Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1997, Blaðsíða 4
24
25
+
Iþróttir
MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1997 MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1997
DV DV
íþróttir
Úrslit
Blak karla-lokastaða
1. Kýpur
2. San Marínó
3. Andorra
Blak kvenna
1. Kýpur
2. ísland
3. San Marínó
Körfubolti karla - lokastaóa
1. Kýpur
2. Malta
3. ísland
Körfubolti kv. - lokastaða
1. ísland
2. Lúxemborg
3. Malta.
Sund karla
1500 metra skriðsund
1. Tom Stoltz, Lúx.....16:39,35
2. Diego Mularoni, SMR . . . 16:43,21
3. Ómar S. Friðriksson, ísl. . 16:58,13
400 metra fjórsund
1. Luc Decker, Lúx . 4:40,58
2. Örn Amarson, ísl . 4:40,61
3. Arnar Freyr Ólafsson, ísl . 4:46,29
4x100 metra skriðsund
1. ísland . 3:33,43
2. Kýpur . 3:35,43
3. Lúxemborg . 3:38,20
Sund kvenna
800 metra skriðsund
1. Maria Demetriou, Kýp .... 9:41,41
2. Nicoletta Michaelidou, Kýp 9;42,79
3. Sunna D. Ingibjargard. . . . 9:47,99
400 metra fjórsund
1. Meritexell Sabate, And . . . 5:15,36
2. Lára H. Bjargardóttir, ísl . . 5:15,73
3. Gail Rizzo, Malta.......5:18,49
4x100 metra skriösund:
1. Lúxemborg .............4:02,25
2. íslánd .................4:03,19
3. Mónakó.................4:12,81
Frjálsar karla
Sleggjukast
1. Charles De Ridder, Lúx...59,78
2. Bjarki Viðarsson, ísl....59,58
3. Guðmundur Karlsson, tsl. . . 59,28
Þrístökk
1. Yiannis Papadopoulos, Kýp. . 15,38
2. Xavier Montane, And.......15,09
3. Sigtryggur Aðalbjömss., ísl .. 13,58
4x100 metrar boöhlaup
1. ísland . 42,06
2. Lúxemborg . 43,00
3. Malta . 43,42
4x400 metra boöhlaup
1. Lúxemborg 3:28,52
2. ísland 3:29,37
3. Mónakó 3:29,87
Frjálsar kvenna
100 metra grind
1. Guðrún Amardóttir, ísl. . .. 13,20
2. Marilia Gregoriou, Kýp.....13,76
3. Helga Halldórsdóttir, ísl. . .. 13,87
200 metra hlaup
1. Guðrún Arnardóttir, ísl. . . . 23,66
2. Sandra Felten, Lúx.........24,74
3. Guðný Eyþórsdóttir, ísl. . . . 24,82
1500 metra hlaup
1. Christa Salt, Lúx........4:48,53
2. Carol Galea, Möltu ......4:49,83
3. Bima Björnsdóttir, ísl. . . . 4:54,36
4x100 metra boöhlaup
1. ísland.....................48,03
2. Kýpur .....................49,64
3. Malta......................49,79
Verðlaunaskipting
1. ísland 33 32 31= 96
2. Kýpur 29 25 14= 68
3. Lúxemborg 24 23 19= 66
4. Mónakó 7 6 14= 27
5. Malta 5 10 12= 27
6. San Marínó 3 5 11= 19
7. Andorra 3 5 10= 18
8. Liechtenstein 2 3 3= 8
Lokadagurinn í frjálsum:
Kuldaboli
beit gestina
- glæsilegir sigrar í boðhlaupunum í lokin
Þaó var ekki sérstaklega íþróttavænt veðrið sem
máttarvöldin buðu upp á á lokadegi frjálsíþróttakeppn-
innar á Laugardalsvelli á laugardaginn. Strekkingsvind-
ur og kuldi og sjá mátti suma keppendur komna i ullar-
sokkana og lopahúfuna. Hvorki keppendur, áhorfendur
né mótshaldarar voru hins vegar á þeim buxunum að
láta kuldabola spilla fyrir sér og mættu til leiks með
bros á vör.
Guðrún meö fjögur gull
íslensku spretthlauparamir vom atkvæðamiklir á
hlaupabrautunum í Laugardal í þessari keppni og sóp-
uðu til sín verðlaunum. Enginn þeirra var þó eins af-
kastamikill og Guðrún Arnardóttir sem mætti geysilega
sterk til leiks og stóð ávallt á hæsta palli við verðlauna-
afhendingu. „Ég er mjög ánægð með afraksturinn og 200
m hlaupið var sérstaklega gott,“ sagði Guðrún eftir að
hafa tekið við verðlaunum sínum fyrir 200 m hlaupið
þar sem hún náði mjög góðum tíma þrátt fyrir nístings-
kulda. Guðný Eyþórsdóttir náði bronsinu í 200 m hlaup-
inu líkt og Helga Halldórsdóttir í 100 m grind. Boð-
hlaupssveitirnar náðu allar á verðlaunapall og hlutu
gullverðlaun í 4x100 m karla og kvenna og öðru sætinu
í 4x400 m karla.
