Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Blaðsíða 3
DV FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997 Fá ef nokkur verk eru jafhlifandi í vitund manna og harmleikurinn um Hamlet. Yfir fimmtíu kvikmyndir hafa verið gerðar eftir þessu frægasta leikriti Shakespeares auk þess sem ótal myndir eru lauslega byggðar á verkinu. Þar nægir að nefna Strange Dlusion (1945), The Rest Is Silence (1960), Strange Brew (1983), Ros- encrantz and Guildenstem Are Dead (1990) og þá þeirra sem frægust er, kvikmynd Akira Kurosawa The Bad Sleep Well (1960). Skopstælingar á senum úr Hamlet era einnig fjölmarg- ar, þeirra frægastar To Be or Not to Be (1942) og endurgerð hennar með Mel Brooks (1983). Amold Schwarzenegger fór með frægustu einræðu leikbókmenntanna í The Last Action Hero (1993) og í Star Trek VI: The Undiscovered Country (1991) er titillinn ekki það eina sem fengið er að láni. Af öðrum sérkennilegum uppfærsl- um má nefha ítalska vestrann Johxmy Hamlet (1972), klámmyndina Hamlet: For the Love of Ophelia (1996) og stutt- myndina The Fifteen Minute Hamlet (1995) þar sem áherslan er lögð á aðal- atriði leikritsins í stað þess að festast í óþarfa útúrdúrum og málalenging- um. Að lokum má nefria mynd Aki Kaurismáki Hamlet liikemaailmassa (1987) þar sem ungi Hamlet þarf að glíma við frænda sinn um völdin í fyr- irtæki foður síns, en frændinn hefúr í hyggju að sölsa undir sig yfirráðin á gúmmíandamarkaðnum. í fyrsta sinn sem Hamlet birtist á hvíta tjaldinu var kona í aðalhlut- verki. Árið 1900 leikstýrði Clement Maurice stjömunni Söruh Bemhardt í franskri uppfærslu og aðeins ein önnur leikkona hefur tekist á við hlut- verkið eftir því sem ég best veit. Asta Nielsen lék hlutverkið í þýskri kvik- mynd 1921. Margir frægustu leikarar aldarinnar hafa tekist á við Hamlet og nægir þar að nefha Sir Johnston For- bes-Robertson (1913), Maurice Evans (1953), Maximilian Schell (1960), Christopher Plummer (1964), Richard Burton (1964), Ian McKellen (1972) og Kevin Kline (1990). Frægar Hamletmyndir Frægasta Hamletmyndin er án efa sú sem Laurence Olivier leik- stýrði 1948 og hafa flestar kvik- myndanir verksins óhjákvæmilegar verið bomar saman við hana. Hún hlaut tvenn óskarsverðlaun, sem besta mynd ársins auk þess sem Oli- vier fékk viðurkenningu fyrir leik sinn. Myndinni hefur þó verið fund- Hamlet 1990. Mel Gibson í hlutverki Hamlets ásamt Helenu Bonham Carter í hlutverki Opheliu. ið ýmislegt til foráttu, s.s. að leikrit- ið er skoriö niður um þriðjung og að Olivier skýtm- í upphafi inn skýr- ingu þar sem hann segir myndina sögu af manni sem getur ekki gert upp hug sinn. Fyrri gagnrýnin er ómarktæk, en vissulega þrengja upphafsorðin túlkunarsvið áhorf- andans. Þetta er aðgengilegur, hrað- ur og kraftmikill Hamlet þar sem hert er á martraðarkenndri innilok- un með glæsilegri leikmynd. Aðrir rýnandinn Pauline Kael sagði á sínum tíma Nichol Williamson leika Hamlet sem skeggjaðan, veiklundað- an og óaðl- aðandi fýlu- poka. Ég verð að við- urkenna að ég get ekki skilið þessar for- sendur þar sem Hamlet verður í túlk- un Williamsons að óánægðum endur- reisnarmanni líkum þeim sem John Mar- ston gerði svo góð skil í leikriti sínu The Malcontent (1604). Til Hamlet 1948. Laurence Olivier í kvikmynd sinni horf- ir á Opheliu (Jean Simmons). helstu leikarar eru Eileen Herlie (Gertrude), Basil Sydney (Claudius), Felix Aylmer (Polonius) og Jean Simmons (Ophelia). Kvikmynd Tonys Richardsons frá 1969 hefur ekki hlotið sambærilega viðurkenningu þrátt fyrir að hún sé að mörgu leyti eftirminnileg. Gagn- þess að halda kostnaði í lágmarki var lítið lagt 1 sviðsmyndina og allar