Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 9 > V > > w i i i i ¥ i i ) i í ) ) ) ) ) ) | f ) ) ) Utlönd Priebke fékk fimm ára fangelsisdóm ítalskur herdómstóll dæmdi í gær Erich Priebke, fyrrum yfirmann í SS-sveitum nasista, í fimm ára fangelsi fyrir aðild að morðum á 335 körlum og drengjum í hellum fyrir utan Róm 1944. Priebke var einnig dæmdur í fyrra en fékk þá að fara fijáls ferða sinna vegna þess tíma sem liðinn var frá atburðunum. Sá úrskurður vakti hörö viðbrögð, sérstaklega hjá ættingjum fómarlambanna. Karl Hass, vitorðsmaöur Priebkes var einnig dæmdur í gær en fékk að fara frjáls ferða sinna. Yfirmaður Wiesenthal-stofn- unarinnar í Róm sagðist hafa verið ánægður fyrst er hann frétti af dómsniðurstööunni en eftir að hafa íhugað málið hafi hann skipt um skoðun. Beöið heföi verið um réttlæti hjá dómurunum en niðurstaðan orðið lélegur brandari. Reuter Armannsfell hf. HLUTHAFAFUNDUR Stjóm Ármannsfells h/f, Reykjavík boðar hér með til hluthafa- fundar á skrifstofu félagsins Funahöfða 19, Reykjavík, miðviku- daginn 6. ágúst 1997 kl. 16. Dagskrá fúndarins er tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins og samþykkt aðalfúndar frá 22. maí 1997 um heimild stjórnar til þess að selja áskriftarréttindi að nýjum hlutum í félaginu í tengslum við nýja skuldabréfaútgá félagsins. Breytingin er í því fólgin að heimildin gildi til 15. ágúst 2002 og hluthafar hafi ekki for- kaupsrétt. Þá verði sala slíkra áskriftaréttinda undanþegin ákvæðum 4. mr. 3. gr. samþykkta félagsins. Tillögurnar liggja frammi á skrifstofú félagsins. Stjérn Ármannsfells bf Arkitektúrsafn í París í Ijósum Eldur kom upp í Palais de Chaillot í París í gærkvöld, höll þar sem Minnismerkjasafnið er til húsa, safn um franskan arkitektúr með líkönum af nokkrum frægustu bygingmn Frakka. Um 100 slökkviliðsmenn börðust við eldinn og réðu niðurlögum hans undir miðnætti. í höllinni er einnig kvikmyndasafn með frægum leikmunum og hið margfræga mannfræðisafn, Musee de l’Homme en eldurinn náði ekki þangað. Talsmenn safnsins sögðu að eldurinn hefði komið upp í tengslum við þakviðgerðir en afar erfitt væri að meta tjónið af völdum hans. Virðist þó sem ómetanlegur þjóðararfur hafi ekki skemmst. Reuter Mikinn reyk lagði frá höliinni þar sem Minnismerkjasafn Frakka, kvikmyndasafn og hið margfræga mannfræðisafn er til húsa. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá þakviðgerðum en skemmdir á þjóðargersemum urðu ekki eins alvariegar og haldiö var f fyrstu. Sfmamynd Reuter Leitin að morðingja tískukóngsins Versaces heldur áfram: Díana prinsessa þerraði tár Eltons - mikið flölmenni við minningarathöfn í dómkirkju Mílanó Bandaríska lögreglan leitaði Andrews Cunanans, mannsins sem grunaður er um morðið á ítalska tiskukónginum Gianni Versace, í New Hampshire í norðausturhluta landsins í gær. Afgreiöslumaður í íþróttavöru- verslun í bænum West Lebanon hringdi til lögreglu og sagði að mað- ur sem passaði við lýsinguna á Cun- anan hefði keypt þar vöru og haldið síðan áfram I norðurátt í grárri Mercedes Benz-bifreið með númers- plötum frá Flórída. Cunanan, sem er eftirlýstasti maður Bandaríkj- anna, er einnig grunaður um fjögur önrnur morð frá því í apríl. Lögreglan leitaði mannsins og bílsins í nágrenni West Lebanon í tvær klukkustundir, án árangurs. Hundruð manna telja sig hafa séð til ferða Cunanans á þeirri viku sem liðin er frá morðinu á Versace. Hann leikur þó enn lausum hala og telur lögreglan hann vopnaðan og stórhættulegan. Alríkislögreglan FBI staðfesti í gær að byssan sem notuð var við morðið á Versace hefði einnig verið notuð í tveimur öðrum morðum sem Cunanan er grunaður um. Minningarathööi um Versace var haldin í dómkirkjimni í Mílanó í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Auk nánustu fjölskyldu og vina hins myrta tískukóngs, mátti sjá þar fræga poppara og tískusýning- ardömur, auk þess sem Díana prinsessa heiðraði minningu hins látna með nærveru sinni. Popparamir Elton John og Sting sungu saman sálm númer 23, Drott- inn er minn hirðir, án undirleiks, báðir klæddir í svart. Díana prinsessa huggar popparann Elton John sem grét hástöfum í minn- ingarathöfninni um tískukónginn Gianni Versace f gær. Sfmamynd Reuter Elton John grét sáran áður en at- höfnin hófst og þurfti Díana prins- essa að hugga hann. Lík Versaces var brennt í Miami og var öskunni komið fyrir í bráða- birgðagröf í kirkjugarði við Como- vatn í síðustu viku. Reuter Skilafrestur er til 25. júlí. Nöfn vinningshafa verða birt í DV 1. ágúst. íbúar höfuðborgarsvæðisins skili þátttökuseðlinum inn á næstu Shell stöð. Senda má þátttökuseðla af landsbyggðinni til DV, Þverholti 11, Box 5380 Verðlaun: ★ 2 Mercedes Bens fjallahjól frá Ræsi að verðmæti 150.000 kr. hvort. ★ JVC stafræn myndavél frá FAC0 aö verðmæti 130.000 kr. ★ Timberland útivistarjakkar frá Skeljungsbúðinni Suðurlandsbraut 4. ★ 100 Pizzurfrá Hróa Hetti. ★ "Horfinn heimur" - Jurassic Park bolir og húfur- Biómiðará "Horfinn heimur" - Jurassic Park. Timberfand $£> JVC

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.