Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Page 40
Vinningótölur laugardaginn 5.04.’97
17 f 26 t301
4fw
I 34 37
; ■
Fjöldi
Vinningar umnmgg VinningAupphced
1- 5 at 5
2. 4 atsr
3-(dts
4- 3 “t5
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1997
Sorpu-menn:
Kanna hvort
götin séu of
stór
„Við ætlum næstu daga að funda
með sérfræðingum í slysavörnum og
ef fólki finnst eitthvað athugavert við
gámana munum við bregaðst við
því,“ segir Ögmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Sorpu, en um
helgina krömdust tveir bræður í Sví-
þjóð til bana eftir að þeir höfðu verið
að leika sér í blaðagámi, svipuðum
þeim sem notaðir eru hér á landi.
Ögmundur sagði að hér á landi
væru 60 svona blaðagámar og að
götin á íslensku blaðagámunum
væru heldur minni en á þeim
sænsku. Samt væru þau nógu stór
til þess að börn gætu smeygt sér inn
í þá. Sagt er frá dauða sænsku
drengjanna á bls. 8. -sv
Veður á
Faxaflóasvæði
næstu viku^
- samkv. tölum frá Veöurstofu íslands -
Hitastig
5 c°
-2c°
mán. þri. miö. fim. fös.
Steinþór Gunnarsson atvinnukafari var hætt kominn:
••
Ondunartækið bil-
aði á 36 metra dýpi
„Öndunartækið hjá mér bilaði
,eða lungað eins og við köllum
það. Ég var á 36 metra dýpi þegar
þetta gerðist og búinn að vera
þarna niðri í um 7 mínútur af
þeim 10-15 mínútum sem við meg-
um vera. Ég fékk mjög takmarkað
loft og stefndi þvi beint upp á yfir-
borðið en fór of hratt upp. Við það
varð hætta á köfunarveiki,“ segir
Steinþór Gunnarsson atvinnukaf-
ari sem var að leita að flugvélinni
sem fórst skömmu eftir flugtak frá
Reykjavíkurflugvelli.
Hann fékk ásamt öðrum kafara
litils háttar einkenni köfunarveiki
þegar þeir voru við köfun á 34 metra
dýpi. Þeir voru báðir fluttir á
Sjúkrahús Reykjavíkur og settir í
súrefnisklefa. Eftir frekari rannsókn
í gær fengu þeir að fara heim til sín.
„Eg fann fyrir höfuðverk þegar
ég kom upp úr vatninu og var kalt.
Ég var ekki búinn að vera það
Steinþór Gunnarsson. DV-mynd S
lengi niðri í vatninu og það senni-
lega bjargaði því að ekki fór verr.
Það er vissulega hætta sem við
tökum við köfun og sérstaklega
þegar farið er svona djúpt. Búnað-
urinn okkar þolir hátt í 50 metra
dýpi en kafari sem fer niður fyrir
20 metra dýpi þarfnast mikillar
reynslu.
Aðstæður voru erfiðar því að
vatnið var aðeins einnar gráðu
heitt en erlendis er talið þolanlegt
fyrir kafara að vera í 10 gráða
heitu vatni. Skyggni var frekar
slæmt til leitar þarna niðri og því
gengur þetta frekar hægt,“ segir
Steinþór sem hefur stundað köfun
i 16 ár. Hann segist aldrei hafa lent
í svona atviki áður á ferlinum
þrátt fyrir að hafa kafað mjög mik-
ið á meira en 30 metra dýpi. -RR
Þeir fórust
með TF-CCP
Þorgeir L. Árnason, 50 ára,
kvæntur og lætur eftir sig
þrjú börn.
Fannar Sverrisson, 28 ára,
ókvæntur og barnlaus.
Unniö var af krafti viö affermingu gáma af dekki Vikartinds í gær með kran-
anum um borð í skipinu. Starfsmenn Títan náöu þá að koma 22 gámum á
land en 13 daginn áður. DV-mynd Jón Ben.
Slasaðist illa þegar
hesturinn fældist
Súlka á tuttugasta og öðru ald-
ursári slasaðist mjög alvarlega þeg-
ar hún féfl af hestbaki en hestur
hennar fældist og féll síðan ofan á
hana. Stúlkan var í gærkvöld í önd-
unarvél á gjörgæsludeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Slysið varð vestan við Knarrarós-
vita í Stokkseyrarhreppi á milli kl.
6 og 7 á laugardagskvöld en stúlkan
reið þar út ásamt þremur öðrum.
Ekki er vitað hvað fældi hestinn en
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Selfossi er hann vel taminn
og „gæfur barnahestur". Þyrla land-
helgisgæslunnar var upptekin við
leit að týndu flugvélinni en brugðist
var skjótt við og stúlkan sótt. Þyrl-
an fór á móti sjúkrabíl og tók stúlk-
una upp við Ölfusárbrú. -sv
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF,
sótti stúlkuna og flaug með hana á
Sjúkrahús Reykjavíkur. Hún var í
öndunarvél á gjörgæsludeild í gær-
kvöld. DV-mynd S
Huldumaður enn á ferð í Hvalfirði:
Setti möl í olíutank
Verktakamir, sem vinna við að
leggja veg í tvær áttir frá Hvalfjarð-
argöngunum að sunnanverðu, hafa
enn orðið fyrir óþægindum vegna
huldumanns sem virðist ósáttur við
lagningu vegarins. Síðasta skemmd-
arverkið var unnið nú um helgina en
þá var möl sett í olíutank vinnuvélar.
Eins og DV hefur greint frá skildi
huldumaður eftir handskrifaða hót-
un á einni vinnuvélinni fyrir
nokkru þar sem hann hótaði að
sprengja vélar verktakans í loft upp,
setja maurasýru i vatnsból og
kveikja í íverastöðum vinnumann-
anna. Samkvæmt upplýsingum DV
hefur lögreglan yfirheyrt fjölda
manns vegna þessara mála. -sv
OG EG SEM HELT AÐ
HULDUMENN ÆTTU
HEIMA í STEINUM!
Veðrið á morgun:
Kólnandi
veður
Á morgun verður suðvestan- og
vestanátt, hvöss um tíma, einkum
um landið sunnanvert. í bili kóln-
ar og sunnanlands og vestan má
reikna með éljum. Norðaustan og
austan til verður hins vegar þurrt
og nokkuð bjart, hiti um frost-
mark eða rétt fyrir ofan.
Veðrið í dag er á bls. 44
Sjálfskipt
PJI55AN
~\ .
Almera