Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 9
JjV FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 tónlist™ HLJÓMPLjÍTU Við sama heygarðshornið: flphex Twin - Come to Daddy *** Richard D. James er ekki eins og fólk er flest. Hann hefur verið kall- aður Mozart tíunda ára- tugarins og framúr- stefnuleg rafeindatón- list hans er lofuð fyrir mikinn frumleika og húmor. Á Come to Daddy er hann greini- lega með húmorinn í lagi. Lögin eru uppfull af trufluðum hvæsandi hljóðgervlum, sem eru nokkurs konar vörumerki Aphex Twin, og í gegnum þessi lög hvæsir hann svo einfaldan en kraftmikinn texta. Eins er umslag Come to Daddy skemmtilegt. Þar tekur Richard D. James andlit sitt og splæsir því á hóp af fólki svo úr verða nokkrir Aphex Twin „klónar". Það er kannski það merkilegasta. Er heimurinn tilbúinn fyrir fleiri en einn Aphex Twin? Spilagleði: Coldcut/Let Us Play Coldcut er ein af þess- um hljóm- sveitum sem hafa verið á danssen- unni frá upphafi. Þeir félag- arnir gáfu upptöku- stjórn fyrir poppara upp á bátinn til að geta sinnt til- rauna- kenndri el- ektrónískri tónlist af fullum krafti. Á nýjustu breiðskífu sinni, Let Us Play, gefa þeir tóninn fyrir næsta árþúsund danstónlistar. Þeim tekst vel að halda í þann stíl sem þeir hafa verið að þróa með sér í gegnum árin. Platan er fúll af taktskiptingum, undarlegum hljóðum og frá- bærum melódíum sem svífa yfir taktsúpunni. Coldcut er dæmi um hljómsveit sem er óhrædd að þróa sinn eigin stíl. Allt sem hún gerir er skref fram á við. Þeir félagar eru óhræddir við að gera tilraunir og það er það sem gerir Let Us Play svo skemmti- lega. Coldcut hefur ávallt verið í framlínusveit danstónlistarinn- ar og nýjasta breiðskifan er einungis til að festa hljómsveitina í sessi þar. Við fyrstu hlustun er Let Us Play kannski ekki mjög aðgengileg en hún vex með hverri hlustun uns maður meðtekur hana alla. xloírl-tlildlilnla Goldie, sem er einn af for- sprökkum Drum n’ Bass tón- listarinnar, gefur bráðlega út breiðskífu sem markar ýmisleg tímamót. Goldie hefur á síð- ustu árum verið að vinná sér sess sem einn frumlegasti tón- listarmaðurinn í Drum n’ Bass geiranum og eru sjálfsagt margir sem bíða spenntir eftir útkomu plötunnar sem ber heitið Saturnz Return. Lífs- hlaup Goldies hefur ekki verið neinn dans á rósum. Faðir hans yfirgaf móður hans og systkini þegar Goldie vatr að- eins bam að aldri. Fljótlega eft- ir að faðir hans lét sig hverfa var Goldie komið í fóstur og næstu árin þvældisti hann milli fósturforeldra og munað- arleysingjahæla. Á Saturnz Re- turn gerir Goldie upp dökka hluti í lífi sínu og æskuminn- ingar sem eru miður fallegar. „Mér fannst ég ekki eiga allt þetta góða umtal um tónlist mína skilið," segir hann. „Um árabil hafði ég mikla minni- máttarkennd og var innst inni þessi litli hræddi drengur sem enginn vildi sinna. Ég var á kafl í eiturlyfjum og fór mjög illa með mig.