir deildu lítiö meðan á upptökum Pop stóö.
Kiss-dúkkur á
markaðinn
Máluðu ofurhetjumar í Kiss
hafa gengið tU liðs við höfúnd
Spawn teiknimyndasagnanna,
Todd McFarlane, en hann hefur
hannað litlar Kiss-dúkkur sem
verða seldar á tónleikum Kiss í
sumar.
Bítill gerir mynd og
plötu
BítUlinn fyrrverandi, Paul
McCartney, er nú að gera
klukkustundarlanga heimUdar-
mynd um ferU sinn eftir að hann
hætti með Bítlunum. Myndin
verður sýnd í Bretlandi í maí. Á
sama tíma kemur út ný plata
með honum. Ringo Starr, Steve
MUler og Jeff Lynne munu að-
stoða Paul McCartney á plöt-
unni.
Bassaleikari á hvíta
tjaldið
Bassaleikari Red Hot ChUli
Peppers, Flea, mun leika í nýrri
mynd Cohen-bræðra er kallast
The Big Lobowsky. Bamsfaðir
Madonnu, Carlos Leon, og Jeff
Bridges mirnu einnig leika í
myndinni.
Aðrir meðlimir Red Hot ChUli
Peppers em einnig uppteknir af
hliðarverkefnum. TU dæmis em
gítarleikarinn Dave Navarro og
Chad Smith að vinna að rokk-
plötu saman en Navarro vUl ekki
kaimast við að sögusagnir um að
gamla hljómsveitin hans, Janels
Addiction, sé að koma saman aft-
ur. Red Hot Chilli Peppers munu
koma saman í hljóðveri í aprU tU
að vinna að gerð nýrrar tónlist-
ar.
Dópari sektaður
Gítarleikari Super Furry
Animals, Huw Bunford, var
sektaður á dögunum um 80 þús-
imd krónur fyrir að vera með
kókaín í fórum sínum.
Komist úr kröggum
Rokktríóið Shudder to Think
frá New York hefur gefið út nýja
plötu sem það kaUar 50.000 B.C.
Platan kemur út í kjölfar mikiUa
erfiðleika hjá sveitinni en söngv-
ari hennar, Craig Wedren, var á
tímabUi mjög alvarlega veikur.
Barry Manilow með
þrumandi danstakt
KyntröUið Barry ManUow hef-
ur gefið dansútgáfu af laginu 11 d
ReaUy Like to See You Tonight
en það lag gerði hann frægt á átt-
unda áratugnum.