Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Síða 11
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
RadioheaO
- herjar á Bandaríkin
Radiohead hefur uppskorið mikla
hylli eftir útkomu plötu sinnar OK
Computer sem hún eyddi heilu ári í
að gera. Upptökumar tóku langan
tíma því það var sífelit verið að gera
hlé á þeim sökum mikilla tónleika-
ferðalaga hljómsveitarinnar. OK
Computer er þriðja plata þessarar
hljómsveitar en hún hefur haldið hóp-
inn frá því í skóla. Hljóðfæraleikar-
arnir eru allir frá breska skólabænum
Oxford á Bretlandi.
Radiohead vakti fyrst athygli árið
1993 með útgáfu plötu sinnar Pablo
Honey. Hún innihélt smellinn Creep
sem varð geysilega vinsælt. Árið 1995
kom svo út platan The Bends sem
seldist í einum 400 þúsund eintökum.
Poppsérfræðingar vilja meina að OK
Computer eigi eftir að gera hljóm-
sveitina annaðhvort þá stærstu í
Radiohead vakti fyrst athygli árið 1993 með útgáfu plötunnar Pablo Honey.
heimi eða dæma hana til eilífrar með-
almennsku, hvað sem það nú þýðir.
Lögin á nýju plötunni minna helst
á það sem Pink Floyd fékkst við þegar
hún toppaði vinsældalista um allan
heim í eina tíð. Það er ekkert skrítið
því Radiohead hefur upp á síðkastið
verið að hlusta mikið á Pink Floyd og
er undir áhrifum af þeim og fleiri
hljómsveitum þess tímabils.
OK Computer var tekin upp i bresk-
um fjórtándu aldar kastala í eigu
leikkonunnar Jane Seymour. Hún er
að miklu leyti tekin á fjögurra rása
band sem er afturhvarf hljómsveitar-
innar til þess tima er þeir voru að
byrja að spila.
Platan er að einhverju leyti þema-
plata sem tekur á ofsóknarbrjálæði,
einmanaleika og frelsun. Ekki ósvip-
að þvi sem Pink Floyd var að pæla.
Til viðbótar skellir hún inn geimver-
um og brottnámi þeirra á fólki.
Það sem fram undan er hjá Radio-
head er tónleikaferðalag um Banda-
rikin þar sem ætlunin er að vinna
hug og hjarta almennings þar í landi.
Það er reyndar á stefnuskránni hjá
flestum bresku hljómsveitunum í dag.
-JAJ
Fyrir nokkrum árum gæti einhver
hafa sagt um þá félaga í Live að þeir
væru lúðar sem tækju sjálfa sig alltof
alvarlega. Og enn þann dag í dag taka
þeir sjálfa sig og tónlist sina alvarlega
þó að lúðastimpillinn sé horfmn.
Ed Kowalczyk, Chad Tayior, Pat-
rick Dalheimer og Chad Gracey ólust
allir upp í krummaskuðinu York í
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og
eiga þar reyndar allir heima ennþá
sem endurspeglar kannski þá festu og
samheldni sem komið hefur sveitinni
áfram. Reyndar sendi Chad Taylor
bréf til útgáfufyrirtækis þegar hann
var þrettán ára og lýsti því yfir að þar
sem það væri staðreynd að hljómsveit
sín yrði stórt nafn á endanum væri
ekki úr vegi fyrir fyrirtækið að gera
samning við hana strax! Þeim var
hafnað og ekkert gerðist fyrr en
Kowalczyk var boðið í bandið
nokkrum árum seinna.
Sveitin undirgekkst miklar nafna-
breytingar en á endanum kom hún
fram á sínum fyrstu tónleikum 1987
undir nafninu Public Affection. Héð-
an í frá var ekki aftur snúið og þeir
hættu allir í skóla, fengu sér vinnu og
reyndu að einbeita sér að lagagerð.
Undir eigin merki var síðan platan
Death of a Dictionary, gefin út 1989.
Henni var fylgt eftir með 15 tónleikum
og að þeim loknum ákvað sveitin að
leita fyrir sér og sendi demoupptökur
með nýjum lögmn til Giant hljóm-
plötufyrirtækisins en þeim var hafn-
að. Nánast daginn eftir var þeim boð-
inn samningur hjá öðru fyrirtæki,
Radioactive Records, sem hefur verið
með þá á sínum snænnn síðan undir
nafninu Live.
Fæðing, dauði, ást
Áhrif austurlenskra trúarbragða og
andlegrar ræktunar hefur fylgt sveit-
inni frá upphafi í textum er lýstu stór-
atburðum lífsins: fæðingu, dauða og
ást. Þó tekst Live að halda sér frá
þeim leiðinlega ávana að vera sífellt
dæmandi heldur eru textamir blátt
áfram og vekjandi.
Nýjasta plata Live, Secret Samadhi,
er þar engin undantekning en nafnið
Samadhi þýðir andleg uppljómun.
Secret Samadhi er enn á ný dæmi um
öran þroska Live og er töluvert frá-
brugðin fyrri plötum sveitarinnar.
