Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 12
26 FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997 myndbönd ' * Wf MYNDBAm MiliVU A Time to Kill: Morð réttiætt ★★ A Time to Kill er byggð á fyrstu bók metsöluhöfund- arins John Grisham en búið er að kvikmynda flestar hinar. Allar fjalla þær um lögfræðileg efni - annað- hvort eru lögfræðingar eða réttarhöld í aðalhlutverki og í þessari mynd eru það bæði. Svertingi myrðir tvo hvíta kynþáttahatara sem nauðgað höfðu og misþyrmt tíu ára gamaili dóttur hans. Ungur hvítur lögfræðingur tekur að sér að verja hann og stóra spurningin er hvort morðin hafi verið réttlætan- leg. Klanið mætir á svæðið og sömuleiðis hópur baráttumanna fyrir rétti svartra. Allt fer í bál og brand og lögfræðingurinn ungi missir húsið sitt í íkveikju og bæði hann og aðstoðarmenn hans verða fyrir aðkasti og mis- þyrmingum af hálfu klanfélaga undir forystu bróður annars nauðgarans. Niðurstaðan er sú að morð sé réttlætanlegt ef maður hefur nógu góða ástæðu og fórnarlambið er nógu andskoti mikið skítseiði. Hér er um mikið drama að ræða og því miður tekst oft illa til og mörg atriði eru ósannfær- andi, fyrir utan vafasama siðfræðina. Þar að auki er myndin alltof löng en mikið einvalalið leikara bjargar málunum og gerir A Time to Kiil að miðl- ungsmynd. Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Joel Schumacher. Aðalhlutverk: Matthew McConaughey, Samuel L. Jackson, Kevin Spacey og Sandra Bullock. Bandarísk, 1996. Lengd: 143 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Dead Man: Meistaraverk ★★★★ Jim Jarmusch hefur leikstýrt mörgum góðum mynd- um en aldrei fyrr hefur hann fengið jafn mikinn stjörnufans að leika fyrir sig og í nýjustu mynd hans, Dead Man. í aukahlutverkum eru stór nöfn eins og Gabriel Byme, John Hurt, Robert Mitchum, Lance Hen- riksson og Alfred Molina en í aðalhlutverkinu er Johnny Depp. Allir standa þeir sig vel undir styrkri stjórn leikstjórans og skapa sérstakar og eftirminnifeg- ar persónur. Bestur er þó Gary Farmer í hlutverki indíánans Nobody. Myndin er eins konar vestri en þó öðruvísi en nokkur vestri sem gerður hefur verið. Johnny Deep leikur skrifstofublók sem ráfar um óbyggðir vestursins, særð- ur og hundeltur af byssumönnum, en helsti galli myndarinnar er sá að sag- an er ákaflega torskilin. Best er að lesa orð leikstjðrans sjálfs á kápunni, bæði fyrir og eftir áhorf. Mörgum mundi sjálfsagt þykja myndin langdregin en þótt sagan sé torskilin er hún umhugsunarverð og þolinmæðinnar virði. Kvikmyndataka er stórfengleg og vel í samræmi við súrrealískt andrúmsloft- ið í myndinni og þá er unun að tónlistinni eftir Neil Young - ekkert bassaplokk, trommusláttm- eða hljóðgervlamúsík, aðeins blúsaður gítar sem rokkar á milli þess að vera melankólískur og ógnandi í samræmi við það sem er að gerast í myndinni. