Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 1997
dv Fréttir
Gistiaðstaða hjá ÍA á Jaðarsbökkum:
Kærð til Sam-
keppnisstofnunar
- brýtur gegn samkeppnislögum að mati hóteleiganda
DV, Akranesi:
Eigandi Hótel Barbró á Akranesi
hefur farið fram á það við Sam-
keppnisstofnun að skoðað verði
hvort gistiaðstaða hjá ÍA í íþrótta-
miðstöðinni á Jaðarsbökkum brjóti
í bága við samkeppnislög.
í gildi er samningur á milli
íþróttahreyfingarinnar á Akranesi
og Akraneskaupstaðar er varðar
rekstur íþróttamiðstöðvarinnar á
Jaðarsbökkum. Hluti rekstrar mið-
stöðvarinnar er rekstur á hótelher-
bergjum og veitingastaðar. Sam-
kvæmt 4. grein samningsins sem er
dagsettur 1. desember 1995 greiðir
Akraneskaupstaður allan kostnað
við gistinguna en íþróttabandalagið
fær allar tekjur af veittri þjónustu.
í samtali við DV segir Hilmar
Bjömsson, eigandi Hótel Barbró, að
í drögum að nýju samkomulagi sem
dagsett er 1. maí 1996 á milli sömu
aðila sé hnykkt frekar á þessu fyrir-
komulagi, en samkvæmt 4. grein
þess greiði Akraneskaupstaður og
fólkið í bænum einnig fastan kostn-
að á gistirýminu svo sem rafmagn,
hita, ræstingu, fasteignaskatta, lög-
boðnar fateignatryggingar og við-
hald.Hilmar segist myndu varla
gera athugasemdir við þennan
samning ef aðeins væri um það að
ræða að íþróttafólk gisti á Jaðars-
bökkum, en svo væri alls ekki. Síð-
astliðið haust hafl verið haldið á
Akranesi kennaraþing og gistu
kennarar í íþróttamiðstöðinni fyrir
1000 krómu' á manninn sem er langt
undir almennu markaðsverði á gist-
ingu.
„Ég fór að kanna málið og komst
að þvi að á þessum tíma hafði Akra-
neskaupstaður greitt til íþróttamið-
stöðvarinnar 16 milljónir sem er
ekki sundurliðað og ég hef staðfest-
ar heimildir fyrir því að bærinn
hafi greitt til íþróttamiðstöðvarinn-
ar um 20 milljónir á síðasta ári
ósundurliðað. Ég væri tilbúinn að
selja þessa gistingu á 1000 krónur ef
bærinn og fólkið sem greiðir skatt-
ana í bænum styrkir mig eins og
í þróttabandalagið. “
DVÓ
Gunnar Rósarsson var einn fjórmenninganna sem hófu veiði í Varmá á fyrsta
veiöidegi ársins, 1. apríl sl. Þokkaleg veiöi var í ánni. DV-mynd Kristján
Sjóbirtingsveiðin hafin:
Varmá gaf vel
DV, Selfossi:
Þann fyrsta apríl mátti hefja
veiði í öllum ám landsins sem
göngufiskur kemur í, sem og sjóbirt-
ingur.
í Varmá austur í Ölfusi, skammt
frá Hveragerði, hafa sömu veiði-
mennirnir haflð þessa veiði á fyrsta
degi ár hvert og sumir þeirra und-
anfarin 40 ár, en Rósar Eggertsson
er einn þeirra. „Það var mjög gam-
an í dag, veðrið var þokkalegt fram-
an af en lagaðist til muna þegar líða
tók á daginn. Við vorum fjórir sam-
an og kræktum í um það bil 50 fiska
en helmingur þeirra fékk frelsið á
ný. Þetta voru fiskar af öllum teg-
undum, urriðar, regnbogasilungur,
sjóbirtingur og bleikja. Poul í Veiði-
manninum krækti í 4,5 punda
bleikju en annars voru þetta allt
upp í fimm punda fiskar, allir veidd-
ir á gervibeitu, flugu og spún,“
sagði Rósar, veiðimaður i Varmá í
Ölfusi, í samtali við DV sem var á
staðnum á opnunardaginn.
-KE
Sameining sveitarfélaga við Eyjafjörð:
Starfshópar Ijúka störfum
DV-Dahrik
Vinna við sameiningarmál sveitar-
félaganna fjögurra við utanverðan
Eyjafjörð, Svarfaðardals, Árskógs-
strandar, Hríseyjar og Dalvíkur geng-
ur samkvæmt áætlun. Fyrr í vetur
voru skipaðir fjórir starfshópar til að
fara ofan í saumana á einstökum
málaflokkum, en þeir eru yfirstjóm
og samgöngur, félagsmál, fræðslumál,
skipulags- og byggingarmál og veitur.