“ Goldie hefur fengið til liðs við sig marga þekkta tónlistarmenn sem eru þekktir fyrir allt annað en Drum n’ Bass. Noel Gallagher, sem er mikill aðdáandi Goldie, leikur í einu lagi á plötunni og David Bowie, sem eitthvað er víst farinn að tileinka sér tölvutakta í seinni tíð, syngur líka eitt lag. Það sem kannski vekur mesta athygli er að á Saturnz Retum er að finna lag sem ber heitið Letter of Fate og voru tónlistarblaðamenn ekki lengi að setja samasemmerki milli þess og bréfsprengju sem Björk fékk senda i pósti. En Börk er fyrrum kærasta Goldie. Fjölskyldulíf Goldies hefur ekki verið upp á marga fiska. Fjöl- skyldan hefur ekki hist síðan hún sundraðist þegar Goldie var yngri. Hann tók það ráð að hafa uppi á karli foður sínum og sameinaði fjöl- skylduna stutta stund á heimili sínu. Það hafði mikið að segja fyrir hann að klára þennan óuppgerða kafla i lífi sínu. Eftir þennan stutta fjölskyldufund lauk Goldie upptök- um á Satumz Retum. Á plötunni er að flnna lag sem hann tileinkar móður sinni og heitir það Mother. Það er rúmlega klukkutími að lengd. KRS-One tekur líka eitt lag með Goldie á Saturnz Retum. Þeir félagarnir hafa reyndar unnið sam- an áður en ekki við tónlist heldur vegglist. Það var þegar þeir til- hejTðu TAT-genginu í New York. Goldie er drátthagur með afbrigðum og hefur helst beitt penslinum eða spreybrúsanum á húsveggi stór- borga. Hann er einnig mikill áhuga- maður um snjóbrettaiðkun og hefur meðal annars komið hingað til lands til að stunda þá íþrótt. Spellbound Deep Ink 2. 3. - tíu vlnsælustu danslögin vikuna 8. tll 14. nóvember 1997 - Somewhere Vision Black Gold of the Sun Nu Yorican Soul 1. niimig 5 ára 4. 5. 6. 7. Sacré Francals Dimitri From Paris Jazz Carnival Azymuth Get Another Plan Abstract Truth Two Wrongs Makln’ It Kevin Vost A t^^ht ljómsveitin Maus verður fimm ára í apríl. Á dögunum kom út ný breiðskífa hljómsveitarinnar sem ber heitið Lof mér að falla að þínu eyra. Þetta er skemmtilegur titill og alls ekki svo fráleitur ef maður hlustar á plötuna. Hún rennur auð- veldlega í gegn og er talsvert frá- brugðin því sem Maus hefúr verið að fást við til þessa. Hljómsveitinni hefur tekist að þróa sinn eigin stíl og þegar félagamir líta til baka eft- ir flmm ára feril eru þeir þakklátir fyrir þá reynslu sem þeir hafa nú í pokahominu. Maus gefúr nú út hjá hinu ný- stofnaða útgáfufyrirtæki Sprota. „Þetta er nýtt fyrirtæki sem gefur út „svona“ tónlist," segir Biggi, for- sprakki Maus. Þegar hann segir „svona“ fær hann eitthvert blik í augun sem nægir til að útskýra hvað hann á við. Það er engin spuming að Maus er í góðu formi þegar félagamir hóp- ast um mig og láta móðan mása. Þeir gera góðlátlegt grín að púður- sykurstónlistinni sem hljómar í út- varpinu og skotin fljúga. Það er greinilegt að þeir eru ánægðir með nýju plötuna. Lof mér að falla að þínu eyra er sjálfsagt ein aðgengi- legasta plata þeirra til þessa. Hún er ætluð fyrir íslenskan markað og bera frábærir textar hennar vitni um það. Reyndar er ætlunin að gera enska kynningarútgáfu á henni og eru strákamir spenntir aö sjá hvað kemur út úr því. Hún verður klár um áramótin og fer þá til helstu út- gáfufýrirtækja erlendis. „Þú lifir ekki á þessu hér á landi. Þér tekst kannski að hafa tekjur af því að vera í hljómsveit nokkra mánuði á ári,“ segja þeir einum rómi. Þeir hafa líka mótað sér ákveðn- ar skoðanir á tónlistarlífmu eftir frnim ára feril. „Við lærðum meira á því að ströggla þessi ár en þeir sem bara rjúka beint á toppinn. Þeir sem rjúka fljótt upp hafa til- hneigingu til að rjúka strax niður aftur. En draumurinn er þó að sjálf- sögðu að geta lifað á því að semja og flytja eigin tónlist," segja þeir. 8. To Be In Love MAW 9. Twist to Forget lcelandic Conspiracy 10. Mr. Slnx Quarashi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.