Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1997, Page 11
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997
Mnlist
Hljómsveitin Beastie Boys kom
fyrst fram á sjónarsviðið árið 1986
þegar lagið Fight for Your Right to
Party, af breiðskífunni Licensed to
ni, sló í gegn. Hljómsveitin var stofn-
uð árið 1981 af þeim Adam Yauch
(MCA) og Mike Diamond (Mike D).
Þá spilaði sveitin pönktónlist og má
til gamans geta að einn meðlimur
sveitarinnar var þá Kate Schellen-
bach sem nú er í hljómsveitinni Luci-
ous Jackson. Eftir að hafa gefið út
þröngskífuna Polly Wog gekk nýr
maður til liðs við sveitina. Það var
Adam Horowitz (Ad Rock) sonur leik-
ritaskáldsins Israel Horowitz. Be-
astie Boys eru allir frá New York og
hrifust þeir mjög af rappinu sem
hljómaði á hverju götuhorni og
ákváðu að reyna fyrir sér á þeim
vettvangi. Árið 1983 gáfu þeir út
fyrstu tólftommuna sína sem innihélt
rapptónlist. Hún bar nafnið Cokkie
Puss og vakti áhuga útgefandans
Rick Rubin sem bauð hljómsveitinni
samning hjá útgáfufyrirtæki sínu Def
Jam sem hann rak í samvinnu við
Russel Simmons, umboðsmann Run
DMC. Rick Rubin ráðlagði hljóm-
sveitinni að halda sig við rappið og
fara að þróa sinn eigin stíl innan
þeirrar stefnu, sem hún gerði. Áður
en Licensed to 111 kom út árið 1986
voru Beastie Boys búnir að fá mikla
og góða kynningu. Þeir hituðu bæði
upp fyrir Run DMC á tónleikaferða-
lagi þeirra um Bandaríkin og fyrir
Madonnu. Licensed to 111 fór beint á
topp bandaríska Billboardlistans þeg-
ar hún kom út. Hörðustu rókkaðdá-
endur vegsömuðu plötuna líkt og
rappaðdáendur og er platan mest
selda frumraun hljómsveitar hjá Col-
umbia-útgáfunni fyrr og síðar. Árið
1989 kom önnur breiðskífa Beastie
Boys út undir merkjum Capitolútgáf-
unnar eftir langar og harðar lagadeil-
ur við Rick Rubin. Hún bar nafnið
Paul’s Boutique og endurspeglaði
nýjar hliðar á Beastie Boys. Upptöku-
stjóramir Dust Brothers, sem meðal
annars hafa unnið mikið með Beck,
sáu um upptökur á Paul’s Boutique
sem er bræðingur af funk-, soul- og
djasstónlist. Þótti rappstíll Beastie
Boys breytast á Paul’s Boutique og
voru þeir ffekar í rólegri kantinum á
henni. Þeir komust þó inn á topp 40 á
bandaríska listanum með lagið Hey
Ladies sem varð geysivinsælt á MTV-
sjónvarpsstöðinni.
Hurðin gaf sig
Árið 1992 má segja að Beastie Boys
hafi farið aftur til upphafs ferils síns.
Þá kom út breiðskífa þeirra, Check
Your Head, sem er að mestu leyti
handspiluð af hljómsveitinni sjálfri.
Þeir djömmuðu saman og röppuðu
svo ofan á lögin. Þeir önnuðust allan
hljóðfæraleik sjálfir en fengu þó til
liðs við sig húsasmiðinn og hljóð-
færaleikarann Mark Ramos Nishita
(Money Mark) til að sjá um útsetn-
Djassinn í
dansinum
Drum n’ Bass stefnan gerist æ öfl-
ugri meö hverju árinu sem líður.
Margir litu svo á að hún hefði fest
sig í sessi fyrir alvöru þegar Roni
Size fékk Mercury-tónlistarverð-
launin á dögunum fyrir breiðskíf-
una New Forms. Eins bíða menn í
ofvæni eftir nýrri breiðskífu Goldie
sem kemur út í janúar. Á henni nýt-
ur hann aðstoðar tónlistarmanna á
borð við David Bowie og Noel
Gallagher. En að sjálfsögðu eru þess-
ar tvær breiðskifur einungis toppur-
inn á isjakanum. Drum n’ Bass er í
sífelldri þróun og margir að fást við
þetta form tónlistar. Tony Justice er
annar helmingur dúettsins Blame &
Justice sem kom fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1990 með laginu Death
Row sem markaði viss tímamót og
er að vissu leyti upphaf Drum n’
Bass stefnunnar. Hann kynntist svo
DJ Pulse sem rekur Creative Wax
útgáfufyrirtækið og í sameiningu
ákváðu þeir að einbeita sér að því
ingar og hljómborðsleik. Það kom
þannig til að í partíi sem Beastie
Boys hélt var fjörið svo mikið að úti-
dyrahurðin gaf sig. Þá var hringt á
viðgerðarmann sem var enginn ann-
ar en Money Mark og tókst vinskap-
ur með þeim upp úr því. Check Your
Head markaði nýja stefnu i rapptón-
list þar sem platan var að mestu laus
við sömpl og tölvufitl. Allt var hand-
spilað á henni og fylgdi hljómsveitin
svipaðri stefnu á 111 Communication
sem kom út fyrir einum þremur
árum. Þá var MTV-sjónvarpsstöðin
jafnmikilvægur hlekkur í kynningu
og fyrri daginn. Myndbandið við lag-
ið Sabotage varð eitt vinsælasta
myndbandið á MTV árið 1994. Sama
ár var Beastie Boys aðalnúmerið á
Lollapalooza tónleikaferðalaginu sem
jók enn á vinsældimar. Snemma árs
1996 sendi Beastie Boys frá sér plöt-
una The in Sound from the Way out
sem er uppfull af instrumental lögum
sem eru helst í ætt við kvikmynda-
og easy listening tónlist. Það er
reyndar ekkert skrítið að Beastie
Boys séu ekki iðnari við eigin útgáfu
þar sem þeir reka sitt eigið útgáfufyr-
irtæki og hafa nóg að gera þar.
