Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1997, Blaðsíða 10
24 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997 DV {tónlist ------- ~W 'ft 1. (2) Pottþétt9 Ýmsir 2. ( 1 ) Homogenic Björk 3. ( 4 ) Portishead Portishead 4. ( 3 ) Urban Hymns Verve 5. (- ) Trúir þú á engla? Bubbi | Pottþétt Partý Ýmsir | Dr. Gunni Abba Babb | Strumpastuð2 Strumparnir ) OK Computer Radiohead | Live Secret Samadhi ) Best of Death Pixies ) Pottþéttrokk Ýmsir ) Spice Spice Girls ) Bridges to Babylon Rolling Stones ) Pottþótt óst Ýmsir ) The Pick Gravediggaz ) My Best Friend s Wedding Úr kvikmynd ) Time out of Mind Bob Dylan ) Gling Gló Björk ) Very Best of Elton John London -lög- t 1. (- ) Spice up Your Life Spice Girls t Z ( - ) Barbie Girl Aqua I 3. (1 ) Something about ..VCandle in the... Elton John t 4. ( 2 ) Stay Sashl Featuring La Trec | 5. ( 3 ) Sunchyme Dario G. | 6. ( 4 ) As Long as You Love Me Backstreet Boys | 7. ( 5 ) Angel of Mine Eternal | 8. ( 6 ) Tubthumping Chumbawamba t 9. (- ) You’ve Got a Friend The Brand Nec Hoavies t 10. (-) A Life Less Ordinary Ash New York — lög - | 1.(1) Candie in the Wind 1997 Elton John t 2. ( 3 ) You Make Me Wanna... Usher t 3. ( 4 ) How Do I Live Leann Rimes t 4. ( 2 ) 4 Seasons of Loneliness Boyz II Men t 5. ( 7 ) All Cried out Allure Featuring 112 | 6. ( 5 ) Honey Mariah Carey | 7. ( 6 ) Quit Playing Games (With My...) Backstreet Boys t 8. ( 9 ) Foolish Games / You Were... Jewel t 9. (— ) My Love Is the SHHH Somethin’ for the People t 10. ( 8 ) Semi - Charmed Life Third Eye Blind Bretland —plötur og diskar— | 1. ( 1 ) Urban Hymns The Verve t 2. ( -) Fresco M People t 3. ( 2) Be here now Oasis | 4. ( 3 ) The Big Picture Elton John t 5. ( 4) Portishead Portishead t 6. ( 7 ) White on Blonde Texas t 7. ( -) Pleased to Meet You Sleeper t 8. (10) The Nail File -The Best of Jimmy Nail • 9. ( -) The Very Best of The Jam t 10. ( 5 ) Wornan in Me Louise Bandaríkin ^ -plöturog diskar=..— t 1. (-) The Velvet Rope Janet t 2. (-) Gang Related Soundtrack 3. (1 ) You Light up My Life Leann Rimes 4. ( 2 ) Evolution Boyz II Men 5. ( 4 ) Soul Food Soundtrack 6. ( 5 ) Butterfly Mariah Carey 7. ( 8 ) The Danco Fleetwood Mac | 8. ( 7 ) Aquarium Aqua t 9. ( 6 ) Ghetto D Master P |10. ( 9 ) (Songbook) A Collection of Hits L***. Trisha Yearwoqd Franskt Aldhús Sumarið 1995 fóru Frakkar að láta til sín taka í heimi danstónlistarinnar af einhverju viti. Það gerðist reyndar ekki á einni nóttu en eins og bíthaus- ar vita hefur Frakkland sterka hefð fyrir housetónlist. En sem sagt, sum- arið 1995 fóru hljómsveitir á borð við Daft Punk og St. Germain að senda frá sér efni sem var allt öðruvísi en ann- að sem var I gangi á þessum tíma. Daft Punk með útgáfu á tólftommunni Da Funk sem er án efa eitt vinsælasta danslag siðustu ára og St.Germain sem voru heldur á rólegri nótunum á breiðskífunni Boulevard og spiluðu nokkurs konar öngstrætisdjass með housetakti. Danstónlistin í Frakklandi hefur ávallt verið sér á parti og mætti jatn- vel segja að hún hafl átt fremur erfitt uppdráttar á hinum alþjóðlega mark- aði. Gott dæmi um það er raftónlistar- maðurinn Jean Jaques Perrey sem á sjöunda áratugnum gaf læknisfræð- nám upp á bátinn til að ferðast milli útihátíða og leika elektróníska tónlist. Hann gafst fljótlega upp á að reyna að heilla samlanda sína og fluttist til Bandaríkjanna þar sem fólk kunni betur að meta tónlist hans. Hann náði þó ekki að lifa þann dag að hljóta viðurkenningu fyrir list- sköpun sína og sagði franski kvik- myndagerðarmaðurinn Goddard að fólk myndi aidrei skilja hversu snilld- arleg tónverk Perreys væru fyir en löngu eftir að hann væri látinn. í dag er hann goðsögn og talinn til merk- ustu upphafsmanna elektrónískar tón- listar. Margir þekktir plötusnúðar spila lög hans í settunum sínum ein- göngu í virðingarskyni við þennan frumkvöðul. Laurent Garnier var lengi vel eini Frakkinn sem eitthvað lét að sér kveða með tónlist sinni og eins með útgáfufyrirtæki sínu F-Communic- ations sem meðal annars gáfu út St. Germain. Önnur frönsk útgáfufyrir- tæki eru Yellow og FNAC Records sem er í eigu