Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1997, Side 12
^ myndbönd
-
MYHDBAHDA
★★
Lífsgátan
a
Mynd þessi er byggð á sönnum atburðum og seg-
ir frá Richard Feynman, sem átti eftir að vinna til
nóbelsverðlauna. Hann var eðlisfræðingur og vann
m.a. að gerð fyrstu kjamorkusprengjunnar en
myndin beinir sjónum að sambandi hans og konu
hans, sem barðist við berkla allan þann tíma sem
þau voru gift og lést að lokum úr þeim. Myndin er byggð á tveimur bók-
um sem segja sögu hans og einhvern veginn hef ég á tilfmningunni að
sagan og þær heimspekilegu vangaveltur sem í henni er að finna, sé ein-
faldlega erfitt að koma til skila í kvikmyndaformi, að frásagnarmáti rit-
málsins henti betur. Of mikið er látið óútskýrt og því virka sum atriði
kjánalega. Patricia Arquette stendur sig vel í hlutverki sjúklingsins en
Matthew Broderick skyggir á hana með stórgóðum leik í aðalhlutverk-
inu. Því miður eru hæfileikar hans oft illa nýttir í Vesturheimi. Margt
fallegt er að finna í myndinni og sumt situr eftir, en heildarsvipinn vant-
ar. Manni leiðist þó alls ekki yflr henni.
Infinity. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Matthew Broderick. Aðalhlutverk:
Matthew Broderick og Patricia Arquette. Bandarísk, 1996. Lengd: 113
mín. Öllum leyfð. -PJ
Friðarspillir
★★★
Nick er heimilislaus og á flótta undan lögreglunni
þegar hann hrökklast inn í fiskbúð nokkra í eigu
hjónanna Joe og Betty. Að eggjan Betty ræður Joe
hann í vinnu og þau taka hann inn á heimili sitt, þar
sem hann kemur sér fyrir í herbergi brottflutts sonar
þeirra. Hann ílengist hjá þeim og bæði taka ástfóstri
við hann þó á mismunandi forsendum sé, en koma
hans hleypir gamalli kergju og spennu í hjónaband-
inu upp á yfírborðið. Heimkoma sonarins gerir illt
verra og þegar Joe fær gott tilboð í flskbúðina sína stefnir hraðbyri í
uppgjör. Söguþráðurinn er svosum ekkert nýstárlegur og fremur hefð-
hundinn fyrir svona erótíska sálfræðitrylla. Hins vegar er handritið vel
skrifað og persónusköpun sterk, sem gerir það að verkum að spennan
helst vel út myndina, sem er oft mjög athyglisverð. Leikaramir koma vel
út og er samleikur Edward James Olmos og Arie Verveen sérstaklega
góður. Að lokum er endirinn vel við hæfi, miðað við það andrúmsloft
sem leikstjórinn skapar í myndinni.
Caught. Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Robert M. Young. Aðalhlutverk: Arie
Verveen, Maria Conchita Alonso og Edward James Olmos. Bandarísk,
1996. Lengd: 109 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Vondar geimverur
í Dark Breed segir frá Nick Saxon sem er liðsfor-
ingi í einhvers konar sérsveitum innan Bandaríkja-
hers. Hann er kallaður til þegar geimskutla hrapar
til jarðar en áhöfnin finnst ekki. Illviljaðir geimveru-
sýklar hafa sýkt áhöfnina og tekið stjóm yfir gerðum
áhafharmeðlima. Með sér fluttu þær egg sem mein-
ingin er að klekja út og síðan skal mannkyninu tor-
tímt enda eru þessar geimverur miklir dráparar þeg-
ar þær em fúllvaxnar. Ekki fær Nick Saxon mikla
hjálp frá yfirboðurum sínum, en þvi meiri frá nokkr-
um völdum aðstoðarmönnum og óvæntum gesti,
góðri geimveru sem þekkir til þeirra vondu. Myndin er með eindæmum
vitlaus, leiðinleg og óáhugaverð, enda var ég farinn að bíða eftir endin-
um eftir korter. Hún er uppfull af endalausum sprengingum, skothríð og
bílaeltingaleikjum, sem einhvem veginn er allt saman fremur dauflegt,
þrátt fyrir magnið. Geimverurnar eru ekki einu sinni neitt sérstaklega
ógnvænlegar og tilburðir til að skapa óhugnað og spennu em aumkun-
arverðir. Ég hugsa að meira að segja hörðustu aðdáendur vísindahryll-
ings verði að vera í verulega jákvæði skapi til að hafa gaman af Dark
Breed.
