Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1997, Síða 7
TIV FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997
Iffll helgina *.
Sjálfsblekkingin allsráðandi
„Leikurinn gerist á heimili hjón-
anna Pavels og Elenu. Þar búa, auk
þeirra, Lísa, systir Pavels, og þjón-
ustustúlkan Fima. Inn á heimilið
koma kynlegir kvistir með skemmti-
legar ætlanir.
Ég leik Dimitri sem er æskuvinur
húshóndans á heimilinu og heldur við
konuna hans. Dimitri er listmálari
með mjög stórar hugsjónir en minni
hæfileika til að fylla upp í þær. Hann
er svona kaffíhúsalistamaður," segir
Guðmu ndur Ingi Þorvaldsson, einn
af leikurum Nemendaleikhússins.
Aöspurður um hvort hlutverk hans
sé krefjandi segir Guðmundur Ingi:
„Já, þetta er krefjandi, bæði hlutverk-
ið sjálft og einnig leikstillinn sem við
glímum við. Við erum í raun að búa tO
hálfgerðan farsa úr Gorki sem er af-
skaplega spennandi og skemmtilegt
verkefni."
En til hvaða áhorfendahóps á verk-
ið helst að höfða?
„Ég myndi segja að þetta verk höfð-
aði til allra. Við erum búin að fá
menntaskóla- og grunnskólakrakka og
Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
eldra fólk og allir virðast hafa gaman
af þessu. Að sjálfsögðu viljum við svo
einnig fá það fólk sem gæti ráðið okk-
ur í vinnu í framtíðinni. Nemendaleik-
húsið er okkar leið til að koma okkur
á framfæri.“
En hvernig fer valið á verkefnum
Nemendaleikhússins fram?
„Við erum ábyrg fyrir Nemenda-
leikhúsinu að öllu leyti. Við ráðum til
okkar leikstjóra og veljum síðan verk-
efni i samráði við hann. Verkið verð-
ur að bjóða upp á hlutverk fyrir alla
svo við fáum öll tækifæri til að sýna
hvað í okkur hýr.
Við völdum Börn sólarinnar vegna
þess að það verk fjallar á svo skemmti-
legan hátt um fólk sem lifir í sjálfs-
blekkingu, þ.e. þennan feluleik sem
flestir kannast að einhverju leyti við.
Allir halda alltaf að enginn viti hvað
þeir eru að bralla þótt þeir viti hvað
allir aörir aðhafast. Þetta er mjög
skemmtilegt því í verkinu lifa allir í
sínum heimi, vissir um að ekkert fái
raskað honum, en á endanum verðui’
að koma til einhvers uppgjörs." -glm
Björn Thoroddsen plokkar gítarstrengi
sína í Norræna húsinu á sunnudaginn.
Djass í
Norræna
húsinu
Nokkrir lcmdskunnir tónlistarmenn
leika djass á myndlistarsýningu
Tryggva Ólafssonar í Norræna húsinu
á sunnudaginn, kl. 15.
Tónlistarmennirnir eru Björn
Thoroddsen gítarleikari, Ámi Sche-
ving víbrafónleikari, Carl Möller pí-
anóleikari, Róbert Þórhallsson kontra-
bassaleikari og Guðmundur Stein-
grímsson trommuleikari.
Páll Óskar í Ingólfscafé:
Ætla að afstressa fólk
„Ég renni eiginlega alveg blint í
sjóinn með viðtökumar við þessari
tónlist. Það má kalla þessa tónlist
þægindatónlist eða „easy-listen-
ing“. Ég ætla aö gera tilraun í Ing-
ólfscafé til að
afstressa
fólk,“ segir
Páll Óskar
Hjálmtýsson,
sem í kvöld
ætlar að
hregða sér í
hlutverk
plötusnúðs-
ins og spila
þægindatón-
list og „soft“
diskólög fyrir
gesti Ing-
ólfscafé milli
kl. 23 og 03.
Að sögn
Páls Óskars
er þæginda-
tónlist létt og
svífandi tón-
list frá sjötta
og sjöunda
áratugnum.
„Þessi tónlist
er aftur að
verða vinsæl „. . . ...„
í Evrópu, t.d. PaM 0skar i anda sjotta
við opnanir á
myndlistarsýningum því fólk er far-
ið að fatta brandarann við þessa
tónlist. Hana á ekki að taka alvar-
lega.
Þetta er ekki danstónlist því fólk
á að geta notið þess að tala saman
undir henni og rétt dillað sér með
kokkteilglösin i hendi.
