Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Síða 13
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 1997
13
Fréttir
^ Arnarborg EA á rækjuveiðum við Svalbarða:
Eg er ekki að veiða
neitt sem Jóhann á
ATAK
BÍLALEIGA
554 6040
- segir Snorri Snorrason útgerðarmaður
DV, Akureyri:
„Ég hef lítinn áhuga á að deila
við menn í fjölmiðlum en ég kann
því illa að sitja undir því að ég sé að
veiða eitthvað sem aðrir eiga. Mitt
skip er ekki að veiða neitt sem Jó-
hann H. Jónsson á Þórshöfn á, það
eru hreinar línur,“ segir Snorri
Snorrason, útgerðarmaður á Dalvík.
Arnarborg, skip Snorra, hóf á
dögunum rækjuveiðar á Svalbarða-
svæðinu en norsk yfirvöld hafa gef-
ið út að einu íslensku skipi sé heim-
ilt að stunda þar veiðar. Jóhann A.
Jónsson, framkvæmdastjóri Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar, hefur sagt
að þetta veiðileyfi sé gefið út vegna
þess að Stakfell, sem hans fyrirtæki
gerir út, hafi reynt þarna rækju-
veiðar og aflað þannig veiðireynslu.
Það sé því ljóst að Stakfellið eigi
þetta veiðileyfi sem Norðmenn veita
íslensku skipi á Svalbarðasvæðinu.
DV hefur undir höndum reglu-
gerð norska sjávarútvegsráðuneyt-
isins um veiðar við Svalbarða og
þar segir alveg skýrt að einu ís-
lensku skipi sé heimilt að stunda
veiðar þar og er ekki kveðið á um
hvaða skip hafi þann rétt en ekki er
deilt um að þetta eina veiðileyfi er
gefið út vegna veiða Stakfells á
svæðinu.
íslensk stjómvöld hafa hins vegar
ekki viðurkennt norsku reglugerð-
ina um veiðar við Svalbarða. Snorri
Snorrason segir að Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra hafi lýst
því yfir að öll íslensk skip hafi rétt
til veiða við Svalbarða og Snorri
segist enga ástæðu til að ætla að það
sé ekki rétt.
Arnarborg tilkynnti sig til
norskra yfirvalda áður en skipið fór
inn á Svalbarðasvæðið og sendi
Norðmönnum umbeðnar upplýsing-
ar sem voru m.a. um nafn skipsins
og eiganda, stærð skipsins og kall-
merki, en ítrekuðu um leið að að-
eins eitt íslenskt skip mætti veiða á
svæðinu. -gk
Nýr ferðamalafulltrui
Skagfirðinga
DV, Fljótum:
Héraðsnefnd Skagfirðinga sam-
þykkti fyrir skömmu að ráða
Deboruh Robinson í starf ferða-
málafulltrúa. Áður höfðu héraðsráð
og ferðamálanefnd fjallað um ráðn-
inguna og mælt með Deboruh. Hún
var valin úr hópi fjögurra umsækj-
enda sem um starfið sóttu.
Undanfarin ár hefur verið starfs-
maður hjá héraðsnefnd sem nær al-
farið hefur sinnt ferðamálum. Síð-
ast var Jakob Þorsteinsson í þessu
starfi en hann flutti úr héraðinu sl.
vor og má segja að vinna varðandi
ferðamál hafi þá lent hjá fram-
kvæmdastjóra héraðsnefndarinnar.
Það var svo á fundi héraðsnefndar
skömmu fyrir jól að tekin var end-
anleg ákvörðun um að nýr ferða-
málafulltrúi yrði ráðinn og nú í
hálft starf.
Deborah er fædd og uppalin í Suð-
ur-Afríku en fluttist til íslands fyrir
10 árum. Hún fluttist til Sauðár-
króks árið 1991 og hefur undanfarin
þrjú ár rekið fýrirtæki á sviði al-
mannatengsla. Það hefur m.a. falist
í gerð fréttabréfa og fréttatilkynn-
inga, bréfaskriftum og þýðingum,
svo að eitthvað sé nefnt. Deborah
sagði í samtali við fréttamann að
ýmis verkefni biðu á borði nýs
ferðamálafulltrúa og það væri til-
hlökkunarefni að takast á við starf-
ið. -ÖÞ
Robland
trésmíðavélar
Fyrir metnaðarfulla
iðnaðarmenn og
verkstæði sem velja
hámarks gæði og ,
rekstraröryggi <
Þegar gæðin skipta máli
Skeifan 11 D • Sími 568 6466
Deborah Robinson ferðamálafulttrúi.
