Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Blaðsíða 12
30
lyndbönd
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997
MYNDBfíHDA
IMfflI
The Pallbearer:
Misskilningur og
vandræðagangur ★★*
Tom Thompson er fremur misheppnaður náungi.
Hann er búinn að vera atvinnulaus í heilt ár frá því að hann útskrifað-
ist, hann býr við stirðar aðstæður hjá mömmu sinni og kemst lítið áleið-
is hjá kvenfólkinu. Einn daginn hringir móðir skólafélaga hans, sem er
nýdáinn, og biður hann að vera líkmaður við jarðarför hans. Tom sam-
þykkir þótt hann muni ekkert eftir hinum látna. Um svipað leyti kem-
ur æskuástin hans í bæinn eftir nokkra ijarveru og hann reynir eftir
fremsta megni að ná ástum hennar. Þessi mynd býr yfir ágætri
sögufléttu, sem tekst að koma áhorfendanum á óvart endrum og eins.
Hún hefði því getað verið hin besta skemmtun ef leikhópurinn væri
ekki svona flatur. Barbara Hershey er að vísu góð í hlutverki hinnar
syrgjandi móður, og meðal aukaleikaranna er Michael Rapaport ansi
skondinn, en aðrir ná ekki að láta ljós sitt skína. David Schwimmer hef-
ur rödd og útlit í hlutverkið en er samt ekkert fyndinn og Gwyneth Pal-
trow er bara léleg í hlutverki draumadísarinnar. Hún er snoppufríð en
getur því miður ekki leikið, eins og sást reyndar bæði í Seven og Emma.
Endirinn er góður og bjargar miklu.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: IVIatt Reeves. Aðalhlutverk: David
Schwimmer, Gwyneth Paltrow og Barbara Hershey. Bandarísk, 1996.
Lengd: 94 mín. Öllum leyfð. -PJ
Muppet Treasure Island:
Prúðu leikararnir ★★★
Margir muna eftir mektarárum Prúðu leikaranna
hér fyrir tveimur áratugum eða svo. Þá safhaðist öll
fjölskyldan saman fyrir framan imbann einu sinni í
viku til að berja þessar furðuskepnur augum. Hér
mæta þeir til leiks i sjóræningjasögu, sem byggð er á
Gulleyjunni eftir Robert Louis Stevenson. Nokkra
mannlega leikara er þama einnig að finna og ber þar
helst að nefna Tim Curry í hlutverki sjóræningjans
einfætta, Long John Silver. Hann fer ágætlega með
sitt hlutverk, en óneitanlega eru það Prúðu leikaram-
ir sjálfir sem era skemmtilegastir. Allar helstu brúð-
umar (sem ég man eftir) eru þama, m.a.s. karlarnir á
svölunum, og eldri kynslóðin ætti því að geta endurnýjað kynni sín við
uppáhaldsbrúðurnar sínar. Þar að auki ætti léttgeggjaður húmorinn að
geta létt lundina í eldri kynslóðinni jafnt sem krökkunum og myndin er
þar með sannkölluð íjölskyldumynd, sem allir aldursflokkar geta haft eitt-
hvert gaman af.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Brian Henson. Aðalhlutverk:
Kermit the Frog, Miss Piggy, The Great Gonzo, Rizzo the Rat og Um
Curry. Bandarísk, 1996. Lengd: 91 mín. Öllum leyfð. -PJ
Crash:
Oeðli
★★★
David Cronenberg er þekktur fyrir að gera hálf-súr-
realískar myndir um skuggahliðar mannlífsins eins
og t.d. Dead Ringers og Naked Lunch. í Crash tengir
hann saman kynlíf og bílslys eða árekstra. Sagan er
sögð frá sjónarhorni James Ballards, sem dag einn
lendir í árekstri og leiðist upp úr því inn í undarlegt
andlegt og kynferðislegt ferðalag þar sem ýmsar
skrýtnar persónur koma við sögu. Þarna er óneitanlega verið að reyna að
gera eitthvað frumlegt og ýmsar forvitnilegar hugmyndir em settar fram.
