Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Side 8
22
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1997 JJ ‘V
hine, Sneaker Pimps með Marilyn
Manson og Apollo 440 með Morp-
hine.
Orbital er einnig í samvinnu
við sinfoníuhljómsveit vegna
myndarinnar Event Horizon sem
stjaman úr Jurassic Park, Sam
Neill, leikur í. Myndin fjallar um
geimskip sem er tekið fast af vond-
um öflum og á að vera voðalega
spennandi. Myndin kemur vænt-
anlega út í Bretlandi 5. september.
Frelsum Tíbet
Noel Gallagher, Beastie Boys,
Patti Smith og U2 eiga aliir lög á
geisladiski sem kemur væntan-
lega út í haust. Lögin voru tekin
upp á tónleikahátíð sem var hald-
in í San Francisco á síðasta ári
undir kjörorðinu Frelsum Tíbet.
Adam Yauch úr Beastie Boy og
vinur hans Erin Potts komu verk-
efninu af stað til hjálpar Tíbetum
sem neyðast til að lifa undir kín-
verskum kommúnistalögum.
Ekki hefur enn verið fundið nafh
á diskinn eða lagalistinn endan-
lega ákveðixm.
Á næsta ári er ráðgert að halda
hátíðina í Washington DC en
Yauch segir að í framtíðinni vilji
hann flytja hátíðina til annarra
heimshoma, til dæmis Evrópu.
Fita landsins
The Jedi Knights ásaka The
Prodigy um að hafa stolið einu lagi
sem er á nýútkominni plötu þeirra,
The Fat of the Land. The Knights
segja aö lagið „Climbatíze" sé svip-
að og lag þeirra „Air Drums from
Outer Bongolia." Það lag var byggt
á lagi frá hijómsveitinni The
Incredible Bongo Band sem flöl-
margar hljómsveitir hafa „endur-
nýtt“ í lðgum sínum. Deilan snýst
um hvort þeir félagar íThe Prodígy
hafa i lagi sínu notað þessa frum-
útgáfú eða hvort þeir hafi notað
endurbætta útgáfu The Knights.
Talsmaður The Prodigy segir mál-
ið vera í athugun.
Númer eitt!
Plata Paul Wellers, „Heavy
Soul“, var í raun og veru sölu-
hæsta plata Bretlands í síðustu
viku. En smámistök voru gerð og
platan var tekin út af listanum.
Málið er nefhilega það að reglur i
Bretlandi segja að ekki megi setja
nema fjórar gjafir með hverjum
geisladiski. paul hafði stolist tíl aö
setjafimmpóstkortmeðdiskinum
sinum og vai- hann því tekinn út
af vinsældarlistanum. Markaðs-
stjóri Pauls er yfir sig reiður og
segir að ef kortin hefðú til dæmis
verið héftuð saman hefðu þau
bara talist ein gjöf.
Óréttlæti heimsins er svívirði-
legt og í stað Pauls varð Radióhead
með OK’Computer söluhæsti
diskurinn þrátt fyrir að ,um 2500
færri diskar hafi selst.
Þriðju vikuna í röð eru Puff
Daddy & Faith Evans með lagið
Tll Be Missing You í toppsæti list-
ans. Lagið er til minningar um
rapparann B.I.G. sem var skotinn
til bana fyrr á þessu ári.
Hástökk vikunnar
Eins og allir hafa tekið eftir er
Sálin hans Jóns míns komin fram
á sjónarsviðið eftír nokkurt hlé.
Þeir félagar taka stærsta stökkið
þessa vikuna með lagið Englar.
Lagið fer úr 18. sæti í það 6.
Cu When You Get There með
Coolio er hæsta nýja lagið þessa
vikuna.
Morrissey, fyrrverandi með-
limur hljómsveitarinnar The
Smiths, hefur verið bannað að
hafa lagið Sorrow Will Come in
the End á væntanlegri plötu sinni,
Maladjusted. Lagið þykir vera
ærumeiðandi fyrir Mike Joyce,
fyrrverandi trommuleikara The
Smiths, og Andy Rourke, fyrrver-
andi bassaleikara hljómsveitar-
innar.
Á siðasta ári stefhdi Mike
Morrissey og neyddist sá síðar-
nefiidi til að láta af hendi hvorki
meira né minna en eina milljón
punda, Rourke studdi við bakið á
félaga sínum Mike.
Þetta fór víst eitthvað í taugam-
ar á Morrissey og hann samdi ansi
hreint sniðugt lag til þessara fyrr-
um félaga sinna. „You have plea-
ded and squealed and think you
have won. But sorrow will come
to ýou in the end.“ Nú er sem sagt
búið aö banna lagið en framhald-
ið ku vera ansi gróft.
Oasis fyrir rétt
Tony McCarroll hefúr stefnt
Gallagher-bræðrum og hinum
tveim sem hafa verið meölimir
Oasis frá byrjun. Haim heldur því
fram aö hann hafi veriö rekinn úr
hljómsveitinni á ólöglegan hátt og
því beri honum að fa fimmtung af
öllúm gróða hljómsveitarinnar.