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Jim Jarmusch. Aðalhlutverk: Johnny Depp og Gary Farmer. Bandarísk, 1996. Lengd: 115 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Eraser: ★* Hátæknihasar Hér er svakanaglinn í hlutverki sem er svona mitt á milli tortímandans og leyniþjónustumannsins í True Lies. Hann leikur John Kruger, sem vinnur við vitna- vemd, og starfið felst einkum í því að setja á svið dauða vitnanna svo þau geti verið í friði það sem eftir er. Hann fær það verkefni að vernda fegurðardísina Vanessa Williams (og öfugt við flestallar hasarhetjur nútímans fer hann ekki 1 rúmið með henni, sem vekur upp ákveðnar spumingar, förum ekki nánar út í það...) en hún hefur komist á snoðir um fyrirætlanir um sölu hátæknivopna til hryðjuverkamanna. Skemmst er frá því að segja að myndin er svo frámunalega heimskuleg að það liggur við að hún komist upp á pall með Independence Day. Þar á ofan bætist að fimmaurabrandararnir era ekki eins eyris virði en áhugamenn rnn spreng- ingar og hasar fá eitthvað fyrir sinn snúð, sérstaklega í lokaatriðinu þar sem Amaldur Svakanagli fær loksins almennilegar byssur til að leika sér með. James Caan fær svolítið að leika sér í best skrifuðu rullunni en aðr- ir leikarar eru eins og við er að búast. Útgefandi: Warner myndir. Leikstjóri: Charles Russel. Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger, Vanessa Williams og James Caan. Bandarísk, 1996. Lengd: 108 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Frankie Starlight Æskuminningar dvergs **i < s fl tíarlijj Frankie Starlight er nafn írsks dvergs sem kom undir á bandarísku herskipi en móðir hans var skilin eftir á írlandi. Á uppvaxtarárum hans kynnist hann tveimur elskhugum móður sinnar, írska innfLytjenda- eftirlitsmanninum Jack Kelly, sem kynnir fyrir hon- um heim stjömuskoðunar, og bandaríska ferðalangin- um Terry Klout. Myndin fjallar að miklu leyti um ein- manaleika sem kristallast bæði í ógæfusamri móður hans, sem að lokum fremur sjálfsmorð, og Frankie sjálfum, sem skiljanlega er utanveltu í samfélaginu. í lokin ná hins vegar tvær einmana sálir saman í ansi fallegum endi. Því miður er myndin mjög lengi af stað og í raun langdregin mestallan tím- ann en hún á þó sín augnablik og síðasti hálftíminn eða svo er mjög góð- ur. Nálgunin við söguefnið er nærgætin og vitræn en stundum ber vand- virknin hrynjandina ofurliði. Frábærir leikarau: era í myndinni - Anne Parillaud, Matt DUlon og Gabriel Byme, en bestir era þó dvergamir sem leika Frankie ungan og gamlan, þeir Alan Pentony og Corban Walker. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Michael Lindsay-Hogg. Aðalhlutverk: Alan Pentony, Corban Walker, Anne Parillaud, Gabriel Byrne og Matt Dillon. Alþjóðleg, 1996. Lengd: 95 min. Öllum leyfð. -PJ SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA . TITILL ÚTGEF. TEG. 1 Ný 1 Nutty Professor ClC-myndbönd Gaman 2 1 2 Eraser Warner myndir Spenna 3 2 4 Last Man Standing Myndfsrm Spenna 4 ,-Úy ;■ 3 3 The Arrival Háskólabís Spenna 5 Ný 1 Celtic Pride ClC-myndbönd Gaman 6 6 r r 7 Mission: Impossible ClC-myndbönd r Spenna 7 4 5 Independence Day Skífan i Spenna S 7 1 8 Fargo Háskslabís Spenna 9 Ný 1 Heavens Prisoners Sanwnyndbiind 1 Spenna 10 I 5 s ; Eye for an Eye ClC-myndbsnd Spenna 11 9 4 ; Powder Sam-myndbsnd 1 Drama 12 í io : 8 r Truth about Cats and Dogs r Skífan Gaman 13 14 2 ; Mrs. Winterbourne Skrfan j Gaman l 14 8 2 Killer: A Journal of Murder Sam-myndbönd Spenna 15 12 ; 4 ; Diabolique Warnermyndir , Spenna 16 11 ; 5 ; Mr.Wrong Sam-myndbsnd ; Gaman 17 Ný : 1 ' Stealing Beauty Skrfan ' Drama i8 ; r 13 ; 4 Space Truckers Bergvík Gaman 19 15 10 Happy Gilmore ClC-myndbiind ' Gaman 20 18 3 Flirting with Disaster , Skrfan Gaman Gamanleikarinn Eddie Murphy sýnir á sér margar hliðar í The Nutty Professor sem fer beint í efsta sæti listans og kemur það fáum á óvart enda var The Nutty Professor ein allra vin- sælasta kvikmyndin í heiminum á síðasta ári. Á myndinni er hann í einu af sjö gervum sem hann bregður sér í. í fimmta sæti er einnig ný mynd á listanum, Celtic Pride, gamanmynd um tvo forfallna körfuboltaaðdáendur. Tvær aðrar nýjar myndir eru á listanum; Heaven’s Prisoner er sakamálamynd með Alec Balwin í aðalhlutverki, mynd sem gerist í og í ná- grenni New Orleans og í sautjánda sæti er nýjasta kvikmynd Bernardos Bertoluccis, Stealing Beauty, sem gerist meðal listamanna á búgarði á Ítalíu. Meðal leikara eru Lyv Tyler og Jeremy Irons. The Nutty Professor Eddie Murphy og Jada Pinkett Hinn góðlegi, bráðgáfaði og akfeiti erfðafræðiprófessor dr. Sherman Klump verður umsvifalaust ástfanginn af hinni fogru Cörlu Purly þegar hún kemur til starfa við háskólann. Hann gerir sér þó fljótlega grein fyrir því að hann á litla möguleika á að vinna hjarta hennar nema honum takist að ná af sér 200 kUó- um. Hann grípur tU þess að taka inn nýtt fitueyðandi lyf og eft- ir einn sopa breytist hann í tággrannan kvennabósa. Eraser Arnold Schwarze- negger og Vanessa Williams Leyniþjónustu- maðurinn John Kru- ger, sem hefur þann starfa að halda hlífl- skUdi yfir mikUvæg- um vitnum alríkis- lögreglunnar, hefur fengið það verkefni að vernda fegurðar- dísina Lee sem er eina vitnið í máli gegn öflugum glæpa- mönnum sem eru við það að ná valdi á gjöreyðingarvopni. Kruger er leiddur í gUdru og látið líta svo út að hann sé svikari. Hann þarf ekki aðeins að vemda vitnið heldur að vernda sjálfan sig fyrir eigin mönnum. Last Man Standing Bruce Willis og Christopher Walken Sögusviðið er lítUl bær, Jericho í Texas. Þangað kemur dag einn ókunnugur maður sem nefnir sig John Smith. Ekki líð- ur á löngu uns hann er búinn að flækja sig hressUega í deU- ur tveggja glæpa- gengja . Smith er samt ekkert lamb að leika sér við eins og andstæðingar hans komast fljótt að og hann aflar sér fljótt virðingar glæpafor- ingjanna. Hann geng- ur tU liðs við annan foringjann en leikur einnig um stund tveimur skjöldum. The Arrival Charlie Sheen og Ron Silver Stj ömufræðingm:- inn Zana vinnur við að hlusta eftir hljóð- merkjum utan úr geimnum. Kvöld eitt uppgötvar hann ein- kennUegt hljóð sem hann telur strax að gefi slíka vísbend- ingu. Þegar Zane fer að skUgreina hljóðin betur verður hann æ sannfærðari um að hljóðin séu ekki af þessum heimi. Hann á hins vegar í mUd- um vandræðum með að sannfæra yfir- mann sinn enda kemur í ljós að hljóð- merkin koma frá jörðu. Zane hyggur því á eigin rannsókn. Celtic Pride Dan Aykroyd og Ron Silver. Þeir Jimmy og Mike era eindregnir stuðningsmenn Boston Celtics. Þegar þeir horfa á sína menn tapa fyrir Utah Jazz í sjötta leik úr- slitakeppninnar í NBA fara þeir félag- arnir á algjöran bömmer. Eftir leik- inn komast þeir að því að aðalmaður Utah hefur lagt leið sína á krá eina í ná- grenninu. Þeir félag- ar dulbúa sig , halda á krána og fara á hressUegt fyllirí. Morguninn eftir upp- götva þeir að þeir hafa rænt körfubolta- hetjunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.