Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1997, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1997, Page 11
lyndbönd 25 FÓSTUDAGUR 7. MARS 1997 Prófessor Sherman Klump er ekkert alltof ánægöur með tilver- una. Þrátt íyrir ítrekaðar tilraun- ir, alls konar megnmarkúra og fitubrennsluæfingar, hefur hon- um ekkert tekist að grynnka á sin- um nálægt 200 kílóum. Ástarlíf hans er í molum og hann er að- hlátursefni allra. En vinna hans á efnafræðitilraunastofunni skilar loksins árangri því hann finnur upp efiii sem breytir honum úr hinum blíða og feimna Sherman Klump í tágranna glaumgosann Buddy Love. í þessu nýja gervi fær hann kjark til að daðra við nýja prófessorinn í efnafræði- deildinni, hina ungu og fallegu Carla Purty. Hann ræður sér vart fyrir kæti en babb kemur í bátinn þegar hann kemst óvænt að því að efnasambandið er ekki stöðugt og áhrif þess geta þorrið hvenær sem er. Svo hljómar söguþráðurinn í nýjustu mynd Eddie Murphys, The Nutty Professor, sem byggð er á samnefndri mynd með Jerry Lewis í aðalhlutverkinu. Fram- leiðandinn Brian Grazer keypti réttinn til að gera aðra mynd eftir henni og næsta dag hringdi Eddie Murphy í hann og það var hans hugmynd að hafa Sherman Klump akfeitan, en í uppruna- legu myndinni var hann einfaldlega lúðalegt efiiafræðinörd. í leikstjómendahlutverkið fengu þeir Tom Shadyac en fyrsta mynd hans var lítil mynd sem sló eftirminnilega í gegn og gerði stór- stjömu úr aðalleikaranum. Sú mynd hét Ace Ventura, Pet Detective og skaut Jim Carrey upp á stjömuhimininn en Tom Shadyac og Jim Carrey leiða hesta sina saman að nýju i Liar, Liar. Jada Pinkett (Menace II Society, Low Down Dirty Shame) leik- ur konuna sem Sherman Klump hrífst af en í öðr- um hlutverkum em m.a. James Cobum, Dave Chappelle, Larry Miller og John Ales. The Nutty Professor: Eddie Murphy í ótal gervum Förðunarþrekvirki Allt í allt leikur Eddie Murphy sjö hlutverk í myndinni. Fyrir utan Sherman Klump og Buddy Love leikur hann fjölskyldu Shermans Klumps eins og hún leggur sig og sjónvarpsmanninn Lance Perkins. I myndinni er atriði þar sem Sherman Klmnp og fjölskylda hans borða kvöld- verð saman. Þar era gamall og geðvondur faðir hans, ástrík móðir, kölkuð amma, og hranalegur bróðir hans samankomin ásamt prófessomum sjálfúm og öll era þau vel yfir kjörþyngd. Þegar verið var að kvikmynda þetta at- riði þurfti Eddy Murphy að taka heilan dag í að leika hverja per- sónu. Næsta dag var hann síðan fsettur í gervi næstu persónu og sat við kvöld- verðarborðið í hrókasamræð- um við persón- una sem hann að leika dag- aður mn Undir lok hvers tökudags var sviðinu lokað og læst svo að enginn myndi slysast til að hreyfa við neinu. Fyrir utan kvöldverðaratriðið fólust tæknileg- ir erfiðleikar helst í gervi Shermans Klumps, þ.e. að umbreyta Eddie Murphy I akfeitan, mið- aldra háskólaprófessor. Rick Baker, sem m.a. hefúr unnið við Star Wars og Cocoon, hannaði gervið sem ekki var svo einfalt að smeygja sér í. Það tók fjóra klukku- tíma hvem dag að troöa Eddie Murphy í gervið. í raun sést lít- ið í Eddie Murphy sjálf- an á bak við allt frauðplastið og hárkollumar en í gegnum allt þetta þurfti Eddie Murphy að sjá um að gæða persónuna lífi. Eddie Murphy byrjaði feril sinn sem uppi- standsgrínari og vakti fyrst heimsathygli þegar hann hóf störf í Saturday Night Live þáttunum vinsælu þar sem hann vann í fjögur ár og var m.a. tilnefhdur til tveggja Emmy-verðlauna fyrir leik sinn. Upp úr því hófst kvik- myndaferill hans sem meðal annars hef- ur aflað honum tveggja Golden Globe tilnefhinga fyrir Trading Places og Beverly HiUs Cop. Aðrar myndir t hans era framhaldsmyndimar tvær í Beverly Hills Cop trílógiunni, 48 HRs., Another 48 HRs., Boomerang, Harlem Nights, Coming to America, Raw, The Golden Child, The Dist- inguished Gentleman og Vampire in Brook- lyn en næsta mynd hans heitir Metro. -PJ < « UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT Þorbjörn Jensson Undanfarið hafa uppáhaldsmyndböndin mín verið upptökur af landsleikjum íslands 1 handknattleik. Mér er þó ofarlega í minni myndband eitt sem ég sá um daginn en það er allt annars eðlis en handboltinn. Það var