Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Side 5
DV FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997 23 - TR • • f/flí helgma "*★ * ■mii'ffrtiTllTlj mifi rrmr mrmr iiirTTmíi iTfTr 0 T EK) SIMI 51 1 3040 • OPIÐ VIRKfl DAGfl TIL KL. 01 OG TIL KL 03 UM HELGAR Grensósvogi 7 • 108 Reykjavík Símar 553 3311 • 896 2288 Norski blásarakvintettinn Arctic Brass Norski blásarakvintettinn Arctic Brass heldur tónleika í fundarsal Norræna hússins í kvöld kl. 20.30. Fjölbreytt efnisskrá veröur á boð- stólum, allt frá alþýöutónlist til samtímaverka sem samin hafa ver- ið sérstaklega fyrir kvintettinn. Kvintettinn skipa þau Ame Björ- hei trompetleikari, Espen Rækstad trompetleikari, Heidi Sivertsen homleikari, Gaute Vikdal básúnu- leikari og Jan-Erik Lund túbuleik- ari. Arctic Brass kvintettinn er í tónleikaferð sem hófst í Danmörku og hann kemur hingað til lands frá Grænlandi. Meðlimir kvintettsins leggja áherslu á fjölbreytta tónlist. Kvintettinn hefúr sent frá sér tvo geisladiska og frumflutt á fjórða tug tónverka fyrir blásarakvintett. Kvintettinn var stoöiaður árið 1983 og var tilgangurinn að kynna kammertónlist fyrir málmblásara. Arctic Brass hefur haldið fjölda tónleika á Norðurlöndum og leikið í sjónvarps- og útvarpsþáttum þar og í Austurríki. Tónleikaferðin nú er styrkt af Norræna menningarsjóðn- um og norska menntamálaráðu- neytinu. Frítt inn Opiö: Þriójudaga - fimmtudaga 20.00 - 01.00 föstudaga - laugardaga 20.00 - 03.00 sunnudaga 20.00 - 01.00 Svartstakkar eftir Sigursvein H. Jóhannesson. Myndlist Sýning á dúkristum Nú stendur yfir sýning á verkum Sigursveins H. Jóhannessonar í sýn- ingarsal Listhúss 39 í Hafnarfirði. Sigursveinn sýnir þar dúkristur. Sýningin er opin virka daga milli kl. 10 og 18, laugardaga milli kl. 12 og 18 og sunnudaga milli kl. 14 og 18. Sýningin stendur tii 3. nóvember. „Vitringarnir fró Austurlöndum" Eitt verka Ragnars Jónassonar. Myndlist á Tuttugu og tveimur Myndlistarmaðurinn Ragnar Jón- asson opnar sýningu á verkum sín- um á morgun á veitingahúsinu Tuttugu og tveimur að Laugarvegi 22. Á sýningunni eru átta myndir sem unnar eru með blandaðri tækni, aðallega olíu og kolum. Ragnar Jónasson er tuttugu og þriggja ára gamall og að mestu sjálf- menntaður i list sinni en hann nem- ur þó nú við myndlistarbraut Fjöl- brautaskólans í Breiðholti. VEGAMOTASTIGUR 4 (BAK VIÐ LAUGAVEGJ Aðstandendur Brúðubílsins. BrúðubOlinn í Mosfellsbæ Brúðubíllinn sýnir í Bæjarleik- húsi Mosfellsbæjar á sunnudaginn kl. 15. Sýnd verða leikritin í Dúskalandi og Bimm bamm. í leikritunum koma fram yfir fimmtíu brúöur af öllum stæröum og gerðum. Allt frá litlum hanskabrúðum upp í stórar brúöur sem leikarinn klæðist. Á feröinni eru m.a. Trúðurinn, Dúskur, Refúrinn, Úlfurinn, Krókó- díllinn, Vatnahesturinn Rósa og margir fleiri. Sýningin tekur um eina til eina og hálfa klukkustund. Hvort leikrit fyrir sig inniheldur litla leikþætti, söng og sögur. Það er gleðin sem ræður ríkjum á sýningum Brúöubilsins en einnig er þar ýmislegt til fróðleiks. Áðgangseyrir að skemmtuninni er 500 krónur. Samkvæmisdansan Islandsmeist- arakeppni Á morgun verður haldin íslands- meistarakeppni í tíu samkvæmis- dönsum með frjálsri aðferð. Keppt verður í fjórum aldurs- flokkum, 12-13 ára, 14-15 ára, 16-18 ára og 18 ára og eldri. Samhliða verður keppt í dönsum með grunnaðferð í öllum aldurs- flokkum og línudönsum. Keppnin hefst kl. 15 en miðasala hefst kl. 13.30. Nú stendur yfir sýning á teikn- ingum og málverkum Jóns Engils- berts. Sýningin er haldin í vinnu- stofu listamannsins, Englaborg, Flókagötu 17, og stendur hún til sunnudagsins 9. nóvember. Opið er daglega milli kl. 14 og 18. Sýning á verkum Jóns Engilberts

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.