Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Side 6
- ma helgina
★ -jir
FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 DV
■ J~\7~ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997
helgina 25
veihngastaðir
A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
1693. Opið 11.30-22.30 alla daga.
Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd„
17.30- 23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstíg Ua, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd.,
11.30- 23.30 fd. og ld.
Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
Á nœstu grösum Laugavegi 20, s.
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
v.d., 18-22 sd. og lokað ld.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
Op. 18-22 md.- fid. og 18-23 föd.-sd.
Café Ópera Lækjargötu 2, s. 552
9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld.,
11.30- 1 v.d.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562
3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
og sd. frá 16—21.
Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld.,
12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, s. 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
568 9509. Opið 11-22 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
5-23, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d.,
12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d.,
Súlnasalur 19-3 ld., Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d., 10-1
ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá
11.30- 23.30.
Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Mávur
Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d., 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
5022. Opið 17-21.45 v.d., 17-22.45
fd., ld. og sd.
Kina-húsið Lækjargötu 8, s. 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d.,
17.30- 23 fd., 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30,
sd.-fid. 11.30-22.30.
Kofí Tómasar frænda Laugavegi 2,
s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
11- 03 fd. og ld.
Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
17.30- 23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d.,
12- 14 og 18-03 fd. og ld.
Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. ogld.
Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
I. 00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
18-23.30 v.d., 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
Primavera Austurstræti, s. 588
8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„
18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
s. 588 0222. Opið alla daga fré kl.
II. 30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjörnina Templarasundi 3, s.
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
562 1934. Opið fid.- sud„ kaflist. kl.
14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
7200. Opið 15-23.30,v.d„ 12-02 a.d.
Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs-
götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
og 18-23.30 ld. og sd.
Dansflokkurinn Allatantou í Loftkastalanum:
Dulúðlegt andrúmsloft
haldið sýningar og námskeið
víða um heim og er af þekktri
Vestur-aíriski danshop-
urinn Allatantou mun
halda sýningu í Loft-
kastalanum á morg-
g un en meðlimir
■ *> hópsins eru frá
R' Guineu, Gambíu
& og Martinique.
» Forsprakki hóps-
L ins er Abdoulaye
Camara frá
Guineu í Vest-
ur-Afríku.
Hann
'oKSk hefur
dansfjölskyldu í Guineu. Föðurbróðir hans er
listdansstjóri þjóðardansflokksins i
Djoliba og ráðherra menningar og
íþróttamála í Guineu. Abdoulaye hefur
m.a. staðið fyrir alþjóðlegum námskeið-
um í heimalandi sínu í trumbuslætti og
afrikudönsum.
Hefbundnar þjóðsögur
færðar upp á svio
Töfralæknar og djöflar,
svartur og hvítur galdur, eld-
gamall arfur afriskra sagna-
manna og kvenna. Allt kemur
þetta fram í sýningu AUatantou-
hópsins. Hefðbundnar þjóðsögur,
siðir og dýratrú í Mandinka, Mand-
inka-morri og Suso-ættbálkanna, sem
gengið hafa mann fram af manni í
munnlegri frásögn, eru hér færðar
upp á leiksviðið og gefa áhorfendum
örlitla innsýn í falinn heim og hefð-
bundna menningu þessa fjarlæga
heimshluta.
Vestur-afríski dansflokkurinn Allatantou sýnir listir sínar í Loftkastalanum á morgun. Forsprakki hópsins, Abdou-
laye, gleypir m.a. eld ásamt því að setja logandi bómull í munn sér.
Töfratrumban
flokkurinn færir upp á svið, segir frá voldug-
um töfralækni sem hjálpar imgum trumbu-
leikara ásamt flokki hans af dönsurum og tón-
listarmönnum í fimm ára langri baráttu við að
vinna tónlistarsamkeppni. Hver sá sem leikur
á töfratrumbuna hans finnur fyrir óþekktum
hæfileikum.
Timi samkeppninnar nálgast og ungi
trommuleikarinn fer til þorpsöldunganna til
að fá ráðleggingar þeirra. Þeir segja honum
frá töfralækninum og hvar hann sé að fmna.
Ungi maðurinn leggur af stað til töfralæknis-
ins sem ákveður að hjálpa honum en vill fyrst
reyna á hugrekki hans með ýmsu móti. Að
lokum fær ungi maðurinn trumbuna í hendur
og kallar saman hópinn sinn og hver veit, ef
til vill vinna þeir keppnina í þetta sinn.
