Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1997, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1997, Síða 9
FÖSTUDAGUR 7. MARS 1997 *ium helgina , ** * Matarveisla Þorra á Sjónarhóli: lilheyri kjötfars- og majoneskynslóðinni - segir Þorri Hringsson „Einhvem tímann um sumarið 1993 laust þessari hugmynd niður í kollinn á mér: Af hverju ekki að mála það sem maður hefur mestan áhuga á, mat?“ segir Þorri Hrings- son um elleftu einkasýningu sína sem opnuð verður á Sjónarhóli við Hverflsgötu 12 á morgun kl. 15. Matur, matargerð, matarsaga og vínsmökkun er það skemmtilegasta sem listamaðurinn segist komast í tæri við. Þorri var í heimsókn hjá kunningjafólki sínu þetta umrædda sumar og meðan hann beið eftir að hellt væri upp á könnuna renndi hann í gegnum nokkrar bækur í bókahillunni. Þar var lítil mat- reiðslubók sem hann greip og fletti. „Skyndilega blöstu við mér alveg ótrúlegar myndir. Ég fletti upp á út- gáfuárinu. Það reyndist vera 1944. Þar með small eitthvað saman 1 heilabúinu sem ég hafði ekki velt fyrir mér áður. Matur fyrir sjálf- stæða íslendinga," segir Þorri. Það sem hreif Þorra við myndim- ar var framsetningin á matnum sjálfum, skrautið og nálægð rétt- anna. Þó það teljist ekki nýlunda að mála mat segist Þorri samt hafa á tilfinningunni að það sé eitthvað ferskt sem hann er að glíma við.„Niðurlenskir barokkmálarar gerðu margir hverjir svakalegar myndir af mat en það var alltaf á hráefnisstiginu hjá þeim. Ég hef ekki áhuga á formrænum hliðum hráefnisins. Ég hef áhuga á útkom- unni, hvemig maður býr til spag- hetti úr hveiti og eggjum og vínar- pylsur úr undanrennudufti og svínafitu.“ Þorri hefur mikinn áhuga á ætt- fræði og því hvernig flestir íslend- ingar geti rakið sig meira en 1000 ár aftur í tímann. En úr hverju skyld- um við vera? „Ef við göngum út frá því að við séum að einhverju leyti afleiðing þess sem við látum okkur til munns, hverjar em þá forsend- umar? Fyrir pepsí- og pitsukynslóð- ina er niðurstaða mín ef til vill fá- ránleg. Ég tilheyri nefnilega kjöt- fars- og majoneskynslóðinni. Ég næ í skottið á brauðtertunum og sveskj- unum með svínakjötinu. Þetta er til- raun mín til að skilja mína eigin kynslóð með því að skoða mannvist- arleifar foreldra minna, draum þeirra um alsæluna.“ Með því að skoða hugmyndir fyrri kynslóða um útópiuna og hinn fullkomna lífsstíl trúir Þorri að við getum ef til vill fengið einhvern botn í það af hverju við erum eins og við emm. Þessar hugmyndir end- urspegli veruleika sem sé mun ná- tengdari manni en viðburðir og ár- töl í Öldinni okkar. „Hver mat- reiðslubók og hvert heimilisblað er eins og fingrafar eftir ákveðið ástand eða löngun. Bækurnar og blöðin birta hvernig okkar jarð- neski veruleiki gæti orðið ef við bara fylgjum uppskriftinni." Hrísgrjónarönd með tómatsósu, rækjum og humri. Olía á striga frá árinu 1996 eftir Þorra Hringsson. ú getur unnið nýju plötuna með Blur og Blur-bol Hringdu strax i sima Mynd frá sýningu ungmennafélagsins í Fljótshlíð. DV-mynd jþ Ungmennafélagið í Fljótshlíð 80 ára Ungmennafélagið Þórsmörk í Fljótshlíð sýnir um þessar mund- ir gamanleikinn Með vífið í lúk- unum í félagsheimilinu á Goðal- andi. Sýningin er sett upp í tilefni af áttatiu ára afmæli ungmennafé- lagsins á þessu ári. Leikritið er eftir Ray Cooney, í þýðingu Áma Ibsen og er gaman- leikur eins og þeir gerast hressi- legastir. Verkið fjallar um leigu- bílstjóra sem er giftur tveimur konum og veit hvorug af tilvist hinnar. Leikritið hefst þegar leigubílstjórinn lendir á slysa- deild og við það fer ströng tímaá- ætlun hans úr skorðum og spenn- andi atburðarás af stað. Alls taka átta leikarar þátt i sýningunni. Með aðalhlutverk fara Eggert Sig- urðsson, Sigríður Viðarsdóttir, Jóhanna Öhmell og Þorsteinn Guðjónsson. Sýningar verða í kvöld og annað kvöld og lokasýn- ing verður svo á sunnudagskvöld. T ls-spor á Reykjavíkurtjörn: Kraftur-fegurð-fagmennska Mikið er um að vera hjá Félagi tamningamanna á næstunni. Á sunnudaginn verður félagið með heljarinnar uppákomu á Reykjavíkurtjöm þar sem keppt verður í tölti, opnum flokkum bama, unglinga, ungmenna og fullorðinna. Keppt verður i 150 m skeiði með „fljótandi starti". Einnig verð- ur fánareið og óvæntar uppákom- ur. Herlegheitin hefjast klukkan 13 og standa fram eftir degi. Það verður því ekki einungis hægt að gefa bra bra brauð um helgina á Tjörninni ljóst að allir þeir verða saman munu veita þeim harða samkeppni. Uppákoma þessi tengslum við stórsýningu Félags tamningamanna helgina 21.-23. mars þar sem frábærir knapar munu sýna marga af heimsins bestu gæð- sjón þegar margir at urstu gæöingum landsins spretta úr spori á Reykjavík- urtjörn. Soffía í Gallerí Fold Á morgun verður opnuð sýning á Feröalangar ... Könnuðir tímans. olíumyndum Soffiu Sæmundsdóttur Soffia stundaði nám við Myndlista- í baksal Gallerí Foldar við Rauðar- og handíðaskóla islands og lauk árstíg. Sýninguna nefnir Solfia þaðan prófi úr grafíkdeild árið 1991. Þýðingarsjóður Auglýsing um styrki og lán til þýðinga á erlendum bókmenntum Samkvæmt lögum nr. 35/1981, reglugerð nr. 638/1982 og breytingu nr. 102/1992 um þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðsl- ur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna. Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi: 1. Verkið sé þýtt úrfrummáli, efþess er kostur. 2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök. 3. Gerð og frágangur verka fullnœgi almennum gœðakröfum. 4. Eðlileg dreifing sé tryggð. 5. Útgáfudagur sé ákveðinn. Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1997 nemur 7,6 milljónum króna. Eyðublöð fyrir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í afgreiðslu mennta- málaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknarffestur rennur út 4. apríl 1997. Hún hefúr haldið nokkrar einkasýn- ingar og tekið þátt í samsýningum. í kynningarhorni gallerísins verður kynning á tréristum Drafnar Friðfinnsdóttur en hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands, Myndlistarskólann á Akur- eyri og Lahti Art Institute í Finn- landi. Hún hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.