Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Síða 9
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
HLJÓMPLm
I! 'I'J V M
Mono - Formica Blues:
Lyftutónlist tíunda áratugarins
Dúettinn Mono er hér með
ágæta plötu sem er gerð sam-
kvæmt trip hop formúlunni.
Hip hop taktar, kvikmynda-
tónlist og angurvær kvenrödd
keyra í gegnum plötuna.
Mono er skipaður þeim Mart-
in Virgo og Siobhan De Maré
sem er dóttir trommarans í
The Shadows. Þess má til
gamans geta að afi hennar er
maðurinn sem slær á gongið í
upphafskynningu Rank-kvik-
myndafyrirtækisins. Siobhan
sér alfarið um sönginn og fer
það ágætlega úr hendi enda hefur hún sjálfsagt drukkið inn tón-
listina með móðurmjólkinni. Mörg góð lög er að fmna á Formica
Blues og eru lagasmíðar dúettsins til fyrirmyndar. Þetta er ball-
öðuplata en verður samt aldrei hæg eða drungaleg. Martin Virgo
sér um alla forritun og tekst vel upp. Hann er greinilega undir
miklum áhrifum frá Burt Bacharac og útsetningar hans og laga-
smíðar mjög í anda gamla meistarans. Formica Blues er ekki
frumleg. Það sem heldur henni uppi eru góðar lagasmíðar og vel
útsett popptónlist fyrir nýja kynslóð „easy listening" fólks.
Jón Atli Jónasson
Spilverk þjóðanna - Sagan:
Spilverkið veit hvað það syngur ★★★★
Spilverk þjóðanna er mætt
aftur til leiks með safnplötuna
Sagan. Það er titill sem er vel
við hæfi þar sem platan rekur
sögu Spilverksins frá fyrstu
hljóðritunum sveitarinnar á
safnplötunni Hrif 2 til síðustu
plötu sveitarinnar, Bráða-
birgðabúgí. Spilverk þjóð-
anna var þekkt fyrir frábæra
tónleika og fyndna í þokka-
bót. Spilverk þjóðanna á stórt
pláss í þjóðarsálinni enda
seldust plötur þess í mörg
þúsund eintökum hér á landi.
Ólíkt öðrum hljómsveitum frá þessum tíma hafa lög Spilverksins
lifað í huga fólks í gegnum tíðina og munu margir geta sungið með
Sögunni án þess að leita aðstoðar í textabæklingi. Þetta er plata
sem þarf að vera í plötusafni heimilisins.
Jón Atli Jónasson
Ouarashi-Quarashi:
Sprengja! ★★★★
Eggjaskerinn hefur þróast
yfir í egg og rappsveitin Qu-
arashi er komin á spjöld ís-
lensku tónlistarsögunnar.
Loksins er alþjóðlega kyn-
slóðin farin að láta í sér
heyra. Kynslóðin sem hefur
alist upp í heimi án
landamæra, alist upp við fjöl-
breytni, ögrandi nýjungar og
alvöru hljóðgervla.
Sölvi, Steini, Höskuldur og
Richard eru af þessari kyn-
slóð. Þeir eru Quarashi.
Fyrsta breiöskífa sveitarinnar er yfirlýsing: „Við erum ekki negld-
ir niður í einhver ákveðin mót, íslenski rímnastíllinn hentar okk-
ur ekki í rappi, við erum komnir með okkar eigin stíl og stönd-
umst alþjóðlegan samanburð."
Ég heyrði einn mann segja: „Ég hélt að það væri ekki hægt að
búa til svona plötur á íslandi." Það er kannski málið. Það býst eng-
inn við því að fram komi hljómsveit sem ekki er hægt að líkja við
neitt það sem áður hefur komið fram á alþjóðlegum markaði
rapptónlistarinnar, nema kannski Beastie Boys - og þá bara af því
að þeir eru hvítir.
Strákarnir í Quarashi feta línuna milli rapp- og rokktónlistar
fimlega. Þeir búa til sínar eigin melódíur (leita ekki i endurvinnsl-
una eins og vestrænir R&B rapparar), rappið er kannski illskiljan-
legt (þ.e. textaframburður) en „fraseringamar" og viðhorflð sem
einkenna rappið bæta það upp svo um munar. Sölvi Blöndal verð-
ur að teljast einn okkar fremsti hljóðgervlatónlistarmaður, kraft-
ur og hljómur blandast stórkostlega á þessari plötu.