að gefa út
framúr-
steínulegt og
djassað
Drum n’
Bass. Fyrsta
samstarfs-
verkefni
þeirra var
breiðskífan
Emotions
with Intellect
sem hlaut
frábæra
dóma og var
talin ein albesta drum n’ bassplatan
þar til Roni Size og Reprasent-klík-
an hans stálu senunni með New
Forms. Síðan eru liðin þrjú ár og nú
eru þeir DJ Pulse og Tony Justice
mættir aftur til leiks með breiðskíf-
una Modem Urban Jazz. Á henni er
að fmna samruna djasstónlistar og
Drum n’ Bass. Þetta er eitthvað sem
maður hefði haldið ómögulegt fyrir
nokkrum árum. Að djasstónlist
myndi nokkum tíma tengjast poppi
eða danstónlist. En það virðist vera
raunin á Modem Urban Jazz. Hvað
svo sem alvörudjössurum finnst um
það.
-JAJ
Evrópsk tónlist í
öndvegi
Adam Horowitz er kvæntur leik-
konunni Lone Skye og hefur hann
snúið sér talsvert að leiklist. Hann
hefur farið með hlutverk í myndun-
um Lost Angels og Roadside Prop-
hets. Mike D sér að mestu um dagleg-
an rekstur Grand Royal-útgáfunnar
og um útgáfu tímaritsins Grand Roy-
al. Adam Yauch, sem er búddisti, hef-
ur verið ötull stuðningsmaður tíbet-
sku frelsishreyfingarinnar og haldið
tvenna risatónleika til styrktar mál-
staðnum.
Nýlega opnaði Beastie Boys skrif- f
stofu Grand Royale í Bretlandi. Þar
ætlar hljómsveitin að einbeita sér aö
því að gefa út evrópska tónlistar-
menn og hljómsveitir og jafnvel gefa
út tímaritið sitt fyrir breskan mark-
að. Ný breiðskífa frá Beastie Boys er
væntanleg á nýju ári og bíða sjálfsagt
margir spenntir eftir henni.
-JAJ
mbrace
og egóið
Árið 1976 var pönkið í algleym-
ingi í Bretlandi og flestir heilluð-
ust algjörlega af þessari tónlist-
arbombu sem tröllreiö heims-
byggðinni. Það er að segja allir
nema hinn fimm ára Danny McNa-
mara sem var gjörsamlega heillað-
ur af Elvis Presley. Hann sat lang-
tímum saman fyrir framan sjón-
varpið og horfði á kvikmyndir
kóngsins. Seinna meir lærði hann
mjaðmasveiflu kóngsins og aðra
tilburði, vinum og vandamönnum
til mikillar kátínu. Eftirhermum-
ar vöktu líka mikla hrifningu
stúlknanna í skólanum hans og
voru þær allar langskotnastar í
honum. Það má með sanni segja
að sem ungur drengur hafi Danny
verið kóngur. Nú er hann orðinn
26 ára og er forsprakki hljómsveit-
arinnar Embrace og ætlar sér að
endurheimta einhvers konar kon-
ungdóm að minnsta kosti.
Hann hefur haldið því fram frá
þvi í febrúar að Embrace sé miklu
betri hljómsveit en Oasis og The
Verve og virðist ætla að halda
þeirri fullyrðingu til streitu. „Oas-
is hefur samið ein sex eða sjö
klassísk lög. En við erum betri,“
segir Danny. Þess má til gamans
geta að Noel Gallagher, sem mætti
á tónleika Embrace í sumar, sagði
að Danny þyrfti að læra að syngja.
Þessi rígur milli hljómsveita er að
verða hefð í bresku rokki þar sem
menn upphefja sjálfa sig og hljóm-
sveitir sínar á kostnað annarra
tónlistarmanna. -JAJ
Á
±1
Sóldögg á
Akranesi
Hljómsveitin Sóldögg
leikur á Langasandi á
Akranesi í kvöld og í
Stapanum í Njarðvík
ásamt Helga Bjömssyni
annað kvöld.
Anna Vil-
hjálms á Næt-
urgalanum
í kvöld og annað kvöld
leikur hljómsveit Önnu
Vilhjálms á Næturgalan-
um í Kópavogi.
GOS á Akra-
nesi
Hljómsveitin GOS leikur
í Fjölbrautaskóla Akra-
ness í kvöld og á Gauk á
Stöng annað kvöld.
Skítamórall á
Norðurlandi
Hljómsveitin Skítamórall
leikur í Sjallanum á Ak-
ureyri í kvöld og I Víkur-
röst á Dalvík annað
kvöld.
8-villt
Hljómsveitin 8-villt leik-
ur á veitingastaðnum ír-
landi um helgina.
Greifarnir á
Hótei íslandi
Greifarnir spila á Hótel
íslandi í kvöld og á Ing-
hóli á Selfossi annað
kvöld. Tilefnið er útkoma
nýs geisladisks þeirra, „í
ljósaskiptunum".
Klappað og
klárt
Dúettinn klappað og
klárt, sem er skipaður
Garöari Karlssyni og
Kristbjörgu Löve,
skemmtir á Rauða Ijón-
inu um helgina.