Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Qupperneq 2
FÖTUDAGUR 18. JÚLÍ 1997 T>T7*
i6 kvikmyndir
- Horfinn heimur: Jurassic Park:
Bjargvætturinn Spielberg ***
Jurassic Park er ein allra vinsælasta
kvikmynd sem gerð hefur verið. Og
svo sannarlega átti hún þessar vin-
sældir skilið. Myndin var stórkostlegt
ævintýri með sjónarspili sem ekki
hafði sést áður, bauð þar að auki upp
á áhugaverða sögu þar sem dulúðin i
kringum hvarf risaeðlanna var þemað
auk þess sem framtíðarmöguleikinn í
vísindum var á borð borinn fyrir
áhorfendur á áhugaverðan hátt. Þessu
stýrði síðan töframaðurinn í kvik-
myndaheiminum, Steven Spielberg, af
mikill snilld og naut aðstoðar færustu
tæknimanna i bransanum.
Það varð því fljótt ljóst að framhald
yrði gert, markaðurinn var fýrir
hendi. En hvemig átti að fara að því
að búa til framhald af svo góðri sögu
sem hefúr í raun ágætan endi? Met-
sölurithöfúndurinn Michael Crichton
var háifvegis tilneyddur til þess að
skrifa framhald og ekki tókst honum
betur til með The Lost World en að hún er talin eitt slakasta ritverk hans. Hinn ágæti
handritshöfúndur, David Koepp, hafði því ekki úr miklu að moða enda kemur í Ijós
þegar horft er á Horfmn heim: Jurassic Park (The Lost World: Jurassic Park) að harrn
notar nánast aðeins grunninn úr bók Crichtons og spinnur í kringum hann. Hann hef-
ur ekki erindi sem erfiði því það eina sem er hægt að finna að myndinni er frekar
slöpp saga, allt annað er eins og best verður á kosið. Og þegar á heildina er litið þá er
Horfinn heimur mikil og góð skemmtun þótt strax sé vert að vara við að nokkur atriði
eru mun hrottafengnari en í fýrri myndinni.
Aðeins tvær persónur úr Jurassic Park em vaktar til lifsins aftur í Horfhum heimi,
Ian Malcolm (Jeff Goldblum), sem nú hefúr tekið við sem aðalpersóna myndarinnar,
og Júragarðseigandinn John Hammond (Richard Attenborough) sem nú er orðið
óvh'kt gamalmenni. Það kemur strax í ljós í byrjun myndarinnar að risaeðlumar hafa
fengiö að þrífast áfram utan garðsins og nú er svo komið að eyjan Isla Soma er mor-
andi af eðlum af öllum stærðum. Tveir leiðangrar era gerðir út til eyjarinnar. Annar
er í rannsóknarfór og er honum stjómað af Ian Malcolm. Hinn er fjölmennari og gerð-
ur út af frænda Hammonds sem ætlar sér að snúa dæminu við, ekki stofna júragarð á
eyjunni, heldur flytja dýrin til San Diego, þar sem hann hyggur á arðbæra starfsemi.
Eins og væntanlegir áhorfendur fá fljótt smjörþefmn af þá hafa mennimir lítið að gera
í þessar fomu eðlur þar sem fremstar í flokki era grameðlur og snareðlur.
Horfinn heimur fer frekar hægt af stað og mikið málæði fer í að útlista það sem er á
seyði, það sem hefur gerst og hvað framundan er. Það er í raun ekki fýrr en komið er
í návígi við risaeðlumar að myndin tekur við sér og þá er alveg til loka um mikla
flugeldasýningu að ræða sem fær stundum hárin til að risa. Þama má segja að Steven
Spielberg nái með sinni miklu útsjónarsemi og fagmennsku að bjarga myndinni og
lokaatriðið í San Diego þar sem grameðla gengur laus um stund er mikið sjónarspil.
Horfrnn heimur hefur ekki þann ferskleika og frumleika sem Jurassic Park hafði en á
móti kemur að tækninni hefur fleygt fram og risaeðlumar era eðlilegri og meira ógn-
vekjandi og þar sem Steven Spielberg er við stjómvölinn er enginn svikinn af góðri
skemmtun.
Leikstjóri: Steven Spielberg. Handrit: David Koepp eftir skáldsögu Michales
Crichtons. Kvikmyndataka: Janusz Kaminski. Tónlist: John Wiliiams. Aðalleikarar:
Jeff Goldblum, Julianne Moore, Pete Postlehwaite, Arliss Howard og Richard Att-
enborough. Hilmar Karlsson.