Aldrei áöur svona kalt!
Jón Amar Magnússon, sem nýlega bætti íslandsmet
sitt i tugþraut á móti í Austurríki, sýndi styrk sinn og
virtist ekki standa mikil ógn af öðrum keppendum.
„Þetta hefur gengið vonum framar og uppskeran gull í
200 m og 4x100 m. Mótið hefur verið mjög gott nema þá
kannski veðrið en einn útlendu keppendanna sagði við
mig skjálfandi fyrir boðhlaupið að honum hefði aldrei
verið jafnkalt á ævi sinni!“ sagði Jón Arnar í lokin og
hafði greinilega gaman af skjálfandi keppinautum sín-
um.
Þrátt fyrir að íslensk veðrátta hafi gert sitt ýtrasta til
þess að stríða frjálsíþróttafólkinu og skipuleggjendum
leikanna má segja að flest annað hafi verið eins og best
verður á kosið á glæsilegum Laugardalsvellinum. Fjöl-
mennt starfslið hélt vel og skipulega á málum, tímaáætl-
anir stóðust nokkuð vel og ekki að sjá að íslendingar
hafi verið að halda sitt fyrsta „stóra“ mót!
-ÖB
Bestir
íslenska karlasveitin með sigurbros á vör eftir glæsilegan yfirburöasigur í 4x100 metra boðhlaupi karla.
DV-mynd Hilmar Þór
■ V'"'
Keppnin í sleggjukastinu var endaslepp:
Mistök kostuðu
ísland gullverðlaun
Þau alvarlegu mistök urðu við framkvæmd
sleggjukastskeppninnar á laugardag að ein sleggjan,
sem stóð keppendum til boða, reyndist vera við nánari
athugun einu kílói of létt.
„Því miður urðu þessi mannlegu mistök í sleggjunni
sem ég tel stafa af mjög erfiðum starfsskilyrðum okk-
ar á Laugardalsvelli," sagði Birgir Guðjónsson, kast-
stjóri leikanna.
„Þetta uppgötvaðist í þriðju umferð þegar Guð-
mundur Karlsson bað um að sleggjan yrði skoðuð þar
sem honum fannst athugavert hversu langt hann
kastaði. Þegar í ljós kom að viðkomandi sleggja var
ólögleg var það krafa Luxemborgara að endurtaka
tvær umferðir sem var og gert með samþykki allra
keppenda, skriflega sem munnlega, eftir að við höfðum
ráðfært okkur við okkar tæknilega ráðgjafa. Þar sem
síðan aðrar greinar voru komnar í fullan gang á vell-
inum urðum við af öryggisástæðum að færa þessar
tvær aukaumferðir upp á kastæfingasvæðið fyrir utan
völlinn,"
„Ég er mjög ósáttur við hvemig leyst var úr þessu
máli. Fyrir utan þá vitleysu að bæta við tveimur köst-
um í keppninni er út í hött að færa keppnina í annan
kasthring og ég samþykkti aldrei þessa vitleysu. Ég
mun krefjast nánari skýringa á þessu máli eftir helg-
ina,“ sagði Guðmundur Karlsson, hinn gamalreyndi
sleggjukastari, sem kom óvænt inn í keppnina vegna
forfalla. Guðmundur tók ekki þátt í aukaumferðunum
og endaði því í þriðja sæti og Bjarki Viðarsson, sem
var efstur eftir hin hefðbundnu sex löglegu köst, varð
að sætta sig við silfrið og horfa á eftir gullinu til Lúx-
emborgar.
„Þetta varð nú hálfdapurt en ég er ánægður með
mig persónulega. Ég náði þvl besta á árinu og er á upp-
leið,“ sagði Bjarki Viðarsson eftir þessa sögulegu
sleggjukastskeppni. -ÖB
Stúlkurnar fjórar sem tryggðu íslandi gullverðlaunin í 4x1 oo metra boðhlaupi kvenna. Lengst til vinstri er hlaupadrottningin Guðrún Arnardóttir sem náði hreint
frábærum árangri á leikunum. DV-mynd Hilmar Þór
Smáþjóðaleikunum slitið:
- lokaathöfnin færð í Laugardalshöll
Lokaathöfn smáþjóðaleikanna,
sem fara átti fram á Laugardals-
velli eftir að frjálsíþróttakeppn-
inni var lokið, var færð inn í
Laugardalshöllina vegna kulda og
strekkingsvinds.
Flestir gestanna voru líklega
fegnir því að komast inn í hlýjuna
og úr kuldagallanum.
Gott skipulag
Björn Bjamason menntamála-
ráðherra og Ellert B. Schram, for-
maður ÍSÍ og Ólympiuneíndar ís-
lands, héldu ræður þar sem þeir
lögðu báðir áherslu á nauðsyn
leikanna fyrir þátttökuþjóðirnar
og hrósuðu mótshöldurum hér fyr-
ir góða frammistöðu.