bíó- ___ myndin The Rock með Sean Conn- ery og Nicolas Cage. Mér fannst hún þrælgóð en mikil spenna er mér að skapi og það mega alls ekki vera væmnar persón- ur i þeim myndum sem ég sé. Ég þoli ekki myndir þar sem konur era grenjandi hálfa myndina. Það á ekki við mig. Ég er ekki mjög duglegur við að heimsækja kvik- myndahúsin en geri stimdum átak í þeim efnum. í fyrra fóram við konan mín til dæmis alltaf í bíó á mánudögum en sú regla gildir ekki enn þá. Ég er bara þannig maður að ég þarf alltaf að ákveða eitthvað svona fyrirfram, hafa ein- hvem fastan punkt til að miða við. Þegar um myndbandaáhorf er að ræða þá era það handboltaleikim- ir sem sem ég horfi oftast á. Þegar landsleikur er í vændum þá finnst mér til dæmis voða gott að ^ leigja mér spennumynd til að tæma hugann. Þá vil ég hafa það miklar hasarmyndir. Yfir- vofandi landsleik- ur reynir þá kannski ekki eins svakalega á taug- arnar. -ilk Crime of the Century Stealing Beauty Heavens Prisoners Crime of the Century er ný kvik- mynd sem kemur beint á myndband. Byggist hún á sakamáli sem var mik- ill fjölmiðlamatur á fyrri hluta aldar- innar. Leikstjóri er Mark Rydell, sem á að baki langan feril í Hollywood. Sakamáhð sem um ræðir er rán og morð á syni flugkappans Lindbergs. Myndin hefst 1932 þegar tvö ár era liðin frá rán- inu. Lögreglan hafði handtekið r.A * . «4 V þýskan innflytjanda, Bruno Haupt- man, enda var ýmislegt sem benti til að hann hefði framið voðaverkið. Fjöl- miðlar vora fljótir að dæma hann sek- an og eftir málamyndaréttarhöld yfir honum var hann dæmdur til dauða. En allt frá þvi Bruno var handtekinn og til dauðadags neitaði hann að vera viðriðinn málið, jafiavel þegar honum var boðið lífstíðarfangelsi í stað dauðarefsingar gegn skriflegri játn- ingu. Hauptman var tekinn af lífi 3. apríl 1936 og skildi eftir sig eiginkonu sem hafði barist eins og ljón fyrir sak- leysi hans. Með hlutverk Hauptman-hjónanna fara Stephen Rea og Isabella Rossell- ini, einnig fer David Paymer með stórt hlutverk í myndinni. Bergvík gefur Crime of the Century út og er hún bönnuö börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 11. mars. Stealing Beauty er nýjasta kvik- mynd ítalska snillingsins Bernardos Bertoluccis og vakti hún mikla at- hygli í fyrra. Fékk hún víðast hvar góða aðsókn og gerði kvikmynda- stjörnu úr hinni ■xímjrm.vmvv.ímí’ ungu Liv Tyler. Aðalpersónan er hin átján ára Lucy sem býr í Bandaríkjunum en kemur í heim- sókn til frænd- fólks sins á Ítalíu. Frjálslegt and- rúmsloftið blæs henni í brjóst löngun til að endurvekja ástina sem kviknaði í brjósti hennar fjórum árum áður en náði aldrei að verða að þeim eldi sem til var stofnað. Sá sem hún nær samt bestu sambandi við er rithöfúndurinn Max sem berst við illvígan sjúkdóm en hefur ákveðnar skoðanir á lífinu og verð- ur hann að nokkru áhrifavaldur í ákvörðunum hennar. Ejöldi þekktra leikara leikur í myndinni. Auk Tyler er vert að nefna Jeremy Irons, Sinead Cusack, Stefania Sandrelli og Jean Marais. Skífan gefur út Stealing Beauty og er hún bönnuð börnum innan 12 ára. Útgáfudagur er 12. mars. Heaven’s Prisoners er nýjasta kvikmynd Alecs Baldwins. Myndin er spennutryllir sem gerist í New Orleans og nágrenni. Baldwin leik- ur Dave Roicheaux, fyrrum lög- regluþjón, sem hafði orðið hált á I svellinu í sam-1 bandi við hið I ljúfa líf. Honum| hefur með stuðn- ingi eiginkonu I sinnar, Annie, [ tekist að vinna | bug á erfiðleik- um sinum og | framtíðin virðist björt. Líf hans tekur breytingum þegar hann verður vitni að því þeg- ar flugvél full af ólöglegum innflytj- endum hrapar niður í fenin í Lou- isiana og sekkur. Eina manneskjan sem kemst lífs af er telpa sem Dave bjargar. Þessi atburður verður til þess að lögreglumaðurinn vaknar upp í brjósti Daves og hann fer að rannsaka málið enda grunar hann að hér hafi ekki verið um neitt venjulegt slys að ræða. Auk Alecs Baldwins leika í mynd- inni Kelly Lynch, Teri Hatcher (Lois Lane í Superman-þáttaröð- inni), Mary Stuart Masterson og Eric Roberts. Sam-myndbönd gefa út Heaven's Prisoners og er hún bönnuð börn- um inann 16 ára. Útgáfudagur er 13. mars. >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.