Ég ætla að reyna að skapa þægi-
legt andrúmsloft með þessari tónlist
sem er algjör andstæða við þetta
venjulega grenjandi stuð þar sem
áratugarins.
fólk nær að drekka sig fullt, lenda á
trúnaðarskeiðinu og fara heim með
einhverjum á tveimur timum."
Allar plötiunar sem Páll Óskar
mun spila á Ingólfscafé em úr
einkasafhi hans.
En hvemig kviknaði áhugi Páls
Óskars á þessari tegund tónlistcir?
„Ég er alinn upp á músíkheimili
þar sem allir reyndu að skapa sér
sérstöðu með því að hlusta á mis-
munandi tegundir tónlistar. Þess
vegna er ég op-
inn fyrir öllum
stefnum i tónlist
og útiloka ekki
neitt fyrirfram.
Þessi þæginda-
tónlist hlífir
ekki neinum að
því leyti að þar
má finna brot úr
öllum stefnum.
Mér finnst hún
hara svo yndis-
leg og full af
húmor.“
Aðspuröur um
hvort íslending-
ar þekki lögin
sem teljast til
þessarar þæg-
indatónlistar
segir Páll Óskar:
„Já, flest þeirra
þekkir fólk og
mörg þeirra eru
eiginlega „time-
less classics".
Ég mun spila
lög eftir tónlist-
armenn eins og
Sergio Mendes, Burt Bacharach,
Jean Jacques Perry og Klaus Wund-
erlich. En svo mun ég líka spila
„soft“ diskólög með Donnu Sum-
mer, Ami Stewart, Three Degrees
og fleirum.“
-glm
•4 hausa Lp/sp Nicam-stereo
*2xscart* MyndvakiShowView
* Allar aðgerðir á skjá
* Sjálvirkur hreinsibúnaður.
* Árs minni • 8 liða upptaka
* Fjarstýring
(j(r. 47,900.-^
usa Lp/sp Nicam-stereo
sp.* 2xscart • Myndvaki
• Allar aðgerðir á skjá
insibúnaður
a upptaka
SONHF
54,900/j
» Simi 533 2800
G æ ð i
á góðu verði
• 2 hausa • Mono
•scart • Myndvaki Show View
• Allar aðgerðir á skjá
• Sjálvirkur hreinsibúnaður.
• Árs minni • 8 liða upptaka
• Fjarstýring
ÍKr. 29,900.^
)g Búiö Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö, Búöardal. Vestffiröir: Geirseyjarbúöin,
aumur, ísafiröi. Noröurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Héraösbúa,
;taö. Suöurland: Á.rvakinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
1"
SÝNINGAR
Dada, Kirkjutorgi 4. Sýning á nú-
tímalist eftir 30 listamenn. Opið 12-18
virka daga, 12-16 ld. til jóla.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Kynn-
ing á verkum Margrétar Sveinsdóttur.
Gallerí Borg, Síðumúla 34. Pétur
Gautur sýnir nýjar myndir. Opið virka
daga kl. 10-18, ld. kl. 12-18 og sd. kl.
14-18 til 30. nóvember.
Gallerí Fold, Rauðarárstig. 22. nóv.
kl. 15 opnar Haraldur (Harry) Bilson
málverkasýningu sem stendur til 7.
desember. Opið daglega frá kl. 10-18,
ld. kl. 10-17 og sud. kl. 14-17.
Gallerí Handverks & hönnunar.
14.-29. nóvember stendur yfir sýning-
in Jíátir krakkar“. Opið þd.-föd. frá
11-17 og ld. frá 12-16.
Gallerí Hornið, Ilafnarstræti 15.
Seilout. Baldur Helgason og Birgitta
Jónsdóttir til 3. des. Opið kl. 11-23.30.
Gallerí Ingólfsstræti 8, Reykjavík.
Toon Michiels sýnir rósir til 14. des.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70.'
Sýning á verkum Bryndfsar Björgvins-
dóttir, opin virka daga og líka á sd. frá
14-18 til og með 30. nóv.
tGallerí Regnbogans, Hverfisgötu
54. Sýning á verkum Sigurðar Örlygs-
1 sonar er opin virka daga frá kl. 16-24
f* og 14-24 um helgar.
Gallerí Skruggusteinn, Hamraborg
20a, Kóp. Sýning Bjarnheiðar Jóns-
S dóttur á kiukkum. Opið virka daga frá
1" 12-18 og um helgar kl. 11-16 til 29.
nóvember.
Gallerí Svartfugl á Akureyri. Krist-
ín Sigfríður Garðarsdóttir sýnir leir-
verk til 30. nóv. Opið virka daga frá kl.
