Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1997 * 32 * garðar og gróður Nú fer í hönd algengasti gróður- setningartíminn. Langflestir gróð- ursetja að vori til en þá hafa plönt- umar allt sumarið til aö mynda rætur og festa sig fyrir langan og erfiðan, íslenskan vetur. Þó vorið sé hvað heppilegasti tím- inn til gróðursetningar er haustið í raun ekkert síðra til þeirra verka. Versti tími til gróðursetnigar er um mitt sumar þegar plöntur eru í öru- • stum vexti og árssprotamir við- kvæmastir fyrir hnjaski. STÉIT HELLUSTEYPA HYRJARHÖFÐI 8 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 1700-FAX 577 1701 Stéttin erfyrsta skrefið iim... afheflum ogsteinum. Mjöggottverð Hafið holurnar vel stórar, setjiö plöntuna rétta I, moklð að og stigið létt á til aö þétta að. Undirbúið vel Áöur en gróðursetningin sjálf fer fram þarf að huga að nokkrum þátt- um. Jarðvegurinn þar sem planta á í þarf að vera góður og nægilega djúp- ur. Beð sem i fer runnagróður ætti að vera um 60 sm djúpt og þar sem stærri tré em sett veitir ekki af 80 sm dýpt af góðum jarðvegi. Rétt notkun næringarefna er mik- ilvæg. íslenskur jarðvegur er súr og þarf því aö kalka hann. Heppilegt magn í nýja garða er 15-25 kíló af kalki á hverja 100 fermetra. Þrífosfat eykur rótarvöxt og ætti að gefa um 4-5 kíló af því á hverja 100 fm, 10-15 kíló af blákorni eða trjákorni á hveija 100 ön og einnig ætti alltaf að nota einhvem húsdýraáburð. Gætið þess þó að húsdýraáburðurinn fari ekki óblandaður á rætur gróðursins en þær geta brunnið undan sterkum skítmun. Ef gróðursetja á stærri tré þarf að binda þau upp strax að lokinni gróð- ursetningu og þarf þá að eiga tilbúin efni í það. Klippur þarf að hafa til að laga ef greinar eöa rætur brotna og aðgangur að vatni er nauðsynlegur. Ekki sól á berar rætur. Besta veðrið til gróðursetningar er rakt og lygnt veður. Ef gróðursetning fer fram í sólskini þarf að gæta vel að sólin skíni ekki á berar ræturnar. Frágangur á plöntum frá gróðrar- stöðvum er þrenns konar, pottaplönt- ur, berróta og i grisju. Langflestar tegundir runna era afgreiddar í pott- um eða plastpokum sem gera sama gagn og pottar. Þessar plöntur verða ekki fyrir neinni rótarskerðingu og er einna helst að í lagi sé að gróður- setja þær á hvaöa tíma ársins sem er. Þegar þessar plöntur era gróðursett- ar era þær teknar úr pottunum eða pokunum, stundum era rætumar mjög þéttar og er þá gott aö losa að- eins um þær áður en gróðursett er. Einnig kemur oft fyrir að rætmnar hafa vaxið í gegnum loftunargöt og er þá betra aö klippa á þær frekar en að rífa þær. Berróta plöntur eru þær sem litla sem enga mold hafa um rætumar og era margar plöntur sem notaðar era í limgerði afgreiddar þannig, t.d. víðitegundir og mispili. Flest stærri tré og einnig oft stærri runnar era af- greidd með góöum hnaus sem pakk- að er i grisju. Yfirleitt er plantað með grisjunni á og hún eyðist svo í jarð- veginum, en þó er enn eitthvað um að grisjumar séu svo þykkar að þær þurfi að fjarlægja fyrir gróðursetn- ingu og er sjálfsagt aö spyijast fyrir um það þegar plantan er keypt. Góðar holur - rétt dýpt Við gróðursetningu skal alltaf gæta þess að holumar séu vel rúmar og að plöntunum sé plantað í rétta dýpt. Ekki reyna að troða plöntum í of litlar holur, takið frekar aftur í