Höndlar eld í lófum sínum
Á sýningum hópsins myndast jafnan dulúð-
ugt andrúmsloft og sannkölluð fnunskógar-
stémning þegar afriski meistara- dansarinn og
eldgleypirinn Abdoulaye frá Guineu sýnir list-
ir sínar. Sýningarnar hefjast á guineskum
dansi og þróast út í að dansarinn gleypir eld
ásamt því að selja logandi bómull í munn sér.
Eldinn höndlar hann einnig í lófúm sínum og
dregur hann milli fóta sér.
DV-mynd Hilmar Þór Ein þjóðsagan, sem Ailatantou
Fjórðu tónleikar
Schubert- hátíðarinnar
Á morgun munu sjö tónlistar-
menn flytja sönglög og kammer-
verk eftir Franz Schubert á fjórðu
tónleikum Schubert-hátíðarinnar
í Garðabæ. Það eru þau Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Jón Þorsteinsson,
Guðni Franzson, Kolbeinn Bjama-
son, Gunnar Kvaran, Þorkell Jó-
elsson og Gerrit Schuil sem flytja
fjölbreytta dagskrá.
Yfirskrift tónleikanna er
Schubertiade en svo kölluðu
Franz Schubert og vinir hans þær
stundir þegar þeir hittust til þess
að gera sér glaðan dag, hlusta á
nýja tónlist sem tónskáldið hafði
samið og hlýða á nýtt ljóð úr
penna einhvers vinanna.
Lögð er áhersla í efhisvali á að
velja saman hin þekktustu tón-
verk meistarans og svo þau sem
sjaldan heyrast flutt en standa
hinum frægari sist að baki. Á tón-
leikunum mun Jón Þorsteinsson
syngja lagið Trockne Blumen sem
síðan myndar Stef við tilbrigði
fyrir flautu og píanó sem Kol-
beinn Bjarnason og Gerrit Schuil
leika. Þá flytjá þeir Gunnar Kvar-
an og Gerrit Arpeggione-sónötu
Schuberts fyrir selló og píanó. Sig-
rún Hjálmtýsdóttir syngur þrjú
verk, Rómansa, Auf dem Strom og
Hirðingjann á bamum sem var
síðasta tónverkið sem Schubert
samdi.
Tónleikarnir verða haldnir í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
við Vídalínskirkju í Garðabæ og
hefjast kl. 17.
íslenskrar náttúru
Tónlistar- og
myndlistarmað-
urinn Jóhann G.
Jóhannsson varð
fimmtugur þann
22. febrúar og í
tilefni af því opn-
aði hann sýn-
ingu í Gallerí
Borg við Ingólfs-
torg. Jóhann er
löngu orðinn
landsþekktur,
bæði sem tónlist-
armaður og
myndlistarmað-
ur og á síðustu
misserum hefur
hann unnið jöfn-
um höndum að
myndlistinni og
tónsmíðum.
Jóhann G. Jóhannsson tónlistar- og
myndlistarma&ur sýnir 35 verk,
unnin með vatnslitum og blandaðri
tækni, í Gallerí Borg við Ingólfstorg.
Á sýningu Jó-
hanns eru 35
verk sem unnin
eru með vatns-
litum og bland-
aðri tækni, þar
sem leitast er
við að túlka
andstæður og
mikilfengleika
hinnar íslensku
náttúru.
Sýningu á
verkum Jó-
hanns lýkur á
sunnudag en
hún verður
opin kl. 14-18
um helgina.
Risa antik-uppboð:
íslenskur söðull frá 1749
Um helgina veröur haldið
antik- og listmunauppboð í
Síðumúla 34 þar sem um 400
munir verða boðnir upp.
Þetta er í fyrsta skipti sem
svo stórt uppboð fer fram hér
á landi.
Meðal muna sem boðnir
verða upp eru t.d. sófaborð, stól-
ar, borðstofuborð, buffet, lín,
klæðaskápar o.fl. Eikar- og furu
húsgögn eru í meirihluta en
einnig er mikið af mahóní-
húsgögnum. Húsgögnin eru
öll flutt inn frá Danmörku og
eru misjafnlega gömul. Það
elsta er skápur frá því um
1760 en elsti hluturinn er
íslenskur söðull frá árinu
1749, merkisgripur sem
merktur er upphafsstöfunum
K.Þ.D. Einnig verður boðin
upp glæsileg fornbifreið, Chevro-
let Pickup 3100, árgerð 1954, ný-
standsettur og skoðaður.