15-18 og um helgar kl. 14-18. Lokað á
mán.
j Gallerí 20 m2, Vesturgötu lOa. Jón
I Bergmann Kjartansson með sýningu
jí til 23. nóv.
B Gerðuberg. Sýning á verkum Eggerts
| Magnússonar til 23. nóv. Sýning Ragn-
f ars Erlendssonar stendur til 9. febr.
I 1998. Opið mán.-fim. 10-21; fös.-sun.
1 12-16.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafn-
arfirði. Rebekka Rán Samper til 24.
nóvember. Ný verk Gunnars Kristins-
sonar. Opið kl. 12-18 alia daga nema
1 þriðjudaga til 24. nóvember.
‘ Hæðarbyggð 24, Garðabæ. Jóm'na
Magnúsdóttir, J4inný“, er með sýningu
samtímis á Intemetinu og í vinnustofu
15 sinni. Opið daglega til 23. nóv. frá kl.
f: 14-18. Netfang sýningarinnar er
i| http://www.if.is/ninny.
Intemational Gallery of Snorri Ás-
mundsson, Akureyri. „Tb Hell with
All of Us“. Opið frá kl. 14-18.
: Kjarvalsstaðir við Flókagötu. í
:g vestursal og miðrými eru sýndar ljós-
I myndir eftir þrjátíu erlenda listamenn
| til 23. nóv.; í austursal eru verk eftir
| Kjarval til áramóta. Opið kl. 10-18.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41.
122. nóv. kl. 16 verða tvær sýningar
opnaðar. GryQa: Hulda B. Agústsdótt-
Iir, skartgripir. Ásmundarsalur: Hafdís
Ólafsdóttir, „ísfletir", tréristur. Opið
alla daga nema mánudaga frá kl.
14-18 til 7._desember.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi.
■ Sýning á úrvali úr dánargjöf Gunn-
i laugs Schevings í öllum sölum safnsins
1 til 21. des. f fyrirlestrasal verður sýnd
1 sjónvarpsmynd um Gunnlaug frá 1992.
Opið alla daga nema mán. 11-17.
: Listasafn íslands, Safn Ásgríms
Jónssonar, Bergstaðastræti 74.
| Sýning á uppstillingum og útimyndum
f til febrúarloka 1998. Opið kl. 13.30-16
Id. og sd. Lokað í desember og janúar.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn.
| Guðný Magnúsdóttir sjmir á neðri
hæð. Á efri hæð: Ný aðfóng. Opið alla
1 daga nema mán. frá kl. 12-18 til 21.
f desember.
1 Listasafnið á Akureyri. Sýning á
j verkum listahópsins CREW CUT,
I „(un)blin“.
Listhús 39, Hafnarfirði. Gunnar í.
(( Guðjónsson sýnir verk sín. Opið virka
daga kl. 10-18, ld. 12-18 og sd. 14-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnesi. Sýning á 27 völdum
verkum eftir Siguijón. Opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 14-17.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustig 5.
s Sýning á verkum Harris Syijánens.
* Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. frá
kl. 11-14.
; Norræna húsið. Tryggvi Ólafsson
sýnir málverk og grafík. Sýningin
I stendur til 30. nóv. og verður opin kl.
14-18 alla daga nema mán.
J Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b. Birgir
1 Andrésson, Ralf Samens, GHK Gut-
í mann, SAM & BEN, Ragna Her-
I: mannsdóttir og Hannes Lárusson með
sýningar. Opið daglega nema mán. frá
kl. 14-18 til 23. nóv.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. Sýning á
vatnslitamyndum eftir Gunnar Örn.
Opið daglega frá 14-18.
Vogasel 9. Ingunn Eydal heldur sýn-
i ingu á gleriistmunum. Opið daglega kl.
j 16-19 í nóvember.
j Café Menning, Dalvík. Sýning á
! verkum Þorfinns Sigurgeirssonar.
J Hótel Höfði, Ólafsvík. Sýning sam-
j tímalist eftir íslenska listamenn.
* Listasafn Árnesinga, Tryggvagötu
23, Selfossi. Perlur úr Eystrihrepp, 23
málverk Jóhanns Briems ásamt svart-
J list Katrínar Briem til 23. nóv. Vernd-
arenglar. Englar eflir þekkta lista-
menn og hönnuði. Opið frá kl. 13-18
frá laugard. 22. nóv. alla daga til
föstud. 28. nóv.
í Safnhúsið, Borgarnesi. Bjami Þór
Bjamason sýnir málverk. Opið virka
. daga 14-18 til 15. desember.