Ein sú athyglisverðasta er e.k. samruni mannsins og bílsins, sem á sinn
persónugerving í persónu Rosanna Arquette, fómarlambi bílslyss sem
gengur um á massífum spelkum og klæðist netsokkabuxum undir, ásamt
leðurfatnaði og oft einhverjum torkennilegum málmhlutum. Helsti galli
myndarinnar hggur í því að villtar hugmyndirnar era ekki nægilega vel
útskýrðar. Myndin verður því fremur torskilin og lítið sem stendur þá eft-
ir nema kynferðislegt óeðli. Hljóðið er líka fremur einkennilegt í mynd-
inni _og virðist sem samtölin séu of lágt stillt.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: David Cronenberg. Aðalhlutverk: James
Spader, Holly Hunter, Elias Koteas, Deborah Kara Unger og Rosanna
Arquette. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Donnie Brasco:
Sannsöguleg mafíusaga ★★★
Donnie Brasco var nafliið sem alríkislögreglumað-
urinn Joe Pistone gekk undir þegar honum tókst að
komast í raðir mafíufjölskyldu í New York. Hann
villti á sér heimildir í þrjú ár áður en aðgerðinni var
hætt og leiddu störf hans til fjölda sakfellinga. Hann
skrifaði síðar bók um reynslu sína og nú hefur ver-
ið gerð mynd eftir bókinni. Þar er Johnny Depp í að-
alhlutverkinu og fer vel með sína rullu, en A1 Pacino
saltar hann samt og sýnir stórleik í hlutverki undir-
málskrimmans Lefty Ruggiero, sem tekur Donnie
Brasco undir sinn vemdarvæng og geldur að lokum
fyrir með lífl sínu. Meginþemað i myndinni em tvöfeldnin i lífi lögreglu-
mannsins sem fer huldu höfði, sú togstreita sem hann verður fyrir þeg-
ar hann þarf að sinna mörgum hlutverkum í einu. Mér fannst þær pæl-
ingar ekkert óskaplega merkilegar, en gæði myndarinnar felast í góðum
leikurum og nýju, hrárra sjónarhorni í mafiumynd, sem færir okkur
nær götulífinu en í hinum hádramatísku valdabaráttumyndum sem við
eigum að venjast úr mafiumyndageiranum.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Mike Newell. Aðalhlutverk:
Johnny Depp og Al Pacino. Bandarísk, 1996. Lengd: 141 mín. Bönnuð
innan 16 ára.x -PJ
Myndbandalisti vikunnar
/ % <§> •
— 21. til 27.október
SÆTI J FYRRl! > VIKA i i j J Ný ; VIKUR J Á LISTA ) j TITILL ~ j j ÚTGEF. J 'í J TEG.
1 1 J Donnie Brasco Sam-myndbönd ' Spenna
2 I Ný 1 ) i j 1 J j Saint, The i I ClC-myndbönd Spenna J
3 1 1 J j 1 3 J People VS. Larry Flynt J Skrfan J Gaman
4 i i 4 í j 2 i ; j Fools Rush In Skffan 1 j Gaman
5 1 2 J 4 ! Vegas Vacation j Warnermyndir j Gaman
6 ) j 1 3 J i * j i 2 ; j Smilla's Sense of Snow J i Sam-myndbönd j Spenna
7 J 8 i 2 J Relic Háskólabíó 1 Spenna
8 J j 1 7 J J 7 , j i 2 ! J Crash i i Myndform j i Spenna
9 J 5 J 5 J English Patient Skrfan Drama
10 J 6 J ) i J 3 J j ) Beavis and Butt-Head Do America < i ) ClC-myndbönd > j Gaman
11 * q J j 9 j 7 J Metro Sam-myndbönd j Spenna
12 i »i j i j J i Pallbearer, The j Skifan Gaman
13 J 10 J 9 J Jerry Maguire i Skffan J Drama
14 j j í Ný ; j j J 13 i i i ! j If These Walls Could Talk j J Háskólabíó ! Drama
15 4 J Casper:A Spirited Beginning J Skífan J Gaman
16 i ii ! j j , i j Ghost and the Darkness j i J i ClC-myndbönd j Spenna j 1
17 J Ný ; i ! 1 Love You, 1 Love You Not j Skífan j Drama
18 J J »i j j i j j j Frankie The Fly J Skífan 1 J Spenna
19 J 18 J 6 J Blood and Wine Myndform j Spenna
20 J J ! 14 J j 7 ! i Romeo + Juliet J Skífan J Spenna
Tvær nýjar myndir á listanum, Donnie Brasco og The Saint,
fara beint í tvö efstu sætin og sjáfsagt berjast þær um topp-
sætið einnig í næstu viku. Tvær aðrar nýjar myndir er vert að
minnast á. Um er að ræða rómantísku gamanmyndina The
Pallbearer og dramatiska mynd, If These Walls Could Talk,
með Demi Moore, Sissy Spacek og Cher í aðalhlutverkum. The
Pallbearer fjallar á skondinn hátt um ungan mann sem kona
ein fær til að haida ræðu og vera líkmaður við jarðarför sonar
síns. Vandamálið er að ungi maðurinn veit ekkert hver hinn
látni var en getur ekki sagt nei við móðurina. í If These Walls
Could Talk eru sagðar þrjár sögur af konum sem allar verða að
gera það upp við sig hvort þær eigi að ganga með barn sem
varð „óvart“ til eða fara í fóstureyðingu. Á myndinni eru Al
Pacino og Johnny Depp í hlutverkum sínum i' Donnie Brasco.
