Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 JLj’V
Ef njóta á góös útsýnis er gott ráö aö ganga upp á fjall. Þessi fallega mynd
var tekin ofan af Sveinstindi í ferö Útivistar.
Flókalundur:
Sandkastalar
og vardeldur
í Flókalundi verður skipulögð
dagskrá um verslunarmanna-
helgina sem hentar fjölskyldum
vel. Boðið er til dæmis upp á sjó-
kajakferðir, hjólaferðir, sand-
kastalakeppni og varðeld.
Á staðnum er ágætt tjaldstæði,
góð sundlaug og notalegt sveita-
hótel. Golfmót verður á vegum
golfklúbbs Patreksfjarðar um
helgina.
Markmið fjölbreyttrar ferðaáætlunar Útivistar:
Ævintýraferðir á snjóbílum og
vélsleðum á stærsta jökul í Evrópu.
; Svefnpokagisting og veitingar í
Jöklaseli með óviðjafnalegu útsýni.
/Æl
JÖKLAFERÐIR HF.
Á vit ævintýranna
P.O.Box 66,780 Homafjörður, « 478 1000, Fax: 478 1901, Jöklasel ® 478 1001
Secjja má aö Útivist bjóöi upp á feröir viö allra hæfi. Fjölbreytni í gönguleiöum er mjög mikil. Hér sjást göngugarp-
ar Utivistar á ferö í einni af göngum félagsins.
Sem flestir stundi
heilbrigða útiveru
- segir Guðfinnur Pálsson
Útivist stendur fyrir fjölmörgum
ferðum um verslunarmannahelgina
eins og undanfarin ár.
„Þetta félag varð til fyrir 21 ári,“
segir Anna Soffia Óskarsdóttir hjá
Útivist. „Markmið félagsins hefur
frá upphafi verið ferðir íslendinga
um eigið land. Árið 1980 byrjuðum
við að byggja skálana í Básum. Þar
erum við með gistirými fyrir 85
manns auk tjaldstæðis fyrir allt að
800 manns. Svo eignaðist félagið
skála Fjallamanna á Fimmvörðu-
hálsi og endurbyggði hann fyrir sex
árum.“
Um 200 ferðir í sumar
„Þetta er áhugamannafélag og
markmiðið er að stunda útivist og
útilíf og gera sem flestum kleift að
stunda heilbrigða útiveru. Við bjóð-
um félagsmönnum og öðrum upp á
ferðir um allt land af öllum tegund-
um og gerðum," segir Guðfinnur
Pálsson hjá Útivist. „Við erum að
bjóða upp á um 200 ferðir í sumar. í
þessum ferðum taka þátt um sex
þúsund manns. Vinsælustu ferðim-
ar okkar eru um Fimmvörðuháls-
inn og svo auðvitað niður í Bása.“
Þau hjá Útivist gera ýmislegt
fleira en að stunda og skipuleggja
ferðalög.
„Við vorum að gefa út nýtt kort af
Þórsmerkursvæðinu. Það spannar
svæðið þar sem við erum með skál-
ann okkar og gönguleiðir eru sér-
staklega merktar inn á kortið. Við
höfum lagt áherslu á að teikna nýj-
ar leiðir inn á þetta kort. Jafnframt
fylgir þessu korti aukakort af leið-
inni yfir Fimmvörðuháls og skýr-
ingar á örnefnum og gönguleiðum
bæði á ensku og íslensku.“
Mikill áhugi á
jeppaferðum
Ört vaxandi jeppadeild er einn af
vaxtarbroddum félagsins.
„Við stofnuðum jeppadeild fyrir
um fimm árum. Mikill vöxtur er í
þeirri starfsemi. Það eru um 150
manns sem starfa sérstaklega í
jeppadeildinni núna. í sumar er í
boði mjög mikið af áhugaverðum og
skemmtilegum jeppaferðum. Til
dæmis á að fara í vikuferð um
Gæsavatnaleið núna 9. ágúst og það
er mikið spurt um þá ferð,“ segir
Guðfinnur.
„Jeppadeildin er ekki síst hugsuð
fyrir það fólk sem á jeppa en kann
lítið að ferðast um hálendið,“ segir
Anna. „Það sækir þá traust i að
vera fleira saman. Það er fjöldi
manns sem ekur á jeppa sem hefur
aldrei farið yfir óbrúaða á. Fólk er
ragt við að byrja að ferðast um há-
lendið."
Margt um verslunar-
mannahelgina
Meðal ferða sem Útivist býður
upp á um verslunarmannahelgina
má nefna ferð 30. til 4. ágúst frá
Djúpárdal í Núpsstaðarskóga. Þann
31. verður lagt af stað í fjögurra
daga ferð um Laugaveginn. Þann 1.
ágúst er farið i fjögurra daga ferðir
til Bása, í Núpsstaðarskóga, frá
Sveinstindi til Eldgjár og til Siglu-
fiarðar. 2. ágúst verður svo lagt upp
i þriggja daga ferð um Fimmvörðu-
háls.
Þá mun Útivist standa fyrir hjól-
reiðaferð um Fjallabaksleið syðri
um verslunarmannahelgina. Lagt er
af stað að morgni laugardagsins 2.
ágúst og næstu þremur dögum var-
ið í stórbrotinni náttúru óbyggð-
anna. Dagleiðir eru skipulagðar
með það í huga að ferðin henti flest-
um, enda flytja bílar farangur á
milli staða.
Ævintýrt á Vatnajökli
Sportveíðimenn
... nú bcr vel í veiði!
NÝ SENDINq AF VEIÐIVÖRUM
>- Haglabyssur og Steyr-rifflar
>- Haglabyssu- og riffiltöskur
>- Qervi gæsir og endur
■>- Úrval af hagla-, riffil- og skammbyssuskotum
>- Fjölnotahnífar
> Vatnabátar og kanóar
>- Qummíbátar
>■ Veiðistangír
> Veiðíhjól
> Veiðijakkar
> Vöðlur
> Og margt fleira