Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1997, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
Hn helgina
29
; w ★
Búist við meira en 10 þúsund gestum
íþróttasvæðiö og sundlaugin þar sem keppt verður á landsmótinu um helgina.
„Við höfum verið að vinna að
þessu móti síðan 1988 þannig að
undirbúningurinn að baki því er
gríðarlegur,“ segir Ingimimdur
Ingimundarson, formaður Lands-
mótsnefndar UMFÍ um helgina sem
framundan er. „Ráðist var í um-
fangsmikla uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja og byrjað á Skallagrím-
svelli. Gerviefni var lagt á hlaupa-
brautir og áhorfendabrekka tyrfð. í
haust var einnig hafist handa við
gerð útisundlaugar og verður því
verki lokið fyrir landsmót. Aðstað-
an ætti að nýtast almenningi og
íþróttafólki á Vesturlandi um ókom-
in ár og ég hygg að eftir uppbygg-
inguna verði vandfundið betra
íþróttasvæði hérlendis."
„Þetta er tvímælalaust stærsti
viðburður sem verið hefur í Borgar-
nesi frá upphafi.Við væntum þess
að taka á móti meira en 10 þúsund
gestum um helgina. Reyndar getum
við verið nokkuð vissir um þá tölu
því að líklega verður fjöldi kepp-
enda, starfsmanna og áhangenda
slíkur að sá hópur einn, að sleppt-
um áhorfendum, nær tölunni 10
þúsund. Til samanburðar má geta
þess að í Borgamesi búa um 1800
manns þannig að íbúatala bæjarins
margfaldast þessa helgina,“segir
Ingimundur. Ólíkt því sem áður var
verður ekki selt inn á landsmótið
þessu sinni. Áhorfendur geta því
fjölmennt án þess að hafa áhyggjur
af fjárútlátum í þessu sambandi.
Óhefðbundnar
keppnisgreinar
Keppnisgreinar á landsmótinu
eru alls 16, flestar hefðbundnar
iþróttagreinar sem keppt er í um
allt land. Nokkrar greinar skera sig
úr og er ekki keppt í þeim á öðrum
mótum en landsmótum UMFÍ. Þess-
ar greinar kallast starfsíþróttir.
Meðal þess sem keppt er í undir
nafni starfsíþrótta er dráttarvéla-
akstur, sem er í því fólginn að kepp-
endur aka dráttarvél á sem stystum
tíma um ákveðna braut. í brautinni
eru sérstakar þrautir, ekki ósvipað
og er í ökuleikni, og eru refsistig
gerð fyrir hver mistök sem mönn-
um verða á í brautinni. Þar að auki
þurfa menn að svara ýmsum spum-
ingum um dráttarvélina, umferðar-
reglur og fleira þess háttar. Sá kepp-
andi sem hefur fengið flest stig sam-
anlagt stendur uppi sem sigurveg-
DV, Akranesi:
ari. Af öðrum greinum sem keppt er
í undir nafni starfsíþrótta má nefna
jurtagreiningu, línubeitingu og
starfshlaup. Þá er einnig keppt í því
að leggja borð.
Sú grein sem mesta athygli hefur
vakið undanfarin ár er vafalaust
pönnukökubaksturinn. Keppendur
baka pönnukökur úr ákveðnu
magni af deigi ,á sem skemmstum
tíma. Timinn einn ræður þó ekki
úrslitum, því að einnig er dæmt eft-
ir vinnuhrögðum, útliti og bragð-
gæðum. í þessari keppni sjást oft
miklar sviptingar og sem fyrr er
léttleikinn í fyrrirrúmi.
Fjölskylduskemmtun
Fyrir utan íþróttir verður ýmis-
legt annað um að vera á landsmót-
inu í Borgarnesi. „Við stefnum að
því að mótið verði fjölskyldu- og
menningarhátíð þar sem aÚir finna
eitthvað við sitt hæfi. Þar á meðal
má nefna dansleiki og ýmsar uppá-
komur aðrar, bæði fyrir böm og
fullorðna," segir Ingimundur. „Við
emm ágætlega í stcikk búnir til að
taka við gestum. Á Kárastaðatúni,
rétt fyrir ofan Borgames, verður
tjaldsvæði við veginn. Þá leggjum
við til rútur sem fólk getur ferðast
með á milli staða sér að kostnaðar-
lausu. Við mælum eindregið með
því að fólk leggi bílnum þegar kom-
ið er upp í Borgames, annars er
hætt við umferðaröngvþveiti vegna
legu bæjarins." Aðspurður um dag-
skrána segir Ingimundur að mest
verði um að vera á laugardag og
sunnudag. „Landsmótið verður sett
með viðhöfn í kvöld klukkan 8, aö
viðstöddum forseta íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni, og menntamála-
ráðherra, Bimi Bjamasyni. Sama
dag verða úrslit í frjálsum íþróttum,
þar sem Jón Arnar Magnússon
verður á meðal keppenda, og í
sundi. Laugardag og sunnudag
verða síðan úrslit i boltaíþróttum,
starfshlaupi og pönnukökubakstri.
