Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Blaðsíða 8
24
ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997
Iþróttir
Ivarl Malone hefur leikiö
frábærlega á yfirstandandi
iktíö í NBA-deildinni
Margir eru þeirrar skoö-
nar aö hann haft leikiö
best allra í deildinni í vetur
en hann skorar aö jafnaði
vfir 30 stig í leik og tekur 10
hann knöttinn fagmannlega
i körfuna i leik nteö Utah
Símamvnd Reutet
Urslit í NBA
Charlotte-Portland 87-88
Indiana-Dallas .... 104-80
Miami-Sacramento .... 101-08
NJNets-76ers . . . . 123-105
Washington-Boston .... 105-92 ■
NY Knicks-Detroit .... 105-94
Denver-Minnesota .. . . 100-102
Seattle-Phoenix . . . . 107-109
LA Lakers-Milwaukee .... 106-84
Toronto-Chicago 83-96
Atlanta-LA Clippers .... 103-88
Houston-Cleveland .... 107-89
SA Spurs-Orlando 97-93
Vancouver-LA Lakers .... 98-102
Detroit-LA Clippers 113-85
Miami-Cleveland 83-79
NJ Nets-NY Knicks 92-86
76ers-Boston . . . . 113-105
Washington-Toronto 113-86
Charlotte-Indiana . . . . 115-116
Phoenix-Goilden State . . . . 122-115
Utah Jazz-Milwaukee .... 101-96
Portland-Vancouver 115-81
Seattle-Minnesota 92-81
Atlanta-Sacramento 88-74
94-57
Chicago-NJ Nets ... . 111-101
Houston-Denver .. . . 120-105
SA Spurs-Utah Jazz . . . . 102-115
Orlando-NY Knicks 86-101
Toronto-Miami 102-97
Indiana-LA Clippers 103-96
Cleveland-Dallas 84-80
Detroit-76ers 92-%
Golden State-Minnesota .... . . . . 102-113
Denver-Milwaukee 99-97
Phoenix-Seattle .... 107-106
NBA-deildin í körfubolta yfir páskana:
Maðurí
manns stað
hjá Chicago
ótrúleg sigurganga meistaranna hélt
áfram. Mikil ferð á Phoenix Suns
Chicago heldur enn áfram
sigurgöngu sinni í NBA-deild-
inni og liðið hefur nú unnið
rúmlega 60 leiki í deildinni sem
er ótrúlegur árangur.
Það kemur alltaf maðrn- í
manns stað hjá meisturunum.
Jordan átti ekkert sérstakan
dag gegn Toronto, skoraði að-
eins 12 stig sem er lítiö þegar
hann er annars vegar. Toni
Kukoc var aftur með hjá Bulls
en hann hafði misst af síðustu
13 leikjum liðsins vegna
meiðsla. Kukoc skoraði 8 stig,
hirti 6 fráköst og gaf 6 stoðsend-
ingar. Mjög góður leikur hjá
Króatanum og Phil Jackson,
þjálfari Chicago, sagði eftir
leikinn að Kukoc hefði haldið
liðinu gangandi með góðum
leik. Scottie Pippen og Luc
Longley voru stigahæstir hjá
Chicago með 16 stig.
Chicago lék einnig gegn NJ
Nets um páskana og vann ör-
uggan sigur. Heldur var meist-
ari Jordan hressari í þessum
leik en hann skoraði 2 stig.
Scottie Pippen fór hins vegar
fremstur í flokki og skoraði 31
stig. Þetta var sjöundi sigur
Chicago í röð.
Leikur Indiana og Charlotte
var æsispennandi fram á loka-
sekúnduna. Það var óþekktur
leikmaður, Fred Hoiberg, sem
tryggði Indiana sigurinn með
þriggja stiga körfú í blálokin en
grunninn að sigrinum lagði
hinn snjalli Reggie Miller
sem átti stórleik og skoraði
39 stig.
New Jersey Nets vann
nokkuð óvæntan sigur á
New York Knicks. Þar skipti
það sköpum að miðherji
Knicks, Patrick Ewing,
meiddist þegar tæpur
leikhluti var til leiksloka
og við því má Knicks
ekki. Jimmy Jackson
skoraði 29 stig fyrir Nets.
Jackson sagði eftir leik-
inn að Ewing væri allt í
öllu hjá Knicks og 80% af
öllum sóknaraðgerðum
liðsins færu í gegmnn
hann.