Tónninn í plötunni er hrárri en áður,
fónkaður bassinn hefur vikið fyrir
einfaldari spili sem á betur við og
kannski það mikilvægasta að kraftur-
inn og tiifinningin hafi skilað sér út í
gegn í öllum upptökum og útkoman er
frábær rokkplata. Platan hefur hlotið
feykigóðar viðtökur, ekki síst hér
heima, með lögunum Lakini’s Juice
og Turn Your Head.
Leiðandi?
Það má segja að síðustu plötur
Pearl Jam, Alice in Chains og
Soundgarden (sem er reyndar hætt),
hafi valdið miklum vonbrigðum
meðal þeirra sem fylgjast náið með
þróun í Grunge- og nýrokki. Að
mínum dómi hafa Live, Screaming
Trees og Manic Street Preachers
stolið senunni með síðustu plötum
sínum og ekki ólíklegt að Live komi
til með að eflast enn meira og
þroskast, enda meðlimir sveitarinn-
ar rétt um 25 ára aldur. -ps
_ r-:5:
tóníist-
Jane s
Áddiction
- snýr aftur
Undir lok níunda áratugarins
var Jane’s Addiction ein vin-
sælasta hljómsveit Bandaríkjanna.
Hún fyllti það skarð sem var á
milli síðhærðs þungarokksins,
sem kennt er við hina frægu Sun-
set Strip götu í Hollywood, og
Islandsmeistarakeppni:
Breik-
dans
í'ram
undan
Nú ættu ungir sem aldnir breik-
arar að taka fram gömlu adidas-
skóna sína því til stendur að halda
Islandsmeistarakeppni í breik-
dansi í desember. Breik-
danskeppnin verður haldin í
grunge pönksins. Farrell Bern-
stein, söngvari hljómsveitarinnar,
leysti hana upp eftir tónleika á
Hawaii árið 1991. Þá var Ijóst að
hún var að verða ein stærsta
hljómsveit Bandaríkjanna. Þetta
gerðist í kjölfar fyrstu Lollapa-
looza tónleikaferðarinnar sem
Jane’s Addiction átti hugmyndina
að. Farrell hafði ekki áhuga á að
gera sveitina að einhverju heims-
frægu fyrirbæri sem fyllt gæti fót-
boltavelli. Hann stofnaði Porno for
Pyros með trommaranum Stephen
Perkins en gítarleikari sveitarinn-
ar, Dave Navarro, stofnaði hljóm-
sveitina Deconstruction ásamt
Eric Avery, fyrrum bassaleikara
Jane’s Addiction. Navarro gekk
svo siðar til liðs við Red Hot Chili
Peppers.
Síðan eru liðin sex ár sem í
rokkinu er heil eilífð. En nú eru
þeir sem sagt byrjaðir aftur. Það
er vel við hæfi að Jane’s Addict-
ion, sem á vissan hátt var frum-
kvöðull í tónlistarsköpun sinni,
gefi nýrri kynslóð færi á að njóta
þeirra á tónleikum. Eric Avery
spilar þó ekki á bassa með hljóm-
sveitinni lengur heldur hefur hún
fengið hinn ágæta bassaleikara,
Flea, úr Red Hot Chili Peppers til
liðs við sig. Uppselt hefur verið á
alla tónleika Jane’s Addiction i
Bandarikjunum til þessa. -JAJ
Tunglinu í kringum tónleika
bresku hljómsveitarinnar Propell-
erheads. Breikdanskeppnin er öll-
um opin og verður byrjað að skrá
keppendur í byrjun desember á út-
varpsstöðinni X-inu.
Geirmundur á
Hótel íslandi
Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar heldur
stórdansleik á Hótel ís-
landi annað kvöld frá
miðnætti.
Gos á Langa-
sandi
Hljómsveitin Gos leikur
á veitinga- og skemmti-
staðnum Langasandi á
Akranesi annað kvöld.
Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall
leikur á Inghóli á Selfossi
annað kvöld.
skemmta gestum staðar-
ins bæöi kvöldin milli kl.
23 og 3.
Einn + ein
Hljómsveitin Einn + ein
spilar á Katalínu í Kópa-
vogi annað kvöld. Sveit-
ina skipa Anton Kröyer
og Elín H. Klemenzdóttir.
Bubbi á Dalvík
í kvöld mun Bubbi Mort-
hens leika fyrir gesti
Café Menningar á Dalvík.
Tónleikarnir hefjast kl.
21 og er aðgangseyrir
1000 krónur.
Rauda Ijónið
Dónakvöld á
Kaffi Austur-
stræti
Svokallaö dónakvöld
verður haldið á Kaffi
Austurstræti um helgina.
Þar mun trúbadorinn
Bjarni Tryggason
Dúó Mjallar Hólm og
Skúla leikur á Rauða
ljóninu um helgina.
Stjórnin á
Kaffi Akureyri
Stjórnin skemmtir annað
kvöld á Kafii Akureyri.
-s