Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1997, Síða 10
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997 ilV
24
tónlist
-----
ísland
— plötur ogdiskar-
| 1. (1 ) Spice World
Spice Girls
| 2. ( 2 ) Quarashi
Quarashi
| 3. ( 3 ) Sigga
Sigga Beinteins
t 4. ( 5 ) Trúir þú á engla?
Bubbi
| 5. ( 3 ) Best of
Eros Ramazotti
| 6. ( 6 ) Abba Babb
Dr. Gunni
§ 7. ( 4 ) 1987-1997
Nýdönsk
t 8. (10) Homogenic
Björk
t 9. (11) Portishead
Portishead
| 10. ( 7 ) Pottþótt 9
Ýmsir
I 11. ( 5 ) Pottþétt Rokk
Ýmsir
t 12. ( 8 ) Lof mór að falla
Maus
t 13. ( 9 ) Urban Hymns
The Verve
t 14. (17) Central Magnetizm
Subterranean
t 15. (-) Bergmál hins liðna
Ellý og Vilhjálmur
|| 16.(14) Pottþótt ást
Ymsir
t 17. (15) OK Cornputer
Radiohead
t 18. (Al) Spice
Spico Girls
t 19. ( - ) Mín fláa veröld
Megas
t 20. (—) Bros
Geirmundur
\ London
----- -Jög-
I 1.(1) Barbie Girl
Aqua
Í Z ( 2 ) Tom
Natalie Imbruglia
t 3. (- ) Never Ever
AllSaints
( 4. ( 3 ) Tell him
Barbra Streisand & Celine Dion
t 5. (- ) I Wiil Como to You
Hanson
t 6. (-) You Sexy Thing
Hot Chocolate
i 7. ( 5 ) Something About.../Candle in the...
Elton John
t 8. (- ) Help the Agod
Pulp
| 9. (-) Better Day
Ocean Colour Scono
| 10. ( 4 ) Spico Up Your Life
Spice Girls
NewYork p
| 1.(1) Candle in the Wind 1997
Elton John
t 2. ( 2 ) You Make Me Wanna...
Usher
| 3. ( 3 ) How Do I Live
Leann Rimes
t 4. ( 5 ) All Cried out
Allure Featuring 112
t 5. ( 8 ) My Body
LSG
) 6. ( 6 ) My Love Is the SHHHI
Somothin' for the People
| 7. ( 4 ) 4 Seasons of Loneliness
Boyz II Men
t 8. ( 7 ) Tubthumbing
Chumba Wamba
t 9. ( 9 ) The One I Gave My Heart to
Aaliyah
t 10. (— ) Foel So Good
1.....Masi • .. '......... ^
Bretland
—-=plöturogdiskar-
J 1. { 1 ) Spicoworld
Spice Girls
| Z ( 2 ) Urban Hymns
The Verve
t 3. ( 3 ) Greatest Hits
Eternal
| 4. ( 4) Paint the Sky with Stars
Enya
t 5. ( -) Like You Do...The Best of
Lighting Seeds
t 6. ( 8 ) White On Blondo
Texas
| 7. ( 6 ) Lennon Legend - The Very Best of
John Lennon
| 8. ( 5 ) Postcards From Heaven
Lighthouse Family
t 9. ( -) Backstreet's Back
Backstreot Boys
| 10. ( 7 ) Quoon Rocks
Queen
Bandaríkin
—plötur og diskar ——
11 1. (1 ) Harlem World
Mase
t 2. ( — ) Come On Over
Shania Twain
t 3. (- ) In My Lifetime
Jay-Z
t 4. (- ) The 18th Letter
Rakim
| 5. (2 ) You Light Up My Life
Loann Rimes
t 6. ( 8 ) Tubthumber
Chumba Wamba
| 7. ( 4 ) Butterfly
Mariah Carey
t 8. (- ) Spiceworld
Spice Girls
| 9. ( 6 ) Tho Danco
Floetwood Mac
$10. ( 7 ) Aquarium
Aqua
Það má segja að upphaf Green Day hafi verið
þegar faðir Billie Armstrongs, söngvara og gítar-
leikara sveitarinnar, gaf honum bláan rafmagnsgít-
ar á tíunda afmælisdeginum og dð stuttu seinna.
í gagnfræðaskóla hitti Billie síðan Mike Dimt
bassaleikara. Þeir félagar stofnuðu sveitina Sweet
Children nokkrum árum seinna og gáfu út eina
plötu sem þeir seldu mestmegnis sjálfir. Þeir fluttu
síðan frá smábænum Rodeo í Kalifomíu þar sem
þeir ólust upp og kalla reyndar skítapleis enn þann
dag í dag. Ferðinni var heitið til Berkeley. Þar
djömmuðu þeir með ýmsum sveitum en hugurinn
var ætið bundinn viö eigin hljómsveit.
Þeir vora búnir að finna nafn sem var til komið
úr bamaþættinum Sesame Street en þar var orða-
tiltækið Green Day notað um letidag og vísar
kannski til hassneyslu þeirra félaga á þessum
árum. Þeir ákváðu síðan að innlima trommarann
John Kiffmayer í sveitina og leita sér að plötu-
samningi.
Heista pönkútgáfufyrirtæki Berkeleys, Lookout!