Uppboðsverkin eru til sýn-
is í dag frá kl.
kl. 14. og verður síðan ffarn haldið
á sunnudaginn kl. 14.
Þessi
glæsilega
fornbifreið, Chevrolet
Pickup, árgerð 1954, er
meðal þeirra gripa sem boðnir
verða upp á risa antik-uppboði um
helgina.
Barpar:
Sýningamet í
Borgarleikhúsinu
Á morgun verður 95. sýning á
Barpari í Borgarleikhúsinu og
hefur ekkert leikrit verið sýnt
þar jafnoft. Þessi vinsæla sýning
var frumsýnd í október árið 1995
og hefur gengið fyrir fullu húsi
síðan.
Leikhúsgestir sitja við borð og
geta notið veitinga meðan á sýn-
ingu stendur og fylgst með eig-
endum barsins og skrýtnum
gestum sem reka inn nefið.
Saga Jónsdóttir og Guðmimd-
ur Ólafsson leika öll hlutverkin
eða 14 alls. Leikstjóri er Helga E.
Jónsdóttir, leikmynd og búninga
hannaði Jón Þórisson en lýsingu
annaðist Lárus Bjömsson.
Sýningum fer nú óðum fækk-
andi og sala er hafin á þær fimm
síðustu.
Tónleikar tileinkaðir
rómantíska tímabilinu
í kvöld halda þeir Jón Aðalsteinn
Þorgeirsson klarinettuleikari og Krist-
inn Öm Kristinsson píanóleikari tón-
leika í Listasafhi Islands. Fyrri hluti
tónleikanna verður tileinkaður hinu
rómantíska tímabili tónlistarsögunnar
þar sem leikin verða verk eftir R.
Schumann, N. Burgmuller, H. Baerm-
an og C. Nielsen. Á síðari hluta þeirra
verða leikin tónverk sem samin era á
þessari öld, eftir þá A. Honegger, P.
Hindemith og W. Lutoslawski. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30.
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson og Kristinn
Örn Kristinsson flytja verk fyrir klarinett
og píanó í Listasafni íslands í kvöld.
Leikhúsferð og
Smáborgara-
brúðkaup
Leikhúsveislan þykir hin skemmtilegasta.
Þessi mynd var tekin á æfingu.
Leikfélag Selfoss býður
upp á sannkallaða leikhúsveislu
um þessar mundir. Mun veislan
vera þriréttuð og samanstanda af
þremur leikverkum. í forrétt er
boðið upp á skemmtilegan ein-
þáttung í Chaplin- stíl sem heit-
ir Leikhúsferðin, í aðalrétt er
svo boðið upp á safaríkt Smá-
borgarabrúðkaup eftir Ber-
tolt Brecht þar sem allt get-
ur gerst sem mögulega
getur komið upp á í veisl-
um. í eftirrétt kemur svo
óvæntur glaðningur sem
sífellt breytist eftir því
sem sýningamar verða
fleiri.
í tilefhi 50 ára afmælis
Selfosskaupstaðar tók
leikfélagið sig til og
breytti leikhúsinu í kaffi-
leikhús. Það er samdóma
álit þeirra sem litið hafa á
staðinn að breytingarnar hafi tek-
ist einkar vel og eru leikritin þrjú
lofuð af þeim sem til þekkja.
Leikstjóri sýningarinnar er
Viðar Eggertsson en leikarar for-
réttarins, Leikhúsferðarinnar,
eru þau Guðrún Halla Jónsdóttir,
Sölvi Hilmarsson og Guðbjörg
Arnardóttir. Aðalleikarar aðal-
réttarins, Smáborgarabrúðkaups-
ins, era svo Sigurgeir Hilmar
Friðþjófsson, Ester Halldórsdótt-
ir, Tania íris Melero, Kolbrún
Dögg Eggertsdóttir og Ólafur Jens
Sigurðsson. Um leikmynd sá Geir
Óttarr Geirsson en þýðendur
verkanna era Þorsteinn Þor-
steinsson og Bjarni Jónsson.
