Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Síða 6
22 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997 íþróttir DV 0lý- „Gassi" biðst enn og aftur afsökunar - lamdi enn eina konuna og er í vanda staddur Paul Gascoigne er enn kominn á síður ensku dagblaöanna, nú vegna sam- skipta sinna við kanadíska konu á dögunum. Gassi sem lengi hefur verið til vand- ræða í boltanum á að hafa slegið kröftug- lega til stúlku sem hann hitti á veitinga- stað og heitir Di- annah Dean. Vitað er að Gassi er sjaldn- ast með sjálfum sér er hann ligg- ur í vín- drykkju og oftar en ekki má lesa um skemmti- ' feröir hans á öld- urhús í blöðunum nokkrum dögum síðar. Menn eru löngu hættir að hafa tölu á afsökunar- beiðnum Gassa. Þessi vandræðagemlingur hef- ur í kjölfar hvers hneykslisins á fætur öðru komið fram í íjölmiðlum og beðiðst afsökunar á öllu saman. Eru þeir nú margir sem eru hættir að hlusta á hjalið í halnum. Gassi kom fram eftir samskipti sín við Dean og baðst afsökunar á því ef hann hefði gert henni eitthvað rangt. Hann sagðist reyndar vilja hitta hana augliti til auglitis og fá málið á hreint. Hoddle og Smith eru ekki ánægöir Samskipti hans við veika kynið eru nefnilega sjaldnast hávaðalaus og nú er Walter Smith, fram- kvæmdastjóri Glasgow Rangers, og Glenn Hoddle, enski landsliðs- þjálfarinn, farnir að velta því alvarlega fyrir sér að ef til vill sé besti kostur- inn að gefa Gassa upp á bátinn. Smith er sagður ævareiður og breskir fjöl- miðlar hafa greint frá því að lítill áhugi sé nú hjá Rangers að hafa Gassa mikið lengur hjáfélaginu. Rifla má upp að hann gekk í skrokk á fyrrverandi konu sinni og fyrir nokkrum dög- um var hann dæmdur á Ítalíu fyrir að slá ljósmynd- ara. Diannah Dean ætlar ekki að gefa neitt eftir í málinu gegn Gassa. „Ég vona að hann viðurkenni það sem hann gerði í sam- tölum sínum við lögregl- una. Ég hef ekkert við hann að tala.“ Enn einu sinni hefur Gassi þurft að biðjast af- sökunar á hegðun sinni sem ekki sæmir íþrótta- manni í hans stöðu. -SK Diannah Dean gefur Gassa ekki þumlung eftir og segist vilja játningar hjá lögreglu. I fýlu og lamdi þjálfarann Ricardo Sa Pinto verðrn- ekki valinn í landsliö Portúgals í knattspymu á næstunni. Á dögunum þegar landsliðs- hópurinn var á æfingu birtist Sa Pinto, en hann hafði verið settur út úr hópnum. Skipti engum tog- um að hann fór rakleitt til lands- liðsþjáifarans, Arturs Jorges, og lamdi hann. Sa Pinto á 20 lands- leiki að baki en talið er að hann hafi misst sæti sitt í landsliðinu vegna agavandamála. -SK Frakki til Joe Royle tók Real Betis Júlíus skor■ Leeds United pokann simi sagði þvert nei aði sex mörk Forráðamenn Leeds United Joe Royle er hættiu- sem fram- Alex Ferguson, framkvæmda- Júlíus Jónasson skoraði sex notuðu páskana til að kaupa kvæmdastjóri hjá enska úrvals- stjóra Manchester United, varð mörk fyrir Suhr þegar liðið vann franska leikmanninn Pierre deildarfélaginu Éverton. ekki að ósk sinni um páskana er Wacker Thun, 27-24, í úrslita- Laurent frá Bastia í Frakklandi. Að samkomulagi varð á milli hann hugðist kaupa vamar- keppninni í svissneska hand- Laurent kostaði Leeds aðeins Royles og forráðamanna Everton manninn Roberto Rios hjá Real knattleiknum. 250 þúsund pund en samningur að hann léti af störfum enda ár- Betis á Spáni. Suhr hafnaði í sjötta sætinu í hans við Bastia var að renna út. angur liðsins að undanfornu og United bauð 700 milljónir úrslitakeppninni. Þetta var sið- Laurent þessi hefur ekki leik- lengst af i vetur ekki merkileg- króna í Rios, um 6,1 milljón asti leikur Júlíusar fyrir Suhr. ið landsleik fyrir Frakkland. ur. punda, en Spánverjamir sögðu Hann kemur nú heim til íslands Hann skrifaði undir Qögurra ára Ekkert hefur enn heyrst um einfaldlega þvert nei. Ferguson eða leikinr með öðra erlendu liði samning við Leeds og leikur hugsanlegan eftirmann Royles hefur nokkrum sinnum fariö til á næsta keppnistímabili. Má væntanlega með liðinu gegn en víst er að margir munu hafa Spánar til að fylgjast með Rios mikið vera ef nokkur félög hafa Blackburn Rovers þann 7. apríl. áhuga á starfmu. en hann er spánskur landsliðs- ekki áhuga á þessum snjalla leik- -SK -SK maður. -SK manni. -SK Vigdís og Broddi urðu í efstu sætunum - á Pro Kennex Icelandic Cup í badminton á Akureyri DV, Akureyri: Áttunda Pro Kennex Icelandic Cup mótið í badminton var haldið á Ákureyri að venju, en mótið er einn af stærstu viðburðum ársins í þessari íþróttagrein. Vigdís B. Ásgeirsdóttir, TBR, sigraði í meistaraflokki kvenna. Hún vann Erlu B. Hafsteinsdóttur, TBR, í úrslitum, 11-3 og 11-0. Broddi Kristiánsson. TBR, sigraði í karlaflokki, vann Svein Loga Sölvason, TBR, í úrslitum, 15-10 og 15-9. í tvíliðaleik karla sigruðu þeir Tryggvi Nielsen og Hjörtur Ludvigson, TBR, þá Brodda Krist- jánsson og Indriða Bjömsson, TBR, 15-3 og 17-14. í tvíliðaleik kvenna unnu þær Vigdís og Erla, TBR, sigraðu Bimu Guðbjartsdóttur og Katrínu Atladóttin-, ÍA, í úrslitum, 15-10 og 15-7. í tvenndarleik unnu Broddi og Brynja Pétursdóttir, ÍA, þau Njörð Ludvigson og Vigdísi, 15-11 og 15-10. Orri Öm Ámason, TBR, sigraði í A-flokki karla og Ólöf Guðrún Ólafsdóttir í A-flokki kvenna. Gunnar Bjömsson og Jóhannes Helgason, TBR, unnu tvíliðaleik og það sama gerðu Áslaug Ósk Hin- riksdóttir og Anna Liija Sigurðar- dóttir, TBR. Orri og Anna unnu loks tvenndarleikinn. __________SL. Vigdfs B. Ásgeirsdóttir lék mjög vel á Akureyri. Broddi Kristjánsson sýndi aö hann hefur engu gleymt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.