Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Síða 2
16
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 Jj’\T
Njóttu ^
ijartar
sumarsins
‘Ur og tilém
CV^ jóttu sumarsins á Hótel Eddu. Edduhótelin eru opin
A J á 14 stöðum í sumar auk þriggja heilsárshótela.
7 Fjölbreytt veitingaþjónusta er í boði frá morgni til
kvölds og sérstakur afsláttur er fyrir börnin. Gisting fæst
í uppbúnum herbergjum og einnig í svefnpokaplássi. Hótelin
veita ódýra og góða þjónustu og í nágrenni hótelanna eru
margs kyns möguleikar í boði fyrir alla fjölskylduna, s.s.
sundlaugar, hestaleigur og golfvellir.
Ferðaskrifstofa íslands
Skógarhlíð 18, 101 Reykjavík
Sími 562 3300 Fax 562 5895
Netfang: edda@itb.is
http://www.arctic.is/itb/edda
TILBOÐ!
Fimmta
nóttin er frí!
jölskyldan fær fimmtu nóttina án endurgjalds
Jr* ef ef dvalið er í fjórar nætur í uppbúnu herbergi.
C/ Frínóttin gildir á öllum hótelum út árið 1997 því hótelin
á Flúðum, Kirkjubæjarklaustri og Höfn eru opin allt árið.
Fríkort!
ríkortshafar fá 20 punkta
af hverjum 1000 kr. sem
greiddar eru í gistingu.
TILB0Ð!
I júní fá hótelgestir með fríkort
tvöfalda punkta,
þ.e. 40 punkta fyrir hverjar
1000 kr. í gistingu.
'ár
★
*
ferðir
* '
Bindindismótið í Galtalækjarskógi
Vegleg dagskrá
á afmælisári
Bindindismótið í Galtalækjar-
skógi á 30 ára afmæli í sumar. í til-
efhi þessara merku tímamóta verð-
ur dagskrá mótsins enn veglegri en
venjulega um komandi verslunar-
mannahelgi.
Mótshaldarar bjóða gestum meðal
annars upp á tvær af vinsælustu
hljómsveitum sumarsins, Sóldögg
og Reggae on Ice, ásamt tveimur
efnilegum unglingarokksveitum:
Flösu frá Hafnarflrði og 4 Play frá
Hvolsvelli.
Hljómsveitimar sjá um kvöldvök-
ur og dansleiki ásamt stuðsveitinni
Upplyftingu sem nú hefur innan-
borðs söngvarann góðkunna Ara
Jónsson.
Unglingamiðstöð
Sérstök unglingamiðstöð, Glæt-
an, verður starfrækt alla daga. Þar
verður boðið upp á margháttað
sprell og fjör, griÚ, söng og hopp og
hí undir stjóm sannkallaðs Fjörúlfs.
Þá veröur efnt til samkeppni af
ýmsu tagi þar sem hægt veröur aö
vinna sér inn verðlaunapeninga -
til dæmis fyrir körfuboltaleik, söng,
ökuleikni og hjólreiðar.
Magnús Scheving verður með þol-
flmidagskrá fyrir unglinga. Hann
mun einnig fara með gamanmál og
troða upp ásamt leikurum með at-
riði úr barnaleikritinu vinsæla um
Latabæ.
Spaugstofa
og prestar
Séra Pálmi Matthíasson verður
með helgistund ásamt kór eins og
undanfarin ár og séra Pétur Þor-
steinsson með unglingamessu.
Þá verður vafalaust mikið grín í
Galtalækjarskógi um verslunar-
mannahelgina þegar Spaugstofan
mætir á staðinn og skemmtir gest-
um eins og þeim félögum einum er
lagið.
íslandsmeistarar í dansi munu
sýna listir sínar og sönghópurinn 5
saman tekur lagiö. Bikarmeistarar í
pallaleikfimi stúlkna verða með
sýningu og einnig danshópurinn
Komið og dansið. Flughermir verð-
ur á staðnum og Tölvukjör setja upp
tölvukynningu.
Þá má ekki gleyma varðeldinum,
flugeldasýningunni, ratleiknum,
gönguferðunum og kamivalinu. Að-
standendur mótsins hafa sett stefn-
una á stærsta bindindismót frá upp-
hafi og skipulagt dagskrá í sam-
ræmi við það.
Bindindismótiö í Galtalæk er alltaf vinsælt enda mikil fjölskylduhátíö. Þaö veröur örugglega mikiö fjör í Galtalækjar-
skógi I ár eins og veriö hefur síöustu ár.
Vindheimamelar í Skagafirði:
Góð helgi í friði og ró
- segir Ingimar Jónsson
Hestamannamót skagfirsku
hestamannafélaganna verður haldið
á Vindheimamelum um verslunar-
mannahelgina.
„Það verður keppni eins og hefur
verið í A-flokki og B-flokki og ungl-
ingakeppni," segir Ingimar Jónsson,
einn skipuleggjenda mótsins. „Svo
verða skeiðkappreiðar. Þær eru
opnar öllum. Gæöingakeppnin verö-
ur hins vegar eins og verið hefur
milli félaganna í Skagafirði, Húna-
vatnssýslu, Siglufirði, Ólafsfirði og
Dalvík."
Einnig verða á mótinu héraðs- og
yfirlitssýningar á kynbótahrossum.
Veitingar eru seldar á staðnum og
þar eru góð tjaldstæði.
„Fólk getur átt góða helgi hjá
okkur í friði og ró og notið fallegrar
náttúru í Skagafirði," segir Ingi-
mar.
Mótið hefst föstudaginn 31. júlí.
Hestamenn á öllum
aldri skemmta sér
alltaf konunglega á
mótinu á Vindheima-
melum.