Um helgina verða þrjár sýning-
ar á Leikhúsveislunni, í kvöld,
annað kvöld og á sunnudags-
kvöldið, og heljast þær allar kl
20.30.
-ilk
Leikhúsveisla á Selfossi:
Leika saman á
víolu og píanó
Þau Miklós Dalmay og Helga Þórarinsdóttir veröa í Listasafni íslands á
morgun.
Langur laugardagur:
Markaðs-
stemning og
útsölulok
Það má búast við því að sann-
kölluð markaðsstemning muni
ríkja á Laugaveginum og i ná-
grenni um helgina. Þar verða út-
sölulok og vöruverðið þvi í al-
gjöru lágmarki.
Opið verður til kl. 17.00 á
morgun en eins og flestir vita er
afgreiðslutimi fyrsta laugardag
hvers mánaðar óvenju langur.
Einnig er frítt i alla stöðumæla
eftir kl. 14.00 og frítt i bíla-
geymsluhúsin allan daginn.
Við Laugaveg og í nágrenni
eru um 300 verslanir og víða má
sjá í gluggum þeirra auglýst
verðhrun, lagerhreinsun, útrým-
ingarsölu og jafnvel prúttmark-
að. Það verður þar af leiðandi
væntanlega enginn svikinn af
þvi að kíkja í bæinn á útsölulok
og víða má gera ævintýralega
góð kaup.
-ilk
Teikningar og
munir úr tré,
silfri og gulli
Bjöm Halldórsson guUsmiður
og Gæflaug Bjömsdóttir opna
sýningu á Listasetrinu á Kirkju-
hvoli á Akranesi á morgun, laug-
ardag. Björn sýnir myndir sem
hann teiknaði þegar hann var
við nám í Iðnskólanum í Reykja-
vík árið 1946-48 en einnig sýnir
hann listmuni unna úr tré, silfri
og gulli.
Gæflaug Bjömsdóttir hefur
stundað nám við Myndlistar-
skóla Reykjavikur og við lýðhá-
skóla í Danmörku. Hún sýnir
myndir sem hún hefur unnið
með mismunandi aðferðum.
Sýningin er opin alla virka
daga frá kl. 19-21 og kl. 15-18 um
helgar en henni lýkur sunnudag-
inn 16. mars.
Á morgun ætla Helga Þórarins-
dóttir og Miklós Dalmay að leika
saman á víólu og píanó í Lista-
safni íslands. Helga er í árs leyfi
frá störfum við Sinfóníuhljómsveit
íslands en Miklós er Ungverji, bú-
settur hér á landi. Hann hlaut
Tónvakaverðlaun Ríkisútvarpsins
fyrr í vetm'.
Á efnisskránni á morgun verða
verkin Gamba sónata nr. 3 eftir J.
S. Bach, Marchenbilder eftir R.
Schumann, Rómansa í F-dúr eftir
Beethoven og sónata í Es-dúr eftir
Brahms. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn og kosta
1000 krónur en tónleikarnir hefj-
ast kl. 17.00. -ilk
SÝNINGAR
Blómaval, Sigtúni. Tolli sýnir
| blómamyndir frá 21. feb. Stendur tii
| 2. mars.
Gallerí, Ingólfsstræti 8. Kristján
1 Guðmundsson með ný verk. Stendur
j til 23. mars frá kl. 17-19.
Gallerí Borg við Ingólfstorg. Sýn-
| ing á verkum Jóhanns G. Jóhanns-
; sonar. Sýningin er opin virka daga
í kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18 og
| lýkur henni 2. mars.
j Gallerí Fold v/Rauðarárstíg. Oliv-
ur við Neyst í baksal. Stendur til 2.
S mars. Opið daglega frá kl. 10-18,
i lau. frá kl. 10-17 og sun. frá kl.
í 14-17. Gallerí Hornið, Hafnar-
J stræti 15. Sigríður Gíslad. til 5.
» mars. Opið alla daga kl. 11-23.30.
j Gallerí Ingólfsstræti 8. Sýning á
verkum Kristjáns Guðmundssonar.
1 Opið fim. til sun. kl. 14-18.
j Gallerí Listakot, Laugavegi 70.
j Framlenging á sýningu Jóhönnu
| Sveinsd. til 1. mars. Opið 12-18
virka daga og 10-14 lau.