Ellert afhenti síðan formanni
ólympíunefndar Liechtenstein
fána smáþjóðaleikanna en áttundu
smáþjóðaleikarnir munu fara
fram þar í landi eftir tvö ár. Þar
með koma allar þátttökuþjóðir
leikanna til með að hafa haldið þá
einu sinni og hringurinn byrjar að
nýju.
Kýpverjar prúöir
Sérstök prúðmennskuverðlaun
leikanna voru veitt við athöfnina.
Prúðasti einstaki keppandinn var
júdómaður frá Lúxemborg,
körfuknattleikslið karla frá Möltu
var valið prúðasta liðið og Kýpur-
búar voru álitnir prúðasti hópur
leikanna.
Það vom hins vegar íslensku
keppendurnir sem unnu til flestra
verðlaunanna á leikunum og
hlutu alls 93 verðlaunapeninga, 31
gull, 31 silfur og 31 brons.
-ÖB
Átján gullverðlaun
- til íslendinga í sundinu. Margir upprennandi og efnilegir sundmenn
íslenskir sundmenn gerðu það gott á
smáþjóðaleikunum sem lauk á laugar-
daginn var. 18 gullverðlaun féllu í
skaut sundmanna og verður sú upp-
skera að kallast nokkuð góð. í heild
vann íslenska lið 44 verðlaun, 18 gull,
16 silfur og 10 brons.
Á næstsíðasta keppnisdeginum áttu
menn innst von á betri árangri en engu
að síður stóðu sundmenn okkar sig vel
eins og fyrri daginn.
Elín Sigurðardóttir lenti í öðru sæti
í 50 metra skriðsundi og Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir í þriðja sæti.
Ríkarður Ríkarðsson varð í öðru
sæti í 50 metra skriðsundi en hann stóð
sig mjög vel á leikunum og verður
gaman að fylgjast með þessum efnilega
pilti á næstum árum, mikið efni þar á
ferð sem tilbúinn er að leggja mikið á
sig til að ná árangri.
Halldóra Þorgeirsdóttir stóð sig
einnig vel í einstaklingsgreinunum og
á fóstudagskvöldið vann hún sannfær-
andi sigur í 200 metra bringusundi og
hin efnilega Ragnheiður Möller úr
Njarðvík lenti þar i þriðja sæti.
Silfurverðlaun unnust í 200 metra
bringusundi karla þegar Hjalti Guð-
mundsson lenti í öðru sæti eftir harða
og jafna keppni við sundmann frá
Mónakó.
Eydís Konráðsdóttir varð i öðru sæti
í 200 metra skriðsundi og Lára Hrund
Bjargardóttir innbyrti bronsverðlaun I
sama sundi.
Arnar Freyr Ólafsson sigraði með
miklum yfirburðum í 200 metra skrið-
sundi karla.
íslenska kvennasveitin setti íslands-
og leikamet í 4x100 metra fjórsundi.
Sveitina skipuðu þær Eydís Konráðs-
dóttir, Halldóra Þorgeirsdóttir, Lára
Hrund Bjargardóttir og Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir.
Karlasveitin vann einnig sama afrek
í 4x100 metra fjórsundi. í sveitinni
voru Öm Amarson, Hjalti Guðmunds-
son, Ríkarður Ríkarðsson og Arnar
Freyr Ólafsson.
Gullverðlaun unnust þegar karla-
sveitin sigraði í 4x100 metra skrið-
sundi á lokadegi leikanna og setti
glæsilegt íslandsmet. Sveitina skipuðu
þeir Arnar Freyr Ólafsson, Magnús
Konráðsson, Ríkcu-ður Ríkarðsson og
Öm Amarson
Kvennasveitin lenti í öðru sæti í
4x100 metra skriðsundi á eftir sveitinni
frá Lúxemborg. Stúlkumar settu Is-
landsmet en í sveitinni vora þær Elín
Sigurðardóttir, Eydís Konráðsdóttir,
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Lára
Hrund Bjargardóttir.
Sundmenn geta vel unað við sinn ár-
angur á smáþjóðaleikunum. Gott upp-
byggingarstarf á síðustu ámm er farið
að skila sér. Innan um em bráðefnileg-
ir sundmenn sem vert verður að vekja
athygli á á næstu misserum.
-JKS
Eydís Konráðsdóttir náði ágætum árangri á smáþjóðaleikunum. Hart er þó að henni sótt og í dag eigum við efniiegar
sundkonur sem líklegar eru til að ógna henni verulega í framtíðinni. DV-mynd Hilmar Þór
íslenska sundfólkið stakk sér varla tii sunds í sundkeppni smáþjóðaleikanna öðruvísi en að fá verðlaun um hálsinn
að keppni lokinni. Árangurinn undirstrikar uppsveiflu í íþróttinni hér á landi. DV-Hilmar Þór