Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1997, Blaðsíða 2
22 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1997 íþróttir i>v Gunnar með tilboð frá Drammen - Elverum vill gera nýjan samning við hann Gunnar Gunnarsson, þjálfari norska handknattleiksliðsins El- verum, er með þjálfaratilboð frá norsku meisturunum í Drammen. Gunnar hefur þegar átt einn fund með forráðamönnum félagsins og mun hitta þá aftur á fundi í vik- unni. Þá vill Elverum endumýja samninginn við Gunnar en undir hans stjóm náði liöið að halda sæti sinu í deildinni. Þriöji íslendingurinn sem fær tilboð frá Drammen Gunnar er þriðji íslenski þjálfar- inn sem fær tilboð frá Drammen á þessu ári. Fyrst hafnaði Kristján Arason tilboði félagsins og Þor- bjöm Jensson, landsliðsþjálfari ákvað í síðustu viku eftir langa umhugsun að neita tilboði félags- ins. „Drammen hafði samband við mig eftir aö Þorbjöm gaf þeim af- svar og þeir virðast greinilega vera mikið inn á Íslendingalínunni. Ég er búinn að fara á einn fund með þeim. Þar ræddum við um liðið og ég veit vel hvemig staðan er hjá því. Þaö missir þrjá lykilmenn til Þýskalands og það er í miklum erf- iðleikum með að manna þær stöður enda þrír landsliðsmenn þar á ferð. Það er mjög ögrandi verkefni að taka við þessu liði. Þetta er stórt og vel rekið félag sem hefur mikinn metnað," sagði Gunnar við DV í gær. Gunnar tók við liði Elvemm á síösta keppnistímabili. Liðið er ungt að árum og eihilegt og Gimn- ar segir að það sé mjög spennandi að halda áíram með liðiö. Eins og svart og hvítt „Þessi vetur var mjög brösóttur enda með nýtt lið í höndunum sem var mjög ungt að árum. Það stefnir í að allir haldi áfram og liðið muni reyna að styrkja sig. Það má því segja að þessi tvö félög séu alveg eins og svart og hvítt. Maður fengi meiri tíma til að byggja upp sitt eigiö hjá Elverum en ef maður færi til Drammen, sem er vinælasta fé- lagið í Noregi, yrði meiri pressa á manni að ná árangri strax. Kitlar metnaðinn að fara til Drammen Það kitlar auðvitað metnaðinn að fara til Drammen. Þó svo að viö myndum byggja upp gott félag hjá Elverum mundum við aldrei ná þeim hæðum sem Drammen er í. Það verður að huga að ýmsu í þess- um málum en ég vonast til að fá þessi mál á hreint mjög fljótlega,“ sagði Gunnar Gunnarsson. -GH Gunnar Gunnarsson - Drammen eða Elverum. Drammen vill fá Bjarka Drammen er ekki bara á hött- unum eftir íslenskum þjálfurum heldur hefur félagiö sýnt horna- manninum og stórskyttunni Bjarka Sigm-ðssyni, leikmanni Aftvireldingar áhuga. „Ég heyrði frá forráðamönn- um Drammen fyrir nokkru síð- an og þar óskuðu þeir eftir því að ég kaemi út og skoðaði að- stæður. Ég hef hins vegar ekki getað þaö vegna landsliðsins. Þeir ætluðu að senda mér tilboð sem mér hefur enn ekki borist. Ef mér berst þetta tilboð og það reynist freistandi mun ég að sjálfsögðu skoða það með opnum huga,“ sagði Bjarki við DV í gær. Líka í viðræöum við Aftur- eldingu Ég er líka í viðræðum við Aftureldingu svo það er margt sem maður þarf að spá í,“ sagði Bjarki við DV í gær. Aðspurður um það hvort fé- lög í Þýskalandi hefðu sett sig í samband við hann sagði hann svo ekki vera. -GH Ef Kristján Arason á annað borð þjálfar næsta vetur tekur hann annað hvort lið FH eöa Aftureldingar. Kristján Arason: Annað hvort FH eða Afturelding - bæði lið hafa rætt við hann Ef Kristján Arason á annað borð þjálfar i 1. deildinni í handknatt- leik hér á landi á næsta keppnistímabili verður það annað hvort hjá FH eða Aft- ureldingu en bæði þessi félög hafa verið í viðræðum við hann upp á síðkastið. Mosfellingar eru þjálfaralausir eftir að Einar Þorvarðarson ákvað að hætta með liðið þegar hann frétti að forráðamenn liðsins væru að skoða aðra