DV-mynd Örn
Hríseyingar vilja íþróttahús
Hverfafundur
* með borgarstjóra
Ingibjörg Sóirún Gísladóttir borgarstjóri
heldur hverfafund með íbúum
Vesturbænum,
Miðbænum
og Austurbænum
vestan Snorrabrautar
n
DV, Dalvík:
Hreppsnefnd Hríseyjar hefur
borist bréf frá áhugafólki um bygg-
ingu íþróttahúss. Þar er lýst mikl-
um áhuga hjá hópi fólks um að
reisa fjölnotahús í Hrísey. Hrepps-
nefnd fagnar þeim áhuga sem fram
kemur í bréfi hópsins og samþykkti
að fela sveitarstjóra að skrifa Jöfn-
unarsjóði greinargerð og kanna hve
mikið fengist sem styrkur til þess
að byggja fjölnota íþróttahús í Hris-
ey.
Að sögn Jónínu Þorbjarnardótt-
ur, eins forsvarsmanna hópsins, eru
margar ástæður fyrir því að farið
var af stað til að afla málinu fylgis.
Lítil sem engin aðstaða er til
íþróttakennslu innanhúss í Hrísey
og hafa nemendur þurft að sækja
slíka kennslu upp á Árskógsströnd,
auk þess sem eldri Hríseyingar
vildu gjaman stunda innanhússí-
þróttir sér til heilsubótar.
Einnig er félagsheimili Hrísey-
inga orðið gamalt og lúið og lítt að-
laðandi og sagðist Jónína vonast til
að nýtt hús myndi laða að ýmiss
konar menningarstarfsemi sem
ekki er hægt að taka á móti nú.
Samkvæmt áætlunum hópsins er
gert ráð fyrir að húsið yrði jafn-
framt nýtt sem félagsheimili og til
hvers kyns samkomuhalds.
Búið er að gera tvær teikningar
af misstórum húsum en endanleg
kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir.
Hvað opinbera geirann varðar er
boltinn hjá hreppnum en Jónína
sagði að fljótlega hygðist hópurinn
fara af stað í fjáröflun til að flýta
fyrir því aö draumurinn um nýtt
íþróttahús og félagsheimili gæti orð-
ið að veruleika. -hiá
í Ráðhúsinu mánudaginn 7. apríl kl. 20.00.
Hólmavíkurbakarí flutt á Skagann
DV, Akranesi:
Nýverið fluttu þeir Kári Matthí-
asson og Páll Matthíasson starfsemi
sína frá Hólmavík og hófu starfsemi
í bakaríinu Hús bakarans á Akra-
nesi í neðri hluta bæjarins og er það
fiórða bakaríið á Akranesi.
Þeir Páll og Kári eru með samn-
ing við verslunarkeðjuna Þín versl-
un sem samanstendur af 21 verslun
víðs vegar um land. Þar á meðal eru
Nóatún, Fjarðarkaup og Samkaup
og framleiða þeir 30.000 kanilsnúða
og hafrasnúða á viku fyrir þessar
verslanir.
Þeir Páll og Kári sögðust vera
þokkalega bjartsýnir á reksturinn.
Þetta væri allt á uppleið og þeir
væru með ýmislegt í pokahorninu
enda eru þeir stærstir í framleiðslu
kanil- og hafrasnúða á landinu. Auk
þess baka þeir ýmislegt annað og í
bakaríinu er starfrækt sölubúð sem
selur brauð og bakkelsi á heildsölu-
verði og er opin til 23.30. Það er því
ljóst að Skagamenn hafa úr miklu
úrvali af bakkelsi að velja og svo er
það bara spurning hvort fjögur bak-
arí séu ekki of mikið fyrir eitt bæj-
arfélag með rúmlega fimm þúsund
íbúa.
-DVÓ
A fundinum mun borgarstjóri m.a. ræða
um áætlanir og framkvæmdir í
hverfunum. Síðan verða opnar umræður
og fyrirspurnir með þátttöku
fundarmanna og embættismanna
borgarinnar. Jafnframt verða settar upp
teikningar af fyrirhuguðum
framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru
fróðlegu og myndrænu efni.