Dark Breed. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Richard Pepin. Aðalhlut-
verk: Jack Scalia. Bandarísk, 1995. Lengd: 92 mín. Bönnuð innan 16 ára.
-PJ
Ofurhugi ® ***
Matilda er afburðaklár stelpa sem á einhverja von-
lausustu foreldra sem um getur. Faðir hennar svindl-
ar á fólki og horfir á sjónvarp. Móðir hennar spilar
hingó og horfír á sjónvarp. Tilraunir þeirra til að
gera Matilda að „eðlilegum“ krakka mistakast, því að
hún vill helst lesa bækur. Að lokum neyðast þau til
að senda hana í skóla og finna þann versta sem völ
er á, en þar ræður rikjum óargakvendið ungfrú
Tranchbull, sem hatar böm og nýtur þess að kvelja
þau sem kostur er. Eftir að Matilda uppgötvar yfir-
náttúrulega hæfileika sína til að flytja hluti til með
hugarorkunni tekur hún til við að veita vonda fólkinu ráðningu og
skapa sér betri lífsskilyrði. Barnamyndir em í eðli sínu einfeldningsleg-
ar og þvi mikilvægt fyrir aðstandendur þeirra að taka sig ekkert alltof
alvarlega. Þetta er lykillinn að því hversu vel heppnuð þessi mynd er.
Leikaramir em fyrst og fremst að hafa gaman af hlutunum og best virð-
ist Mara Wilson í titilhlutverkinu skemmta sér. Myndin er nógu einfóld
til að börn geti haft gaman af henni og nógu uppfinningasöm til að for-
eldmnum leiðist ekki. Gaman hefði þó verið að sjá Matildu nota gáfur
sínar eitthvað til að leysa úr vandamálunum, fremur en aðeins hugar-
orkuna.
Matilda. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Danny DeVito. Aðalhlutverk: Mara
Wilson, Danny DeVito, Rhea Perlman, Embeth Davidtz og Pam Ferris.
Bandarísk, 1996. Lengd: 94 mín. Ölium leyfð. -PJ
FOSTUDAGUR 4. JULI1997
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 Ný 1 Sleepers Háskólabíó Spenna
2 1 3 First Wives Club ClC-myndbönd Gaman
3 6 2 Djöflaeyjan Sktfan Gaman
4 3 3 Craft Skrfan Spenna
5 4 2 Secrets and Lies Háskólabíó Drama
6 Ný 1 Glimmer Man Warner myndir Spenna
7 2 ; 6 Long Kiss Goodnight Myndform Spenna
8 ; 5 4 ; Rich MansWife Sam-myndbönd Spenna
9 ii : 2 Michael Collins Warnermyndir > Drama
io : o : 2 : i Unforgettable ððgggæggwrasgggM Sam myndbönd , Spenna
11 Ný | i First Kid Sam-myndbönd 1 Gaman
12 7 i 5 : r Fear ClC-myndbönd Spenna
13 : Ný : i : Matilda Skrfan Gaman
14 : i 8 • i 6 Jack r Sam-myndbönd Gaman
15 13 ; 8 : Associate Háskólabíó , Gaman
16 ; 10 8 Courage under Fire Jingle All the Way Skífan ' , Spenna
17 ' 12 ; 5 ■ t Skrfan > Skifan Gaman
i8 ; 17 ; f 4 : Pest Gaman
19 ; 16 ; 10 ; Chain Reaction Skífan ; Spenna
t 20 > 14 ; 3 : Crow 2 r Myndform < Spenna
Gamanmyndin The First Wives Club er fallin úr toppsæt-
inu og þar situr nú spennumyndin The Sleeper. Talsverö-
ar breytingar hafa oröiö á myndbandalistanum frá því í'
síöustu viku. íslenska myndin Djöflaeyjan skaust upp ■
þriöja sæti listans og beint í sjötta sæti kemur spennu-
myndin The Glimmer Man meö Steven Seagal í aðalhlut-
verki. Á listanum er nokkuð jöfn skipting milli gaman- og
spennumynda en þar eru tvær gamanmyndir og tvær
spennumyndir. Auk þess er þar ein mynd sem flokkast í
hóp dramatískra mynda en þaö er breska eðalmyndin
Secrets and Lies sem hlotið hefur mikiö lof gagn-
rýnenda. Á myndinni sjást þær Brenda Blethyn og Mari-
anne Jean-Baptiste í hlutverkum sínum í myndinni
Secrets and Lies.
