Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Síða 11
JLfV FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
tyndbönd ,
Hvirfllbyljir eru stöðug ógn á sléttimum í
suðurríkjum Bandaríkjarma og nýlega feng-
um við fréttir um mikið manntjón af völd-
um hvirfílbylja í Arkansas. í myndinni
Twister eru slíkir hvirfilbyljir í aðalhlut-
verki en sögusviðið er Oklahoma, næsta
ríki vestur af Arkansas. Mikill stormur,
sem líklegur er til að fæða af sér marga
hvirfilbylji, er yfirvofandi í Oklahoma og
tveir hópar vís-
indamanna bíða
stormsins með
óþreyju. Hvor
hópurinn um sig
er að reyna að
afla upplýsinga
' um hvað gerist í
miðju hviifil-
bylsins með því
að koma mæli-
tækjum þangað.
Til þess þurfa
þeir að komast
eins nálægt hon-
um og þeir geta,
setja mælitækin
í veg fyrir hann og vona að hvirfilbylurinn
ákveði ekki allt í einu að breyta um stefnu,
sem þeir oft gera. Jo Harding (Helen Hunt)
er í forsvari annars hópsins en keppinautur
hennar er ríflega styrktur hópur undir leið-
sögn dr. Jonas Miller (Cary Elwes) og hefur
sá hópur mun betri tækjabúnað. Bill
Harding (Bill Paxton), væntanlegur fyrrver-
andi eiginmaður Jo Harding, slæst í for
með henni ásamt kærustunni sinni (Jami
Gertz) sem líst ekkert á blikuna.
Úr smiðju Michaels Crichtons
Handritshöfundar myndarinnar eru
Michael Crichton og eiginkona hans, Anne-
Marie Martin, en Michael Crichton er
heimsþekktur rithöfundur, handritshöfund-
ur og leikstjóri. Sjö skáldsagna hans hafa
verið kvikmyndaðsir og ein er i bígerð en
það er The Lost World sem er næsta verk-
efni Stevens Spielbergs. Aðrar myndir, sem
gerðar hafa verið eftir bókum hans, eru The
Andromeda Strain, The Great Train
Robbery, Congo, Disclosure, Rising Sun og
Jurassic Park sem sennilega er sú frægasta.
Hann hefur einnig leikstýrt sex myndum,
þ.á m. Westworld, Coma og The Great Tra-
in Robbery og þá má skrifa hina vinsælu
sjónvarpsþætti ER eða Bráðavaktina á
hann. Hann hefur verið kallaður faðir
tæknitryllanna og víst er að oft krefjast sög-
ur hans mikils af tæknibrellumeisturum. í
Twister er ekki ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur - nú á að sýna móður nátt-
úru í sínum mesta ham og til að leikstýra
myndinni var fenginn Hollendingurinn Jan
De Bont sem sló í gegn með sinni fyrstu
mynd, Speed, en hann hafði áður stjórnað
kvikmyndatöku á myndum eins og Flatl-
iners, Black Rain, Die Hard, Basic Instinct
og Lethal Weapon 3. Þess má geta að næsta
verkefni hans verður framhaldsmynd við
Speed.
Mikilfenglegar tæknibrellur
Þegar líkja á eftir slíkum ógnaröflum sem
hvirfllbylir eru þarf til snjalla sérfræðinga
i tæknibrellum og mikið reynir á tökulið og
leikara. Industrial Light and Magic sá um
tölvuteikningar og John Frazier var tækni-
brellustjóri. Meðal verkefna, sem fyrir lágu,
voru að byggja og síðan rústa heilum bæ,
fleygja dráttarvél og risastórum olíutankbil
langar leiðir, láta hús falla niður af himn-
um ofan og líkja eftir hvirfilbyljum þannig
að allt liti sem eðlilegast út á skjánum. Þess
má geta að svo vel tókst til að líkja eftir
áhrifum hvirfilbylja að blaðamaður með 20
ára reynslu í að fjalla um þá hélt að hann
væri kominn með stórfrétt þegar hann sá
Náttúruöflin reynast hættuleg í Twister. Á innfelldu myndinni eru
Helen Hunt og Bill Paxton sem leika veöurfræðinga.
bæjarrústirnar sem
brelluliðið hannaði.
Helen Hunt hefur
unnið til fjölda verð-
launa, þ.á m. tveggja
Golden Globe-verð-
launa, fyrir hlutverk
sitt í hinum vinsælu
gamanþáttum, Mad
About You, sem hafa
verið sýndir við miklar vinsældir í fimm
ár. Meðal þeirra kvikmynda sem hún hefur
leikið í eru The Waterdance, Kiss of Death,
Mr. Saturday Night, Peggy Sue Got
Married, Next of Kin, Miles From Home og
Project X.
Ferill Bills Paxtons hófst I ódýrum hryll-
ingsmyndum og síðan náði hann sér í hlut-
verk í myndum eins og The Lords of
Discipline, Near Dark og Weird Science og
þá hefur hann leikið undir stjóm James Ca-
meron í The Terminator og Aliens. Fyrsta
aðalhlutverk hans var í verðlaunamyndinni
One False Move og síðan hefur hann verið
eftirsóttur í Hollywood. Hann hefur meðal
annars leikið i Trespass og Appollo 13 og þá
hefur hann endurnýjað kynni sín af James
Cameron í True Lies. Nýjustu myndir hans
eru Traveler og The Evening Star sem er
framhaldið af óskarsverðlaunamyndinni
Terms of Endearment.