Það er ekkert eitt lag sem stendur upp úr, platan er í eðli sínu
hrá og hrikalega góð. Rappsveitin Quarashi hefur hent sprengju
inn á íslenskan tónlistarmarkað og nú er bara að vona að hljóm-
urinn berist víðar um heiminn. BOOOM!
Guðjón Bergmann
HelgilBó örns
- ný sólóplata
Söngvarinn og leikarinn Helgi
Björnsson gaf í gær út sína fyrstu
sólóplötu. Hann hóf feril sinn í tón-
list með hljómsveitinni Grafík. Síð-
ar stofnaði hann svo hljómsveitina
Síðan skein sól sem um árabil hefur
verið ein vinsælasta hljómsveit
landsins.
Sólóplatan Helgi Bjöms varð til
er Helgi bjó ásamt fjölskyldu sinni á
Ítalíu. Þar var hann húsfaðir og
gafst tóm til að semja efhi af talsvert
öðmm toga en það sem hann hafði
gert með hljómsveitum sínum. í
hljómsveitum mætast mörg ólík
sjónarmið þegar kemur að laga-
smíðum og þar sem hljóðfæraleikar-
arnir em alltaf þeir sömu leitast
efnið við að fara í svipaðan farveg.
Þegar um sólóverkefni er að ræða
er frelsið miklu meira. Sökum
tækninnar geta menn nú líka að
mestu séð um allan tónlistarflutn-
ing sjálfir með notkun tölvutóla ým-
iss konar.
Nýja platan hans Helga er þó ekki
teknóplata. Hann notfærir sér þá
tækni sem er fyrir hendi en einnig
er mikið um lifandi spilamennsku á
plötunni. Hann notar tæknina tii að
ná fram ólíkum áhrifum og
stemmningum og mun sjálfsagt
höfða til eldri aldurshóps en áður.
Platan er á rólegu nótunum en þó
ætti yngra fólk líka að geta haft
gaman af henni. Þetta er plata sem
tekur á hlutum eins og tilfinning-
um, stemningu og ástandi. Að sögn
Helga er hann spenntur að finna
hvernig plötunni verður tekið þvi
að fyrir honum er þetta eins og að
byrja dálítið upp á nýtt.
Helgi Bjömsson heldur útgáfútón-
leika sína í íslensku óperunni þann
20. nóvember næstkomandi. -JAJ
Vedmálið
Leikritið Veðmálið hefur gengið
fyrir fullu húsi í Loftkastalanum frá
því í sumar. Verkið er létt og
skemmtilegt og uppfullt af tónlist
eftir bæði innlenda og erlenda flytj-
endur. Það er söngkonan Emilíana
Torrini sem er tónlistarstjóri leik-
ritsins og valdi hún öll lög í sýning-
unni jafnframt því að syngja sum
þeirra sjáff.
Veðmálið er eitt af þessum sum-
arleikritum sem sett hafa mark sitt
á leikhúslíf borgarinnar. Það er hið
unga og metnaðarfulla Leikfélag ís-
lands sem setur upp verkið og
stendur að útgáfu geisladisksins
ásamt Emilíönu Torrini. Leikfélagiö
setti upp Stone Free í Borgarleik-
húsinu, sem frægt er orðið, og
einnig var gerður geisladiskur með
tónlist úr þeirri uppsetningu. Á
geisladiskinum Veðmálinu er að
finna ansi skemmtilega blöndu af
rokki, rólegum lögum og klám-
myndatónlist þýska tónskáldsins
Gerts Wildens. Sem sándtrakk er
þetta vel heppnað.
Lögin eru sjálfsagt leikhúsgestum
minnisstæö að lokinni sýningu og
gaman er að geta rifjað upp
skemmtilegheitin með því að hlusta
á geisladiskinn. -JAJ
Party Zone Top-10 Dansllst! íslands er unn-
Inn í samvlnnu vlð verslanlrnar Hljómalind,
Þrumuna og Japis ásamt PZ-plötusnúö-
unum. Hann er fluttur í Party Zone á X-lnu
97,7 á laugardagskvöldum og á Frostrós-
Innl 98,7 Akureyri föstudaglnn á eftir.
Áhugafólk um tónllst getur haft áhrlf á val
listans meö því aö fylla út atkvæöaseöla í
fyrrnefndum verslunum.
1. Poison / Protein
Mark Green
2. The Groove
Global Communication
og The UFC Band
3. Happy Feellng
Mateo og Matos
4. Stella vs. Sunday
Glasgow Undergroi
5. Monte Carlo
Joey Negro
6. Misslon
Dimitri From Paris
7.
The Grlnde
DJ