Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 7. MAI 1997 rðar og gróður 29 Riddarasporar eru sérlega glæsilegar plöntur, stönglar þeirra eru stökkir og blómklasarnir, sem eru stórir, geta orö- iö mjög þungir í rigningu; því þarf aö binda riddaraspora upp. Skipting fjöiærra blóma - flestum skipt á vorin Bteyttu svölunum þínum í SÓLSTOFU Bjóðum upp á einfaldar lausnir fyrir allar tegundir af svölum. Fallegar rennihurðir úr áli sem eru viðhaldsfríar og endingar góðar. Þarf aldrei að mála! Líttu við og kynntu þér málin. Við höfum einnig tvöfalt sólarplast fyrir gróðurhús og sólskála. Háborg„^, Skútuvogi 4 Reykjavík Símar 568 7898 og 581 2140 Margar fjölærar plöntur mynda mikið af hliðarsprotum og vaxa lengra og lengra úr frá miðju. Ef ekkert er að gert verður elsti hlut- inn, þ.e. miðjan, veiklulegri og byrj- ar jafnvel að deyja. Áður en plantan er komin á það stig er rétt að skipta henni. Best er að taka plönturnar upp í heilu lagi og losa hnausinn í sund- ur, ef hann hrynur ekki sjálfkrafa í marga parta. Þéttari hnausa getur þurft aö spenna í sundur með göffl- um og jafnvel getur reynst nauðsyn- legt að höggva þá í sundur með skótlu. Jarðstöngla má skera í sund- ur og mjög trénaða stöngla eins og hjá jötunurt (geitaskegg) þarf jafn- vel að saga í sundur. Gæta þarf þess að vera alltaf með vel brýnd verk- færi svo sárin verði sem snyrtileg- ust. Margar plöntur eru skriðular og getur verið erfitt að halda þeim í skefjun. Gott ráð er að gróðursetja þær í ílátum en annars þcirf maður að vera miskunnarlaus á hverju ári og stinga utan af þeim. Misjafnt hversu oft Margar tegundir verða lægri og þéttari og blómgast jafnvel betur ef þeim er skipt oft, dæmi um það eru margar blágresistegundir. Á móti kemur að ýmsar fjölærar plöntur þola illa umplöntun og þrífast best ef þær fá að vera í friði sem lengst. Oft er ástæðan sú að þær hafa gild- ar stólparætur sem liggja djúpt í jarðveginum. Þetta eru yfirleitt stórvaxnar teg- undir sem þurfa nokkur ár til að mynda gott rótarkerfi. Dæmi um þessar plöntur eru margar tegundir af sveipjurtaætt, t.d. spánarkerfill og skessujurt, og einnig minni teg- undir eins og þymar. í körfublóma- ætt era einnig stórvaxnar tegundir með mikið rótarkerfi og stólparæt- ur. í sóleyjarætt má nefna mciríusól- eyjar (anemonur), sporasóley og bóndarós. Þær þola þó skiptingu og flutning ef þær fá góða umönnun. Sama má segja um lúpínur, stór- vaxna vendi og ýmsar fleiri tegund- ir. Flestum tegundum er skipt á vor- in þegar þær eru famar að vaxa og búið að hreinsa í kringum þær. Vor- blómstrandi tegundum er skipt að blómgun lokinni. Bóndarós og hjartablóm eru dæmi um tegundir sem skipt er að hausti til. Báðar þessar tegundir eru viðkvæmar fyr- ir þvi að vera settar djúpt niður. Stærri plöntur þurfa uppbindingu Margir stærri fjölæringar þurfa stuðning gegn vindasömu veðri hér á landi. Best er að veita plöntunni stuðning áður en hún verður full- vaxta. Ýmsar útgáfur til stuðnings plöntum eru til í gróðrarstöðvum og blómabúðum. Sumar plöntur mynda mikið fræ og geta orðið hið mesta illgresi ef ekki er vel að gætt. í görðum þar sem slíkar plöntur eru ætti að fylgjast með fræþroskanum og fjarlægja fræ og aldin áður en þau ná fullum þroska og fara að dreifa sér. Dæmi um slíkar plöntur eru spánarkerfíll, dagstjarna og hvönn. Garðverkfæri ókeypis uppiýsingar MVMMQUIJI 562-6262 SOLARMEGIN I LIFINU Það er hlýtt og notalegt innan við tvöfalt Plexiglerið. Þú slakar á og færð brúnt og hraustlegt útlit. Plexigler fyrir garðstofuna. Makrolon fyrir gróðurhúsið og svalirnar. okron Síðumúla 31, sími 55-33706.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.