Bíóborgin - Morð í Hvíta húsinu:
Valdabarátta og morð irk
Þaö virðist vera í tísku í Hollywood þessa
stimdina að nýta sér forsetann og forsetaemb-
ættið í gerð sakamálamynda. Nýlega fengum
við að sjá Clint Eastwood í Absolute Power þar
sem hann atti kappi við spilltan forseta. í Morð
í Hvíta húsinu (Murder at 1600) rannsakar
Wesley Snipes morð sem framið var í Hvíta
húsinu og brátt munum við sjá Harrison Ford í
hlutverki foresta Bandaríkjanna sem kann ým-
islegt fleira fyrir sér en að stjórna landi og
þjóð. í Absolute Power var bakgrannurinn og
sagan grípandi og aðall myndarinnar. Þessu er
ekki eins farið í Morð í Hvíta húsinu, sagan
jafnt sem persónur er afskaplega ósannfærandi
en úrvinnslan er aftur á móti nokkuð góð og er
stigandi spenna frá upphafi til enda.
Wesley Snipes leikur rannsóknarlögreglumann-
inn Regis sem starfar í Washington. Hann er
fenginn til að rannsaka morð sem framið var
að nóttu til í Hvíta húsinu. Hann rekur sig
fljótt á veggi í rannsókn sinni enda er hann
þama í óþökk lífvarðaliðs forsetans sem lýtur
stjórn hörkutólsins Spikings (Daniel Benzali) sem virðist einnig vera í einka-
stríði við öryggisráðgjafa forsetans, Jordan (Alan Alda). Ekkert má fréttast sem
skaðað getur forsetann og þvi er lífvarðasveitin fljót að finna blóraböggul sem
Regis er ekki alls kostar sáttur við enda kemur í ljós að ástæðan fyrir morðinu
er allt önnur og flóknari heldur en Regis er mataður á í fyrstu.
Morð í Hvíta húsinu er í raun ekkert annað en dýr færibandaframleiðsla. Hand-
ritið er ósköp þunnt og í því er hallærislegast orðasamskipti Regis og lífvarðar-
ins Ninu Chance sem látin er aðstoða Regis. Þekktir leikarar á borð við Wesley
Snipes og Alan Alda virðast gera sér grein fyrir slöppum texta og leika með
hangandi hendi. Sá sem stendur upp úr er Daniel Benzali sem gerði garðinn
frægan i sjónvarpsserínunni Murder One. Hann er ískaldur í hlutverki lífvarðar-
foringjans og er það spá mín að hann eigi eftir að sjást i hlutverki margra
skúrka í kvikmyndum á næstu árum.
Leikstjóri: Dwight Little. Handrit: Wayne Beach og David Hodkin. Kvikmyndataka:
Steven Bernstein. Tónlist: Christopher Young. Aðalleikarar: Wesley Snipes, Diane
Lane, Daniel Benzali og Dennis Miller.
Hilmar Karlsson
Jeff Goldblum hafði lengi verið
einn af þessum leikurum sem
allir þekkja andlitið á en enginn
veit hvaö heitir. Hann hafði leik-
ið í flölda mynda allt frá því að
hann fékk sitt fýrsta hlutverk
sem nauðgarinn hræðilegi í
mynd Charles Bronson, Death
Wish.
Sló í gegn sem padda
Fyrsta virkilega stóra hlutverkið
sem hann fékk var aðalhlutverk-
ið á móti Geenu Davis sem
mannlega paddan í myndinni
The Fly sem leikstýrt var af
David Cronenberg. Lengi vel eft-
ir þetta var Goldblum „Æ, þama
leikarinn úr The Fly“. Hann lék
þó í heilli gommu af myndum
sem nutu nokkurra vinsælda.
Þar má nefna uppvöxnu hipp-
asamkunduna í The Big Chill,
Woody Allen-myndina, Annie
Hall, The Right Stuff, einni end-
urgerða Invasion of the Body
Snatchers, Deep Cover og, með
þá óþekktri Michele Pfeiffer,
Into the Night.
Að slá meira í gegn
Lífið breyttist mikið hjá Jeff
Goldblum þegar hann fékk eitt
aðalhlutverkanna í vinsælustu
mynd fyrr og síðar; Jurassic
Park. Hlutverk hans sem stærð-
fræðingurinn Ian Malcolm gerði
Snipes
stútar
vampírum
Enn ein kvikmyndin byggð á teikni-
myndasögum er í burðarliðnum.
Wesley Snipes er þessa dagana að
leika í Blade sem byggð er á lítt
þekktum sögum af samnefndum
vampírudrápara. Blade þessi ku
vera þungvopnaður og ægilegur
ásýndum. Sögur herma að í mynd-
inni taki hann 450 kílóa vampíru í
þriðju gráðu yfírheyrslu með sólar-
lampa.