Donnie Brasco TheSaint
Aðalhlutverk: Al
Pacino og Johnny
Depp.
Myndin er byggð á
sannri sögu alríkis-
lögreglumanns sem
komst inn fyrir raðir
æðstu manna í mafi-
unni og villti á sér
heimildir um þriggja
ára skeið. Eftir því
sem tíminn leið og
hann kynntist hinum
nýju „starfsfélögum"
sínum betur urðu
skilin milli laga og
glæpa óljósari í aug-
um hans. Þetta hafði
veruleg áhrif á allt
hans líf, enda erfitt
að vera FBI-maður,
eiginmaður, faðir og
vinur maflunnar.
Aðalhlutverk: Val
Kilmer og Elisa-
beth Shue.
! dag er Simon
Templar orðinn
meistaraþjófur, snill-
ingur í að dulbúa sig
og vinna öll þau
hættulegu verk sem
honum eru falin.
Markmið hans er að
safna 50 milljón doll-
urum inn á leyni-
reikning sinn. Um
leið og þeirri tölu er
náð sest hann í helg-
an stein. Og verkeöi-
ið sem hann þarf að
leysa til að fylla
þessa tölu er að stela
vísindaformúlu sem
ung vísindakona hef-
ur fundið upp og á
eftir að leiða af sér
byltingu í orkumál-
um heimsins.
People vs.
Larry Flynt
Woody Harrelson
og Courtney Love
Myndin fjallar um
Larry Flynt, hinn
umdeilda útgefanda
Hustlers. Þegar blað-
ið kom út í fyrsta
skipti upphófust
strax háværar raddir
um að slíkt blað ætti
að banna. Flynt
neyddist til að hefja
baráttu sína fyrir lífi
blaðsins, prentfrels-
inu og tjáningarfrels-
inu í hvaða mynd
sem var. Málið fór
alla leið fyrir hæsta-
rétt Bandaríkjanna
og aðstæðurnar urðu
til þess að Flynt var
skyndilega talinn
síðasti krossfari síns
tíma.
Fools Rush in
Salma Hayek og
Matthew Perry
Ungur maður frá
New York, Alex
Whitman, hittir hina
fogm Isabel í Las Ve-
gas. Þau eyða einni
nótt saman og halda
svo til síns heima.
Þegar Isabel birtist
dag einn á þröskuld-
inum hjá Alex og til-
kynnir honum að
hún sé ófrísk verður
hann hinn glaðasti
og vill ólmur giftast
henni. Isabel sam-
þykkir en það er
annað að elska og
þekkja hvort annað
eins og hinir ungu
elskendur eiga fljót-
lega eftir að komast
að.
Vegas
Vacation
Chevy Chase og
Beverly D'Angelo
Þegar Clark
Griswold skipulegg-
ur sumarleyfi gerir
hann sér grein fýrir
öllum þeim smáatrið-
um sem upp kunna
að koma og nú skal
halda til Las Vegas.
En einhvem veginn
er það svo að Gris-
wold-fjölskyldan
dregur að sér óvænta
hluti. Clark gat til
dæmis ekki séð það
fyrir að fjölskyldu-
meðlimimir myndu
umhverfast og brátt
verður spumingin sú
hvort fjölskyldan
geti nokkum tíma
horfið til fyrra lífs.