Records, var ekkert yfir sig hrifið og reyndi að
losna við drengina með því að senda þá 250 kíló-
metra leið norður á bóginn í hrörlegan kofa til að
flytja fyrir sig nokkur lög. Billie og Mike ákváðu að
láta ekki deigan síga og mættu i kalsaveðri i kof-
ann þar sem allt var læst og ekkert rafmagn að
finna. Eftir að þeir félagar höfðu brotist inn og
lappað upp á gamla ljósavél neyddist erindreki út-
gáfufyrirtækisins loks til að hlusta á þá og varð
yfir sig hrifinn!
Trommarinn fékk nóg!
Billie hætti í menntaskóla nokkrum dögiun áður
en debut plata sveitarinnar kom út og einbeitti sér
að þvi að skipuleggja tónleikafór hennar en hún
kom fram á ails 45 stöðum. Eftir túrinn var
trommarinn búinn að fá nóg og hætti.
Eigandi Lookout!, Larry Livermore, benti þeim á
undrabamið Frank Edwin Wright III. sem tólf ára
gamall hafði spilað tímabundið með sveit
Livermore, The Lookouts. Livermore var fljótur að
endurskíra drenginn því nafni sem hann ber enn í
dag sem sviðsnafh, Tre Cool. Nú var endanleg skip-
an sveitarinnar komin.
Næsta plata sveitarinnar, Kerplunk, kom út 1991
og vinsældir voru töluverðar. Sveitin var í sjö
mánuði á tónleikaferðalagi eftir útkomu Kerplunk.
Green Day bjó þó enn við harðan kost, t.d. óku þeir
félagar til Kanada í þröngum bíl og héldu á hljóð-
færunum í fanginu!
Árið 1993 gerði sveitin samning við útgáfufyrir-
tækið Reprisal Records og vora reyndar gagnrýnd-
ir fyrir að selja sig stærra merki! 1994 kom svo
platan Dookie sem kom sveitinni endanlega á topp-
inn. Lögin Basketcase og Longwiew af plötunni
komust nánast í fyrsta sæti á mörgum listum og
eftir að Green Day kom fram á Woodstock II tón-
leikunum seldist platan í tveimur milljómnn ein-
taka.
Árið 1995 byrjaði vel fyrir sveitina sem sendi frá
sér lagið When I Come around og toppaði lista á
nýjan leik. MTV hafði nú tekið sérstöku ástfóstri
við Green Day og sýndi í tima og ótíma myndbönd
við lög sveitarinnar. Lagið Basketcase var einnig
útnefnt til Grammy-verðlauna og meðlimir Green
Day útnefndir sem bestu tónlistarmenn ársins
1994. En kannski má best merkja vinsældir sveitar-
innar þegar hljómsveitin Creedle gaf út lagið I’ts
Not Cool to Like Green Day Anymore.
Green Day gaf út plötuna Imsomniac í septem-
ber 1995 sem naut töluverðra vinsælda og nú ný-
verið kom út platan Nimrod en lagið Hitchin’A
Ride hefur gert það gott að undanfómu. Annað lag
á plötunni, A King For A Day, fjallar á sérstakan
máta um dragdrottningar en eins og venjulega era
textar Green Day undirfurðulegir og ekkert verið
að skafa utan af hlutunum.
-ps
- hlaðið á nýjan leik
Sólarganga
Eitt alskemmtilegasta lagið sem
hljómar í útvarpinu um þessar
mundir er lag með hljómsveitinni
Smash Mouth. Lagið heitir
Walking on the Sun og minnir
mjög á það sem meistari Beck
Hanson hefur verið að fást við.
Hljómsveitin Smash Mouth er
bandarísk og er inni á ska-punk
línunni líkt og hljómsveitin No
Doubt.
Smash Mouth eru pönkarar sem
hafa ekki mikla trú lengur á
drungalegu og þunglyndislegu
pönkrokki. „Þó textamir geti verið
bitrir má tónlistin vera hress og
fyndin," segir Kevin Coleman,
trommari sveitarinnar. Lagið Ner-
vous in the Ailey kom hljómsveit-
inni á kortið þegar útvarpsstöð
nokkur í San Francisco fór að
spila það á fullu. í kjölfarið fylgdi
svo útgáfusamningur og loks gull-
plata. í Bretlandi er mikill áhugi
fyrir sveitinni enda er Bretland
þar sem pönkið varð til.
Til stendur að hljómsveitin
komi fram í Top of the Pops sjón-
varpsþættinum á næstunni. Með-
limir sveitarinnar eru miklir
Bítla- og Stones-aðdáendur og
hlakka mjög til að koma til
London.
-JAJ
Nú er komin út sjöunda breiðskífa
hljómsveitarinnar Metallica. Þetta er
seinni hluti plötunnar Load í þeim
skilningi að lögin á þeirri nýju vora
tekin upp á sama tíma og lögin á
Load. Upphaflega átti Load að vera
tvöfold en meðlimir Metallica vora
hrifnari af þeirri hugmynd að geta
gert tvær plötur úr sama uppptöku-
ferlinu og geta svo borið þær saman.
Upptökur hófust í maí árið 1995 og
næstu sex mánuðina voru Metallica
svo í byrjun árs 1996 að sú ákvörðun
var tekin að skipta plötunni upp í
tvær heilsteyptar einingar. „Við vild-
um reyna að gera tvær plötur sem þó
gætu staðið einar og sér. Ekki plötu a
og plötu b,“ sagði Lars Ulrich,
trommari sveitarinnar, um þessa
ákvörðun. Sem fyrr er það upptöku-
stjórinn, Bob Rock, sem er við takk-
ana í upptökum Metallica og í hljóð-
verinu lögðust menn á eitt við að
halda í þetta eina rétta Metallica
Metallica