Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997 Fyrsta platan komin út: Soðin £ idla með þeim félögum á útgáfutónleik- Gunnar, Ari, Arnar og Egill í Soðinni Fiölu ánægöir meö diskinn sinn, Ástæöan fundin. Soðin Fiðla var að gefa út sína fyrstu plötu, Ástæðan fundin, í vikunni sem leið. Á plötunni eru sex lög sem eru nokkuð ólík að upplagi enda koma margir við sögu. Þeir í Soðinni Fiðlu nýta krafta og hæfileika félaga sinna i hljómsveitinni Sigur Rós en söngvari Sigur Rósar, Jón Þór Birgisson, syngur lagið Opinn og bakraddir í lögunum Grænn og Fyrirmynd undir listamannsnafn- inu mónó. Ágúst Ævar Gunnars- son, trommari Sigur Rósar, hann- aði líka umslagið fyrir þá félaga í Soðinni Fiðlu og hefur að mínu mati farist það vel úr hendi. Soðna Fiðlu skipa þeir Gunnar Öm Svavarsson á bassa, Arnar Snær Davíðsson á gítar og syngur, Egill Tómasson á gítar og syngur og Ari Þorgeir Steinarsson á trommur. Reyndar hefur bæst einn aukamaður við á hljómborð, Ágúst Einar Amarsson, sem lék unum i síðustu viku. Þeir Amar og Egill eru mættir til að segja mér frá stofnun sveit- arinnar og aðdraganda plötunnar Ástæðan er fundin. Gunnar á einnig að vera mættur og birtist síðan imdir lok viðtalsins með heldur þunna afsökun varðandi pitsakaup. „Soðin Fiðla var stofnuð í nóv- ember í fyrra en við höfðum verið í öðrum hljómsveitum áður,“ segir Egill. „Ég og Amar vorum t.d. tvö ár í Tjals Gizur.“ „Við fóram strax að semja efni saman á fyrstu æfingunum,“ segir Egili og Arnar bætir við: „Það má líka heyra hvernig tónlistin þróast á plötxmni. Það sem við erum að starfa að í dag er síðan gjörólíkt, þannig séð.“ „Við fórum fyrst í hijóðver í apr- íl og tókum upp eitt lag,“ segir Eg- ill. „Afgangurinn var síðan tekinn upp í sumar í Stúdió Núlist. Við erum mjög ánægðir með upptök- urnar enda með ungan og ferskan upptökumann sem er Jón Þór Birgisson úr Sigur Rós.“ Egill segir að þessar yngri hljómsveitir þekkist mikið inn- byrðis og þeir séu búnir að þekkja Jónsa lengi. Við ræðum síðan um hið hataða íslenska poppplötusánd og hve mikill skortur er á öðruvísi upp- tökumönnum. „Þetta er vonandi að breytast," segir Egill. Góður skóli „Það má kannski segja um þessa plötu að það var kominn tími til að losa sig við þetta efni,“ segir Arnar. „Það var bara frábært að þessi Smekkleysusería skyldi koma akkúrat á sama tíma.“ Og Egill bætir við: „Þetta var í raun- inni skref til að geta haldið áfram og jafnframt var það einn stór tón- Stereo Mc’s Væntanleg er ný breiðskífa frá hljómsveitinni Stereo Mc’s áður en árið er úti og bíða sjálfsagt margir spenntir eftir henni. Stereo Mc’s endurhljóðblandaði á dögunum lag á nýjustu smáskífu Gravediggaz og ber hún nafnið The Night the Earth Cried. Upptökustjórinn The RZA, sem er maðurinn á bak við vel- gengni Wu Tang Clan, leikstýrir myndbandinu við lagið og er það frumraun hans í leikstjórastólnum. Af hljómsveit hans, Wu Tang Clan, er það að frétta að meðlimir hennar hafa verið sýknaðir af ákæru um að hafa komið af stað uppþoti sem átti sér stað á tónleikum þeirra í Noblesville í Indiana 28. ágúst síð- astliðinn. Prodigj/ The Prodigy hélt sína fjölmenn- ustu tónleika til þessa nú á dögun- um þegar hún lék á Rauða torginu fyrir um 150 þúsund manns. Nýjasta smáskífa hljómsveitar- innar kemur út þann 17. nóvember næstkomandi en útgáfunni var frestað sökum þess að umslagið skartaði bifreið sem skemmst hafði í árekstri. Þetta var gert af tillitss- emi við bresku konungsfjölskyld- una þar sem Díana prinsessa af Wa- les lést í bílslysi um það leyti sem smáskífan átti upprunalega að koma út. listarskóli að fara í hljóðver og taka upp.