Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Side 11
JL^’V MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
25
Bær III í Strandasýslu:
Skessa spyrnti Grímsey frá
- segir Bjami Guðmundsson
Á Bæ III 1 Kaldrananeshreppi í
Strandasýslu er að finna hina
dæmigerðu bændagistingu. Þar eru
fjögur tveggja manna herbergi og
einnig er boðið upp á sumarhús
með tveimur 5 manna íbúðum.
Hægt er að fá morgunverð og stakar
máltíðir ef pantað er.
„Við erum búin að vera sjö ár
með bændagistingu," segir Sóley
Loftsdóttir á Bæ. „Þetta er vaxandi.
Það fjölgar alltaf gestum. Stranda-
sýsla er paradís. Hér eru mjög
margir fallegir staöir sem hægt er
að skoða.“
Ferðir í Grímsey
Grímsey heitir stór eyja sem ligg-
ur úti fyrir Bæ við mynni Stein-
grímsfjarðar. Boðið er upp á siglingu
út í eyjuna eða í kringum hana.
„Það er þjóðsaga um það hvernig
Grímsey varð til,“ segir Bjami Guð-
mundsson á Bæ. „Það voru eitt sinn
skessur sem ætluðu að moka Vest-
fírðina frá. Ein var hérna megin og
mokaði í Kollafjörðinn. Hinar mok-
uðu í Gilsfirðinum. Svo komu þær
sem voru að moka að sunnanverðu
og ætluðu að vita hvernig henni
gengi sem var að moka héma að
norðanverðu. Þegar þær fóru að
segja hvaö þær vom búnar að gera
margar eyjar á Breiðafirðinum þá
reiddist skessan sem var hér að
norðanverðu og stökk yfir fjörðinn.
Hún rak rekuna héma í malarhorn-
ið og spymti eyjunni frá.“
Margt er að skoða í Grímsey. Þar
er fjölbreytt fuglalíf og mikil gróður-
sæld. Á suðvesturhominu em sér-
kennilegir básar; Grýlubás, Birgisbás
og Hellabás, en í þeim síðastnefnda
er hellir. Þar var mjög gott skjól fyr-
ir fé meðan það var haft í eynni. Bú-
seta var í Grímsey til ársins 1932.
Sóley Loftsdóttir og Bjarni Guðmundsson á Bæ III.
^eistaflug 'Qy,
Þar sem fjölskyldan blómstrar í sólinni
TodEa°^e
PéJ/ö
'sk
Sf
Töframaðurinn
létur Pðkus
Fur<hilejkh
Úsið
Leiktæki fyrir börnin
o.fo. o.fl. o.fl. o.fl.
Frí tjaldstæði og aðgangur ókeypis
Upplýsingar í síma 477 - 1377
http://www.eIdhorn.is/Neistaflug/
15% staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighcekkandi
birtingarafsláttur
Smáouglýsfngar
550 5000
Vopnafjörður
isrííEK
œpg rifi
JL»
HINJASAIN AlfSTuRLANDS 7VT > » .n.
Egilsitiðir Seyðisfjorður
jf Neskaúpstaður
Eskifjörður
Minjasöfn
á Austurlandi ^
ff? =/a{|E 3_
t'f ■' t/'\ : / : '/ / ,
Höfn
Mörg minjasöfn é Austurlandi:
Stríð og sjómennska
Ef verið er á ferð um Austurland
er upplagt að koma við í einhveiju
af hinum merkilegu minjasöfhum
sem þar er að finna.
Á Höfn í Hornafirði er Byggða-
safn Austur-Skaftafellssýslu. Hús
safnsins, sem er við Hafnarþraut,
var þyggt á Papósverslunarstað í
Lóni árið 1864 en seinna flutt til
Hafnar. í því er nú alhliða byggða-
safh þar sem fræðast má um sögu
byggðar og fólks í sýslunni. Þar er
einnig náttúmgripadeild.
íslenska stríðsárasafnið, sýning
um tímabil seinni heimsstyrjaldar-
innar frá íslenskum sjónarhóli, er á
Reyðarfirði.
Sjóminjasafn íslands er á Eski-
firði. Það er til húsa I Gömlu-Búð,
verslunarhúsi frá fyrri hluta 19. ald-
ar sem stendur við Strandgötu. Þar
em til sýnis minjar um sjósókn og
aflavinnslu á Austfjörðum. Einnig
eru þar minjar um byggðarsögu og
atvinnulíf á Eskifiröi.
í Neskaupstað er náttúrugripa-
safn við Miðstræti. Þar má sjá fjöl-
breytt safn fugla, steina, skelja og
sjávardýra ásamt nokkrum af plönt-
um og skordýmm.
Tækniminjasafn Austurlands á
Seyðisfirði fjallar um íjarskipti, ljós-
myndun og lækningar. Það er í húsi
sem var upphaflega íbúðarhús norska
útgerðarmannsins Ottos Wathne.
Á Egilsstöðum er Minjasafn Aust-
urlands. Þar er að finna ýmsan fróð-
leik um menningu og atvinnulíf í
Múlasýslum frá fomöld til okkar
daga.
Þá er minjasafn á Bustarfelli í
Vopnafirði. Bæjarhúsin em frá
ýmsum tímum, þau elstu frá seinni
hluta 18. aldar.
Glimrandi gott ferðatœki
með útvarpi, kassettu
og geisla. Tilvalið í
útileguna, sumarbústaðinn
eða svifflugferðina.
og tónlistin lifir
Umboðsmenn um land allt: VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Kaupfélag Borgfirðinga, Borgamesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. VESTFIRÐIR: Rafbúð Jónasar Þórs, Patreksfirði. Póllinn, (safirði.
NORÐURLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. KF Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. KEA, Dalvík. Bókval, Akureyri. Hljðmver, Akureyri. Öryggi, Húsavík. Urð, Raufarhöfn.
AUSTURLAND: KF Héraðsbúa, Egilsstöðum. KF Vopnfirðinga, Vopnafirði. KF Héraðsbúa, Seyðisfirði. KF Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði. KASK, Djúpavogi. KASK, Höfn Homafirði. SUÐURLAND: Rafm. KR, Hvolsvelli. Mosfell,
Hellu. Örverk, Selfossi. Heimstækni, Selfossi. KF Árnesinga, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafborg, Grindavík. Raflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar, Garði. Rafmætti, Hafnarfirði.
Geislandi
ferbafélagi
VtWfRtR