Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 3
u"\?r FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
Spilling í borg englanna
Fáar kvikmyndir á árinu hafa
vakiö jafnmikla athygli í Bandaríkj-
unum og nýjasta kvikmynd Curtis
Hansson, L.A. Confidental, sem
Kringlubíó frumsýnir í dag. í þess-
ari sakamálamynd, sem gerist í
byrjun sjötta áratugarins, hefur
Hanson safnað saman góðum leik-
arahópi, þekktmn og óþekktum sem
mynda sterka heild. Handritið aö
myndinni skrifuðu Hanson og Bri-
an Helgeland eftir skáldsögu James
Elroy sem á sínum tíma var met-
sölubók. Myndin segir frá spillingu
innan lögreglunnar í Los Angeles og
eru aðalpersónumar þrir ólíkir lög-
reglumenn sem vinna allir sinn aö
hverja málinu sem leiða þá á sömu
braut.
Leikstjórinn Curtis Hanson vakti
fyrst athygli fyrir tíu árum með
mynd sinni The Bedroom Window
sem hann gerði Aifred Hitchcocks
til tveggja þarlendra „óskara“
fyrir leik sinn í Proof og
Romper Stomper. Meðal
þekktra ástralskra kvik-
mynda, sem hann hefur leik-
ið í, má nefna The Crossing,
Prisoners of the Sun, The
Efficiency Expert, For the
Moment og The Silver
Brumby.
Guy Pearce hefur einnig
í mörg ár leikið í áströlsk-
um kvikmyndum. Má þar
nefna Snowy River, The
McGregor Saga, Himting og
Heaven Ton-
ight.
lék á móti Sharon Stone og
Gene Hackmann, og Virtu-
osity þar sem hann lék
óvættinn sem Denzel Was-
hington var að eltast við. í
Ástralíu er hann einn þekktasti
leikarinn þar í áifu og hefur unnið
Russell Crove leikur harðjaxlinn Bud White sem þykir vel liðtækur
þegar þarf að fá játningar frá glæpamönnum.
Hans stóra stökk kom í The
Adventures of Pricilla, Queen of the
Desert. L.A. Confidental er fyrsta
bandaríska kvikmyndin sem hann
leikur i.
til heiðurs. í kjölfarið fylgdu síðan
Bad Influence, The Hand That
Rocks the Craddle, sem varð
óhemjuvinsæl, og The River Wild.
Hanson hefur auk þess að leikstýra
skrifað handrit fyrir aðra, The
Silent Partner, White Dog og
Never Cry Wolf eru meðal
mynda sem hann hefur gert
handrit að.
Þeir leikarar sem mesta at-
hygli hafa vakið í L.A. Con-
fidental, Russell Crowe og
Guy Pierce, koma báðir
frá Ástralíu og eru lítt
þekktir á vesturhveli
jarðar. Russell Crowe
er að vísu fæddur í
Nýja-Sjálandi en ólst
upp í Ástralíu. Hann
hefur leikið í tveim-
ur bandarískmn
kvikmyndum,
The Quick
and the
Dead,
þar sem
hann
Kim Basinger leikur vændiskonuna
Lynn Bracken sem er látin líkjast
leikkonunni Veronicu Lake.
Kevin Spacey leikur
lögreglumanninn Jack Vincennes,
flottan gæja, sem
kann einkar vel við sig
í sviðsljósinu.
Kringlubíó - L.A. Confidental:
Löggur, bófar og sætar stelpur
L.A. Confidental hefur af mörg-
um verið líkt við kvikmynd Rom-
ans Polanskis, Chinatown, og það
er að nokkru leyti skiijanleg, þær
ná báðar að lýsa á áhrifamikinn
hátt spillingu í Los Angeles, seint á
fimmta og sjötta áratugnum, hafa
yfírbragð film noir-mynda frá þess-
um tíma, þar sem stutt er á milli
hetju og þorpara og heiðarleika og
glæpa. Tímabil þetta hefur oft ver-
ið viðfangsefni margra leikstjóra
með misgóðum árangri, síðast var
það Lee Tamahori sem reyndi í
Mullholland Falls að ná andrúms-
lofti og þunga fiim noir-myndanna
án þess að takast. Það tekst aftur á
móti Curtis Hanson í L.A. Con-
fidental. Strax frá því sögumaður-
inn, æsifréttamaðurinn Sid Hudge-
ons (Danny DeVito) byrjar að segja
okkur frá þeim heimi sem hann
hrærist í, glæpum, spillingu og mútum, er ljóst
að við erum á leið inn í veröld þar sem hver er
sjálfum sér næstur, hættulegir menn og hættu-
legar konur nánast á hverju strái og dollara-
seðlar eru það sem gefur lífmu gildi.