tökur því mjög þröngar. Þetta eykur á þrúgandi andrúmsloft uppfærsl- unnar og ógleymanleg er senan þar sem Williamson fer með frægustu einræðu Hamlets liggjandi í rúminu. Með önnur hlutverk fara: Judy Parfitt (Gertrude), Anthony Hopkins (Claudius), Mark Dignam (Polonius) og Marianne Faithfull (Ophelia). BBC-útgáfan, Hamlet: Prince of Denmark (1980), er ein besta mynd seríunnar og leikaramir fara flestir á kostum. Jacobi, sem leikur Kládí- us í kvikmynd Branaghs, er frábær í hlutverki Hamlets og Patrick Stew- art er sannfærandi sem Claudius. Líkt og i flestum uppfærslum BBC er sviðsmyndin ekki eftirminnileg en það kemur ekki að sök. Leik- stjóri er Rodney Bennett og með önnur hlutverk fara: Claire Bloom (Gertrude), Eric Porter (Polonius) og Lalla Ward (Ophelia). Að lokum má nefha kvikmynd ít- alska leikstjórans Francos Zeffirelli en hann viðurkenndi að hafa litið til myndar Oliviers þegar hann leik- stýrði Hamlet 1990. Margir Shakespe- arefræðingar líta kvikmyndir Zeffirellis homauga þar sem hann er þekktur fyrir styttingar og orðalags- breytingar. Hamlet er þar engin und- antekning, en Zeffirelli skar leikritið niður í rúmlega einn þriðja af upp- haflegri lengd. Sýn Zeffireilis verður því stundum ekkert sérlega djúp en því verður ekki neitað að Shakespe- aremyndir hans em fjörmeiri og eft- irminnilegri en margar af þeim kvik- myndum sem náð hljóta innan fræð- anna. Með helstu hlutverk fara: Mel Gibson (Hamlet), Glenn Close (Ger- trude), Alan Bates (Claudius), Ian Holm (Polonius) og Helena Bonham Carter (Ophelia). -GE S. Kvikmyndahátíð - Hamlet Að leika og ekki leika *** Frægur bókmenntafræðingur sagði eitt sinn Hamlet vera harmleik um áhorfendur sem geta ekki gert upp hug sinn. Verkið er flókið. Það sveifast milli gamans og grárrar alvöm og á köflum virðist Hamlet sjálfur helst til undrandi á þeim einkennilegu atburðum sem hellast yfir eina hirð á Helsingjaeyri. Eftir að hafa séð fjögurra klukkutíma kvikmynd Kenneths Branaghs mn Danaprinsinn góða er ég þó helst á þeirri skoðun að Hamlet sé harmleikur um kvikmyndastjömu sem gat ekki sett sig í réttar stell- ingar þrátt fyrir mikinn metnað, því á köflum minnir Hamlet helst á van- stilltan prakkara sem notið hefúr of mikillar athygli í æsku. Kenneth túlkar Shakespeare hratt. Stundum svo hratt að ætla mætti að uppboðshaldari hafi þjálfað hann fyrir hlutverkið. Þannig skortir nokkuð á að hann gefi orðum sínum það vægi sem þau mættu hafa. Að sama skapi var ég ósáttur við Kate Winslet í hlutverki Ófelíu. í meðfórum Branaghs er ekkert látið ósagt um samband hennar við Hamlet. Þar sem og víða annars staðar treystir hann ekki áhorfendum og gengur því of langt í að skapa myndrænan bakgrunn fyrir þær mörgu sögur sem liggja hálfsagðar í orðum verksins. Flestir aðrir leikarar standa sig með stakri prýði. Derek Jacobi, sem lék Hamlet í BBC-uppfærslu verksins 1980, er eftirminnilegin- í hlutverki Kládíusar og Julie Christie er ágæt sem Geirþrúður. Richard Briers er einn besti Pólóníus sem ég hef séð og í túlkun hans verður þessi lánlausi ráðgjafi konungs að manni sem færist of mikið í fang fremur en að vera það flón sem svo margir túlkendur hlutverksins vilja festa sig í. Af öðrum ágætum leikurum má nefna Charlton Heston og Nicholas Farrell í hlutverki Hórasar. Sögusvið myndarinnar er síð- ari hluti 19. aldar og var Hels- ingjaeyri valinn staður í Blenheimhöll nálægt Oxford. Búningar og sviðs- mynd eru glæsileg og kvikmyndatakan eykur á þrúgandi andrúmsloft myndarinnar. Senan milli Hamlets og vofunnar hefði þó betur átt heima í Hammermynd. Einnig var myndavélin of mikið á hreyfingu og Branagh virðist enn ekki