þremur viðureignum liðanna.
Olajuwon hitti úr 14 af 24 skot-
um sínum gegn Denver og
missti aðeins eitt af 17 vítaskot-
um sínum í leiknum.
Frábært gengi Utah og
Malone frábær
Lið Utah Jazz lék frábærlega
gegn San Antonio Spurs og eng-
inn betur að venju en Karl
Malone (sjá mynd). Malone hef-
ur verið fráhær i allan vetm- og
gegn Spurs skoraði hann 33
stig. Lið Utah skoraði 37 stig í
fjórða leikhluta og er á mikilli
siglingu þessa dagana. Þetta
var níundi sigur liðsins í röð.
Gamla brýnið Dominique Wilk-
ins var stigahæstur leikmanna
Spurs og skoraði 26 stig.
Mikil ferö er á Phoenix
Suns þessa dagana
Lið Phoenix Suns er á mikilli
ferð þessa dagana og vinnur
hvem leikinn á fætur öðrum.
Á páskadag fékk liðið Seattle
í heimsókn og um var að ræða
hörkuleik sem lauk með eins
stigs sigri Phoenix sem vann
þar með sjötta leik sinn i röð i
deildini.
Jason Kidd var maðurinn á
bak við sigur Phoenix. Hann
skoraði 19 stig og gaf 16
stoðsendingar. Leikmenn
Phoenix hittu mjög
vel úr þriggja stiga skotunum
og þeir Rex Chapman og
Wersley Person gerðu 11
þriggja stiga körfur í leiknum.
Minnesota nálgaðist 50%
vinningshlutfallið á ný með
góðum heimasigri gegn Golden
State. Kevin Gamett átti mjög
góðan leik og skoraði 33 stig.
Hittni hans var með ólíkindum
en hann hitti úr 12 af 15 skotum
sínum í leiknum. Joe Smith
skoraði 22 stig fyrir Golden
State og Chris Mullin 20.
Hollenski miðherjinn Rik
Smits var í miklu stuði þegar
Indiana vann LA Clippers.
Smits skoraði 40 stig í leiknum
og þar af 8 af 12 stigum Indiana
í ffamlengingunni.
Knicks átti ekki í erfiðleik-
um með Orlando. Patrick
Ewing skoraði 33 stig fyrir
Knicks og Chris Childs 19 stig.
Miami tapaði illa á heima-
velli Toronto. Sóknarleikur
Miami var í molum í lokin og
liðið skoraði ekki stig síðustu
sex mínútur leiksins.
Damon Stoudamire fór á
kostum í leiknum og skoraði 35
stig fyrir Toronto. Hann gaf að
auki 11 stoðsendingar á félaga
sína.
Með þessum ósigri minnkaöi
forskot liðsins á New York
Knicks á toppnum í Atlants-
hafsriðlinum.
-SK
Stadan í NBA
- nöfn liöa sem komin eru í úrslit feitletruð
Atlantshafsriöill
Mlaml
New York
Orlando
Washington
New Jersey
Philadelphia
Boston
53
51
40
36
23
20
13
18
21
31
35
48
50
59
74,6%
70,8%
56,3%
50,7%
32,4%
28,6%
18,1%
Miðriðill
Chicago
Atlanta
Detroit
Charlotte
Cleveland
Indiana
Milwaukee
Toronto
62
50
49
45
37
35
28
26
9
22
22
26
34
36
43
47
87,3%
69,4%
69,0%
63,4%
52.1%
49,3%
39,4%
35,6%
Olajuwon meö
tak á Denver
Hakeem Olajuwon, mið-
herji Houston Rockets,
virðist finna sig sérstak-
lega vel er Houston leikur
gegn Denver.
Þessi snjalli miðherji
skoraði 45 stig í leik lið-
anna um páskana og hef-
ur að meðaltali skorað 43
stig gegn Denver í síðustu
Miðvesturriðill
Utah 54 17 76,1%
Houston 48 23 67,6%
Minnesota 35 37 48,6%
Dallas 22 49 31,0%
Denver 20 51 28,2%
San Antonio 18 53 25,4%
Vancouver 12 62 16,2%
Kyrrahafsriðill
Seattle 50 22 69,4%
LA Lakers 48 23 67,6%
Portland 43 30 58,9%
Phoenix 33 39 45,8%
LA Clippers 31 40 43,7%
Sacramento 29 43 40,3%
Golden State 25 46 35,2%