“ Arnar samsinnir og segir: „Það blasa allir hnökrar við þér þegar komið er í hljóðverið og þú ert að læra mikið upp á spila- mennsku." Þeir félagar vilja helst skrifa sig alla saman fyrir lögunum eða eins og Arnar segir: „Einn kemur kannski með ryþma, einhvern „basic“ kafla á æfingu en síðan er lagið unnið alveg upp á nýtt og út- setningin verður oft allt öðruvísi." „Það er oft þægilegt ef einn tek- ur af skarið," segir Egill, „og síðan komi aðrir inn í það. Við leyfum samt öllu að flæða i gegn og berum virðingu fyrir hugmyndum hver annars en erum jafnframt mjög hreinskilnir á það sem okkur finnst miður fara.“ Þeir félagar hlusta mikið á tón- list en segja enga sérstaka áhrifa- valda í tónlist Soðinnar Fiðlu. „Það er reyndar sniðugt með þetta band að rótin er eiginlega dauöarokkið ef þú hlustar nánar á bassaleikinn og y trommumar," segir Arnar. „Við erum allir í dauðarokkinu nema Arnar,“ segir Egill og hlær. „Við verðum að hemja trommu- leikarann á tónleikum þvi annars heyrist ekkert í okkur.“ Framundan Soðin Fiðla stefnir að einhverj- um tónleikum í náinni framtíð og spilar m.a. í Menntaskólanum við Hamrahlíð í kvöld. „Það er hins vegar leiðinlegt > hvað fáir staöir eru með góðan hljómburð. Oft endar þetta bara í hávaða,“ segir EgiU. Þeir segjast vilja halda tónleika þar sem gott sánd fyrirfinnist og von sé á góðu fólki. Sveitin ætlar jafnframt að gefa sér góðan tíma við lagasmíðar á næstunni. „Við erum þegar komnir með nokkur lög sem eru líkleg á næstu plötu,“ segir Egill. -ps The Verve - vill flugvelli og þurrkvíar Hljómsveitin The Verve hefur farið þess á leit við breska vamarmálaráðuneytið að það leyfi henni að nota flugvelli og þurrkvíar, sem ekki era lengur í notkun, til að halda risastóra tónleika í byijun næsta árs. Vinsældir hljómsveitarinnar eru með eindæmum um þessar mundir og hefur hún tónleikaferðalag sitt um Banda- ríkin í byijun nóvember næstkomandi. HLJOMPLÖTU Dr. Gunni og vinir hans — Abbababb!: Geggjuð *+*■*, Einhvern tíma í árdaga ís- lenskrar popptónlistar lagði hljómsveitin Change land og láð undir fót og hljóðritaði í Lundúnaborg plötuna Allra meina bót sem er ein af mínum uppáhaldsplötum sem ætluð er bömum. Nú hafa dr. Gunni og vinir hans skotið sér í þetta sæti en þessar plötur eiga það sameiginlegt að allir aldurshóp- ar og ekki síst fullorðnir geta skemmt sér við hlustun á frá- bærum lögum og textum. Fjölmargir ljá hér rödd sína og hljóð með miklum ágætum og fyrir utan fasta nærveru dr. Gunna vil ég sérstaklega nefna Rúnar Júlíusson í laginu Hr. Rokk og Fýlu- strákurinn, Möggu Stínu í laginu Strákurinn með skeggið og Pál Ósk- ar í laginu Doddi draugur. Skemmtilegar útsetningar og framleg meðferð texta við laglínur prýða þessa plötu mikið. Það er alltaf gaman þegar tónlist og textar, stúuð fyrir hugarheim bama, eru gefin út og nú er bara að sjá hvem- ig blessuð bömin taka þessu. Páll Svansson Íl % Y1 Dúett Rutar Reginalds Dúett Rutar Reginalds mun skemmta gestum Naustkjallarans í kvöld en annað kvöld skemmtir þar hin rammíslenska hljómsveit Gammeld- ansk. Panorama Hljómsveitin Panorama spilar á síðdegistónleik- um Hins hússins í dag kl. 17. Vinir vors og blóma Hljómsveitin Vinir vors og blóma mun troða upp í Inghóli á Selfossi í kvöld og Sjallanum á Akureyri annað kvöld. Einn + ein Hljómsveitin Einn + ein mun leika í Sjómanna- stofunni Vör i Grindavík annað kvöld. Moonboots Dansvæna og rafmagn- aða stuðsveitin Moon- boots leikur fyrir gesti Gauks á Stöng um helg- ina. Sóldögg í Vestmannaeyj- um Hljómsveitin Sóldögg heldur uppi fjörinu á HB í Vestmannaeyjum um helgina. „I útvarpinu ég heyrdi lag“ Annað kvöld verður frumsýnd á Hótel íslandi söngskemmtunin „í út- varpinu ég heyrði lag“ þar sem ferill Björgvins Halldórssonar er rakinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.