Þær persónur sem standa áhorfandanum
næst eru þrír lögreglumenn, ákaflega ólíkir og
með sitt hvom skilninginn á því hvað er rétt og
hvað er rangt. Sá eini sem hægt er að sjá í gegn-
um strax er Jack Vincennas (Kevin Spacey),
smart klæddur töffari sem lætur ekkert tæki-
færi ónotað til að auglýsa sjáifan sig, enda er
litið á hann sem stjömu, nánast flokkaður með
vinsælum kvikmyndastjömum. Hinir tveir,
Bud White (Russell Crowe) og Ed Exley (Guy
Pierce) era aftur á móti mun flóknari persónur
og alls ekki þeir menn sem í fyrstu mætti ætla.
White er kannski ekki beint spilltur en lítur
fram hjá spillingunni þegar það hentar honum
og er sérstaklega liðtækur ef þarf að lemja ein-
hvem í klessu. Exley er nýliðinn sem vill gera
allt samkvæmt bókinni. Hann er fæddur frama-
potari sem hækkar fljótt i tign á kostnað félaga
sinna. Eins og vænta má líta þessar þrjár lögg-
ur hver aðra homauga og vilja sem minnst
samskipti hafa við hver aðra, en það kemur að
því að þær verða að snúa bökum saman þegar
þær lenda allar á sömu slóð í morðmáli hver
eftir sinni leið.
Efnislega er L.A. Confidental einstaklega efii-
isrík og persónur áhugaverðar. Fyrir utan lög-
reglumar þrjá og æsifréttamanninn má nefna
Lynn Bracken (Kim Basinger), vændiskonu
sem starfar hjá hórmangara sem lætur vændis-
konur sínar likja eför kvikmyndastjömum.
Lynn er eftirlíking af Veronicu
Lake, hörð skelin kemur þó ekki í
veg fyrir að hún hrífist af Bud
White, kafteininum í lögreglunni,
Dudley Smith (James Cromwell),
traustur foringi, sem leiðbeinir
sínum mönnum inn á réttar braut-
ir. Er til betri leikari í slíkt hlut-
verk en svínahirðirinn í fjöl-
skyldumyndinni Babe, maður
skyldi ætla að hann sé traustsins
verður og Sid Hudgeons (Danny
DeVito) sem gerir allt til að fá sem
mest krassandi frétt, skiptir þá
litlu máli hver á í hlut. Saman
mynda þessar persónur sterka og
áhugaverða heild sem gleymist
ekki svo fljótt.
Leikaramir eru allir frábærir,
Kim Basinger hefur aldrei verið
betri, Kevin Spacey bregst ekki
frekar en fyrri daginn og Danny
DeVito kann svo sannarlega að gera sér mat úr
æsifréttamanninum og léttir myndina talsvert.
Það era þó nýliðamir, áströlsku leikaramir
Russell Crowe og Guy Pearce sem standa upp-
úr og fullkomna snjallt leikaraval. Curtis Han-
son (The Hand That Rocks the Craddle) hefúr
með L.A. Confidental gert einhverja áhugaverð-
ustu sakamálamynd síðari ára. Það er aðeins í
stuttum samskiptum Ed Exley og Lynn Brac-
ken sem myndin missir aðeins trúverðugleik-
ann, einhvem veginn passar það ekki inn í
karakter Ed Exley að freistingin heltaki hann á
tveimur mínútum. Það hefur þó ekki mikil
áhrif á heildarútkomuna sem er óvenjuinni-
haldsrík og spennandi sakamálamynd sem eng-
inn ætti að missa af.
Leikstjóri: Curtis Hanson. Handrit: Curtis
Hanson og Brian Helgeland. Kvikmyndataka:
David Spinotti. Tónlist: Jerry Goldsmith. Aðal-
hlutverk: Kevin Spacey, Russell Crove, Guy Pe-
arce, Danny DeVito, Kim Basinger og David
Strathairn. Hilmar Karlsson
Qívikmyndir
Face off
I þessari nýju mynd slnni skapar Woo
spennuhasar sem jafnframt því að vera vel
skorðaður í bandarísku kvikmyndasam-
hengi ber stíl og hæfni Woos fagurt vitni.