í hópunum sátu einn fúlltrúi frá
hveiju sveitarfélagi auk fulltrúa úr
samstarfsnefiidinni.
Hópamir hafa nú skilað niðurstöð-
um sínum og er verkefhisstjóri sam-
einingarmálanna, Þröstur Sigurðsson
hjá Rekstri og ráðgjöf, að yfirfara og
samræma niöurstöður, en að því
loknu verða þær til umfjöllunar hjá
stjómum sveitarfélaganna. Stefht er
að því að byrja að kynna almenningi
niðurstöðumar síðar í mánuðinum.
Forsvarsmenn sameiningarinnar
hafa lítið viljað tjá sig opinberlega og
hafa bent á að áðumefndri grunn-
vinnu verði að vera lokið áður en
slíkt sé hægt. Hins vegar verði farið
að kynna öll helstu atriði sameining-
armálanna af krafti siðar í mánuðin-
um. í byrjun var gert ráð fyrir því að
sveitarfélögin sameinuðust í byrjun
maímánaðar, en samkvæmt heimild-
mn DV verður einhver seinkun á því
vegna þess að menn vilja vera áður
búnir að kynna öll atriði málsins sem
best. hiá
w Ditjital útvarp með
RDS og 30 rainnum
w 450w (2 x lOOw RMS) magnari
w Surround hljóbkerfi
w Þriggja diska geislaspilari
með 30 minnum
w Handahófsspilun ó
geislaspilara fyrir 3 diska
w Tónjafhari með popp,
rokk, jass, bgm,
klassík og flat
w Tímastilling
og vekjari
▼ Tvofalt DOLBY
segulband meb síspilun
w Innstunga fyrir heyrnartól oghljóðnema
w Fullkomin fjarstýring
200w RRVIS
EEEZHS
ÁÐUR KR. 59.900
Þrír
aukahátalarar fylgja
108w RIVIS
a<to/OD<»Mi rsjtu
»1»
„„ . AÐUR KR. 64.900
w Digital utvarp með RDS og 30 mmnum
w 130w+65w+65w (2x27+27+27w RMS) HEIMABÍÓ magnari
w Tónjafnari meb popp, rokk, jass, bgm, klassík og flat
yr Fullkomib Dolby ProLogic HEIMABÍÓ hljóðkerfi
w Þriggja diska geislaspilari með 30 minnum
•w Handahófsspilun d geislaspilara fyrir 3 diska
w Tvöfalt DOLBY segulband meb síspilun
•w Innstunga fyrir heyrnartól og hljóðnema
•w Tímastilling og vekjari
•w Fullkomin fjarstýring
VERÐLAUNUÐ AF
ism
WHAT VIDEO &TV
Þrír
aukahátalarar fylgja
300w RKVIS
Digital útvarp með RDS og 30 minnum AÐ U R
270w+83w+83w (2xl20+30+30w RMS) HEIMABÍÓ magnari
Fullkomið Dolby ProLogic HEIMABÍO hljóðkerfi
Þriggja diska geislaspilari með 30 minnum
Handahófsspilun ó geislaspilara fyrir 3 diska
Tónjafnari með popp, rokk, jass, bgm, klassík og flat
Tvöfalt DOLBY segulband meb síspilun
Innstunga fýrir heyrnartól og hljóðnema
Tímastilling og vekjari
Fullkomin fjarstýring Heyrnartol að verðmœti
kr. 3.990 fylgja sem
kaupbœtir í þessum tilboðum!
Sjónuarpsmiðstöðin
? V 'f; T V 'EÉís r$ ' '
Umboðsmenn um land allt VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Kaupíélag Borgfirðinga, Borgamesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. VESTFIRÐIR: Rafbúð Jónasar Þórs, Patreksfirði. Pólliim, ísafirði.
NORÐURLAND. KF Steingrímsfjarðar, Hólmavik. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. KF Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. KEA, Dalvík. Bókval, Akureyri. Hljómver, Akureyri. öryggi, Húsavík. Urð, Raufartiöfn.
AUSTURLAND: KF Héraðsbúa, Egilsstöðum. KF Vopnfirðinga, Vopnafirði. KF Héraðsbúa, Seyðisfirði. KF Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði. KASK, Djúpavogi. KASK, Höfn Homafirði. SUÐURLAND: Rafm. KR, Hvolsvelli. Mosfell,
Hellu. örverk, Selfossi. Radíórás, Selfossi. KF Ámesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafborg, Grindavík. Raflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar, Garði. Rafmætti, Hafnarfirði.
HUGVERKASMIÐjA