Engir smápeningar það.
Lögfræðingur Tonys, Jen Hill,
er enginn nýgræðingur í skaða-
bótamálum af þessu tagi. Fyrir
tveimur árum vann hann stórfe
fyrir fýrrum Bítilinn Pete Best og
núna er það spuming hvað hon-
um tekst að fa út úr Oasis.
Stórir vinna saman
Orbital hefúr verið að vinna
með Kirk Hammett úr Metallica
að endurgerð lagsins Satan. Lag-
ið er unnið fyrir nýja kvikmynd,
Spawn, sem er væntanleg síðar á
þessu ári. Það er ekkert smávegis
sem er lagt í tónlist myndarinnar.
The Prodigy er að vinna með Tom
Morello úr Rage Against The Mac-
Kynnir: ívar Guðmundsson
Islenski listinn er samvlnnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem framkvæmd er af markaðsdeild DV i hverri
viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400. á aldrinum 14 til 35 ára. af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afipilun þeirra éislenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn
er frumflutturá fimmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og erbirturá hvcrjum föstudegi IDV. Listinn erjafnframtendurfíuttúrá Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
16.00. Listinn er birtur, aðhluta. í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. íslenski listinn tekur þátt i vaíi „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express i Los
Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evropulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: ÐójJó 'r Handrit heimildaröflun og
yfirumsjón með framleiðslu: Ivar Guömundsson - Tæknistióm og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson dg Þráinn Steinsson - Utsendingastjórn: Ásgeir Kolbeinsson
og Johann Jóhannsson.........'
>n Axel ÓÍafsspn
T O F P 4 O
Nr. 230 vikuna 17.7. '97 - 23.7. '97
...3. VIKA NR. 1...
1 1 1 4 l'LL BE MiSSING YOU PUFF DADDY & FAITH EVANS
2 2 2 4 MEN IN BLACK WILL SMITH
3 3 4 5 THE END IS THE BEGINNING OF THE END SMASHING PUMPKINS
Q 6 _ 2 SMACK MY BITCH UP THE PRODIGY
5 5 3 6 PARANOID ANDROID RADIOHEAD
... HÁSTÖKK VIKUNNAR ... I
Gs) 18 24 3 ENGLAR SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
7 4 3 9 SUNDAY MORNING NO DOUBT
8 8 8 3 DJÖFULL ER ÉG FLOTTUR Á MÓTI SÓL
G) 14 _ 2 ÉG IMEILA ÞIG MAUS
... NÝTTÁ USTA ...
NÝTT 1 C U WHEN YOU GET THERE COOLIO
11 11 22 3 UHH LALALA ALEXIA
12 12 12 9 HYPNOTYZE NOTORIOUS B.I.G.
13 13 18 4 SKIPTIR ENGU MÁLI GREIFARNIR
14 10 10 11 I LOVE YOU CELINE DION
Gs) 20 15 5 BARBIE GIRL AQUA
16 9 6 12 BITCH MEREDITH BROOKS
© 21 26 3 CALL THE MAN CELINE DION
18 16 ■ - 2 SUN HITS THE SKY SUPERGRASS
19 17 19 7 SKJÓTTU MIG SKlTAMÓRALL
(2fl) 25 25 4 YOU MIGHT NEED SOMEBODY SHOLAAMA
21 7 5 12 BRAZEN SKUNK ANANSIE
(22) 34 _ 2 D'YOU KNOW WHATI MEAN OASIS
(5) NÝTT 1 ALLSNAKINN REGGAE ON ICE
24 24 33 5 MORE THAN THIS 10.000 MANIACS
25 15 7 8 YOU'RE NOT ALONE OLIVE
© NÝTT 1 SEMI CHARMED LIFE THIRD EYE BLIND
(27) 30 30 3 I WANNA BE THE ONLY ONE ETERNAL & BÉ BE WINANS
29 29 5 HVAÐ ÉG VIL KIRSUBER
29 NÝTT 1 COULD YOU BE LOVED JOE COCKER
30 NÝTT NOTWHEREIT'SAT DEL AMITRI
31 19 | 16 11 FRIÐUR SÓLDÖGG
(32) NÝTT 1 ECUADOR SASH : • •
33 32 32 3 SÓLÓÐUR BJARNI ARA & MILUÓNAMÆRINGARNIR
<5> NÝ TT 1 (UN, DOS, TRES) MARIA RICKY MARTIN
:<3ö> N Ý T T 1 FREE ULTRA NATE
(Ífi) 40 [ - 2 TO THE MOON AND BACK SAVAGE GARDEN
Gt) NÝ TT 1 SÓL MÍN OG SUMAR SIXTIES
38 27 23 9 HOW COME, HOW LONG BABYFACE/STEVIE WONDER
(S) N Ý TT 1 HÆRRA OG HÆRRA STJÓRNIN
(S> NÝTT \ NO TENGO DINERO LOS UMBRELLOS