Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1997, Síða 4
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997 DV
-«N helgina
Ég er óþolinmóð-
urlistamaður
„Ég var mjög ung þegar ég
ákvað að leggja myndlistina fyrir
mig. Ætli ég hafi ekki verið svona
sextán eða sautján ára gömul.
Ég byrjaði í Myndlista- og
handíðaskólanum undir tvítugu
því það kom aldrei annað til
greina en að ég myndi leggja
myndlistina fyrir mig á einn eða
annan hátt.
Ég kláraði skólann árið 1981 og
hef unnið á eigin vinnustofu og
stundað kennslu síðan þá,“ segir
myndlistarkonan Hafdís Ólafs-
dóttir.
leg peningalega heldur líka fé
lagslega því þar hitti ég fólk. Á
vinnustofunni er ég einyrki.
Þar er ég alveg ein og þar
er enginn sem segir
mér að núna eigi
ég að fara á
fætur og í
vinnuna
Myndlistarkonan Hafdís Ólafsdóttir.
Aðspurð um hvernig það fari
saman aö vinna á eigin vinnu-
stofu og stimda myndlistar-
kennslu segir Hafdís: „Þetta fer
mjög vel saman. Ég kenni hluta af
árinu en nota mest allan minn
tíma á vinnustofunni. Að mínu
mati er nauösynlegt að hafa ein-
hverja fasta vinnu sem veitir
manni fasta innkomu. Kennslan
er hins vegar ekki bara nauðsyn-
eigi ég að fara I kaffi eða mat.“
Aðspurð um hvort mikiil
sjálfsagi sé ekki nauðsynlegur
fyrir listamenn sem vinna einir
segir Hafdís: „Jú, það má segja
það. Ég er mjög öguð þegar ég er
að vinna. Ég vinn í skorpum og
þá vinn ég mjög vel og kannski
einum of mikið. Ég er svo óþolin-
móð að ég verð að sjá útkomu
verksins fljótt. Þess vegna vinn ég
mjög hratt.“
En hvernig lýsir Hafdís verk-
um sínum og aðferðum? „Ég vinn
mikið með náttúruna og sérstak-
lega upplifun mína á náttúrunni.
Myndir mínar eru þó ekki lands-
lagsmyndir heldur vinn ég með
óhlutbundin form og velti þvi fyr-
ir mér hvernig náttúran, t.d.
vatnið eða jöklarnir, getur breytt
um lit og form eftir tíma dags,
árstíð og birtu.“ -glm
Englar eftir Gígju Hermannsdóttur.
ísfletir
Upplifun Hafdísar á ís.
Myndlistarkonan Hafdis Ólafs-
dóttir opnar sýningu á verkum
sínum á morgun kl. 16 í Ásmund-
arsal Listasafns ASÍ. Sýningin ber
yflrskriftina ísfletir. Verkin sem
þar eru sýnd eru máluð undir
áhrifum frá jöklum, jökum, ís-
breiðum, hjarni og snjó, þ.e.a.s.
alls kyns ísflötum.
Jökulís breytir sífeOt um lit eft-
ir tíma dags, árstíð, veðri og birtu.
Hann bráönar og breytir um form.
Það heyrist í honum og það brak-
ar í honum og brestur.
Sýningin nú er sjöunda einka-
sýning Hafdísar. Hún stendur tO
7. desember og er opin alla daga
nema mánudaga miOi kl. 14 og 18.
Hönnuðir Spakmannsspjara eru þekktir fyrir sérstaka hönnun.
Tískusýning að
Gvendarbrunnum
Á morgun verður opnuð sýning í
Listasafninu á Selfossi að Tryggva-
götu 23 sem ber heitið Engladagar.
Þar verða til sýnis englar eftir
ýmsa listamenn úr fjölbreyttum efn-
um.
Forsvarsmaður sýningarinnar er
Hildur Hákonardóttir. HOdur veltir
því fyrir sér hvort englar séu til og
hvernig sé helst hægt að nálgast þá.
Vel á annan tug listamanna og
hönnuða eiga verk á sýningunni.
Meðal þeirra eru leikfangasmiður-
inn Georg HoOande og myndlistar-
konurnar Þóra Hreinsdóttir, Helga
Sigurðardóttir, Alda Sigurðardóttir,
Borghildur Óskarsdóttir, Gígja Her-
mannsdóttir og Þóra Sigurðardóttir.
í tengslum við sýninguna verður
haldið fyrirlestrakvöld miðvikudag-
inn 26. nóvember kl. 20. í Listasafn-
inu á Selfossi. Þar heldur Anna
María Hilmarsdóttir erindi um bók-
ina Boðberar ljóssins sem hún hefur
þýtt og segir frá heimsókn sinni tO
hinnar indversku Móður Meeru.
HOdur Hákonardóttir mun síðan
segja frá kenningum Chris Griscom
um engla, sálarþróun og leiðir tO að
tengjast sínum persónulega engli.
Sýningin stendur tO fostudagsins
28. nóvember og verður opin miOi
kl. 13 og 18 alla daga.
Fyrirtækið Spakmannsspjarir
heldur um þessar mundir upp á
fimm ára starfsafmæli sitt. í tOefni
afmælisins hafa hönnuðir þess
ákveðið að bjóða tO stórrar sýn-
ingar að Gvendarbrunnum í
Reykjavík.
Þar koma fram tuttugu fyrirsæt-
ur sem kynna nýjustu tískuhönn-
un fyrirtækisins.
Tónlistin sem leikin verður á
sýningunni er samansett af fjöl-
listahópnum gusgus.
Dagskráin hefst kl. 16.30 á veit-
ingastaðnum Astró. Þar verður
boðið upp á fordrykk. Klukkan
17.15. verða gestir fluttir með rút-
um að Gvendarbrunnum. Sýning-
in sjálf hefst síðan kl. 18.00. Að
henni lokinni verða bomar fram
léttar veitingar í boði Astró, Sólar-
Víkings og VífilfeOs ehf.