möguleika á þjálfun liðsins. Mosfellingar hafa því rætt við Krist- ján og vilja fá hann sem næsta þjálfara. Geir einnig inni í myndinni hjá FH Það sama hafa FH- ingar gert en þeir hafa verið í viðræðum við sinn gamla þjálfara og leikmann eftir að Gunnar Beinteinsson ákvað að gefa ekki kost á sér í þjálfara- starfið áfram. Þá hefur komið fram í DV að FH-ingar eru einnig með Geir Hallsteins- son i sigtinu sem næsta þjálfara liðsins. -GH Þorbergur sagði nei takk við Gummersbach - fer heldur ekki til KA og verður áfram við stjórnvölinn hjá ÍBV Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari Eyjamanna í handknattleik, hafnaði um helgina tilboði frá þýska úrvals- deildarliðinu Gummersbach. Um- boðsmaður frá félaginu hafði sam- band viö Þorberg og spurði hann hvort hann hefði áhuga á að gerast næsti þjálfari félagsins en Þorberg- ur afþakkaði boðið. íslandsmeistar- ar KA voru einnig með Þorberg í sigtinu sem arftaka Alfreðs Gísla- sonar en Þorbergur ætlar að vera um kyrrt í Eyjum og þjáifa lið ÍBV sem kom svo skemmtilega á óvart í vetur undir hans stjóm í vetur. „Ég er í það góðri vinnu hér í Eyj- um að það kemur ekki til greina að fara. Ég mun þjálfa lið ÍBV áfram. Ég hefði getað farið til Þýskalands og verið þar í 1-2 ár en síðan hefði ég verið á byrjunarreit við heim- komuna. Það er hugsanlegt að þeg- ar maður er búinn að vera 3-4 ár í þessu starfi að breyta til en ég er ekki tilbúinn til þess núna. Það er auðvitaö gaman að fá tilboð frá þýsku úrvalsdeildarliði og hver veit nema manni bjóðist þetta einhvem tímann aftur," sagði Þorbergur við DV í gærkvöldi. -GH Handbolti: Börsungar urðu Evrópumeistarar Barcelona frá Spáni tryggði sér um helgina sigur í Evrópu- keppni meistaraliða í handknatt- leik með því að bera sigurorð af Badel Zagreb frá Króatíu, 30-23. Börsungar unnu einnig fyrri leikinn á heimavelli sínum, 31-22 og vann því samanlagt með 16 marka mun. Þetta var fyrsta tap Króatanna á heimavelli í keppninni en þeir höfðu ekkert roð í hið fimasterka lið Barcelona. Börsungar unnu einnig þessa keppni í fyrra og hafa þrívegis hampað Evrópumeistaratitilin- um. Rögnvald Erlingsson og Stefán Amaldsson dæmdu leikinn í Króatíu og stóðu sig vel. Bidasoa lagði KA-banana í Evrópukeppni bikarhafa fógnuðu fyrmm félagar Alfreðs Gíslasonar í Bidasoa frá Spáni sigri. Bidasoa gat leyft sér að tapa fyrir KA-bönunum í Veszprem frá Ungverjalandi, á útivelli 19-17, því Spánverjarnir unnu fyrri leikinn á heimavelli, 24-19. Titill hjá Anders Dahl í EHF-keppninni varð þýska liðiö Flensburg meistari undir stjóm Danans Anders Dahl Niel- sen. Flensburg burstaöi danska liðið Virum á heimavelli, 30-17, eftir að Danirnir höfðu unnið fyrri leikinn, 25-22. Öruggt hjá Nettelstedt í borgarkeppninni héldu þýsk lið uppteknum hætti en þau hafa sigrað í þessari keppni þrisvar sinnum á síðustu fjórum ámm. Nettelstedt lagði Kolding í Dan- mörku, 27-23, en Þjóöverjamir burstuðu Danina I fyrri leikn- um, 32-19. Þetta var fyrsti titill Nettelstedt í Evrópukeppni í 16 ár. Pólverjinn gamalkunni Bogd- an Wenta skoraði 11 mörk fyrir Nettelstedt. -GH Fimleikar: Þórir Norður- landameistari á bogahesti Þórir Arnar Garðarsson úr Ármanni varð Norðurlanda- meistari á bogahesti og vann bronsverðlaun í æfrngum á hringjum á Norðurlandamóti unglinga sem fram fór um helg- ina. í Danmörku Dýri Kristjánsson úr Gerplu varð í 6. sæti á svifrá, Eva Þrast- ardóttir, Björk, í 5. sæti í æfing- um á slá og Lilja Erlendsdóttir hafnaði í 6. sæti á slá. Þær Eva og Lilja eru báðar 12 ára gamlar. Karla- og kvennaliðin höfnuðu svo í 4. sæti í liðakeppninni. -GH Þorbergur Aöalsteinsson veröur áfram þjálfari Eyjamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.