skófluna og stækkið holuna. Misjafnt er eftir tegundum hve djúpt á að gróðursetja. Allur víðir þolir vel að fara dýpra niður en hann stóð áður og er hann gjarnan gróður- settur allt að 10 sm dýpra en hann stóð. Ágræddar rósir á að gróðursetja þannig að ágræðslustaðurinn fari um 10 sm undir yfirborðið. Reynir, birki, hlynur, greni og furur eru plöntur sem þola illa að fara dýpra en þær stóðu áður. Þegar plantan er komin í holuna er mokað að henni og jarðvegurinn þéttur að henni með því að stíga laust á hann, plöntunni er haldið réttri á meðan. Gætið þess alltaf að gróðursetja plöntumar beinar. Eftir gróðursetningu er vökvað vel Uppbinding á stærri trjam Flest tré sem era stærri en 1,5 m á hæð þurfa stuðning eftir gróðursetn- ingu. Ýmist er að stutt sé við tré með einum eða tveimur staurum. Tveggja staura binding gefur betri stuðning. Við flutning á stórum tijám eru stundum notaðir fleiri staurar en það fer allt eftir aðstæðum í hvert sinn. Áður en bundið er upp þarf að átta sig á ríkjandi vindátt svo uppbind- ingin skili hlutverki sínu. Stauramir þurfa að ganga vel ofan í jörðina, eins nálægt trénu og mögulegt er án þess þó að ganga í gegnum rótar- hnausinn. Ef staurinn er laus er al- veg eins gott að sleppa því að binda við hann og gerir laus staur meira ógagn en gagn. Staurinn er rekinn nokkuð beint niður en þó betra að hann halli aðeins frá trénu en að því. Við uppbindinguna sjálfa er best að nota mjúka og svera vafhinga og er grisja mjög góð en einnig er gott að nota gúmmíslöngu sem búið er að klippa í 5-7 sm ræmur. Grisjumar era betri að því leyti að það andar betur í gegnum þær, en reynslan hef- ur sýnt að börkurinn getur farið illa í loftleysinu sem myndast undir gúmmíteygjunum og er t.d. reynir viðkvæmur fyrir því. Notiö alls ekki mjóa spotta, vír eða aðra harða hluti sem skerast i gegnum börkinn. Bindiefnið er fyrst fest í staurinn og er best að nota pappasaum til þess, síðan er settur einn vafningur utan um tréð og vafið svo þéttings- fast að staumum aftur. Endinn er festur við staurinn og gert eins með hinn staurinn ef um tveggja staura bindingu er að ræða. Endað er með því að saga ofan af staumum nokkrum sm ofan viö uppbinding- una. Ef ekki er sagað ofan af staum- um er hætt við að tréð skemmist við það að nuddast við hann. Uppbinding þarf yfirleitt að vera fyrstu 2-3 árin eða meðan tréð er að rótfesta sig. | Stóra garðabókin í fyrrasumar kom út garð- yrkjubókin Stóra garðabókin, al- fræði garðeigandans. Er þetta ein sú glæsilegasta og ítarlegasta garðyrkjubók sem komið hefúr út hér á landi. Við gerð Stóra garðabókarinn- ar var víðfræg bresk garðyrkju- bók, The Encyclopedia of Garden- ing, lögð til grandvallar við efni- j stök og uppbyggingu, en efhi hvers kafla var síðan endursamið | frá grunni og lagað að íslenskum aðstæðum. Aðalritstjóri bókarinnar var 1 Ágúst H. Bjamason grasafræð- | ingur og aðstoðarritstjórar voru { Óli Valur Hansson og Þorvaldur | Kristinsson. Til liðs við sig hafa þeir fengiö I marga þekkta grúskara og fræði- menn í garðrækt sem hafa lagt til eftii, hver á sínu sviði. Bókin er prýdd nær 3000 lit- I myndum og í sérstökum mynda- röðum era sýnd rétt handbrögð og áhugamönnum kennd einfóld en nauðsynleg tækniatriði. i -áj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.