Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1997, Qupperneq 15
I
MIÐVIKUDAGUR 7. MAI 1997
garðar og gróður
Þegar tvær eða fleiri greinar nuddast saman, eins og hér sést, er klippt þar til ein er eftir.
Klippingar:
Klippingar tijáa og runna eru
vandaverk sem vinna þarf þó nær
árvisst. Ekki verður neinn meistari
í klippingum á einum vetri og því
síður á því að lesa eina stutta grein
eins og þessa. Hér verður fyrst og
fremst leitast við að gefa almennar
leiðbeiningar um klippingar á
trjám. Alltaf er öruggast að leita til
fagmanna í verkum eins og þessum,
sérstaklega ef um miklar klippingar
er að ræða eða gömul og verömæt
tré eiga í hlut.
Klippt á dvalartíma
Aðalklippingartíminn er
að vetri meðan gróður er I
hvíld. Á þeim tíma er einnig
miklu betra að átta sig á
vaxtarlagi stærri trjáa. Birki
(Betula), elri (Alnus) og
hlynur (Acer) eru tegundir
sem flokkast undir blæðara,
þ.e. mikill safl lekur úr þeim
ef klippt er þegar safaþensla
er mikil, og ætti að klippa
þessar plöntur ekki seinna
en í miðjum april. Birkilim-
gerði þola þó alveg snyrtingu
á ársvexti en ef til stendur
að mjókka það eða á annan
hátt klippa í gamlan við ætti
að gera það fyrir áðurnefnd-
an tíma.
Þó að vetrartíminn sé að-
alklippingartíminn er alltaf
verið að laga og snyrta nær
allan ársins hring. Margir
garðeigendur sumarklippa
limgerðin hjá sér, sérstak-
lega ef um víðilimgerði er að
ræða. Eins á alltaf að taka
brotnar greinar í hurtu um
leið og skaðinn uppgötvast.
Fjarlægið alltaf
dauðar greinar
Við klippingar á trjám eru
nokkur grundvallaratriði
sem þarf að fara eftir ef við-
unandi árangur á að nást.
Mikilvægt er að skoða tréð
úr smáfjarlægð áður en haf-
ist er handa og reyna að átta sig á
þvl hvaða greinar á að fjarlægja.
Fyrsta skrefið er alltaf að fjar-
lægja dauðar greinar. Öll rótarskot
eru og sneidd í burtu. Greinar sem
vísa inn í miðju trésins skal fjar-
lægja og einnig greinar sem vaxa
samhliða stofni trésins.
Ef tvær eða fleiri greinar vaxa í
kross og nuddast saman eða stefna í
það þarf að fækka þeim þar til ein
grein er eftir.
Hafa skal það í huga að betra er
að mynda fá stór sár en mörg lítil.
Greinarhálsinn mikil-
vægur
Við klippingu er mjög mikilvægt
að sárin séu á réttum stað. Mikil-
vægt er að skerða ekki greinarháls-
inn.
Greinarhálsinn er þykkildi sem
situr neðst á greininni. Hann er
nokkuð áberandi. 1 honum eru nátt-
úruleg efni sem hamla gegn roti og
sveppasýkingu og er því afar miklil-
vægt að hann sé ekki sniðinn í burt
en hafa skal þó sárið nokkuð nálægt
honum þannig að ekki séu skildir
eftir stubbar. Jafnframt skal leitast
við að hafa sárin sem minnst.
Þegar fjarlægðar eru stærri grein-
ar er best að taka þær í áfongum.
Fyrst er sagað upp í greinina nokk-
uð frá greinarhálsinum, síðan er
greinin söguð af aðeins fjær og end-
að á því að saga stubbinn í burtu.
Með þessari aðferð er komið í veg
fyrir að þung greinin rífi börkinn
og myndi ljótt sár.
Eitt er það sem mikilvægt er fyr-
ir garðeigendur að átta sig á. Tré
eru einstaklingar með mismunandi
vaxtarlag að upplagi. Ekki er bara
misjafnt milli tegunda hvemig tréð
vill verða heldur er einnig einstak-
lingsmunur. Sum birkitré verða
ekki falleg einstofna og sama má
segja um reyninn og margar aðrar
tegundir.
Annað er það sem maður er alltaf
að reka augun í og það er þegar fólk
er að stýfa ofan af trjám.
Mörg tré þola þessa meðferð alls
ekki og veslast upp og deyja og þar
fyrir utan er þetta ein sú mesta
eyðilegging á gróðri sem maður sér.
Miklu betra er að fækka trjánum til
að veita sól í garðana.
Klipping skrautrunna
Þegar skrautrunnaplanta eldist
þarf í flestum tilvikum að fjarlægja
eldri greinar svo þær yngri og kraft-
meiri fái rými. Hjá öllum nmnum
fer þessi klipping fram um
veturinn og er þá reynt að
klippa eldri greinar í burtu
alveg frá jörðu.
Við klippingu skraut-
mnna þarf að taka mið af
blómgunartíma þeirra. í
megindráttum má skipta
þeim í þrjá flokka. í fyrsta
flokki eru runnar sem bera
blóm i toppi fyrraárssprota.
Blómhnapparnir myndast
síðsumars og plöntumar
blómstra fyrri part sumars.
Þessir runnar eru klipptir að
blómgun lokinni, þá em
visnir blómklasar fjarlægðir
til að hjálpa til við myndun
nýma blómhnappa.
í öðrum flokki eru mnnar
sem blómgast á stuttum
sprotum eldri greina. Þeir
era klipptir síðvetrar og
fram á vor áður en brum
opnast.
í þriðja flokknum em
runnar sem blómgast á árs-
sprotum. Þessir runnar eru
ýmist klipptir alveg niður og
látnir endurnýja sig eða að
elstu greinarnar era fjar-
lægðar.
Berjarunnar
Margir sem em með berja-
runna halda að stór og mikil
planta hljóti að gefa mikla
uppskem. Þetta er rangt því
best er að hafa fáar og kraft-
miklar greinar sem era um
tveggja til fimm ára gamlar en sá
aldur gefur hvað bestu uppskeruna.
Eftir það eru greinarnar að taka
mikla næringu án þess að skila upp-
skeru. Eldri greinar em nokkuð
dekkri en þær yngri og því nokkuð
auðþekkjanlegar. Til að fá sem
mesta uppskeru em því eldri grein-
ar sneiddar í burt og einnig er reynt
að stuðla að opnum vexti mnnans
og greinar sem liggja neðarlega og
jafnvel alveg niðri í jörðinni em
sneiddar burt. Greinar sem ganga í
gegnum runnann og særa aðrar
greinar eru sneiddar í burtu, sem og
að sjálfsögðu brotnar greinar.
Greincunar eru teknar eins neðar-
lega og hægt er.
Rétt klipping er einn þeirra þátta sem stuöla aö aukinni
blómgun.
Best að yfirfara á hverju ári
35
' - , ' i
mam*
Heildverslun Sævarhöfða 2 sími: 567 4151
sem fást í helstu verslunum um land allt
*