Aðrir leikarar í myndinni eru Step-
hen Dorff, Kris Kristofferson og Eric
Edwards.
Blade þessi er persóna úr Marvel-
blöðunum eins og svo margir svip-
aðir fýrar. Marvel er i miklum fjár-
hagslegum erfiðleikum og rambar
reyndar á barmi gjaldþrots og eru
bundnar vonir við að þessi mynd
geti orðið þeim til bjargar. Snipes
var í viðræðum um að leika aðra
Marvel-persónu, The Black Panther
sem er afrískur prins. Hann sá síð-
an að Blade byði upp á töluvert líf-
legri bíómynd. „Svarti pardusinn
var ekkert að fara að berja á feitri,
tvíkynja blóðsugu," segir Snipes um
myndina.
Önnur mynd um Marvelhetjur sem
er í gangi þessa dagana er kvik-
myndin um X-mennina. Þó er ekki
reiknað með að hún verði nein
sprengja í miðasölunni enda erfið-
ara efni aö koma til skila á hvíta
tjaldið.
hann að stjömu. Staða hans
sem heimsfræg kvikmynda-
stjama var síðan enn styrkt í
fyrra. Eftir hlutverk hans
sem aðalleikarinn í
Independence Day var
hann orðið nafn sem
getur borið uppi
stóra bíómynd.
Nú hefur hann
endurtekið
leikinn í
The Lost
World o;
skyndilega
hefur
þessi
feimnis-
legi, duli
og
slána-
legi
leikari breyst í hasarhetju.
Goldblum er þó ekki aðeins
leikari. Hann hefúr einnig getið
sér gott orð sem leikstjóri og
var meira að segja tilnefndur
til óskarsverðlauna fyrir stutt-
mynd sína, Little Surprises.
-vix
Clinton í Contact
- forsetinn óánægður
Kvikmyndin Contact með Jody Foster, sem fjallar um þegar sam-
band næst við verur úr geimnum, var frumsýnd um helgina. í
myndinni er notuð fréttamynd af Bill Clinton Bandaríkjaforseta
þar sem hann á að vera að tala um hversu merkilegur viðburður
samband við geimverumar sé í sögu vísindanna. í raun og veru er
ræðan síðan í fýrrasumar þegar Clinton var að tala um loftstein-
inn frá Mars sem vísindamenn töldu bera með sér merki um líf.
Hans hágöfgi er engan veginn sáttur við þetta. Talsmaður hans
sagði á dögunum að notkun myndanna væri óviðeigandi þótt
ekki væri von á lögsókn. Þetta kom fram í bréfi sem Robert Zem-
eckis, leikstjóri myndarinnar, fékk frá Hvíta húsinu og fjölmiðlar
náðu að grafa upp því Zemeckis var svo óheppinn að hafa bragð-
ið sér úr landi þegar það barst.
Aðsókn hefur hrunið
Það er ótrúlegt að ekki séu nema þrjú ár síðan Walt Disney-
teiknimyndimar vora vinsælustu myndimar í bíóunum. Þá haíði
fýrirtækið slegið í gegn
með fjórum myndum í
röð; The Little
Mermaid, Beauty and
the Beast, Aladdin og
The Lion King. Síðan
Pochahontas var gerð
hefúr aftur á móti hall-
að undan fæti. The
Hunchback of Notre
Dame og Hercules hafa
valdið miklum vonbrigð-
um í aðsókn. Ýmsar
kenningar era á lofti til
að útskýra minnkandi
aðsókn. Nefnt hefur ver-
ið að þessar myndir hafl
þurft að kljást við mun
harðari samkeppni en
þær fýrri. Þannig tóku
Men in Black og Bat-
man & Robin óneitan-
lega drjúgan skerf af
aðsókn Hercules. Einnig hefur verið á það bent að ólíkt
stórsmellunum The Lion King og Aladdin sem vora ekki síður
vinsælar meðal fullorðinna þá höfða hinar nýrri einkum til yngri
aldurshópa.
Það sem er þó tahð hafa hvað mest áhrif vestan hafs er að Disney
hefur misst ákveðna velvild foreldra. Ástæða þessa er grimm
markaðssetning á alls kyns dúkkum og flgúrum úr myndun-
um. Þetta hefúr skemmt ímynd fýrirtækisins vestan hafs og
skaðað vörumerkið Disney sem lengi hefur verið eina fram-
jassöSH"
Jeff Goldblum:
Úlíkleg
hasar-