Sleepers
Kevin Bacon, Robert
De Niro, Dustin
Hoffman og Brad Pftt.
Sleepers er saga
fjögurra manna sem
ólust saman upp í
hverfi í New York
sem nefnt var Vít-
iseldhúsið vegna þess
hversu illræmt það
var fyrir glæpi og
spillingu.Einn daginn
fremja drengimir
prakkarastrik sem fer
úr böndunum. Fyrir
vikið em þeir sendir
á upptökuheimili
fyrir glæpaunglinga
en það á eftir að hafa
afdrifarikar
afleiðingar.
FirstWives
Club
Goldie Hawn, Bette
Midler og Diane
Keaton.
Þær Elisa, Annie og
Brenda hafa verið vin-
konur lengi. Þær eiga
það sameiginlegt að
hafa allar fómað eigin
frama í þágu eigin-
manna sinna og svo
einnig það að eigin-
mennimir hafa fómað
þeim fýrir yngri kon-
ur. í fyrstu brotna þær
saman undan þessu
reiðarslagi en smám
saman fer reiðin og í
kjölfarið segir
hefhigimin til sín. Eft-
ir að hafa ráðið ráðum
sínum setja þær í gang
eitursnjalla og alveg
sprenghlægilega áætl-
un...
ffl
1 m LdJj
Djöflaeyjan
Baltasar Kormákur,
Gísli Halldórsson og
Sigurveig Jónsdóttir.
Kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar,
Djöflaeyjan, er byggð
á samnefndri skáld-
sögu Einars Kárason-
ar. Þetta er grátbros-
leg örlagasaga fjöl-
skyldunnar í Thule-
kampnum og annarra
fjölskyldna sem
bjuggu í braggahverf-
inu í Reykjavík. Við
fáum að kynnast
töffaranum Badda,
spákonunni Karólínu,
Tomma gamla, Dollí,
Danna, Gretti og
mörgum öðrum
hvunndagshetjum
sem settu svip sinn á
kostulegt mannlífið f
braggahverfinu.
The Craft
Fairuza Balk og Neve
Campbell.
Þegar Sara flyst til
Los Angeles hefur
hún nám við skóla
þar sem hún kemst
fljótlega í kynni við
þrjár undarlegar vin-
konur. Þær hafa allar
verið að fikta ár-
angurslítið við
galdra. En í Söru
finna þær þann auka-
kraft sem þarf til að
láta galdrana virka.
Skyndilega öðlast
vinkonumar kraft til
að láta allar sínar
heitustu óskir rætast.
En það sem upphaf-
lega átti að vera til
gamans snýst brátt í
andhverfu sína þegar
þær fara að misnota
kraftinn.
Secrets
and Lies
Brenda Blethyn,
Timothy Spall og
Marianne Jean-
Baptiste.
Hortense er ung
blökkukona sem var
ættleidd af foreldram
sínum. Eftir lát
þeirra kemst hún að
því sér til mikiOar
undrunar að blóð-
móðir hennar er hvít.
Móðirin, sem heitir
Cynthia (Blethyn), er
einmana verkakona
sem á eina dóttur sem
henni semur ekki
aOtof vel við. Þegar
hún kynnist Hortense
fær hún hálfgert
taugaáfaO þar sem
hún vissi ekki um lit-
arhátt Hortense.