Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Blaðsíða 4
24 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 13 "V garðar og gróður NÝ, SPENNANDI HÚSGÖGN ÚRGEGNHEILUM HARÐVIÐI FYRIR ÍSLENSKA VEÐRÁTTU OG ÞÍNA PYNGJU! Nú er rétti tíminn til að leggja drög að skemmtilegum sumarstundum úti í garði í góðra vina hópi. Náttúruvænu húsgögnin frá okkur falla vel að fegurð gróðursins og skapa gestum þínum aðlaðandi umgjörð og þægindi. Komdu í heimsókn til okkar á Nýbýlaveginn. SJÁÐU! SNERTU! PRÓFAÐU! UPPLIFÐU! NÝBÝLAVECI 30, KÓPAVOGI DALBREKKUMEGIN, SÍMI 554 6300 GLERÁRGÖTU 28, AKUREYRI, SÍMI 461 3361 Blákornið er áhrifaríkt við plöntun á litlum trjám og gott fyrir sumarblóm og skrautrunna. Fáðu upplýsingabœkling á nœsta sölustað. ÁBURÐARVERKSMIÐJAN HF. Stærsta einkarekna gróðrarstöð landsins á 30 ára afmæli í ár. Af því tilefni voru eigendurnir, Martha C. Björnsson og Pétur N. Ólason, (Per í Mörk) teknir tali. Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar og miklar breytingar hafa orðið á sviði garðyrkju síðan Per og Martha hófust handa. Þann 1. ágúst 1967 var þeim úthlutað um 1 hektara lands í Fossvogsdalnum og hófst vinna á svæðinu strax þann 2. ágúst. Þurrka þurfti upp það svæði sem nota átti undir ræktun og einnig var gífur- legt illgresi á landinu sem þau fengu. Gróðrarstöðin Mörk hefur frá upphafi verið staðsett á sama stað þótt miklar breytingar hafi átt sér stað í gegnum árin. Áður en þau fengu úthlutað höfðu þau safnað að sér töluvert af fjölær- um plöntum og stiklingum af víði. Vorið 1968 var plantað talsverðu magni af birki, víði stungið og rækt- un fjölæringa fór á fullt skrið. Fyrstu árin unnu Per og Martha aðra vinnu en frá 1971 hafa þau helgað alla sína starfskrafta gróðr- arstöðinni og í dag eru þau með 2-3 heilsársstarfsmenn og milli 30 og 35 sumarstarfsmenn. Fyrsta söluár Markar var 1970, þá voru einu sumarblómin sem þau ræktuðu tvíærar, yfirvetraðar stjúp- ur en frá þvi er fyrsta gróðurhúsið var byggt 1974 hafa þau ræktað öll sumarblómin sjálf. Per segir að þau hafi í raun farið af stað með nýja gróðrarstöð á rétt- um tíma. Fólk var enn að jafna sig á hretinu 1963 en 9. apríl það ár hrundi hitastig úr plús 10-12 gráð- um í mínus 8-10 stig á um sex klukkutímum, eftir langvarandi hita og gróður orðinn allaufgaður sunnan- og vestanlands. Mikið af gróöri drapst í þessum landshlut- um. Gróðrarstöðin Mörk hefur lagt mikið upp úr erfðaefni plantna og lagt mikla vinnu í að finna efnivið sem hentar hér á landi. Á upphafs- árunum var farið út um allan bæ og leitað að plöntum sem höfðu lifað hretið af. Til að byrja með var að- aláherslan lögð á skrautrunna en í gegnum tíðina hefur Per farið marg- ar ferðir til útlanda til að safna efni- viði sem þrífst hér á landi. Gróðrar- stöðin Mörk hefur einnig tekið þátt í kynbótaræktun á birki og hefur öll þessi tilraunastarfsemi tekið mikið pláss á gróðrarstöðinni. Strax 1970 voru þau búin að fylla þennan eina hektara sem þau fengu í upphafi og fengu meira land. í dag er Mörk um 5 hektarar í tveimur sveitarfélögum, 3 í Kópavogi og 2 í Reykjavík. Auk þess var árið 1976 keypt jörð í Villingaholtshreppi og hefrn- þar að mestu farið fram rækt- un á greni og nokkrum víðitegund- um. Byggingarsagan Strax á fyrsta ári var byggt lítið hús fyrir vinnuaðstöðu og bjuggu Per og Martha í þvi húsi á sumrin til að byrja með. Á árunum 1971-1973 var byggt íbúðarhús sem þau búa í og hefur síðan þá bæst við eitt hús árlega. Mikil breyting varð i allri ræktun árið 1974 þegar fyrsta gróðurhúsið var byggt. Allir möguleikar til rækt- unar jukust til muna, bæði ræktun sumarblóma og ekki hvað síst rækt- un pottaplantna. í dag eru þau með 500 m2 í gróðurhúsum og um 2000 m2 í plasthúsum. í dag býður gróðrarstöðin Mörk upp á 700 mismunandi tegundir plantna; tré og runna, fjölæringa, | sumarblóm og matjurtir. Auk þess er hægt að kaupa skógarplöntur hjá þeim, en árið 1990-’91 ræktuðu þau 800.000 skógarplöntur fyrir „Átak um landgræðslu" og hafa haldið áfram að rækta skógarplöntur upp frá því. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um það hvort 30 ára af- mælisins verði minnst með sérstök- ' um hætti í sumar en salan opnar j væntanlega fyrir miðjan maí og er i nokkuð víst að samkvæmt venju verður mikið úrval af glæsilegum plöntum til í Mörk. Pegar Per og Martha byrjuðu í Fossvoginum leit svæðið ekki ræktarlega út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.