Gallerí Sýnirými. í Gallerí Sýni-
| boxi: Þórarinn Blöndal; í Gallerí
| Barmi: Margrét Lóa Jónsdóttir; Gall-
: erí Hlust: Sigtryggur Magnason; í
I Gallerí 20m2: Hannes Lárusson, en
| það opnar 8. mars.
Gallerí Sævars Karls, Banka-
; stræti 9. Sigurborg Stefánsd. með
* sýningu. Opið frá kl. 10-18 virka
I daga.
| Gerðuberg. Sýning á verkum eftir
j Finnboga Pétursson til 30. mars.
Hafnarborg. Á morgun opnar í
ís Sverrissal sýning á verkum Kjartans
Ólassonar. Stendur til 10. mars. Opið
alla daga nema þri. ftá kl. 12-18.
í Einnig sýna á fjórða tug hafnfirskra
listamanna verk sín í aðalsal og
stendur sú sýning til 10. mars.
Leifsstöð. Sýning á málverkum eftir
Þórð Hall. Stendur til 16. mars.
Listacafé, Listhúsi, Laugardal.
Magdalena Margrét Kjartansdóttir
sýnir verk sín.
Listasafn Islands. Sýning á högg-
myndum Max Ernst stendur til 30.
mars. Opið kl. 11-17 nema mán.
Listasafn íslands, Bergstaða-
stræti 74. Safn Ásgríms Jónssonar,
vatnshtamyndir, febrúar-maí. Safnið
er opið um helgar, kl. 13.30-16.
Listasafn ASI við Freyjugötu.
S Gunnar Kr. Jónasson með sýningu í
j Ásmundarsal. Stendur til 2. mars.
Opið frá kl. 14-18 alla daga nema
j mán.
' Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn.
j Ásdís Sigurþórsd., Helgi Gíslason og
: Sólveig Helga Jónasd. Sýn. standa til
'i 2. mars Opið frá 12-18. nema mán.
j Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnesi. Sérstök skólasýning
í með völdum verkum eftir Siguijón.
I Opið lau. og sun. kl. 14 og 17 og eftir
j samkomulagi.
; Listhús 39, Strandgötu 39, Hafn-
arfirði. Jón Bergmann Kjartans-
ij son. Stendur til 11. mars.
é Listhúsið í Laugardal, Engjateigi
j 17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka
| daga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14.
. Listþjónustan, Hverfisgötu 105.
4 Sýning á verkum Bjöms Bimis. Opið
s alla daga nema mán. frá kl. 12-18 og
j um helgar frá kl. 14-18.
Mokka, Skólavörðustíg 3a. „Það er
Isíminn til þín“. Magnea Ásmundsd.
Stendur til 6. mars.
Norræna húsið.Nú stendur yfir
sýning á leirlist eftir 11 listakonur
frá Norðurlöndunum. Opið daglega
kl. 14-19 og lýkur 16. mars. Einnig í
anddyri verk eftir Lenu Cronqvist.
Opið er 12-19 mán.-lau. og sun. kl.
12-19. Lýkur mið. 12. mars.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B. 22. fe-
brúar opnar Sjónþing, Sjáver, Sjón-
ver og Isvís. Opið alla daga nema
mán. kl. 14-16. Lýkur 9. mars.
Einnig verk eftir Niels Hafstein,
Hjört Guðmundsson og Svövu
Skúlad.
Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Finn-
bogi Pétursson til 2. mars og er opið
fim,- sun. kl. 14-18.
Skruggusteinn, Hamraborg 20a.
Myndlistarsýning Guggu stendur til
6. mars. Opið virka daga kl. 12-18 og
lau. kl. 11-16.
Stöðlakot, Bókhlöðustfg 6. Kristín
Geirsd. með kolamyndir. Opið frá kl.
14-18 nema mán. til 2. mars.
Undir pari, Smiðjustíg 3. „Gagn-
rýni" Samsýning nokkurra gagn-
rýnenda opnar í kvöld og stendur yfir
tvær helgar, eða til 1. mars. Opnun-
artími er, fim.-Iau. kl. 20-23.
World Class, Fellsmúla 24. Helga
i Sigurðard. með myndlistarsýningu.
■i Stendur til 2. mars og er sérstaklega
opin almenningi næstu tvær helgar
j frá kl. 14-19.
Önnur hæð, Laugavegi 37. Sýning
: á verkum Eyborgar Guðmundsd. er
fi opin á mið. frá 14-18 í feb. og mars.