Mótinu verður slitið á sunnudaginn
kiukkan 14.30. Að lokum vonumst
við Borgnesingar til þess að áhorf-
endur jafiit sem keppendur láti ekki
sitt eftir liggja og fjölmenni á lands-
mótið.“ -kbb/DVÓ
Borgarleikhúsið
Tristan og l'sól
laugardag kl. 20.00
íslenska óperan
Evita
fóstudag kl. 20.00
Loftkastalinn
Á sama tfma aö árí
fostudag kl. 20.00
Norræna húsið
Sólarsagan
laugardag kl. 16.00
sunnudag kl. 16.00
Hundrað ára byggðarafmæli á Hornafirði
Um helgina verður þess minnst á
Höfti í Homafirði að 100 ár era liðin
frá því byggð hófst á staðnum. Af
þessu tilefni verður efht til mikilla há-
tíðahalda og húist er við að fjölmarg-
ir gestir leggi leið sína til Hafhar og
samfagni Homfirðingum. „Sá atburð-
ur sem við miðum upphaf byggðar í
Homafirði við er þegar kaupmaður-
inn Otto Tulinius flutti umsvif sín frá
Papósi í Lóni og setti upp verslun á
Hornafirði," segir Gísli Sverrir Áma-
son, forseti bæjarstjómar á Höfn.
„Otto reisti sér þar verslun og íbúðar-
hús og þau hús standa enn. Byggðin
þróaðist síðan hægt og sígandi í
kringum verslunina. Kaflaskil urðu í
sögu Hafnar árið 1920 þegar Kaupfé-
lag Austur-Skaftfellinga var stofhað
en það hefúr verið burðarás í bæjarfé-
laginu allar götur síðan. Síðan hefúr
íbúum hér fjölgað jaftit og þétt en sér-
staklega var uppbyggingin mikil í
kringiun 1950. Þá fóra Homfirðingar
að huga meira að fiskvinnslu og út-
gerð, aðallega fyrir tilstuðlan nýs
kaupfélagsstjóra, Ásgríms Halldórs-
sonar," segir Gísli. Þess má til fróð-
leiks geta að Ásgrimur var faðir Hall-
dórs Ásgrimssonar, núverandi utan-
ríkisráðherra.
Að sögn Gísla stendur sveitarfélag-
ið á Höfn í miklum blóma um þessar
mundir og því rík ástæða til hátíða-
halda. „Upp úr 1970 varð sprenging í
íbúatölu bæjarins og síðan höfum við
verið eitt af örfáum svæðum í byggða-
þróun þar sem íbúum hefúr flölgað.
Þá em þjónustugreinar í mikilli sókn
og neftii ég þá sérstaklega ferðaþjón-
ustu. í vor fjölgaði gistirýmum t.d. um
100.
Fjölbreytt hátíðardagskrá
Hátíðin hefst á fóstudag, klukkan
13, með heimsókn Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta íslands. Forset-
inn fer í skoðunarferð um bæinn og
opnar ljósmyndasýningu og sjóminja-
safti. Klukkan 16 mun forsetinn flytja
ávarp á samkomu á Hóteltúni þar
sem hátíðin verður formlega sett.
Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt
og efiiismikil. Ýmsar uppákomur
verða á Höfh um helgina, eins og
götuleikhús, leikir fyrir böm, íþrótta-
mót, siglingar og skoðunarferðir, svo
eitthvað sé nefnt. Hin árlega humar-
hátíð feflur að þessu sinni saman við
afmælishátíðina og hún verður með
sama sniði og undanfarin ár. „Við
verðum með humarveislu við höfnina
en Homfirðingar vom löngum í farar-
broddi um humarveiðar þótt dregið
hafi úr því síðustu árin,“ segir Gísli.
„Þá má nefna stóra yfirlitssýningu á
verkum Svavars Guðnasonar sem
fæddist einmitt á Höfn.“
Að sögn Gísla verða að sjáifsögðu
dansleikir bæði á föstudags- og laug-
ardagskvöld þar sem dansað verður
fram á rauðanótt. Hátíðinni lýkur á
sunnudagskvöld með flugeldasýningu
og varðeldi. -kbb
Línudans & sveitasöngvar
rarman s
með nýjan geisladisk.
Fæst í öllum betri hljómplötu-
verslunum landsins
Útgáfuhátíð í Hlégardi
í kvöld kl. 21
Dreifing JAPISS