Travolta og Cage eru þarna i súperformi;
sérstaklega er gaman að sjá Travolta sanna
sig þarna enn og aftur og að öllu leyti er val-
inn maður í hverju rúmi. -úd
Lady and the Tramp
Þessi klassíska teiknimynd seglr
frá tíkinni Lafði og fiækingsrakka
sem viö skulum kalla Snata. Hún er sak-
laus og fögur, hann kankvis þorpari meö
hjarta úr gulli. Þegar Lafði lendir í ræsinu
tekur Snati hana upp á arma sína (ef hund-
ar geta slíkt). Römantikin blómstrar og þau
lenda í ýmsum ævintýrum. -GE
Everyone Says I Love You
Myndin sækir í dans- og söngva-
myndir fjóröa áratugarins og þótt
dansatriðin séu misjöfn að gæðum eru sum
þeirra frábær. Myndin stenst ekki saman-
burö við það besta sem Allen hefúr sent frá
sér en allir aðdáendur Allens ættu þó að sjá
hana. Leikaramir eru ferskir og slagararnir
standa ávallt fyrir sínu. -GE
Perlur og svín ★★★
Fýndln mynd um hjón sem kunna ekki að
baka en kaupa bakarí og son þeirra sem
selur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar
Jónasson hefur einstaklega skemmtilegan
húmor sem kemst vel til skila og í leiðinni
kemur hann viö kaunin á landanum. ðlafía
Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Siguröarson
eru eftirmlnnileg í hlutverkum hjónanna.-HK
Með fullri reisn WHc
Eftir að hafa hneykslast upp í háls (og verða
létt skelkaöir iíka) á hinum íturvöxnu fata-
fellunum The Chippendales uppgötva þeir
félagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark
Addy) aö það að fækka fötum uppi á sviði
er hið arðbærasta athæfi. Það er varla
hægt að hugsa sér betri ávísun upp á
skemmtun en svona sögu og svo sannar-
lega skilaði myndin því grini sem hún lofaði,
meö fullri reisn. -úd
Contact *★★
Jodie Foster er konan sem féll til stjarrr
anna I þessari geim(veru)mynd um trú og
tilverur. Leikstjóra er mikiö í mun að
greina sig frá tæknibrelluþungum og
fantasíufullum geimmyndum og skapa I
staðinn raunsæja og vitræna mynd en
smáfantasla hefði verið holl og góö og létt
aðeins á öllu dramanu. I heildina er
Contact sterk og skemmtileg mynd af því
einfalda en samt viðtæka atviki sem sam-
band við verur utan úr geimi hlýtur aö
vera. -úd
Men in Black ★★★
i MIB er eins og yfirfærslan úr teiknimynda-
sögu í kvikmynd sé aldrei fullfrágengin og
kemur þetta sérstaklega niður á „plottinu".
Áherslan er slík á húmor og stíl að sjálfur
hasarinn verður út undan og I raun virkar
MIB meira sem grinmynd en hasar. En þrátt
fýrir alla galla er þessi mynd ómissandi fyr-
ir alla þá sem láta sér ekkert mannlegt
óviðkomandi. -úd ■
Breakdown r**
Sakamálamynd sem kemur á óvart, góö saga
með myndrænni frásögn um mann sem verð-
ur fyrir því aö eiginkona hans hverfur, I bók-
staflegri merkingu orðsins. Seinni hlubnn er
ákaflega spennandi og hraður. Jonathan
Mostow er leikstjóri og handritshöfundur sem
vert er að fylgjast með. -HK
The Peacemaker ***
Dæmigerð Hollywood-afþreying þar sem allt
sem lagt er af stað með gengur upp, mynd-
in er hröð, spennandi og vel gerð en eins og
með marga „sumarsmellina" sem komiö
hafa frá Hollywood í ár þá er hún innihalds-
rýr og skilur ekkert eftir. Spielberg og félag-
ar í Draumasmiðjunni hefðu átt að byrja af
meiri metnaði. -HK
Bean ★★■*
Af Bean má hafa bestu skemmtun. í henni
eru margar óborganlegar senur sem ég
hefðl koslð að sjá fléttaðar saman af melri
kostgæfnl. -GE
Air Force icki
Harrison Ford er trúverðugur forseti Banda-
ríkjanna, hvort sem hann setur sig I spor
stjórnmálamannsins eða fyrrum Vietnam-
hetju, I spennumynd sem er hröö og býður
upp á góð atriöi. Brotalamir í handriti ásamt
klisjukenndum persónum veikja hana þó til
muna. -HK