hafa náð að fjarlægja sig að fullu undan áhrifum Olivi- ers sem viðurkenndi eftir Hamletmynd sína að hann hefði gengið of langt í þvi sama. Þessi mynd hefur marga kosti en einn stóran galla. Branagh virðist ætla að auðveldara sé að leika á áhorfendur en á litla flautu. Leikstjóri: Kenneth Branagh. Aöalhlutverk: Kenneth Branagh, Derek Jac- obi, Julie Christie, Richard Briers, Brian Blessed, Nicholas Farrell, Kate Winslet, Charlton Heston, Billy Crystal og Robin Williams. Guðni Elísson kvikmyndir ~ ★■fr + Face off í þessari nýju mynd sinni skapar Woo spennuhasar sem jafnframt því aB vera vel skorþaöur í bandarisku kvikmynda- samhengi ber stíl og hæfni Woos fagurt vitni. Travolta og Cage eru þarna í súper- formi; sérstaklega er gaman aB sjá Tra- volta sanna sig þarna enn og aftur og aö öllu leyti er valinn maöur í hverju rúmi. -úd Lady and the Tramp Þessi klassiska telknimynd - . y. segir frá tiklnni Laföi og flæk- ingsrakka sem viö skulum kalla Snata. Hún er saklaus og fögur, hann kankvis þorpari meö hjarta úr gulli. Þegar Laföi lendir í ræsinu tekur Snati hana upp á arma sína (ef hundar geta slíkt). Róman- tíkin blómstrar og þau lenda í ýmsum æv- intýrum. -GE Funi ★★★ Sériega vel heppnuö bresk gamanmynd með dramatískum undirtóni um kennara og fótboltaaödáanda sem leggur allt í söl- urnar fyrir liö sitt. Þessi aödáun, sem raunar er lífsstíll, á eftir aö koma af staö árekstrum þegar aödáandinn þarf aö gera upp viö sig hvort hann vill eiga fjöl- skyldu eöa aö halda áfram aö vera meö ellefu knattspyrnumönnum. -HK Everyone Says I Love You ★★★ Myndin sækir I dans- og söngvamyndir fjórða áratugarins og þótt dansatriöin séu misjöfn að gæöum eru sum þelrra frá- bær. Myndin stenst ekki samanburö viö þaö besta sem Allen hefur sent frá sér en allir aödáendur Allens ættu þó aö sjá hana. Leikararnir eru ferskir og slagararn- ir standa ávallt fýrir sinu. -GE Perlur og svín ★★★ Fyndin mynd um hjón sem kunna ekki að baka en kaupa bakarí og son þeirra sem selur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar Jónasson hefur einstaklega skemmtilegan húmor sem kemst vel til skila og I leiðinni kemur hann viö kaunin á landanum. Ólafla Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Siguröarson eru eftlrminnlleg í hlutverkum hjónanna. -HK Með fullri reisn ★★★ Eftir aö hafa hneykslast upp í háls (og veröa létt skelkaöir lika) á hinum ítur- vöxnu fatafellunum The Chippendales, uppgötva þelr félagar Gaz (Robert Car- lyle) og Dave (Mark Addy) aö þaö aö fækka fötum uppi á sviði er hiö arö- bærasta athæfi. Þaö er varla hægt aö hugsa sér betri ávfsun upp á skemmtun en svona sögu, og svo sannarlega skllaöi myndin því gríni sem hún lofaöi, meö fullri reisn. -úd Contact ★★★ Jodie Foster er konan sem féll til stjarn- anna í þessari geim(veru)mynd um trú og tilverur. Leikstjóra er miklö f mun aö greina sig frá tæknibrelluþungum og fantasíufullum geimmyndum og skapa f staöinn raunsæja og vitræna mynd en smáfantasfa hefði verið holl og góö og létt aðeins á öllu dramanu. I heildina er Contact sterk og skemmtileg mynd af þvf einfalda en samt vfötæka atviki sem samband viö verur utan úr geimi hlýtur aö vera. -úd Bean Af Bean má hafa bestu skemmtun. I henni eru margar óborganlegar senur sem ég heföi kosiö aö sjá fléttaöar sam- an af meiri kostgæfril. -GE Air Force One ★★★ Harrison Ford er trúveröugur forseti Bandarfkjanna, hvort sem hann setur sig í spor stjórnmálamannsins eöa fyrrum VI- etnamhetju, í spennumynd sem er hröö og býöur upp á góð atriöl. Brotalamir f handriti ásamt klisjukenndum persónum veikja hana þó til muna. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.