Eric Morands. Þess má til gamans geta að fyrir ekki svo löngu endurblandaði Fat Boy Slim eitt af lögunum Perreys með góð- um árangri. Það merkilega við þá út- gáfu er að smáskífan inniheldur líka upprunalega útgáfu á lagi Jean Jaques Perrey og er hún að mörgu leyti framsæknari og flottari en rem- ixið hjá Fat Boy Slim. Félagarnir f Daft Punk sendu frá sér efni árið 1995 sem var allt öðruvfsi en annað sem var í gangi á þessum tíma. Perlur house-tónlistar Dimitri frá París er eitt af stóru nöfnunum í frönsku house-tónlist- inni og er breiðskífa hans Sacre Bleu ein af perlum house-tónlistar- innar. Hann hefur húmor fyrir sjálf- um sér hann Dimitri enda setti hann mynd af Eifelturninum á framhlið Sacre Bleu. Breska tíma- ritið Mixmag gaf fyrir skemmstu út mixplötu með Dimitri, ferska kokk- teilplötu með öllu því hesta sem meistarinn hefur framreitt síðustu árin. Þar er meðal annars að finna lög með Björk, Mondo Grosso og Dimitri sjálfum. Frakkar eru líka geysisterkir þeg- ar kemur að hip hop, elektro, brek- bíti og trip hoppi. Tónlistarmenn eins og DJ CAM , La Funk Mob og The Mighty Bop eru að gera tónlist sem verður að telja með því allra besta sem út kemur í dag. París er að verða ein alskemmtilegasta borg- in í danstónlistinni enda er hún suðupottur tónlistarstefna. Fyrir nokkru kom út safnplatan Super Discount sem að mínu mati setti Frakkland endanlega á kortið sem eitt af þeim löndum sem hefur hvað líflegasta tónlistarflóru. DJ Cam er svo að senda frá sér DJ Kicks plötu og verður forvitnilegt að heyra hvað hann er að spila. Fyrir þá sem vilja reyna frönsku matreiðsluna mælir kokkurinn með safnplötum á borð við Sounds Like Paris og Super Discount. Einnig er meistaraverkið Substances með DJ CAM eitthvað það alsvalasta Trip Hop sem hægt er að komast í þessa dagana. -JAJ Pizzicato Pive Japanska hljómsveitin Pizzicato Five gaf nýverið út sína fimmtu breiðskífu og ber hún heitið „Happy End of the World“. Þessi ágæta japanska hljómsveit hefur hingað til verið þekkt fyrir dálæti sitt á menningu og tískustraumum sjötta og sjöunda áratugarins og hefur sótt bæði tónlistaráhrif sín og alla umgjörð þangað. Á plötu- umslögum hljómsveitarinnar skartar söngkonan, Maki Nomiya, tískuklæðnaði úr fataskáp Twiggy og Yasuharu Konishi, lagahöfimd- ur hljómsveitarinnar, stendur henni við hlið klæddur eins og iðnaðarnjósnari úr einhverri James Bond-myndinni. Breiðskífan Happy End of the World markar ákveðin tímamót hjá Pizzicato Five hvað varðar út- setningar og lagasmíðar. Hingað til hefur hljómsveitin aðallega fengist við að gera létt og saklaust froðupopp með fortíðarfíkn og er húmorinn aldrei langt undan í textunum. Þar má nefna lög með heiti eins og „Twiggy Twiggy Twiggy vs. James Bond“ og „Happy Sad“ sem er ofurhress poppsmellur með viðlagi sem smýgur inn í undirmeðvitundina og hreiðrar um sig þar, með til- heyrandi óþægindum. Handverk Pizzicato Five-popp- verksmiðjunnar er undantekning- arlítið til fyrirmyndar. Hljóðfæra- leikurinn er hnökralaus og snilli Yasuharu í að semja sixties-popp er með eindæmum. í tónsmíðum hans má merkja áhrif frá Serge Gainsbourg, Isaac Hayes, Klaus Wunderlich og fleirum. Á nýju breiðskifunni eru litlar en skemmtilegar áherslubreyting- ar frá fyrri verkum hans. Hann hefur tekið danstónlistina upp á arma sína og notar Drum N’ Bass takta undir unaðsmjúkar lyftuball- öðurnar með góðmn árangri. Að því leyti er Pizzicato Five að feta nýja slóð í vinsældapoppinu og má reikna með því að fleiri fylgi í kjöl- farið. Söngkonan Maki Nomiya skilar sínu ágætlega og trallar skemmti- lega í lögunum. Flest þeirra eru á japönsku sem gefur plötunni fram- andi blæ. Þó verð ég að viður- kenna að ég vildi að hún syngi á ensku, þvi textar Pizzicato Five eru sannarlega sólargeisli í skammdeginu. -JAJ Vandræðagemlingurinn Robbie Williams kom áhangendum sín- um enn á óvart á dögunum þeg- ar hann kom nakinn fram á fyrstu tónleikunum í tónleika- ferðalagi slnu um Bretland. Hann hafði reyndar kassagítar um sig miðjan og söng lagið sitt „Old before I Die“. Kom nakinn fram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.