Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1997, Side 4
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997
18
•» helgina
!
!
'
!
I
i
Verk eftir Kolbrúnu Siguröardóttur.
Útþrá
í tilefni tveggja ára afmælis lista-
gallerísins Skruggusteins í Kópa-
vogi sýna fjórtán listamenn, sem að
galleríinu standa, verk sín víðs veg-
ar um Kópavog. Sýningin ber yfír-
skriftina Útþrá og lýkur henni nú
um helgina með veglegu uppboði
þar sem verk sýningarinnar verða
boðin upp.
Uppboðið fer fram í húsakynnum
Skruggusteins að Hamraborg 20a og
hefst kl. 16.
Perlur úr
Eystri-
hreppi
í Listasafni Árnesinga verður
opnuð málverkasýning með
verkum Jóhanns Briem á morg-
un. Sýningin ber yfirskriftina
Perlur úr Eystrihreppi, - arfur
og arfleifð
Með Jóhanni sýnir dóttir
hans, Katrín Briem, svartlist og
einnig verða nokkur smærri
verk Ásgríms Jónssonar til sýn-
is. Þungamiðja sýningarinnar
eru þó hinar sterku og einfóldu
sveitalífsmyndir Jóhanns.
Safnið er opið alla daga milli
kl. 14 og 18. Sýningin stendur til
23. nóvember.
Viljum losa fólk
við
feimnina
„Við höfum verið með umræður um efni leikritsins í
framhaldsskólum landsins að undanförnu. Þar hafa
nemendur verið búnir að lesa verkið og síðan höfum
við sem stöndum að verkinu setið fyrir svörum. Á
sýningunni í Borgarleikhúsinu annað kvöld er
svo ætlunin að vera með svona umræður að
lokinni sýningu," segir Kristín Ómarsdóttir
höfundur verksins Ástarsögu 3, sem fjallar
um ýmis feimnismál í þjóðfélaginu.
„Það er í raun ekki ætlun okkar sem
að umræðunum standa að predika yfir
fólki heldur miklu frekar að opna um-
ræðuna fyrir ýmsum feimnismálum
og tabúum eins og samkynhneigð
og dauða. Þrátt fyrir að ýmislegt
hafi áunnist á undanförnum ára-
tugum í málefnum samkyn-
hneigðra eru margir enn þá
mjög feimnir við að ræða
þessi mál.
Mér finnst líka að
heiminum hafi verið
stýrt af algjörlega
gagnkynhneigð-
um guði afltof
lengi og
náttúra
mannsins
Kristín
Ómarsdótt-
ir rithöf-
undur
er höfund-
ur Ástar-
sögu 3.
sem ekki gefur af
sér börn verið
útilokuð.
Það má því
segja að til-
gangurinn
með þess-
um um-
ræðum sé
líka að
gera eitt-
hvað öðru-
vísi og
skemmti-
legt.“ -glm
Litríkt verk eftir Tolla.
Stríðsmenn andans
Um þessar mundir er að koma út
hjá Máli og menningu bókin
„Stríðsmenn andans" þar sem Thor
Vilhjálmsson ljóðskreytir myndir
Tolla. Af því tilefni hefúr Tolli opn-
að sýningu í Galleríi Borg að Síðu-
múla 34. Að þessu sinni sýnir Tolli
um tuttugu og fimm olíu- og vatns-
litamyndir sem allar eru unnar á
síðustu misserum.
Sýningin er opin virka daga milli
kl. 10 og 18, laugardaga milli kl. 12 og
18 og sunnudaga milli kl. 14 og 18.
Sýningunni lýkur þann 3. nóvember.
Ástarsaga 3 tekur á ýmsum feimnismálum samfálagsins:
Páll Óskar og Ástarsaga 3
Annaö kvöld verða haldnar umræður að
inni sýningu á leikritinu Ástarsögu 3 í Borgar-
leikhúsinu. Leikritið tekur á ýmsum feimnis-
málum í samfélaginu, eins og samkynhneigð
og dauða sem ætlunin er að ræða. Þátttak-
endur í umræðunum verða Kristín
Ómarsdóttir, höfundur verksins, Auður
Bjamadóttir leikstjóri og leikararnir Árni
Pétur Guðjónsson, Þorsteinn Gunnarsson
og Þórhallur Gunnarsson. Sérstakur gestur
í umræðunum verður Páll Óskar
Hjálmtýsson.
Ástarsaga 3 fjallar um tvo
leikara og vini sem leika
saman í leikriti um
homma sem eiga
stefnumót í
Öskjuhlíöinni.
Milli ástar-
funda er
brugðið
upp mynd-
um úr bún-
ingsher-
bergjum leik-
aranna og
skyggnst inn í
einkalíf þeirra
og förðunar-
meistarans
‘ sem er ekki
allur þar
sem
i
i
I
\
<
<
i
<
<
<
<