PJ
r
<
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Magnús R. Einarsson
„Ein besta
mynd sem ég hef séð er án
efa ítalska kvikmyndin
Paradísarbíóið. Hún er gott
listaverk, auk þess sem þetta er fal-
leg saga sem segir manni mikið um
lífið og dauðann. Kannski finnst
mér hún sérstaklega eftirminnOeg
þar sem ég skU ítölsku og því verð-
ur nálægðin meiri. Ég hef verið á
Ítalíu og kynnst þessari menningu
og því nýt ég þess mikið að
horfa á myndina.
Þessa mynd horfúm
við hjónin á saman
en annars er smekk-
ur okkar ekki mjög
líkur. Konan mín
vill horfa á myndir
sem segja henni eitt-
hvað um lífið en ég
tek oft-
spennumyndir þar sem
dauðinn er í aðalhlut-
verki og þær enda
oftar en ekki þannig að aðalhetjan
stendur ein eftir. EftirminnUegasta
spennumyndin sem ég hef séð er
The Great Escape eða Ftóttinn mikli
með Steve McQueen í aðalhlutverki.
Hana sá ég í bió þegar ég var strák-
ur og mig hefur lengi langað tU að
sjá hana aftur tU að athuga hvort ég
geti upplifað þessa sömu spennu. Ég
efast nú reyndar um að hún myndi
hafa sömu áhrif og þá.
Það var eitt myndband í miklu
uppáhaldi á mínu heimUi um tíma.
Þar var á ferðinni breskur
skemmtiþáttur sem sýndur var í
sjónvarpinu og við tókmn upp. Þar
komu fram ýmsir grínistar og
söngvarar t.a.m. félagarnir
í Monty Python. Ég
kunni orðið áUa
brandarana því ég
horfði á myndband-
ið með reglulegu
mUlibili. Það varð
því mikU sorg á
heimilinu þegar
ég tók óvart ann-
að efni yfir þátt-
inn en hann lifir
i minningunni.
Alaska
Alaska er gerð af Fraser C.
Heston sem er
kvikmynda-
leikara,
Charlton
Heston. Þama
er um að ræða
ævintýramynd
fyrir fjölskyld-
una sem gerist
að mestu í
hrikalegu en
tignarlegu
landslagi
Alaska.
Fjallar
myndin um systkinin Jessie og
Sean og í byrjun eru þau á flugi með
fóður sfnum yfir óbyggðum Alaska
þegar þau hreppa skyndilega afar
slæmt veður með þeim aleiðingum
að vélin brotlendir og stöðvast á
brún hengiflugs. Systkinin neyðast
tU að leggja af stað fótgangandi tU
byggða og sækja hjálp. Þeim sækist
ferðin illa enda er yfir erfitt land að
fara auk þess sem þau eru sífeUt að
jagast hvort í öðru en þau átta sig á
þvi að ef þau eiga að komast á leið-
arenda verða þau að stUla saman
strengi sina og vinna saman. Þegar
þau bjarga ungum hvítabirni frá
óforskömmuðum sportveiðimanni
eignast þau vin og ferðafélaga. í
hlutverkum systkinanna eru Thora
Birch og Vincent Kartheiser.
Skífan gefur út Alaska og er hún
leyfð öllum aldurshópum. Útgáfu-
dagur er 24. mars.
sonur hins þekkta
Changing Habits
Changing Habits er um unga
listakonu sem á við margvíslega
vandamál að
stríða. Susan
Teagarden er
ung og hæflleik-
arík listakona en
er um leið
óskammfeilin,
fráhrindandi og
kaldhæðin í
meira lagi. Erfitt
skap hennar má
rekja til þess at-
burðar að móðir
hennar framdi
sjálfsmorð án þess að Susan fengi
nokkurn tíma að vita hvers vegna.
Þetta leiddi tU þess að hún fór að
hata foður sinn. Til að fá húsaskjól
bankar hún dag einn upp í nunnu-
klaustri og lýgur að abbadísinni að
hún sé atvinnulaus þjónustustúlka
sem eigi ekki í nokkurt hús að
venda. í klaustrinu uppgötvar hún
litla, leynilega kapellu sem hún
hrífst af.
í aðalhlutverkum eru Moira
KeUy, sem leikur ungu listakonuna,
Christopher Lloyd leikur föður
hennar og EUeen Brennan leikur
abbadísina.
Bergvík gefur út Changing Habits
og er hún leyfð öllum aldurshóp-
um. Útgáfudagur er 25. mars.
Angel Baby
Angel Baby er víðfræg áströlsk
verðlaunamynd sem fékk í fyrra sjö
verðlaun þegar
ástralir héldu
sína „óskars-
veislu". hefur
hún hvarvetna
fengið mjög góða
dóma og þykir
taka á raunsæj-
an hátt á við-
kvæmum mál-
um.
Angel Baby
fjallar um Harry i
og Kate. þegar
þau hittast upphefst eitt sérstæðasta "
ástarævintýri sem sést hefur á
fUmu. Harry er gáfaður og fyndinn
en þarf á lyfjum að halda tU að
þagga niður í röddunum sem eru í
höfði hans. Kate á einnig við geð-
ræn vandamál að stríða. Þau hittast
og verða ástfangin. Um skeið geng-
ur aUt vel hjá þeim en vandamálin
byrja að hrannast upp þegar í ljós
kemur að Kate er með bami. Öflug
viðbrögð utanaðkomandi aðUa
verða tU þess að brestir koma í sam-
bandið. John Lynch og Jacqueline
McKenzie hafa fengið mikið hrós r
fyrir leik sinn í myndinni.
Myndform gefur út Angel baby og
er hún bönnuð börnum innan 12
ára. Útgáfudagur er 25. mars.